Þjóðviljinn - 08.03.1978, Page 12
12 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 8. mars 1978
Heilsugæslustöð
á Vopnafirði
Heildartilboð óskast i innanhússfrágang
heilsugæslustöðvar á Vopnafirði. Innifalið
i verkinu er t.d. múrhúðun, hita- og vatns-
lagnir, raflagnir, málun, dúkalögn og inn-
réttingasmiði.
Verkinu skal vera lokið 15. júli 1979.
útboðsgögn verða afhent á skrifstofu
vorri, Borgartúni 7, Reykjavik gegn
15.000,- kr. skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð á sama stað miðvikud.
29. mars, 1978, kl. 11.30 f.h.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844 PÓSTHÓLF 1441 TELEX 2006
Blaðburðarfólk
óskast -
Vesturborg: Austurborg:
Melhagi Sogamýri
Kópavogur: Háteigshverfi (afl.) Vogar
Hrauntunga Tún Skúlagata
DIÚDVIUINN
Siðumúla 6 simi 8 13 33
Blaöberar
Vinsamlegast komið á afgreiðslu blaðsins
og sækið rukkunarheftin.
Afgreiðslan opin: mánud. — föstud. frá kl.
9-17.
Þjóöviljinn Síðumúla 6 sími 81333
Tökum að okkur
smiði á eldhúsinnréttingum og skápum,
bæði i gömul hús og ný. Sjáum ennfremur
um breytingar á innréttingum. Við önn-
umst hvers konar húsaviðgerðir, úti og
inni. Verkið unnið af meisturum og vönum
mönnum.
Trésmíðaverkstæðið
Bergstaðastræti 33 — Simar 41070 og 24613
Blikkiðjan
Ásgaröi 7, Garöabæ
önnumst þakrennusmíði og
uppsetningu — ennfremur
hverskonar blikksmíöi.
Gerum föst verötilboö
I
■
I
i
■
fc
Laugardaginn 11. febrúar var
haldin ráðstefna um iðnaöarmál
á Suðurnesjum, i samkomusal
Gagnfræðaskóia Keflavikur.
Var öllum alþingismönnum
Reyknesinga, ásamt bæjar- og
sv ei tars t jórnar m önnu m á
svæðinu, boðið. Ráðstefnan var
öllum opin og sóttu hana um 80
manns. Eftir að forseti félags-
ins.Gizur t. Helgason, hafði sett
ráðstefnuna, ávörpuðu Þorvald-
ur Alfonsson, aðstoðarmaöúr
iðnaðarráðherra, og Jósep
Borgarsson, formaður sam-
starfsnefndar sveitarfélaga á
Suðurnesjum, ráðstefnugesti.
Fyrri hluta ráðstefnunnar var
varið til þess að kynna starfsað-
stöðu iðnaðar á Suðurnesjum,
eins og hún er nú og liklegar
breytingarþar á,á næstu árum.
Þessir menn fluttu erindi:
Ólafur B. ólafsson talaði um
fiskiðnað. Einar Einarsson um
skipasmiðar. Ellert B. Skúlason
um vélaverktaka. Birgir
Guðnason um þjónustuiðnað.
Hreinn Óskarsson um
byggingariðnað. Egill Jónsson
um framleiðsluiðnað.
Að þessum erindum loknum
var gert fundarhlé og ráðstefnu-
gestum boðið upp á kaffiveit-
ingar.
Siðari hluta ráðstefnunnar
1 ."2 • • JH.. TjB
ÍM-4,T
gg g
w*
Keflavik
; Ráðstcfna um iðnaðar-
imál á Suðurnesjum
var varið til kynningar á
vaxtarmöguleikum iðnaðar á
Suðurnesjum. Leó M. Jónsson,
Bændur
bjóða
próf.
Poul
rekstrartæknifræðingur, flutti
erindi sem hann nefndi: „Til
hverra má leita?”. Jónas
Bjarnason,dósent, kynnti nýjar
vinnsluaðferðir 1 fiskiðnaði.
Kristján Friðriksson talaði um
stofnun nýs fyrirtækis. Olfur
Sigurmundsson, forstjóri Út-
flutningamiðstöðvar iðnaðar-
ins, flutti erindi um iðnað við
alþjóðaflugvöll.
Að lokum kynnti Ingólfur
Aðalsteinsson, framkvæmda-
stjóri Hitaveitu Suðurnesja,
verklegar framkvæmdir á veg-
um fyrirtækisins og starfsemi
þess.
Að ráðstefnunni lokinni var
gestum boðið i kynnisferðir til
Skipastöðvar Njarðvikur og
hitaveitunnar i Svartsengi, til
að lita á mannvirki þar. Voru
ferðirnar fjölmennar og þóttu
takast vel.
Ráðstefna þessi var liður i
verkefni á sviði iðnaðar, sem nú
er i framkvæmd á vegum JC
Suðurnes. Annar þáttur þess er
ritgerðasamkeppni um iðnaðar-
mál, sem nú fer fram i skólum á
svæðinu. Þá er fyrirhugaður
borgaráfundur i lok mars og út-
gáfa blaðs, þar sem birtir verða
kaflar úr erindum, verðlauna-
ritgerðir, greinar um iðnaðar-
mál á Suðurnesjum o.fl.
/
Það er von félagsins að sem
flestir Suðurnesjamenn taki
þátt i verkefninu, svo það megi
bera tilætlaðan árangur.
—mhg
Sýslunefnd Noröur-Þingeyinga
Skorar á sjávar-
útvegsráðuneytið
Astrup
til
íslands
Framleiðsluráð landbúnaðar-
ins hefur boðið prófessor Poul
Astrup við Rikisspitalann i
Kaupmannahöfn að flytja fyrir-
lestur hér á landi um mataræði
og hjartasjúkdóma.
Akveðið er að Astrup flytji
fyrirlestur sinn i Súlnasal Hótel
Sögu,fimmtudaginn9. mars, kl.
20.30.
1 samráðivið Læknafélag
tslands ogiLæknafélag Reykja-
vikur hefur öllum læknum sér-
staklega verið boðið á fundinn.
Formaður Læknafélags tslands,
Tómas A.Jónasson, verður
fundarstjóri
Þess er vænst, aö sem flestir,
sem áhuga hafa á neysluvenjum
og heilsufari sjái sér fært að
mæta á fundinum.
Frjálsar umræður munu að
I sjálfsögðu verða leyfðar, enda
■ æskilegt, að þeir, sem eru á
| öndverðum meiði við kenningar
■ Astriqss láti i sér heyra á fund-
■ inum. Prófessor Poul Astrup er
" þekktur fyrir efasemdir um
Iréttmætiþess að ráðleggja fólki
að breyta neysluvenjum sinum
“ til að forðast hjarta- og æða-
I sjúkdóma. Gert er ráð fyrir að
■ prófessor Astrup fiytji einnig
| fyrirlestur viö læknadeild Há-
m skólans.
■ (Heimild: Uppl.þjón.landb.)
—mhg
Byggðin i Norður-Þingcyjar-
sýslu hefur um alllangt árabil
átt i vök að verjast. Bæði hefur
strjálbýli verið mikið og
atvinnutækifæri ekki nægilega
mörg og stöðug, svo að sýslan
hefur orðið að berjast við fólks-
fækkunarvanda.
1 júni 1975 var lögð fram af
hálfu Framkvæmdastofnunar
rikisins byggðaþróunaráætlun
Norður-Þingeyjarsýslu, en hún
er þó aðeins úttekt á at-
vinnuástandi og hugsanlegum
leiðum til framvindu i atvinnu-
málum sýslunnar. Ekkert hefur
verið gert til þess að hrinda i
framkvæmd áætlun þessari, svo
að hún er enn sem komið er að-
eins pappirsplagg. Með áætlun-
inni var þó viðurkenndur af
opinberri hálfu sá mikli vandi,
sem Norður-Þingeyingum er á
höndum.
Skömmu eftir útgáfu byggða-
þróunaráætlunarinnar fundust
hinsvegar auðug rækjumið i
öxarfirði, en þá brá svo við, að
allur sá vandi, sem byggðaþró-
unaráætlunin lýsti, var gleymd-
ur, og sjávarútvegsráðuneytið
úthlutaði veiðileyfum til skipa
úr öðrum sýsium. Af þessu
tilefni gerði sýslunefnd Norður-
Þingeyjarsýslu svohljóðandi
ályktun á siðasta fundi sinum:
„Aðalfundur sýslunefndar
Norður-Þingeyjarsýslu, haldinn
á Kópaskeri, lýsir fullum stuðn-
ingi sinum við kröfu ibúa við
öxarfjörð um algjöran forgang
þeirra til nýtingar rækjumið-
anna i firðinum og skorar hún á
sjávarútvegsráðuneytið að
verða við eðlilegum og sjálf-
sögðum kröfum þeirra tíl sama
réttar og viðurkenndur hefur
verið alls staðar, þar sem
rækjuveiðar eru stundaðar inn-
fjarðar við landið”.
Framanritað er blaðinu sent
frá sýslunefnd Norður-Þingeyj-
arsýslu.
—mhg.
SÍMI 53468