Þjóðviljinn - 20.01.1978, Qupperneq 2

Þjóðviljinn - 20.01.1978, Qupperneq 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 20. janúar 1978 skíðavörum MORLOK skiði m/stálköntum og öryggisbindingum: „X 121” dömu og herrastærðir kr. 44.950 „TURBO 10” dömu og herrastærðir kr. 41.330 „PIONER” barna og unglingastærðir verð 21.850 til 31.390 „FAVORIT” gönguskiði m/gormabindingum 20.950 Barnaskiði með bindingum 6.325 DACHSTEIN skiðaskór verð: 8.670 til 14.950 Skíðastafir, verð frá 1.280. Skíðabindingar. Skíðablússur, peysur, buxur, húfur og vetlingar DOMUS AUGIÝSING UM INNLAUSN VERÐTRYGGÐRA SPARISKÍRTEINA í 2.FL. 1965 OG NÝJA ÚTGÁFU SPARISKÍRTEINA í 1.FL1978 Lokagjalddagi verötryggöra spariskírteina í 2.fl. 1965 er 20. jan. 1978 og bera skírteinin hvorki vexti né bæta viö sig verðbótum frá þeim degi. Fjármálaráöherra f.h. ríkissjóös hefur á grundvelli fjárlaga þessa árs ákveðið útgáfu á verötryggöum spariskírteinum í 1,fl. 1978 að fjárhæö 1000 millj. kr. Athygli handhafa spariskírteina frá 1965 er vakin á þessari útgáfu með tilliti til kaupa á nýjum spariskírteinum, en sala þeirra hefst 14. febrúar n.k. Handhafar skírteina frá 1965 geta hins vegar fráog með 20. þ.m. afhent skírteini sín til Seðlabank- ans, Hafnarstræti 10, gegn kvittun, sem bankinn gefur út á nafn og nafnnúmerog staöfestir þar meö rétt viðkomandi til aö fá ný skírteini fyrir innlausnarandvirði hinna eldri skírteina. Bankar og sparisjóðir geta haft milligöngu um þessi skipti til 14. n.m. auk þess sem nýir kauþendur geta látiö skrifa sig fyrir skírteinum hjá venjulegum umboðs- aðilum til sama tíma. Er fyrirvari settur um að færa niður pantanir, ef eftirspurn fe'r fram úr væntanlegri útboðsfjárhæð. Kjör hinna nýju skírteina verða þau sömu og skírteina í 2.fl. 1977. Þau eru bundin fyrstu 5 árin. Meðaltalsvextir eru um 3,5% á ári, innlausnarverð skírteina tvöfaldast á lánstímanum, sem er 20 ár, en við það bætast verðbætur, sem miðast við þá vísitölu byggingarkostnaðar, sem tekur gildi 1. apríl 1978. 20.janúar 1978 SEÐLABANKI ÍSLANDS Atli Heimir, Hijómeykiö og hljóöfæraieikarar á æfingu. Ljósm. Kristján Kristjánsson. Frumflutningur á „Litlum ferjum” ]\Iúsíkin 1 ljóðum Ólafs Jóhanns „í rauninni hef ég samiö ákaflega litið, aöeins markaö stefnuna”, segir tónskáldiö Tónlistarfélagið efnir til nýstár- iegra tónleika i Austurbæjarbiói á morgun, laugardaginn 21. janúar, I Austurbæjarblói kl. 19. Þar verða fram fiuttar „Litiar ferjur” — sex lög við ljóð eftir Ólaf Jóhann Sigurðsson úr bókum hans Að laufferjum og Að brunn- um. Atli Heimir og ólafur Jóhann hlutu tónlistar- og bókmennta- verðlaun Norðurlandaráðs árið 1976, en um ástæðuna fyrir þvi að hann semur nú lög við ljóð ólafs Jóhanns segir Atli Heimir: ,,Ég hef löngum verið heillaður af ljóðum Ólafs Jóhanns, bæði af hinu látlausa og fágaða formi þeirra, og hinum hljóðláta en áleitna boðskap þeirra. En ég var lengi að finna þeim þá tóngerð sem mér fannst hæfa. Þetta er ekki músik við ljóð i heföbundn- um skilningi, heldur hef ég reynt að draga fram þá músik sem býr i Ijóðunum sjálfum. Hljómur þeirra og boðskapur ákveður yfirbragð og form tónlistarinnar. 1 rauninni hef ég samið ákaflega litið, aðeins markað stefnuna. Og sú stefna beinist inná við — inn i viðáttur vitundarinnar. Hlutur flytjenda I sköpun verksins er ákaflega mikilvægur, þeim er gefið mikið frelsi innan vissra marka.” Verkið samanstendur af sex kórlögum við ljóð Ólafs Jóhanns: Að laufferjum, Ef til vill, Hvert liggur þessi vegur, Þögn og brunnar. Gæti ég og Þú minnist brunns. Hljóðfæraþættir eru á milli laganna, einnig forspil og eftirspil. Alls eru þættir verksins, sungnir og leiknir, fimmtán að tölu. Fyrstu fimm þættir verksins (þar af tvö kórlög) voru frum- fluttir i Norræna húsinu s.l. vor á hátfðasamkomu, sem haldin var i tilefni að 25 ára afmæli Norðurlandaráðs. Fyrri hluti verksins var þvi saminn s.l. vor en siðari hlutan- um var lokið haustið 1977. Það er söngflokkurinn Hljómeyki sem kemur textum ljóðanna til skila i Austurbæjar- biói á morgun. í honum eru Áslaug ólafsdóttir, Elin Sigur- vinsdóttir, Guðfinna Dóra Ólafs- dóttir, Kristin ólafsdóttir, Ruth Magnússon, Sigurður Bragason, Guðmundur Guðbrandsson, Hall- dór Vilhelmsson og Rúnar Eiriks- son. Tónlistarflutninginn sjá þau um Guöný Guðmundsdóttir, fiðla, Monika Abendroth, harpa, Jónas Ingimundarson, pianó, Reynir Sigurðsson, vibrafónn og Atli Heimir Sveinsson, selesta. Laga- smiöurinn stjórnar einnig flutn- ingnum. Af Atla Heimi er það meðal annars titt að hann mun á næst- unni sitja I dómnefnd hinnar alþjóðlegu tónsmiöakeppni Gaudeamus-stofnunarinnar I Hollandi. — ekh Hjördis Antonsdóttir, ein af forvigismönnum söfnunarinnar, afhendir Öddu Báru Sigfúsdóttur söfnunarféð, en hún tók við þvi fyrir hönd stjórnarinnar Starfsfólkiö meö sjúklingunum: Söfnuðu fé til sundlaugarinnar Sundlaug við Endurhæfinga- deild Borgarspitalans við Grensásveg hefur verið til tals- verðrar umræðu s.l. 1—2 ár. Borgarstjórn Reykjavikur hefur lýst yfir vilja sinum á að koma uþp lrv" viö deildina og Alþingi samþyK fyrir siðustu jól 20 milj. króna fjarveitingu til sund- laugabyggingarinnar. í þessari viku mun svo fjárframlag Reykjavlkurborgar verða ákveð- ið. Að frumkvæði nokkurra hjúkrunarfræðinga, sjúkraliða og starfsstúlkna Borgarspitalans var fyrir skömmu hafin fjársöfn- un meðal starfsfólks spitalans með hina miklu þörf fyrir sund- laugarbygginguna i huga. Var lagt til að hver starfsmaður legði fram kr. 1000 og söfnuðust kr. 360.000 samanlagt frá starfs- fólki og fáeinum sjúklingum. Upphæðin var afhent stjórn sjúkrastofnana Reykjavikur- borgar þann 17.1 ’78 og skal henni varið til tækjakaupa (t.d. sjúkl- ingalyftara) á sundlaugarbarm- inn. Meðfylgjandi mynd var tekin á Gresásdeild, er peningarnir voru afhentir. Starfsfólkið vildi með þessari söfnun sýna i verki samstöðu með lömuðum og fötl- uðum sjúklingum og leggja svo- litið af mörkum til þess að æf- ingarlaug fáist við Grensásdeild- ina. 1 frétt um málið segir: Stjórn sjúkrastofnunar Reykja- vikurborgar þakkar þetta frjálsa framlag og vekur samtimis at- hygli á þvi jákvæða hugarfari starfsfólks Borgarspitalans, sem liggur að baki söfnun þessari.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.