Þjóðviljinn - 20.01.1978, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 20.01.1978, Blaðsíða 16
DJÚDVIIJINN Föstudagur 20. janúar 1978 Aöalsimi bjóöviljans er 81333 kl. 9-21 mánudaga til föstu- daga, kl. 9-12 á laugardögum og sunnudögum. Utan þessa tima er hægt aö ná i blaöamenn og aöra starfs- menn blaösins I þessum simum: Ritstjórn 81382, 81527, 81257 og 81285, útbreiösla 81482 og Blaöaprent 81348. 81333 Einnig skal bent á heima- slma starfsmanna undir nafni bjóðviljans i sima- skrá. Enn er allt í óvissu med fiskverðið: Máliö strandar hjá ríkisstj órninni þar sem uppi er ágreiningur um hvaöa rádstafanir skuli gera Útvarps- maður til Afríku Páll Heiðar Jónsson dagskrár- maður hjá Ctvarpinu er farinn til Grænhöfðaeyja (Cape Verde) og Gineu-Bissau i boði Aðstoðar ls- lands við þróunarlöndin. bað kom fram i samtali viö Hjört Pálsson dagskrárstjóra, aö Aöstoð Islands við þróunarlöndin ásamt systurstofnunum sinum á Norðurlöndunum býður árlega fréttamönnum og öðrum fulltrú- um fjölmiðla að fylgjast með þvi starfi, sem þessar stofnanir inna af höndum. Páll Heiðar mun koma aftur heim um næstu mánaðamót og er ætlunin, að hann geri þá dag- skrárþætti úr þessari ferð og segi hlustendum frá þvi sem hann hef- ur séð og heyrt og f jalli um ástand mála i þessum löndum. Jafn- framt mun hann kynna starfsemi þróunaraðstoðarinnar á Noröur- löndum i þessum löndum. — betta er óvenjulegt tækifæri fyrir dagskrárgerðarmann frá okkur, að ferðast svo langa leiö til að afla efnis, og ég á von á aö þetta geti orðið fróðlegir þættir, þegar þar að kemur, sagði Hjört- ur Pálsson að lokum. — eös Heildar- fiskaflinn 1977 nær 1400 þúsund lestir Heildar fiskafli landsmanna ár- ið 1977 varð 1.365.194 lestir, sem er lang mesti afli sem nokkru sinni hefur borist á land á Islandi. Arið 1976 varð heildaraflinn 985.663 lestir, munar þarna nærri 400 þúSund lestum. I heildaraflanum er hlutur loðnunnar stærstur, en árið 1977 veiddust 809.000 lestir af loðnu, á móti 458.731 lestum árið áður. Botnfiskaflinn varð einnig meiri 1977 en árið á undan eða 471.379 •lestir á móti 436.940 lestum árið á undan. — S.dór Páll Heiðar Jónsson. Hættíð Nemenda/undur Myndlista- og handíðaskóla tslands samþykkti eftirfarandi áiyktun i gær: Vegna þeirra hugmynda, er borgarráö hefur samþykkt á skipulagi „Hallærisplansins” og Enn er allt i óvissu meö nýtt fiskverð. og þrátt fyrir nær dag- lega fundi hjá yfirnefnd, sem er sá aðilinn, sem formlega ákvarð- ar fiskverðið, gengur hvorki né rekur. Eins og Kristján Ragnars- son, formaður LltJ, sagði i sam- tali við bjóðviljann fyrr i vikunni, á rikisstjórnin næsta leik, afskipti hins opinbera verða að koma til. nærliggjandi svæöis, viljum viö taka fram eftirfarandi: Undanfarin ár hefur þal) gers't æ tiöar að gömul hús eru látin vikja fyrir peningakössum versl- unar- og skrifstofuveldisins. Og nú er máliö strand hjá rikis stjórninni. bjóðviljinn hefur þaö eftir á- reiöanlegum heimildum, að á- greiningur sé innan rikisstjórnar- innar um þaö hvaöa ráöstafanir skuli geröar og aö þessi ágrein- ingur sé ástæðan fyrir þvi aö á- kvöröun um fiskverö dregst svo mjög, sem raun ber vitni. bessir glerkassar hafa risið upp I berhögg viö umhverfi sitt.og meira hefur verið hugsaö um hagkvæmni fjárgróöans en sjálf- sagöa fegrun umhverfisins. Gömui hús i gamla miðbænum Framhald á 14. siðu Viö inntum Olaf Jóhannesson, viöskiptaráðherra, eftir þvi i gær hvort rétt væri aö ágreiningur væri um máliö innan rikisstjórn- arinnar. Ólafur geröi hvorki aö játa þvi né neita, sagöist ekki vilja ræða það mál. En aöspuröur um hvenær vænta mætti ákvörö- unar hjá rikisstjórninni, sagöi hann aö nú færi að styttast I nýtt fiskverö, þaö ætti aö vera komiö i næstu viku. ,,En þarna er við óskaplega mikinn vanda aö glima”, sagði ráðherra, en vildi ekki nefna þá fjárupphæðsem um væriaö ræöa, en hún væri há. — Miljarðar? „bað myndi liöa yfir þig ef ég nefndi upphæöina’’ sagöi Ólafur Jóhannesson. Ekki náöist i forsætisráöherra i gær eða fyrradag, og sjávarút- vegsráöherra var sagður i frli og kæmi ekki til vinnu fyrr en i dag, 20. janúar. — S.dór Flug- freyjur hafa samið Nýir kjarasamningar hafa ver- ið undirritaðir milli Flugfreyjufé- lags tslands og Flugleiða h.f. Samningaviðræöur milli þess- ara aðila hafa staðið yfir siöan i október og hafa á þessum tima verið haldnir 9 samningafundir. Að sögn eru þessir nýju samn- ingar svipaðir þeim sem aörar stéttir hafa gert frá þvi i vor, en þar sem ekki var búið aö bera nýju samningana undir félags- fund (það átti að gera i gær- kvöldi) er ekki hægt að skýra frá efnisatriðum þeirra. — S.dór. Margir telja að Hótel Vik, Vallarstræti 4, sé eitt fegursta timburhús miðbæjarins. Framhliðin sem snýr aö Ilallærisplaninu er fagurlega skreytt eins og sjá má. — Mynd AI. S Nemendafundur Myndlista- og handíðaskóla Islands: við nlðurrlfið leggja VL-málið gegn Þjóðviljanum dómtekið: VL-ingar neita ad fram tölvugögnin Hér er verið að niðast á sak- lausum mönnum, hér er borin fram af illum hvötum rakalaus gagnrýni. bannig komst hinn prúði og kurteisi lögmaöur VL-manna aö oröi fyrir Hæsta- rétti I gærmorgun er hann svar- aði ýtarlegri varnarræðu Inga R. Helgasonar, hrl. Lögmaöur VL-inga, sem sækja menn til saka fyrir meiöyröi, kaus þann- ig aö beita oröalagi sem um- bjóöendur hans kalla meiöyröi og krefjast fyrir refsingar, sekta og tugthúss. 1 ræöu sinni neitaöi VL-lög- maöurinn aö leggja fram tölvu- gögn Varins lands. Ingi R. Helgason lauk ræöu sinni i gærmorgun og talaöi hann alls i þrjár og hálfa klukkustund. Rakti hann ýtar- lega þær venjur sem tiökast i meiðyrðamálum i grannrikjum okkar þar sem lagagrundvöllur er þó svipaöur og hérlendis. Rakti hann siöan ummælin sem eru alls 69 talsins og rökstuddi þau. Minnti hann á aö héraðs- dómur heföi taliö aö 59 þessara meintu meiöyröa ættu aö vera refsilaus meö öllu. I ummælum þeim sem Ingi fjallaöi um i gærmorgun voru meðal annars nokkur atriöi úr forystugreinum og fréttum bjóöviljans voriö 1974, réttfyrir kosningar, er stefnurnar komu fram i þessum umfangsmestu meiöyröamálaferlum hér á landi. t þeim ummælum likti bjóöviljinn stefnunum viö galdraofsóknir, og stefna VL-ingar fyrir þá Samlikingu. Minnti Ingi á I þessu tilefni sem oftar aö hér væri um pólitiskt likingamálað ræöa. Jafnframt minnti hann á aö ekki heföi dómara skort lagastoö er þeir felldu galdradóma sina á fýrri öldum Islandssögunnar. baö voru ofsóknir samt þó aö þær styddust við lagabókstafinn. Ingi vitnaöi i ræöu sinni til vlsu er Bjarni Asgeirsson kvaö þegar meiöyrðalöggjöfin var til meöferöar á alþingi: „bó maöur brigsli manni/um magn- aösvinarí/ ogallarsakir sanni/ hann sektist fyrir þvi.” bá kom hann aö ummælum sem bjóöviljinn haföi birt um hugsanleg tengsl VL-inga viö CIA, bandarisku leyniþjónust- una. Minnti hann I þvi sambandi á aö þessi stofnun heföi jafnan komiö viö sögu I löndum þar sem hágsmunir Bandarikjanna heföu veriö i húfi og þvi ekki óeölilegt að menn ályktuöu sem svo aö slikt heföi einnig gerst hér á landi. Loks lagöi Ingi R. Helgason áherslu á nauðsyn þess aö gera skarpan greinarmun á persónu- æru manna og þvi hlutverki sem þeir heföu kosið sér i qjinberu lifi. Minnti hann á erlenda dóma i þessu sambandi. Gunnar M. Guömundsson kvartaöi fyrst undan svivirði- legum aðdróttunum i ummæl- um bjóöviljans, meöal annars um tengsl undirskriftarsöfn- unnar Varins lands viö Sjálf- stæöisflokkinn. Hann lagði áherslu á að erlendir héraðs- Framhald á 14. siðu

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.