Þjóðviljinn - 07.02.1978, Qupperneq 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 7. febrúar 1978
1. umferö
Brown —
Pohigaevsky
Hvitt: Walter Brown
Svart: Lev Polugaevsky
Urottningarbyrjun.
1. d4-Rf6 6- Bd3-d6
2. c4-e6 7. Bxc4-b5
3. Rf3-d5 8. Bb3-b4
4. Rc3-c6 9. Re2-Bb7
5. e3-Rbd7
10. 0-0-Bd6
11. Rf4-0-0
12. Hel-c5
13. d5-e5
14. Rxe5-Hc8
15. e4-c4
16. Rxf6 + -Dxf6
17. Bg5-Dgl
18. Bc2-Hfe8
19. Bf4-Bxf4
20. Dxd7-Db6
21. Df5-Bh6
22. e5-g6
23. Dh3-Bg7
24. e6-Hxe6
25. Rg5-Hxel +
26. Hxel-Rh6
27. Rxf7-Kxf7??
28. Dd7 + -Kg8
29. He7-Dd4
30. De6 + -Kh8
31. Dxg6-Be4
32. Hxe4-Dd7
Og þar með gaf svartur
skákina.
2. mnieré
Friðrik —
Larsen
Hvitt: Friðrik ólafsson
Svart: Bent Larsen
Aljecinvörn
1. e4-Rf6
2. e5-Rd5
3. d4-d6
4. Rf3-g6
5. Bc4-Rb6
6. Bb3-Bg7
7. Rg5-d5
8. 0-0-Rc6
9. C3-BÍ5
10. g4-Bxbl
11. Df3-0-0
12. Hxbl-Dd7
13. Bc2-Rd8
14. Dh3-h6
15. f4-hxg5
16. Í5-Re6
17. fxe6-Dxe6
18. Bxg5-c5
19. Khl-cxd4
20. cxd4-Hc8
21. Bf5-gxf5
22. gxf5-Dc6
23. Hgl-Dc2
24. Hbel-Kf8
25. f6
Og hér fór Larsen yfir
timamörkin með gjörtapaða
skák.
Reykj avíkurskákmótið
Ekki verður það með sanni
sagt, að Reykjavíkurskákmótið,
sem hófst sl. laugardag hafi vald-
ið áhorfendum, sem fjölmennt
hafa á mótsstað, vonbrigðum.
Þvert á móti; ánægja manna með
hið nýja fyrirkomulag sem tvenn
timamörk i hverri skák eru, hafa
vakið athygli og ánægju. Segja
má að flestir meistaranna hafi
lent i timahraki við fyrri mörkin,
30 leiki á 1 1/2 kiukkustund, og
hefur inikið gengið á hjá sumum
rétt fyrir þessi mörk.
Þó hefur enginn keppenda verið
jafn mikið undir smásjá áhorf-
enda og Bandarikjamaðurinn
Walter Brown, enda að vonum .
Maðurinn er einstakur i allri
framkomu, og við skákborðið i
timahraki er hann hreint og beint
skemmtikraftur, hvort sem fólk
botnar eitthvað i skák eða ekki.
Hann getur aldrei setið kyrr, eitt
einasta augnablik, færir mennina
á borðinu af sliku afli og hraöa að
allt ætlar um koll að keyra og
hegðun hans raunar öll hin furöu-
legasta. En sannleikurinn er sá,
Bent Larsen átti aldrei mögu-
leika gegn Friðrik Ólafssyni
(Ljósm. — eik).
Það er alltaf mikið um að vera i kringum Bandarikjamanninn Brown,
sem situr t.v. gegnt Sovétmanninum Polugaevsky. Þeir eru að fara yfir
skákina, sem Brown vann. Friðrik og Larsen fylgjast með (Ljósm. —
eik).
Nýju tímamörkin setja
allt á annan endann
skákmeistararnir flestir í mikiu tímabraki viö fyrri timamörkin
að þótt maður gæti haldið að
Brown geti ekki hugsaö heila
hugsun til enda, ef miðað er við
framkomu hans og hegðun, þá
teflir hann aldrei betur en i botn-
lausu timahraki,og þeir sem best
þekkja til hans, segja að hann sé
alltaf I botnlausu timahraki og sé
þá alveg sama hvort hið hefð-
bundnu timamörk gilda eða þau
sem i gildi eru á Reykjavikur-
mótinu.
Þaö var býsna gaman að sjá þá
sitja sitt hvoru megin við borðið i
1. umferð, Brown og Polu-
gaevsky, hinn hæggerða og sett-
lega Sovétmann, sem aldrei
breytir um svip og situr nær
hreyfingarlaus við borðið allan
timann á meðan Brown var allur
á fleygiferð hinu megin við borð-
ið. En i miklu timahraki sigraði
Brown Sovétmanninn glæsilega.
Brown átti 1 minútu á 6 siðustu
leikina.en Polugaevsky 10 min, en
allt kom fyrir ekki; Brown tefldi
listilega, og við blasti óverjandi
mát hjá Sovétmanninum.
Ahorfendur voru margir á
fyrstu umferð mótsins sl. laugar-
dag, en þó mun fleiri á sunnudag,
en þá má segja að það hafi verið
húsfyllir, bæði i keppnissalnum
og frammi á göngum þar sem
hægt er að fylgjast með skákun-
um á sjónvarpsskjám og eins i
ráðstefnusal Hótels Loftleiða, þar
sem skákirnar eru skýrðar.
Margir voru frammi á gangi og i
ráðstefnusalnum, þegar Friðrik
allt I einu blés til svo grimmilegr-
ar sóknar i skákinni gegn Larsen,
að menn gripu andann á lofti og
það fór kliður um sali. I einni
svipan fyHtist skáksalurinn og
það hefði mátt heyra saumnál
detta, svo spenntir voru menn. Og
allt I einu stóð Larsen uppi með
gjörtapað tafl og hann féll á tima
eftir 25 leiki en þá voru ekki nema
fáir leikir i mátiö. Og i salnum
glumdi við glymjandi lófatak.
Friörik Ólafsson hafði enn einu
sinni snilldartakta við skákborö-
ið, snilld og hörku, sem hann þvi
miður sýnir ekki nógu oft núorðið,
en allir vita að hann getur þetta,
þegar vel liggur á honum.
Ungu skákmennirnir okkar
hafa teflt misjafnlega i þessum
tveimur fyrstu umferðum. Mar-
geir barðist hetjulega gegn Hort i
1. umferð, en gaf eftir, Englend-
ingurinn náði að laga stöðuna og
loks að sigra. Og Helgi Óiafsson
gerði jafntefli við Guðmund Sig-
urjónsson i 1. umferð, en tapaði
svo fyrir Lombardy i 2. umferð.
Jón L. átti aldrei möguleika gegn
Polugaevsky i 2. umferð og tapaði
en Margeir gerði friðsemdar
jafntefli við Ogaard i 2. umferð.
Að öðru leyti visast til töflunnar
um úrslit skáka. __ S.dór
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 VINN. S.B. RÖÐ
1 Helgl ölafsson M W' 0 O '/<
2 william Lombardv L m 'A
3 H pri t T.ars pn / 1 / 0
4 Vlastimil Hort 'Æ m / % '/<
5 Leif ögaard m * 0
6 V/alter Brown m . / / /
7 Jón L. Ámason Ws m 0 O
8 Anthony Miles / m /i A
9 Lev Polugaevsky 0 / A w
10 Jan Sme.ikal 0 n
11 Margeir Pétursson O % 0 m
12 Gannedy Kuzmin 0 'Á. / i
13 Friörik ölafsson * / A
14 Guðmundur Bigurjs. 'A % wrr
19 ár síðan ég hef farið
svona með Larsen
r
sagdi Friörik Olafsson eftir glæsilegan sigur yfir Bent Larsen
,,Já, við Larsen höfum marga
hildi háð við skákboröið um
dagana og gengið á ýmsu, en ég
hef ekki náð að fara svona illa
meö hann síðan á skákmóti í
Hoilandi 1959. Þá sigraði ég
hann áiíka auðveldlega og nú”,
sagði Friðrik óiafsson er við
ræddum við hann eftir hinn
glæsilega sigur hans gegn
Larsen sl. sunnudag. Og það var
ekki bara, að sigurinn væri
sætur vegna þess að þarna átti
Friðrik i höggi við ,,erki óvin-
inn” Larsen, heldur var tafl-
mennska Friðriks með þeim
hætti að skákin á efiaust eftir að
öðlast heimsfrægð.
— Hvað gerðist i raun i þess-
ari skák, Friðrik?
,,Larsen beitir mjög mikið
A)jecin-vörn, og ég fór svo litið
yfir nokkrar skákir hans i
gærkvöldi og mér fannst ég
finna gloppu i vörninni hjá hon-
um og breytti þvi útaf i 8. leik.
Ég hrókfærði þá, en vanalega er
þá leikið f4. Og þetta kom hon-
um greinilega á óvart. Eftir
þetta náði ég yfirhendinni og
raunar yfirburðastöðu stuttu
siðar, þannig að eftirleikurinn
var ekki nema tæknileg
úrvinnsla."
— En þrjár mannsfórnir i
einni skák eru nú ekkert venju-
legt fyrirbæri.
„Nei, kannski ekki, en þær
voru bara liður i þessari tækni-
legu úrvinnslu. Hann átti ekki
um annað að gera en þiggja
tvær þeirra, en við það styrktist
staða min og ég náði þessum
mönnum aftur.”
— Hv 'ig kanntu við þetta
nýja fyrii.-omulag með tima-
mörkin?
,,Ég kann afar vel við þaö. og
greinilegt er,að áhorfendum lik-
ar það vel, enda gerir það skák-
irnar mun skemmtilegri fyrir
áhorfendur, en settur að visu
dálitið meiri pressu á skák-
mennina”
— Finnst þér þú vera
upplagður, eins og sagt er, nú i
byrjun mótsins?
,,Ja, ég var það að minnsta
kosti i dag og maður vonar að
Friðrik ólafsson I þungum þönk-
um i skákinni.
það verði svo áfram. Alla vega
gefur þessi sigur manni byr i
seglin.” — S.dór.