Þjóðviljinn - 08.03.1978, Qupperneq 5
Miðvikudagur 8. mars 1978 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 5
VORBOÐARNIR LJÚFU
Eftir að greinin um fyrirlitn-
ingu á uppruna sinum birtist 14.
jan., varð ég fyrir þeirri
skemmtilegu r^ynslu, að siminn
stansaði varla hjá mér i nokkra
daga, og þar var ekki um að ræða
neitt bölvað kvabb, heldur virtist
þakklátt fólk i biðröð á llnunni. A
götum Uti og vinnustöðvum
klappaði fólk mér á öxlina og
sagði: orð i tima töluð og fleira
fallegt.
En sem betur fer virðist ég lika
hafa komið við kaunin á einhverj-
um, og þeir skulu svo sannarlega
ekki fá að bera þau sem einhverja
guðstyftun án pess að vera amk.
boðin læknishjálp.
Það var dulitið skondin tilvilj-
un, að báðir fyrstu andmælend-
urnir skyldu heita Þröstur. Ég
var farinn að óttast, að þetta yrði
ekki annað en bibibi, en kvæðum
fuglsins verður sem kunnugt er
ekki svarað með rökum. (Auk
þess nennti ég illa eða kunni varla
við að fara að ónotast við þessa
gömlu heimaganga mina frammi
fyrir alþjóð). En svo kom Gisli
Gunnarsson til skjalanna, og þá
var unnt að fara að svara af viti
og lofa hinum að fljóta með. Ég er
mjög sammála fyrrihlutanum af
grein Gisla, en hlýt eðlilega að
gera nokkrar athugasemdir við
seinnihlutann.
Minusum eytt
Fyrst verð ég að eyða tvenns-
konar misskilningi, sem fram
kemur hjá öllum þrem:
1. Það var aldrei ætlun min að
skrifa um þetta leikrit Vésteins
Lúðvikssonar sem slikt, heldur
um vissa vanþekkingu, fordóma
og angurgapahátt, sem ég hafði
lengi orðið var við hjá mörgu
fólki, sem telur sig sósialista. A
þessum fyrirbærum hafði hins-
vegar naumast verið hönd fest-
andi fyrr en i þessu leikriti, þar
sem þau eru túlkuð nokkuð vel.
Hinsvegar er Vésteinn þó það
góður höfundur, að finna má
marga fleti á hans verki. Það
mætti tam allt eins túlka það sem
napra gagnrýni á unga fólkið ekki
siður en Þórð gamla.
Afturámóti setti ég púnktinn
etv. ekki á réttum stað, einfald-
lega af þvi þá var ég farinn að
hafa svo gaman af þessu, að
sköpunargleðin hljóp með mig i
gönur. Sé samt ekkert eftir þvi.
Það er þvi alrangt, að ég hafi ver-
ið i vondu skapi, þegar ég skrif-
aði þetta einsog Þröstur Haralds-
son virðist telja sjálfsagða
kveikju að gagnrýni og veit sjálf-
sagt öðrum betur, að sá hvati er
vissulega til.
2. Það er dagsanna, sem ég
sagði, að sjálfur hafði ég ekki
hugarflug til að varpa upp spurn-
ingunni, hvort umrætt leikrit gæti
talist sýningarhæft i fasistariki,
heldur einn af „gömlu kreppu-
jálkunum”. Og úr þvi svona mik-
ið veður hefur verið gert út af
þessum ummælum, tel ég rétt að
nefna hann með nafni, þvi að ég
veit, að hann skammast sin sist
fyrir sinar skoðanir. Það er
Gunnar össurarson trésmiður, f.
1912 i Kollsvik vestur. Siðar
komst ég að þvi, að hann var ekki
einn um þessar hugleiðingar, og
taldi siðferðilega þarft að koma
þeim á framfæri.
Einsog ég tók strax fram, veit
ég sjálfur ósköp litið um fasisma
af eigin raun, ekki fremur en Gisli
og Þrestirnir. Það væri þá helst i
sambandi við VL. Ég hef ekki
einusinni lesið þetta Samsæri
mikla, sem Gisli talar um einsog
eitthvert Helgakver, og býst ekki
við að nenna þvi úr þessu.
Fullyrðingum
andmælt
Ég hlýt að mótmæla þeirri
staðhæfingu Gisla, að ég viti
„ekkert um pólitiskt lif i Vestur-
Evrópu árið 1957.” Það vill svo
til, að einmitt þetta ár var ég á si-
felldum þveitingi um Vestur-
Evrópu þvers og langs sem
starfsmaður Alþjóðasambands
stúdenta. (Ég hafði nefnilega svo
gott vegabréf og þurfti ekki árit-
anir.)
Það fór ekki hjá þvi, að ýmis-
konar vinstri menn meðal stúd-
enta sæktu þá að þessu fyrirbæri,
sem bæði var frá IUS i Prag og
Stúdentaráði Háskóla íslands. En
þessa stjórnleysingja og trotsky-
ista hans Gísla varð ég naumast
var við, þótt vitaskuld hafi þeir
verið til.
Gisli viðurkennir, að þetta voru
,,að visu litlir og einangraðir hóp-
ar”, en „höfðu haft með sér sam-
tök nokkurn veginn samfleytt sið-
an fyrir strið.” Þetta er ugglaust
rétt. Það er hinsvegar alkunna,
að menn reyna ósjaldan að halda
sjálfsvirðingu sinni með þvl að
gera sinn hlut þeim mun meiri
sem þeir eru smærri og einangr-
aðri, hvort heldur Eik,m-1, telja
sig hluta af voldugri heims-
hreyfingu eða Jón kútur á Gjögri
segir af sér hreystisögur. Þarna
virðist smágat á heimildarýni og
sögulegri yfirsýn Gisla.
Gisli telur, að blekkingin um
tilveru Sovétrikjanna sem verð-
andi fyrirmyndarrikis hafi fælt
ótal verkamenn frá sósialisman-
um og þannig dregið úr baráttu-
getu verkalýðsins, en ekki aukið«
honum áræði og kjark einsog ég
sagði.
Ég vil upplýsa, að ég var mjög
sömu skoðunar og Gisli, þar til
fyrir nokkrum mánuðum, þegar
efni greinar minnar tók að sækja
á mig. (Og það var löngu áöur en
ég vissi nokkuð um innihald þessa
of oft nefnda leikrits, sem er al-
gert aukaatriði). Af varfærni
heimildasafnarans tók ég þá að
ræða um þetta við menn, sem
höfðu lifað þessa tima sem verka-
fólk. Og útkoman er sú, að hvort-
tveggja hafi gerst: Sumum, hin-
um dugmeiri, jókst kjarkur og
áræði, aðrir fældust frá.
Hinu hlýt ég að mótmæla af öll-
um kröftum, að ég telji sósialiska
hreyfingu á Islandi eiga uppruna
sinn i stalinismanum. Sveiattan.
Ég tel ekki nokkra sósialíska
hreyfingu i heiminum, sem það
nafn er gefandi, eiga uppruna
sinn i þeim déskota. Auðvitaö
eiga þær allar uppruna sinn i
þjóðfélagslegu óréttlæti heima
fyrir, þótt allskonar kenningar
berist að hvaðanæva.
SÍA sek eöa sýkn?
Gisli ásakar SIA-menn fyrir
það „vantraust i garð almennra
.félaga” að birta ekki opinberlega
„skýrslur” okkar um ástandið i
Austur-Evrópu og kallar það
„staliniska arfleifð”. Eg get vel
viðurkennt nú, að við vorum þá
óþarflega hlýðnir flokksforyst-
unni, sem hafði vægast sagt litið
álit á þessu grufli okkar og sann-
leiksgildi þess. Enda hefndi það
sin, þegar eintaki af bréfunum
var stolið og Mogginn og Heim-
dallur prentuðu þau meira og
minna brengluð.
Hitt var þó miklu meira atriði,
að meginsjónarmið okkar var
visindaleg varfærni. Það var
blátt áfram nýmæli I sögu sósial-
ismans, að nokkurskonar starfs-
hópur sósialista hefði bæði að-
stöðu, vilja og getu til að fremja
þær athuganir, sem við reyndum.
Þar var i sem stystu máli sagt
reynt að bera saman opinberar
skýrslur og áróður þarlendra yf-
irvalda, áróður auðvaldspress-
unnar og reynslu okkar sjálfra af
áralangri dvöl i þessum löndum.
Ég veit ekki um slikt framtak frá
nokkru öðru landi, enda höfðu
fæstir sömu forsendur og við.
Og svo mikið vissum við, að
jafnvel bestu skoðurum geta yfir-
sést mikilvægir þættir i heildar-
myndinni. Og við vildum einfald-
lega ekki gera neitt fljótfærnis-
legt i eins viðurhlutamiklu máli
og við töldum um að tefla. Við
þóttumst lika þurfa að hittast
öðru hverju og bera saman bæk-
urnar. En það var ekki auðgjört
að halda tiða fundi i starfshópn-
um, þegar menn voru dreifðir um
noröanverðan hnöttinn frá Pek-
ing til Reykjavikur. Liklega gerð-
um við okkur ekki heldur nægi-
lega ljóst þá, hversu mikilvægrar
vitneskju við höfum i rauninni
aflað okkur með þess tómstunda-
gamni.
Ég tel þó, að SIA-menn hafi
bætt fyrir syndir sinar, þvi að
engir hafa fremui; mótað og stað-
ið vörð um sjálfstæða og gagn-
rýna afstöðu Alþýðubandalags-
ins gagnvart flokkaþursunum i
Austur-Evrópu.
Kynslódir og
kokhreysti
I grein Þrastar Haraldssonar
vil ég fyrst minnast á kynslóða-
bullið. Það er einsog ekki sé leng-
ur unnt að tala um stéttir eða
bara fólk, heldur einhverjar ó-
skýrgreindar kynslóðir. Hvenær
byrjar eiginlega ný kynslóð? Ég
er ekki fulltrúi neinnar kynslóðar,
þvi miður, heldur ákveðins hóps
með svipaðar skoðanir. Þröstur
er ekki heldur fulltrúi neinnar
,,68-kynslóðar”, sem betur fer,
heldur annars fremur fámenns
hóps. Ég svara honum lika sem
slikum, en ekki bara einstakl-
ingnum ÞH.
Mér finnst enginn hetjuskapur
fólginn i þvi að skammast við for-
eldra sina. Það er álika merkilegt
og þegar Vilmundur Gylfason
þykist vera að bölsótast úti spill-
ingu kerfisins eða lambhrútur
bukkar hundaþúfu.
En þetta er visst þroskastig,
sem allir lenda einhverntimann i.
Furðulegt, ef Þröstur heldur, að
þetta sé eitthvert sérafrek „68-
kynslóðarinnar”, nema þetta sé
hennar eina afrek. Flest vöxum
við uppúr þessu og förum að
skamma sjálf okkur. Það krefst
miklu meiri manndóms en að
kenna öðrum um.
Auðvitað mislikaði manni oft
við foreldra sina rétt einsog suma
vinnufélaga eða skólasystkin og
fór ekkert dult með þaö. En að
lita á „venjulega afskiptasemi”
sem einhvern „húskross”, það
kannast ég ekki við. Hitt veit ég,
að unglingar á minum aldri voru
miklu verri húskrossar en for-
eldrarnir. Við komum fram viö
þau einsog þau væru vinnudýr,
vorum heimtufrek, löt og tillits-
laus, nenntum aldrei aö vaska
upp, fara út með ruslið eða taka
til eftir okkur. Við vorum miklu
fremur stalinistar heimilisins. Og
mér er fullkunnugt um, að „68-
kynslóðin” er ekki hótinu skárri
aö þessu leyti.
Það mætti lika spyrja, hvenær
„afskiptasemi foreldra” ætti að
taka enda. Þegar barn fæðist?
Þegar það er 5 ára? 10 ára? 15
ára? Eða þegar barnið vill sjálft?
I þessu sambandi vil ég benda
á, að börn geta verið miklir „stal-
Inistar” bæðiheima og I sinnhóp.
Bg man eftir litlum strák, sem
kom eitt sinn inn kvartandi sáran
þvi að stærri strákar kölluðu
n litinn polla. „En ég er eng-
inn lítillpolli.” Hverjir eruþálitl-
ir pollar? spuröi ég. „Þessir 3ja
Og 4ra ára.’ ’ Hann var vist minnt-
ur á þetta á hverju ári, og alltaf
eltust pollarnir — um leið og hann
sjálfur.
Sami drengur var einn forkólfa
t leynifélagi, sem hét „Rauða
nannshöfuðið”. Maður rakst á
reglur fyrir óbreytta félagsmenn,
og 1. grein hljóöaði svo skrifuð
meö 7 ára barnshendi: „Gera það
sem við segjum.”
Ég veit ekki, hvort það eru for-
eldrar, sem innræta börnum
svona hugsunarhátt um valdboð
og hlýðni, eða lestur hasarbóka,
kvikmyndir, eða hvort þetta er
einfaldlega einkenni tápmikilla
krakka. Meira um þaði sambandi
við hinn Þröstinn.
Óviljandi
blekkingar?
Þessi endar mál sitt á svo for-
kastanlegum blekkingartilraun-
um, að ég verð að endurbirta
þann kafla. Hann viðurkennir
fyrst, að ,,68-kynslóðin” hafi ekki
staðið sig nógu vel, en segir sið-
an:
„En ýmislegt jákvætt hafa um-
brotatimar áranna upp úr 1968
skilið eftir sig. Ber þar hæst hina
nýju kvennahreyfingu sem oft er
kennd við rauða sokka. Innan
hennar hafa konur unnið þrek-
virki við að gera upp við kynhlut-
verk sitt.
Væri nú ekki nær, félagi Arni,
aðfylgjafordæmisystra okkar og
hefja ýtarlega — og áreiðanlega
sársaukafulla — krufningu á okk-
areiginkynhlutverkihelduren að
stunda smásmugulegt skitkast og
geðvonskulegt nöldur út I þá sem
sýna viðleitni i þá veru?”
1 fyrsta lagi voru það ekki kon-
ur af „68-kynslóðinni”, sem voru
frumkvöðlar Rauðsokkahreyf-
ingarinnar á Islandi, heldur
miklu fremur konur af „SlA-kyn-
slóðinni”, ef maður á að nota
þessi asnalegu orð.
I öðru lagi veit ég ekki til, að ég
hafi nokkru sinni verið með skit-
kast eða nöldur Uti neina, sem
vilja kryfja kynhlutverk karla.
Hafi ég verið með skitkast, er það
útiþá, sem henda skit i gamla og
góða baráttumenn verkalýðsins.
Éghef ekki einu sinni orðið var
við þessa karlakynhlutverks-
kryfjara, ekki vitað að þeir væru
til hér, þótt svo ég hefði viljað
hendaskiti þá. Enþað vil ég bara
allsekki. Ég stakk þvi þvert á
móti að málsmetandi mönnum
fyrir þrem mánuðum, hvort ekki
væri hugsanlegt aö helga 1. des.
1978 þessu viðfangsefni. Kannski
verður það sársaukafullt fyrir
einhverja, þótt ég skilji ekki al-
mennilega af hverju, þvi ég á vist
bágt meö að setja mig inni sálar-
lif annarra.
Fyrsti maðurinn, sem ég sé
orða þetta vandamál skilmerki-
lega, er Egill Egilsson i Þjóðvilj-
anum i haust. Það var gott viötal,
sem brá ljósi yfir ýmsa einfalda
hluti, líkt og lausn á myndagátu,
hluti sem maður þekkti, en
hafði þó ekki gert sér grein fyrir.
Einsog t.d. það, að kannski eru
strákar jafnvel enn meir tilfinn-
ingalega kúgaðir af tilætlunar-
semi kerfisins en nokkurntima
stelpur. Hinsvegar varð ég fyrir
vonbrigðum með bókina hans,
Karlmenn tveggja tima. Þar varð
allt óskýrara. Bókin er greinilega
mjög litið unnin, og ég skil ekkert
i jafn skaupi gnægðum manni og
Böðvari Guðmundssyni að þykja
þetta fyndið oná alltsaman. Ann-
aðhvort þarf Egill að vinna betur
eða ritfærari menn að gera þessu
efni skil. En þökk sé honum fyrir
frumkvæðið.
I þriðja lagi vegna ávarpsins:
Égveit ég er i alltof mörgum fé-
lögum, það er alltaf verið að
draga mig i einhver félög, en þó
veit ég ekki til að ég sé i einu ein-
asta sama félagi og Þröstur þessi
— og sist sálufélagi.
Valdbod og hlýdni
Um Þröst Ólafsson gæti ég ver-
ið fáorður. Engan hef ég hitt, sem
sér i grein hans annað en
hringsól i þokunni, nema
þriðja Þröstinn, Asmundsson.
(U-hljóðvarp: þras — þrös). Þó
má festa hendur á stöku atriði.
Hann virðist tam. telja, að stal-
inisti sé sú „manngerð sem alltaf
er að hafa vit fyrir öðrum og þolir
ekki aðaðrirhafivit fyrir sjálfum
sér, stangist það á við hans eigin
skoðun”. I lokin fer hann svo að
leggja mér lifsreglurnar. Burtséð
frá þvi, hvað hænan verður ævin-
lega skrýtin i framan, þegar egg-
ið ætlar að fara að kenna henni,
þá hlýtur maður að spyrja: er
Framhald á 14. siðu
Konur og karlar
I dag er alþjóðlegur
baráttudagur kvenna
Mætum öll á baráttufund 8. mars-hreyfingarinnar i
TJARNARBÚÐ KL. 20.30 I KVÖLD
Fjölbreytt dagskrá.
★ Kvennabarátta á grundvelli stéttabaráttunnar!
★ Gegn allri heimsvaldastefnu!
8. mars-hreyfingin