Þjóðviljinn - 20.01.1978, Page 4

Þjóðviljinn - 20.01.1978, Page 4
4 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 20. janúar 1978 Málgagn sósíalisma, verkalýðshreyfingar og þjóðfrelsis Útgefandi: Útgáfufélag Þjöðviljans. Framkvæmdastjóri: Eiöur Bergmann Ritstjórar: Kjartan ólafsson Svavar Gestsson Fréttastjóri: Einar Karl Haraldsson. Umsjón með sunnudagsblaöi: Arni Bergmann. Auglýsingastjóri: Gunnar Steinn Pálsson Ritstjórn, afgreiösla, auglýsingar: Sföumúla 6, Simi 81333 Prentun: Blaöaprent hf. r Islenskur fiskur í Bandaríkjunum. —Tvöföldun sölu- tekna á 3 árum Þær upplýsingar hafa nýlega komið fram frá Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna og SÍS, að á siðasta ári hafi velta dóttur- fyrirtækja þessara aðila i Bandarikjunum verið um 51 miljarður króna. Veltan hjá Coldwater, dótturfyrirtæki Sölumiðstöðvarinnar, var milli 37 og 38 miljarðar, og velta Iceland Product, dótt- urfyrirtækis SÍS, var milli 13 og 14 mil- jarðar á árinu 1977. Þetta eru háar upphæðir. Til saman- burðar mætti t.d. hafa i huga, að árið 1977 voru tekjur rikissjóðs okkar Islendinga um 90 miljónir króna samkvæmt f járlög- um, og sýnir það að tekjur hinna islensku fiskvinnslu- og fisksölufyrirtækja i Banda- rikjunum námu fullum helming af öllum tekjum rikissjóðs. Þetta eru risafyrirtæki á islenskan mælikvarða, og þau selja yfirgnæfandi meirihluta af þeim hraðfrysta fiski, sem er aðalútflutningsvara okkar íslendinga. Hvað hefur verið að gerast á fiskmörk- uðunum i Bandarikjunum siðustu árin, og hvað hefur verið að gerast i rekstri þess- ara fyrirtækja? Hér heima er árlega gefið upp, hvert hafi verið heildarsöluverðmætið, sem fékkst á Bandarikjamarkaði fyrir söluaf- urðir islensku fyrirtækjanna. Sé litið á þróunina i þessum efnum siðustu ár, þá kemur i ljós, að árið 1974 var samanlagt söluverðmæti beggja islensku dótturfyrir- tækjanna i Bandarikjunum um 114 miljón- ir dollara. Þrem árum siðar.árið 1977, var heildarsöluverðmætið hins vegar komið upp i nær 237 miljónir dollara. Séu þessar tölur umreiknaðar i islensk- ar krónur miðað við núverandi gengis- skráningu, þá blasir við að árið 1974 seldu islensku fyrirtækin i Bandarikjunum fisk- afurðir fyrir 24 — 25 miljárða isl. króna, en þremur árum siðar, þ.e. nú i fyrra, fyrir 51 miljarð króna. Árið 1977 fengu þeir sem halda á pen- ingakössum Sölumiðstöðvar hraðfrysti- húsanna og peningakössum SÍS i Banda- rikjunum 26—27 miljörðum islenskra króna meira i kassana heldur en þeir höfðu fengið þremur árum áður. Þetta er bara mismunurinn,og þó var árið 1974 gott ár i þéssum viðskiptum. Þessar auknu sölutekjur hafa að sjálf- sögðu allar verið greiddar í dollurum, i raunverulegum verðmætum, en ekki i hrapandi islenskum krónum. Þessi upphæð 26—27 miljarðar króna, það er að segja bara sá hluti söluverðmæt- isins i fyrra, sem er bein hækkun frá árinu 1974, —sú upphæð samsvarar um 600 þús. krónum á hverja einustu fimm manna fjölskyldu á íslandi. Hváð varð um alla þessa peninga? Það væri fróðlegt að fá ýtarlega skýrslu um það. Eitt er vist: ekkert, alls ekkert af þeim kom i hlut þess fólks, sem vinnur við fisk- framleiðsluna i hraðfrystihúsunum hring- inn i kringum ísland. Það fólk fékk ekki hærri laun á árinu 1977 heldur en 1974; það fékk að visu fleiri krónur, en kaupmáttur launanna var sist hærri,sé litið á ársmeð- altöl i viðurkenndum opinberum skýrsl- um. Það hefði sannarlega verið búbót, ef sérhver 5 manna f jölskylda á Islandi hefði fengið kr. 600 þús. i sérstaka launauppbót árið 1977 ofan á samskonar launakjör og hér giltu árið 1974. Það hefði líka mátt gera ýmislegt annað við dollarana sem komu I kassa islensku fyrirtækjanna i Bandrikjunum i fyrra um- fram sölutekjur sömu aðila árið 1974. Ef islenska rikið hefði fengið slika við- bótarupphæð i hendur, þá hefði það t.d. getað gefið eftir allan tekjuskatt einstakl- inga, enborgað mönnum i staðinn tvöfald- an tekjuskattinn til baka. Með slika upp- hæð i höndum hefði isl. rikið lika átt þann valkost, að fella söluskattinn nær al- veg niður, og lækka þannig allt verðlag i landinu á siðasta ári um 15 til 20%. Sliku fjármagni hefði að sjálfsögðu einnig verið hugsanlegt að verja til verklegra fram- kvæmda, og hefði þá t.d. mátt tifalda framlög rikisins til byggingar nýrra þjóð- vega á siðasta ári. Ekkert af þessu skeði enda fékk rikið ekki þessa peninga. — A þessi dæmi er hins vegar bent hér til að undirstrika það, hversu háar upphæðir hér er um að ræða. En þessi mikla hækkun sölutekna is- lensku fyrirtækjanna i Bandarikjunum hefði engin orðið, ef ekki hefði komið til vinna þess fólks, sem stritar hörðum höndum við sjósókn og fiskvinnslu á ís- landi. Þetta fólk á væntanlega rétt á að fá að vita hvað varð af þessum 123 miljónum dollara — það er söluaukningu á 3 árum —, fyrst það fékk ekki að sjá neitt af þeim sjálft. Hvað fór i aukinn kostnað? Hver er eignaaukning fyrirtækjanna? Við endurtökum kröfu okkar um opin- bera skýrslu um málið. — k. 1 Með kveðju til Birgis ísleifs 1 forystugrein Norðurlands, málgagns Alþýðubandalagsins á Norðurlandi, fimmtudaginn 12. þessamánaðar sendir Helgi Guð- mundsson Birgi lsleifi og hans nótum tóninn. Hér er ekki á ferð- inni karp um landsbyggð gegn borg, heldur gerir H.G. tilraun til þess að skilgreina hvað felst I til- lögum borgarstjórnarmeirihlut- ans i Reykjavik um „úrbætur” i atvinnumálum. Þessi Akureyrar- rödd er gott innlegg i þá atvinnu- málaumræðu sem nú stendur yfir i Reykjavik. Ósvífnar atvinnu- málatillögur „Borgarstjórnarihaldiö i Reykjavlk rak upp ramakvein á sl. ári þegar ljóst var að atvinnu- mál höfuðborgarinnar standa ekki á mjög traustum grunni. Þessi staöreynd var aö sjálfsögðu ekki nýtilkomið fyrirbrigði. Sósi- alistarnir i borgarstjórninni hafa um árabil hamraö á því að at- vinnumálastefna meirihlutans i borgarstjórninni væri röng og andstæö hagsmunum verkafólks. En hagfræöingur borgarinnar tók samanskýrslurummálið á sl. ári og komst að þeirri niðurstöðu að Reykjavikurborg væri afskipt að þvl er varöaði alla fyrirgreiöslu opinberra sjóða og lánastofnana. Þvi væri nú svo komið fyrir Reyk- vlkingum aö fyrirtækjum f fram- leiðslugreinum fækkaði en fjölg- aði I þjónustugreinum. Þetta væri N0RÐURLAND Málgagn sósíalista í Norðurlandskjördæmi eystra Ritnefnd: Böðvar Guömundsson, Helgi Guðmundsson, Sofffa Guð- mundsdóttir. Þórir Steingrlmsson og Þóra Þorsteinsdóttir. Ritstjóri: Þröstur Haraldsson (ábm.). Borg fyrir brask Borgarstjórnaríhaldið í Reykjavík rak upp ramakvein á sl. ári þegar ljóst var að atvinnumál hofuðborgarinnar standa ekki á mjög traustum grunni. Þessi staðrevnd Birgir tsleifur: Hleöur undir auðstéttina. varhugaverð þróun, sagði I skýrslunni, og ástæðan sem fyrr segir fyrst og fremst sú að fjár- festingalánasjóðir bæru ekki sömu umhyggju fyrir Reykvik- ingum og öðrum landsmönnum. Nú hefur borgarstjórinn hins vegar kynnt landsmönnum tillög- ur sinar til úrlausnar á þessum vanda Reykvikinga. Eins og við var að búast Ur þeirri átt þá taka tillögur þessar, eins og þær hafa veriö kynntar I fjölmiðlum, fyrst og siöast mið af hagsmunum þeirrar auðstéttar sem hreiðrað hefur um sig I Reykjavik og stjórnar borginni meö það eitt aö leiöarljósi að einkaframíakið fái þar ótruflaðan starfsfriö. Tillögur borgarstjórans í at- vinnumálum eru i hæsta máta ósvifnar aö ekki sé meira sagt. í þeim hugmyndum sem Birgir Is- leifur kynnti I sjónvarpinu nýver- iö, örlaöi ekki á neinni stefnu- breytingu hjá ihaldinu. Allt það sem borgarstjórnarmeirihlutinn Helgi Guömundsson: ósvlfnar tillögur. hyggst fyrir á næstunni i atvinnu- málum, er ætlað til þess eins, að styrkja og lagfæra aðstöðu hvers- konar atvinnurekenda. Og ekki er Ibúöabröskurunum gleymt, þeim aöilum sem hafa haft miljaröa króna I hagnað á undanförnum árum, þá þvi aö braska með lóðir og Ibúðir I höfuöborginni. Auðstéttin hyggst styrkja stöðu sína Aðspurður segist borgarstjórinn leggja til aö haft verði samráð við atvinnurekendur og bygginga- meistara um það hvernig lóöaút- hlutun verði nú best fyrir komið svo aö freistandi verði að halda áfram að byggja. Hann talar um lækkun gatnagerðargjalda og ýmsar aðrar breytingar sem hniga I sömu átt. En borgarstjór- inn ætlar ekki að láta þar viö sitja. Nota á fjármuni Reykvik- inga til þess að stofna ný fyrirtæki og eignast hlut i öðrum sem eiga i erfiöleikum. Vist væri gott eitt um þetta að segja ef ætlunin væri aðtryggja meðþessu félagslegan eignarréttá atvinnufyrirtækjum. Nei. Flokkur sem vill afhenda einstakiingum Landssmiðjuna, Slippstöðina, Sigló-síld o.fl. o.fl. fyrirtæki i rikiseigu að gjöf hann er að sjálfsögðu ekki aö koma á fót fyrirtækjum i eigu borgarinn- ar. Blákalt segir borgarstjórinn að slíkt ástand skuli bara vara um tíma. Þegar nýstofnuö fyrir- tæki eru komin yfir byrjunar- erfiðleikana, þá er talið rétt að af- henda þau einstaklingum, og fyr- irtækjum, sem þarf að bjarga meöeignaraðild borgarinnar.á aö skila til einstaklinganna þegar þau eru aftur orðin arðvænleg. Atvinnumálastefna af þvi tagi sem hér hefur veriö lýst er auð- vitað ekki annað en vitnisburður um á hvern hátt auðstéttin hyggst beita valdi sinuá höfuöborginni, á næstunni, til þess að tryggja hagsmuni sina. Engum þarf aö koma þetta á óvart, slik ráðstöf- um er fullkomlega eðli sinu sam- kvæm. Bitur reynsla launafólksins i sjávarþorpunum I kring um land- iö, af þvi hverjar skyldur eigend- ur fyrirtækjanna telja sig eiga við verkafólkiö þegar gróöinn minnk- ar, ætti að geta fært mönnum heim sanninn um það að einasta vörn verkafólks og trygging fyrir öruggri atvinnu er aö fyrirtækin séu i höndum þess sjálfs með ein- hverjum hætti. Það er ekki slikt öryggi sem borgarstjórnarihaldiö i Reykjavik ætlar aö veita verka- lýðsstéttinni. Nei, þvert á móti, Reykjavik skal hér eftir sem hingaö til vera borg fyrir brask, af hverskonar tagi.”

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.