Þjóðviljinn - 21.01.1978, Side 16

Þjóðviljinn - 21.01.1978, Side 16
16 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 21. janúar 1978 byrjendaflokkur, annar, þriðji, og fjórði flokkur; kennari Steinar Árnason. Kennsla hefst mánudag 23. jan.; upplýs- ingar i sima 14106 og 12992 eftir kl. 15. Námsflokkar Reykjavikur Evrópuráðasstyrkir Evrópuráðið veitir styrki til kynnisdvalar erlendis á árinu 1979 fyrir fólk, sem starf- ar á ýmsum sviðum félagsmála. Upplýsingar og umsóknareyðublöð fást i félagsmálaráðuneytinu. Umsóknarfrestur er til 1. mars n.k. Félagsmálaráðuneytið, 16. janúar 1978. Tilboð óskast i nokkrar fólksbifreiðar, jeppabifreiðar, sendibifreið og nokkrar ógangfærar bif- reiðar, er verða sýndar að Grensásvegi 9, þriðjudaginn 24. janúar kl. 12-3. Tilboðin verða opnuð i skrifstofu vorri kl. 5. SALfl VARNALIÐSEIGNA HRI Laus staða Byggingarfulltrúinn i Reykjavik óskar eftir aö ráöa nú þegar tæknifræðing eöa byggingafræðing meö reynslu á sviði byggingartækni. Laun samkvæmt kjarasamningi Reykjavfkurborgar. Umsóknir sendist til skrifstofu byggingarfulltrúa, Skúla- túni 2, fyrir 1. febrúar n.k. Æskilegt að upplýsingar um fyrri störf ásamt prófsklr- teini fylgi. Stöður I Kenya og Tanzanía Danska utanrikisráðuneytið hefir óskað eftir þvi að auglýstar yrðu á Norðurlönd- um 5 stöður við norræna samvinnuverk- efnið i Kenýa. Þar af eru: Ein yfirmannsstaða (administrative officer), tvær ráðunautarstöður um stofnun banka með samvinnusniði, ein ráðunautarstaða um áætlanagerð, ein um starfsmannahlad (personel management). Góð enskukunnátta er áskilin. Þá hefir finnska utanrikisráðuneytið óskað eftir þvi að auglýstar yrðu þrjár stöður við norræna landbúnaðarverkefnið i Mbeya, Tanzaniu. Þar af er: Ein yfirmannsstaða (project coordinator) ein ráðunautarstaða við uppskerurann- sóknir (corp research) ein ráðunautarstaða i búfjárrækt (livestock production manager). Góð enskukunnátta er áskilin. Nánari upplýsingar um allar þessar stöður, svo og umsóknareyðublöð, fást á skrifstofu Aðstoðar íslands við þróunar- löndin, Borgartúni 7 (jarðhæð), sem opin verður mánudaga og miðvikudaga kl. 14.00 — 16.00. Umsóknarfrestur er til 18. febrúar. r Frá aðalfundi Árvakurs á Eskifírði Laugardaginn 14. janúar s.l. var aöalfundur haldinn I verka- mannaf élaginu Arvakur á Eskifírði, aö þvi er fréttaritari Þjóöviljans á Eskifiröi, Hrafn- kell Jónsson, tjáöi Landpósti. t skýrslu stjórnarinnar kom fram, að aðalstarf hennar á liönu ári heföi veriö kjarasmn- ingarnir, sem gerðir voru. Nokkuö bar á þeirri skoöun fundarmanna aö of mikil deyfö rikti i félaginu, eins og reyndar viö vill brenna I fiestum félög- um. Töldu menn aukna fræöslu- starfsemi á vegum félagsins væniegasta ráöiö til úrbóta. Hafa félagsmenn fullan hug á þvi aö gera átak i þeim efnum á yfirstandandi ári. A fundinum var samþykkt að breyta álagningu félagsgjalda á þann veg, aö i staö fastra gjalda verði innheimt prósenta af öllu kaupi, 0,7%. Meö þessu er ætl- unin aö reyna aö leggja traust- ari grunn aö fjárhag félagsins en bágborinn fjárhagur er eitt af þvi, sem staðiö hefur öllu starfi félagsins mjög fyrir þrif- um. Greinilegt var, aö fundar- mönnum þótti þvi fé illa variö, sem greitt er sem styrkur til sérsambanda i Reykjavik, bæði Alþýðusambands íslands og Verkamannasambandsins, þar sem öll sú þjónusta, sem þessi sérsambönd veitafélögunum úti á landi, þarf að greiðast fullu veröi.Leiðir þetta til minni fjár- ráöa hjá þeim og gerir þannig sitt til þess aö torvelda allar til- raunir til að kom á aukinni fræðslustarfsemi og öðrum þeim aögerðum, sem gætu kom- iö til meö að lyfta félögunum upp úr þeim öldudal, sem þau viöast hvar eru i. A fundinum voru m.a. sam- þykktar eftirfarandi ályktanir: „Aöalfundur verkamannafé- lagsins Árvakur á Eskifiröi, haldinn laugardaginn 14. janúar 1978, sendir loönusjómönnum baráttukveöjur og lýsir ein- dregnum stuðningi við kröfur þeirra um bætt kjör”. „Aðalfundurinn...mótmælir harölega þeirri skriðu verð- hækkana, sem duniö hafa á almenningi undanfarna mán- uöi. Jafnframt leggur fundurinn áherslu á, að hverri tilraun rikisvalds til að skerða gildandi kjarasamninga verði mætt af fyllstu hörku”. Fyrrverandi formaöur verka- kvennafélagsins á Eskifiröi, Þórdis Einarsdóttir, afhenti á aöalfundinum geymslukvittun fyrir 266 þús. kr., sem munu vera innistæöa verkakvennafé- lagsins ásamt vöxtum. Verka- kvennafélagið var sameinaö verkamannafélaginu áriö 1972. Þórdis afhenti upphæöina til Árvakurs með þvi skilyrði, að þessum fjármunum veröi variö til byggingar orlofsheimilis fyr- ir félaga verkamannaféllagsins Árvakurs. I stjórn verkamannafélagsins fyrir árið 1978 voru kosnir eftir- taldir menn: Formaður Hrafnkell Jónsson, varafor- maöur Þorbjörg Eiriksdóttir, gjaldkeri Hallur Guðmundsson, ritari Þorvaldur Björgúlfsson, meöstjórnendur Guðjón Björns- son, ölena Magnúsdóttir og Sigriður Ingimarsdóttir. 1 vara- stjórn eru: Björn S. Sveinsson, Ingibjörg Sverrisdóttir og Kristrún Arnardóttir. haj/mhg La Sjúkra- hússsjóður Höfðakaup- staðar 30 ára Á þessu ári eru iiöin 30 ár frá stofnun Sjúkrahússjóös Höföa- kaupstaöar. Hann var stofnaöur 24. júli, 1947, af félagskonum i kvenfélaginu Einingu. Aöalmarkmiö sjóösins var aö beita sér fyrir sjúkrahúss- byggingu á Skagaströnd, en þvi miöur hefur sú grundvallarhug- sjón þessara framsýnu kvenna ekki orðiö aö veruleika, en alltaf veriö mikil þörf á þeirri byggingu. Mörg og vönduö tæki til hjálp- ar þeim sjúku hafa samt veriö keypt fyrir peninga úr þessum sjóöi, og eru þau flest I notkun i læknisbústaðnum i dag. Skulu þau helstu talin hér upp: Fyrst var keypt stórt og vandað gegnumlýsingartæki og styrktu konur úr Skagahreppi þau kaup. Um svipaö leyti var keyptur lampi til ljóslækninga Siöari ár hafa svo veriö keypt hjartalínurit, færanlegur skurð- stofulampi, hitapottur með til- heyrandi púöum, allur rúm- fatnaöur I rúm svo og súrefnis- Lækningatæki, gefin af sjúkrahússjóönum. tæki sem gefiö var til minningar um Magöalenu Helgadóttur frá Læk og hennar fórnfúsu störf i þágu bæjarbúa. Aflaö hefur verið tekna til sjóösins meö merkja- og kaffi- sölu, basar o.fl. Einnig hafa sjóönum borist margar góðar gjafir og eru þeim gefendum öllum, á þessum timamótum, færöar bestu þakkir fyrir. Formaður sjóösins frá stofnun hans hefur veriö Guörún Teitsdóttir, fyrrverandi ljós- móöir. Soffia S. Lárusdóttir Umsjón: Magnús H. Gíslason

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.