Þjóðviljinn - 07.02.1978, Síða 6

Þjóðviljinn - 07.02.1978, Síða 6
6 SIÐA — ÞJOÐVILJINN Þriðjudagur 7. febrúar 1978 HELGI SELJAN: vegafjár tffl nýframkvæmda síðustu ár Sfðast liðinn fimmtudag hófust á Alþingi umræður um breytinga- tillögu rikisstjórnarinnar við vegaáætlun 1978. t þessari breyt- ingatillögu er gert ráð fyrir að út- gjöld til vegamála aukist um 2300 miljónir miðað við upphaflega áætlun. t umræðum um þessa til- lögu flutti Helgi Seljan ræðu sem gerð verður nokkur grein fyrir 'hér á eftir. Hæpin viðmiðun Helgi Seljan benti á að viðmið- un sú sem notuð væri til aö sýna fram á verulega aukningu vega- fjár samkvæmt þessari breyt- ingatillögu, væri vægast sagt mjög hæpin, þar sem árið 1977 er tekið til samanburðar, en það ár var um aö ræða stórfelld- asta niðurskurð sem þessi mála- flokkur hefur orðið fyrir. Helgi minnti á að stjórnarand- staðan hefði mjög gagnrýnt af- greiðslu vegaáætlunarinnar á sið- asta ári og þann niðurskurð raun- framkvæmda sem þar kom gleggst i Ijós varðandi lands- byggðina. Stjórnarandstaðan hefði gagnrýnt vanefndir á fjár- öflun til vegagerðar samkvæmt áætlun um Norður- og Austurveg, að landshlutaáætlanir væru felld- ar niöur svo sem var um Austur- landsáætlun, og skiptingu þjóö- brautafjár. Studdu aukna f járöflun Alþýöubandalagsmenn hefðu verið reiðubúnir að standa að leiðum til aukinnar fjáröflunar, þó aö þeir hefðu gagnrýnt um leið þingsjá hversu stór hluti tekna af umferð- inni rynni annaö en til vegamála. Gagnrýni i vegamálum hefði þvi ekki verið sýndarmennska og höfðu menn þá til samanburðar ábyrgðarlausa gagnrýni Sjálf- stæðismanna á vinstri stjórnina, þegar þó var um aukningu ár hvert að ræða og i raun aldrei meir unnið að vegamálum en þá. Stór orð þeirra Sjálfstæðismanna þá muni vel geymd, ekki sist i Ijósi þess hvernig þeir nú hafa staðiö að málum. Samkvæmt af- stöðu Alþýðubandalagsmanna til vegamála hefðu þeir þvi greitt atkvæði með þeirri auknu fjár- öflun til vegagerðar sem hin endurskoöaöa vegaáætlun byggir nú á. Þeir hafi að visu haft þann sjálfsagða fyrirvara að aukiö fjármagn til vegagerðar yrði nýtt til þess fyrst og fremst að bæta ástand þeirra vega sem verstir eru og mest þarf fyrir að gera til þess að akfærir megi teljast. Siðan ræddi Helgi þær ákvarð- anir sem teknar voru I vega- málum varðandi Austurland á siðasta ári. Minnti hann á aö Austurlandsáætlun heföi aö mestu leyti verið felld niður, en þó hafi verið búið að gera um hana bindandi samning. Þá minnti hann á að þjóðvegapró- sentan heföi verið lækkuð óeöli- lega mikið eða úr 16% I 11%. Breytt viðhorf í vegamálum Helgi vék siðan máli slnu að þeirri breyttu stefnu i vega- málum sem hann sagði að nyti nú vaxandi fylgis meðal vega- gerðarmanna og byggði hann það m.a. á upplýsingum frá Einari Þorvarðarsyni umdæmisverk- fræðingi á Austurlandi. I fyrsta lagi þyrfti að leggja áherslu á Helgi Seljan aukið viðhald veganna. Viða mætti stórbæta vegina með full- nægjandi viðhaldi þ.e. með góðu malarslitlagi. Með góðum efna- vinnslutækjum sem tryggja að kornstærð sé hæfileg i hvert lag um sig, mætti stórbæta ástand óendurbyggðra vega fyrir ótrú- lega litið fjármagn. 1 öðru lagi mætti með tiltölulega litlum breytingum á burðarlagi og lag- færingum á hæpnustu stöðum, leggja bundið slitlag beint á tals- verðan hluta af þvi vegakerfi Austurlands sem skást er. Þá sagði Helgi að Einar hefði lagt á það áherslu að nauðsynlegt fjármagn fengist til rannsókna og tilrauna svo að best nýting yrði bæði á viðhaldsfé og nýfram- kvæmdafé. Einnig að áður- greindar hugmyndir kæmu sem itarlegast fram á Alþingi og frá sem flestum. Auknar strandferöir Þá sagðist Helgi vilja flytja þá eindregnu skoðun umdæmisverk- fræðings Austurlands að vinna beri að strandferðum okkar með stóreflingu Skipaútgerðar rikis- ins, einmitt til þess að létta að nokkru þeirri miklu þunga- umferð, sem vegina hrjáir og sem hann telur að standi að nokkru i vegi fyrir þeirri nýskipan fram- kvæmda sem hér hefur veriö tæpt á. Raungildi vegafjár minnkuö Helgi benti á að með þvi að bera saman raungildi vegafjár til nýframkvæmda siðustu árin, þá kæmi i ljós, að miðað við tæpa tvo miljarða 1970, þá er fram- kvæmdagildi ársins 1971 3770, árið 1972, 4128, árið 1973, 4689, árið 1974, 3761, árið 1975 fer það niður i 2742, 1976 i 2515 og 1977 niður i 2208 og nú eftir hækkunina i 3113. Þessar tölur væru vel stað- festar og skyldu þær undirstrik- aðar nú þegar megináherslan væri lögð á viðmiðun við árið i fyrra. Sagtfrá fundum Alþýðuflokks og Alþýðubandalags í Siglufirði Finnur Torfi afneitaði vinstri stefnu og hinn hélt sömu ræðuna þrisvar Alþýðubandalagið hélt ágætan og fjölsóttan fund f Siglufirði seinasta sunnudag i janúar og sátu þar fyrir svörum: Baldur Óskarsson, Hannes Baldvinsson og Ragnar Arnalds. Fundarsókn var með ágætum, 60-70 manns, og voru umræður lengst af málefnalegar og fróö- legar. Þegar langt var liðið á fundinn birtust þeir Vilmundur Gylfason og Finnur Torfi Stefáns- son, sem verið höfðu meö fund I Siglufiröi daginn áöur og tóku þeir báðir til máls. Mikla athygli vakti, aö Viimundur flutti nokk- urn veginn nákvæmlega sömu ræðuna og hann hafði flutt tvisv- ar sinnum daginn áður, og hlaut hann bæði hrós og hlátur fyrir þessa óvenjulegu ræðunýtni. Alþýöubandalagið efndi til félagsmálanámsskeiðs þessa helgi og fóru þátttakendur á fund Alþýðuflokksins, sem haldinn var um miðjan dag á laugardag. Sig- urður Hlöðversson og Hannes Baldvinsson lögðu nokkrar spurningar fyrir komumenn. Hannes spurði Vilmund, hvort hann væri visvitandi að löðrunga Finn Torfa með þvi að gera próf- kjör Alþýðuflokksins að aðalum- ræðuefni sinu og með þvi að saka alla þá um einræðistilhneigingar, sem ekki viöhefðu prófkjör. Eins og flestir vissu, væri Norðurland vestra eina kjördæmið, þar sem ekki væri prófkjör á vegum Al- þýðuflokksins um framboö til Al- þingis. Við þessari spurningu fékkst þaö svar eitt, að framboð i kjördæminu væri fyrir löngu ákveðið og þvi ekki hægt aö hafa prófkjör. Ragnar Arnalds ræddi um þá spurningu, hvers vegna Alþýðu- flokkurinn heföi glatað svo miklu fylgi á seinustu árum. Hann spurði talsmenn Alþýðuflokksins, hvort þeir teldu sig fremur vera hægri eöa vinstri menn, hver væri afstaða þeirra til félagslegs reksturs og rikisafskipta, hvort þeir væru andvigir erlendri hersetu i landinu eða ekki og hvort þeir væru talsmenn er- lendrar stóriðju eða ekki. Enginv svör fengust við þessum spurn- ingum, og héldu þeir Finnur og Vilmundur fast við þá kenningu, að enginn málefnalegur munur væri á hægri og vinstri mönnum og engin ástæða til aö taka af- stöðu til þeirra stórmála, sem mest hefur verið tekist á um i Is- lensku þjóðfélagi seinustu ára- tugi. Mikla eftirtekt vakti, að Finnur Torfi vildi sem minnst gera úr áformum rikisstjórnarinnar og stjórnskipaðrar nefndar um sölu rikisfyrirtækja og leitaðist við að telja fólki trú um, að þetta mál væri alls ekki á dagskrá. Skýringin á þessari afstöðu Finns Torfa kom á daginn, eftir að þeir félagar kvöddu, en hún er einfaldlega sú, að hin stjórnskip- aða nefnd sem vinnur að sölu rikisfyrirtækja, m.a. þriggja rikisfyrirtækja i Siglufirði, er ekki aðeins skipuð Sjálfstæðis- og Framsóknarmönnum heldur einnig fulltrúa Alþýðuflokksins, og er það bæjarfulltrúi krata i Hafnarfirði.Guðriöur Eliasdóttir, sem sæti á i nefndinni. Vilmundur vakti hins vegar mesta athygli fyrir, að hann hjakkaði stöðugt i sama farinu. Hann ræddi aðeins um þrjú mál: launakjör alþingismanna, Kröflumálið og prófkjör Alþýðu- Framhald á bls. 14. I I j i ■ I m I ■ I ■ I ■ I ■ I ■ I *»■ I ■ I ■ I i ■ I i ■ MAGNÚS KJARTANSSON: Viðurstygglleg árás á gamalt fólk Ég hef sjaldan orðið eins snöggreiður og i gærkvöld, þegar ég fletti Þjóðviljanum þótt ég þættist vera búinn að lesa hann um morguninn. Ég staldraði við pistil sem var óundirritaöur og þvi ritstjórnar- grein um „bráðskemmtilega og spennandi miðdegissögu” eftir sænsk hjón sem hafa gert reyfaraskriftir að ævistarfi sinu og stytt mér stundir, og það var tekið fram að Ólafur Jónsson bókmenntagagnrýnandi heföi þýtt söguna og flytti hana sjálfur. Siðan stóð að dagskrár- stjórnendur útvarpsins hefðu að undanförnu „vægast sagt verið mistækir á vali á sögum i þenn- an dagskrárlið. Undanfarið hef- ur hvert gamalmennið á fætur öðru mætt með eigin sögu og lesiö yfir okkur útvarpshlust- endum mæddri röddu. En nú hefur orðiö ánægjuleg breyting á.” Ég veit ekkert um miðdegis- sögur útvarpsins, ég hef aldrei á þær hlustað og ætla mér ekki að gera það fyrr en ég leggst i kör, svo að ég get ekki rætt það mat á sögum sem fram kemur i rit- stjórnargreininni. En það sem gerði mig reiðan var sú viður- styggilega alhæfing, að gamal- menni geti ekki samið sögu eða mælt hana fram. Ég hef sem betur fer komist i mjög mikil kynni viö gamalt fólk. Það heimsótti mig mikið meðan ég starfaði i ritstjórn Þjóöviljans og siðar i Stjórnarráðinu, siðustu 3-4 ár hef ég dvalist langdvölum á heilbrigðis- stofnun þar sem ég hef átt kost á að kynnast mjög mörgu gömlu fólki. Reynsla min er sú að aldur fólks skiptir engu máli nema sem tölfræðileg stað- reynd. Gamalt fólk er nákvæm- iega jafn fjölbreytilegt að þvi er varðar greind, tilfinningar, sögumannshæfileika, raddstyrk og annað og fólk á öllum aldri - raunar minnist ég þess frá þvi ég var krakki að mér þótti gam- alt fólk segja sögu betur en aðrir. Ég vil minnast á tvö landskunn dæmi. Ég átti þvi láni að fagna að kynnast Þór- bergi Þórðarsyni vel og tala oft við hann fram undir það að Þór- bergur lést, kominn á háan aldur. Mér þótti hann alltaf jafn greindur og skemmtilegur, frá- sagnargleðin hélst allt til loka á kynnum okkar, einnig þessi sér- kennilega gáskafulla rödd sem enn lifir i hugskoti minu eins og klassisk músik. Halldór Lax- ness hefur lifaö i meira en þrjá aldarfjórðunga. Er hann ekki „gamalmenni” að mati höfundar ritstjórnargreinar Þjóðviljans? Má vænta þess að ritstjórnargreinarhöfundur Þjóðviljans krefjist banns við þvi að honum veröi leyft að flytja „eigin sögu” i útvarp? Halldór hefur einnig mjög sér- kennilegan talanda, en í hljóðum talfæra hans felst að minu mati músik sem stundum hefur opnað mér skilning á orðum sem ég hafði áður lesið á bók án þess að átta mig á undir- tónum þeirra. Ég gæti nefnt aragrúa af hliðstæðum dæmum, islenskum og alþjóðlegum. Þetta á einnig við um fram- sagnarhæfileika :f jöldinn allur af leikurum, islenskum og alþjóð- legum túlkar texta fram á háan aldur miklu betur en þeir sem yngri eru. Vist hefur aldurinn breytingar i för með sér, en þær eru einstaklingsbundnar og hafa ekkert almennt gildi. Akaf- lega margt gamalt fólk hefur hæfileika sem gnæfa hátt yfir meöalhæfileika manna á öllum aldri. Ekki má skilja þessi orð min sem neina árás á Ólaf Jóns- son, ég hef alltaf metið mikils greind hans og skýra framsetn- ingu, einnig talanda hans sem er mjög persónulegur eins og þeirra tveggja rithöfunda sem ég nafngreindi áðan. En ætti ég að‘ velja eitt lýsingarorð um rödd hans mundi ég nota orðið „mæddur”. Reiði min stafaði ekki af þvi að ég las blaður i Þjóðviljanum, slikt ber daglega fyrir augu i islenskum blöðum. En ég minntist þess aö komið hafa upp i veröldinni kenningar um úrvalskynstofna, einnig á okkar öld. 1 þeim kenningum var ekkert rúm fyrir gamalmenni, ekki heldur fyrir likamlega eða andlega fatlað fólk. Ritstjórnar- greinarhöfundur Þjóðviljans ætti að kynna sér þessar kenn- ingar — nema hann hafi þegar gert það og látið sannfærast. Aldurinn hefur aðeins persónubundin áhrif á getu manna, engin sem nota má til alhæfinga. Þetta á ekki aðeins við um jákvæða hæfileika, heldur og neikvæöa. Það eru til fifl og siðleysingjar á öllum aldursstigum: höfundur rit- stjórnargreinar Þjóðviljans getur áttað sig á þvi hvernig eitt eintak þeirrar manntegundar liturútmeö þviaðhorfa i spegil. Reykjavik 4öa febrúar 1978, Magnús Kjartansson

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.