Þjóðviljinn - 09.03.1978, Blaðsíða 8
8 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 9. mars 1978
Fimmtudagur 9. mars 1978 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 9
KARLAR KONUR
M Ara og atdri
•O-M Ara
n-n
70-74
1
86-«9
60- M
88-80
TT'tzrjr •'C'-Aíl
■
80-M
48-49
40-44
38 -39
i » >♦ f' -v
ÉSiWMBmafe
Bakki i Skeggjasta&ahreppi. Þar er nú aðeins búið á einu býli af þremur sem áður var. Myndina túk GM árið 1964.
SKEGGJASTAÐAHREPPUR
30-34
25 — 20
20 -24
15 -19
Í*I*
10-14
5-9
0-4
i—<—■—'—>—r
1
E
c
■r
ii
1
Skaggjastaðahreppur heit-
ir fámennt byggðarlag
fyrir botni Bakkaflóa í N-
AAúlasýslu og liggur á milli
Langaness og Digraness.
Árið 1972 var ákveðið að
gera atvinnu- og fram-
kvæmdaáætlun fyrir allt
Austurlandskjördæmi/ og
var Framkvæmdastofnun
ríkisins falið það verkefni.
Þvi er hvergi nærri lokið en
fljótlega kom í Ijós, að
greina mátti hættu á eyð-
ingu byggðar í einum
hreppi fremur öðrum. Það
var Skeggjastaðahreppur.
Af þeim sökum var ákveð-
ið aö fela byggðadeild
Framkvæmdastof nunar að
taka þennan hrepp út úr og
gera sérstaka byggðaþró-
unaráætlun fyrir hann.
Henni var endanlega lokið i
sepember s.l. og gefin út
fjölrituðnú í febrúar. Höf-
undar hennar eru Ingi-
mundur Sigurpálsson, Karl
Bjarnason og Sigurður G.
Þorsteinsson. Hér verður
stiklað á stóru um efni
hennar.
Kalt veðurfar
Skeggjastaöaherppur er meö
köldustu hreppum landsins. Með-
alhiti áranna 1931—60 var 3.3 gr. á
C. á móts við 5.0 gr. á C. i Reykja-
vik. Bakkaflói er mjög opinn fyrir
kaldri norðaustan- og austanátt.
Með hafátt fylgir gjarnan þoka
og á veturna er oft snjóþungt. A
kuldaárunum 1965—68 kól tún
mjög i hreppnum og er greinilegt
að með þeirri tækni sem nú er
beitt við túnrækt er á mörkum að
hún heppnist þar nema á góðum
árum. Samt er ræktunarland
mikið i byggð og afréttir rúmir
16 jarðir i eyði á 25 árum.
Frá árinu 1929, þegar ibúafjöldi
Skeggjastaðahrepps náði há-
marki hefur ibúum fækkað jafnt
og þétt eða úr 309 i 114 i des. 1975.
Ekki hefur dregiö úr hlutfalls-
legri fækkun hin siðari ár, nema
siður sé. íbúum má skipta i tvo
hópa. Anars vegar er sveitin með
62 ibúa á 11 býlum en hins
vegar þorpiö á Bakkafiði með
52 ibúa (tölur miðast við árið
1975),én i búúm hefur fjölgað um
5 tvö s.l. ár). A árunum 1951 til
1975 fóru 16 jarðir i eyöi I
Skeggjastaðahreppi. A þeim 11
býlum sem eftir eru i byggð verð-
ur búseta að teljast nokkuð örugg
i nokkur ár á samtals 9 jörrðum
að öðru óbreyttu. Börn eru tiltölu-
lega færri I hreppnum en lands-
meðaltal segir til um og gamal-
menni fjölmennari. Aldursflokk-
urinn 25—59 ára er hins vegar
áþekkur og annars staðar gerist.
Þar má
greina
eyðingu
byggðar
Lægri tekjur en
annars staðar
Atvinnulif i Skeggjastaða-
hreppi byggist að langmestu leyti
á landbúnaði og sjávarútvegi.
Meðal-brúttótekjur framteljenda
eru 7% lægri en á Austfjörðum i
heild og 14% lægri en á lands-
mælikvarða. Vegna færri barna
er framfærslubyrðin hins vegar
minni.
Landbúnaður
Landbúnaðurinn i Skeggja-
staðahreppi er meö smáu sniöi.
Flest búin eru með 200—300 fjár,
1—2 nautgripi og álika mörg
hross. Tvö bú voru þó með um 360
fjár haustið 1976. Fjöldi sauöfjár
hefur haldist svipaður allt frá ár-
inu 1950 og verið 3—4000 f jár, en
nautgripum hefur hins vegar á
sama tima fækkað úr 66 i 16.
Helstu hlunnindi eru reki, æðar-
varp og lax- og silungsveiði.
1 áætluninni er varað við of •
mikilli bjartsýni á gildi aðstoðar
við landbúnað fyrir alhliða upp-
byggingu i Skeggjastaðahreppi.
Þó er bent á þær félagslegu að-
stæður að sveitin sé bakhjarl fyrir
þorpið sem skapar öryggiskennd
og festu hjá ibúum þess og taka
verði tillit til. Ennfremur megi
býlum ekki fækka frekar.og er þvi
lagt til aö Byggðasjóður veiti lán
til landbúnaðar i hreppnum á
næstu 5 árum (1978—1983) og miði
þau við 350—450 kinda bú. Lánin
verði veitt til stækkunar og upp-
byggingar byggðra jaröa þar sem
slikt er fyrirhugað, til kaupa á
byggðum jörðum sem annars
kynnu að falla úr ábúð og til
kaupa og uppbyggingar eyöijarða
ef mjög gild rök mæla þar meö.
Búist er við að heildarfram-
kvæmdakostnaður verði varla
lægri en 95—105 miljónir króna
miðað viö matskostnað haustið
1977.
Sjósókn og fiskverkun
Sjósókn Bakkfirðinga er nú ein-
göngu bundin við grásleppu- og
þorskveiðar. Grásleppuveiðar
eru einkum stundaðar á timabil-
inu frá miðjum mars og fram i
miðjan júni, en að þeim loknum
taka þorskveiðar við, og standa
þær út septembermánuð. Á und-
anförnum vertiðum hafa 12—15
trillur af stæröinni 2—4 tonn verið
gerðar út frá Bakkafirði.
Fiskverkunin er eingöngu fólg-
in i söltun grásleppuhrogna og
saltfiskverkun. Arið 1977 voru
verkuð 287 tonn af saltfiski, en
söltuð 451 tonn af grásleppu-
hrognum. Bæði fiskveiðar og fisk-
iðnaður liggja að mestu niðri yfir
vetrarmánuðina.
1 áætluninni segir að skilyrði
fyrir uppbyggingu i Skeggja-
staðahreppi sé aröbær útgerð og
fiskvinnsla, en nú takmarkast
afla- og vinnslumagn fyrst og
fremst af lélegri hafnaraðstööu
og þar með stærð veiðiskipa,
gæftaleysi fyrir trillubáta yfir
veturinn, aðstöðu til fiskverkunar
og einhæfum vinnsluaðferðum.
A næstu 5 árum er lagt til aö
unnið verði að lagfæringum og
endurbótum á fiskverkunarhús-
inu á Bakkafirði i tveimur áföng-
um. Fiskverkunarhúsið. er 800 fm
húsnæði, að meginhluta stál-
grindahús, og á hlutafélag sjó-
manna á Bakkafirði það. 1 fyrri
áfanga er lagt til að húsið verði
gert hæft til saltfiskverkunar
samkvæmt heilbrigðiskröfum,
innréttaður verði vinnslusalur
fyrir hrognaverkun og komið
verði upp þurrkklefa, auk þess
sem bætt yrði aðstaða fyrir fisk-
hersluna. Jafnframt þarf að festa
kaup á búnaði og áhöldum vegna
saltfisk- og hrognaverkunar og
innréttað þjónusturými fyrir
starfsfólk þar sem fullnægt yröi
aðbúnaðarkröfum á vinnustað.
Aætlaður heildarkostnaður fram-
kvæmda I fyrri áfanga er 10—13
miljónir miðað við haust 1977.
Talið er að stór kola- og kúf-
fiskamið sé að finna i innanverð-
um Bakkaflóa og Eiðsvik og er
talið æskilegt að nýta þau m.a.
með þvi að veita heimild til tak-
Fjöldi 10 5 O !
Aldursdreifing ibúa i Skeggjastaðahreppi árið 1975.
10
markaðra kolaveiða annaðhvort i
kolavoð eða dragnót. Yrði þá
grundvöllur trilluútgerðar treyst-
ur að mun og þá gæti i seinni á-
fanga verið byggð frystigeymsla
við fiskverkunarhúsið.
Höfnin stendur útgerð
fyrir þrifum
Hafnarmannvirki á Bakkafirði
er hafnarbakki úr steyptum kerj-
um i þokkalegu ástandi. Skjól er
hins vegar ekki öruggt i öllum
áttum og hefur þvi verið settur
upp krani i þeim tilgangi að lyfta
bátum á land. Getur hann mest
lyft 5 tonna trillu. Ekki er þvi
hægt að gera út stærri báta og
stendur það útgerðinni verulega
fyrir þrifum. Erfitt er að gera
góða höfn á Bakkafirði og fyrir-
sjáanlegur mikiH kostnaður. Tal-
ið er að varla séu framkvæman-
leg frekari hafnarmannvirki þar
sem höfnin er nú, en hugsanleg
skjólhöfn innar i firðinum. Þá er
ræddur sem valkostur krani sem
lyftir 30—40 tonna bátum. Hann
mun skv. lauslegri áætlun kosta
uppsettur 55 miljónir króna.
Bágborið ástand vega
Ef hlutdeild vegamála i opin-
berum útgjöldum ykist væri einn
stærsti þröskuldurinn i vegi fá-
mennra byggöarlaga til eflingar
yfirstiginn, segir i skýrslu Fram-
kvæmdastofnunar, en ástand
vega I Skeggjastaðahreppi talið
mjög bágborið. Ibúar hreppsins
eru mjög tengdir Þórshöfn og
Vopnafirði með viðskipti og þjón-
ustu og sá hluti noröausturvegar,
sem liggur milli þessara staða
hefur þvi mikla þýðingu fyrir þá.
Til Þórshafnar er sótt læknis-
þjónusta og verslun að hluta, það-
an er flutt neyslumjólk til Bakka-
fjarðar, auk þess sem nær öll gas-
olia, bæði vegna rafveitu og til
húshitunar, er sótt þangaö.Til
Vopnafjarðar er einnig sótt vegna
margs konar viðskipta og félags
legra tengsla, sem farið hafa vax-
andi. Siðustu ár hafa unglingar
stundað skyldunám þar, og er
þeim ekið á milli um helgar, enda
gera ný grunnskólalög ráð fyrir
þeirri skipan mála framvegis.
A verðlagi i ágúst 1977 var
heildarkostnaður framkvæmda
sem miða að þvi að koma vega-
málum hreppsins i gott horf laus-
lega áætlaður um 570 miljónir
króna, en 373 miljónir er talið
kosta að gera vegi hreppsins not-
hæfa miðað við skilgreiningu
Vegagerðarinnar á ástandi vega.
Að óbreyttum framlögum til
vegamála tekur bersýnilega
langan tima að ná þvi marki að
gera vegakerfi hreppsins nothæft,
svo að ekki sé talað um gott. Er
þvi lögð þung áhersla á úrbætur á
þeim vegaköflum, sem eru hvað
verstir. 1 skýrslunni eru lagðar til
forgangsframkvæmdir, sem
nema um 108 miljónum króna.til
að koma nokkrum vegaköflum i
gott ástand, en 90 miljónir til að
gera þá nothæfa.
Flugvöllur
Flugvöllur við Bakkafjörð er
um 2,5 km frá þorpinu með einni
600 m langri flugbraut. Lagt er til
aö gerðar verði nokkrar umbætur
á honum sem munu kosta að
meðaltali 3,3 m kr. á ári næstu 6
árin.
Skortur
á íbúðarhúsnæði
Skortur á ibúðarhúsnæöi
stendur i vegi fyrir flutningi fólks
til Bakkafjarðar. Ýmsir hafa sýnt
áhuga á að flytja þangaðt en ekki
getað vegna þessa.
A Bakkafirði eru 15 ibúðir og
meðalaldur húsa 38 ár. Fjórar
ibúðir eru 50 ára og eldri. Miðað
við áætlunartimabilið (5) ár er
byggingaþörfin talin 10 ibúðir
miðað við sömu kröfur og gerðar
eru á landinu i heild. Lagt er til að
strax á þessu ári verði hafist
handa við byggingu allt að
fjögurra söluibúða á vegum
sveitarfélagsins. Siðan mætti
miða framkvæmdir við að jafnan
væri einu húsi i byggingu óráð-
stafað.
AAeginorsakir fækkunar
Fækkun ibúa i Skeggjastaða-
hreppi sýnir glöggt hve byggð
hefur grisjast þar mjög siðustu
áratugi. Orðugt er að greina á
milli orsaka og afleiðinga grisj-
unar, en þó má að llkindum rekja
meginorsakir til afar fábreyttra
atvinnuhátta og einhæfni i land-
búnaði og sjávarútvegi, léglegra
samgöngutengsla við öfluga þjón-
ustukjarna og ófullnægjandi
hafnaraðstöðu.
Afstaða hins
opinbera tímabær
Siöan segir I niðurstöðum
skýrslunnar:
Segja má heimamenn vel á veg
komna meö þær aðgerðir, sem
þeim er unnt að gripa til að svo
stöddu. Koma þær fram i þvi aö
hreppsfélagið reisti tvær leigu-
Ibúðir i þorpinu Bakkafiröi árið
1975, og stendur nú yfir bygging
tveggja söluibúða. Frekari bygg-
ingarframkvæmdir eru fyrirhug-
aðar jafnskjótt og leyfi Húsnæöis-
málastofnunar fæst. Ennfremur
hófu tveir einkaaðilar smiði
tveggja einbýlishúsa vorið 1976,
og nýlega settust að i þorpinu ung
hjón, sem ráðgera byggingu
ibúðarhúss á þessu ári. Þá má að
lokum minnast þess, sem áður
kom fram, að ung hjón hafa ný-
lega keypt hluta i einni af betri
jörðum I sveitinni, auk þess
semsjómenn i þorpinu hafa stofn-
að meö sér hlutafélag og tekiö
höndum saman um rekstur fisk-
vinnsluhúss.
Sú viðleitni, sem heimamenn
sýna og marka má af ofan-
greindri upptalningu, má teljast
þess eðlis, að afstaða hins opin-
bera til framtiðarbúsetu i
Skeggjastaðaherppi sé timabær.
Afgreiðslu stjórnar
Framkvæmdastofnunar rikisins,
sem frá er greint i inngangi hér
að framan, má túlka sem af-
stöðu stofnunarinnar til
framtiðarbúsetu i hreppnum.
Afstaða og stuðningur
Framkvæmdastofnunar rikisins
hrekkur þó skammt, ef aðrar
opinberar stofnanir og sjóðir sjá
sér ekki fært að fylgja áætlun
þessari fram. Leggi allir hlutað-
eigandi aðilar áætluninni lið, má
hins vegar vænta þess, að sporna
megi viö eyðingu byggðar I
Skeggjastaðahreppi.” —GFr.
SAGT FRÁ BYGGÐAÞRÓUNARAÆTLUN FRAMKVÆMDASTOFNUNAR RÍKISINS
Leikarar i skopleiknum „Stundum og stundum ekki”. Frá v. Lára Marteinsdóttir, Amundi Sigurðsson, Steinn Ragnarsson,
Guðmundur Georgsson, Þuriður Steinarsdóttir, BergljótGuðmundsdóttir, Sirrý Garðarsdóttir, Hávar Sigurjónsson,
Hjálmur Hilmarsson, Magnús Baldursson, Magnús Torfason.Halla Kjartansdóttir, Jónina Valsdóttir, Laufey Hauksdóttir og
Geir Ragnarsson. Fremst á sv. fr. v. Ari Eggertsson, Steinunn ólafsdóttir, Hróbjartur Jónatansson. (Ljósm.: GFr)
Leiklistarfélag Menntaskólans við Sund sýnir:
Veldi tilfínninganna
annó 1940
Talia, leiklistarfélag Menntaskólans
við Sund frumsýnir fimmtudaginn 9.
mars i ágætum sal Breiðholtsskóla
leikritið „Stundum (bannað) og stund-
um ekki” eftir hina þekktu farsa-
höfunda Arnold og Bach. Þessi
gamanleikur vakti mikinn úlfaþyt i
höfuðborginni á þvi herrans ári 1940 og
var þá bannaður af lögreglustjóranum
um hrið en bannið upphafið af dóm-
nefnd. Það er leikarinn og söngvarinn
Gisli Rúnar Jónsson, sem hefur sér-
hæft sig i striösárunum, sem færir
leikinn upp með menntskælingum.
Blaðamaður Þjóöviljans átti þess kost
að fylgjast með æfingu á þriðjudags-
kvöld ásamt fullu húsi af krökkum úr
Breiðholtsskóla og skemmti sér
konunglega.
Eins og áður sagöi var leikrit þetta
frumsýnt vorið 1940, rétt fyrir her-
námið, og hafði Emil Thoroddsen þýtt
það og staðfært til Islands. Er það látið
gerast i Stjórnarráðinu og austur á
Laugavatni. Lögreglustjórinn bannaði
verkið á þeirri forsendu aö þaö væri
klúrt, siðspillandi og brjóti i bága við
reglur og velsæmi. Hins vegar var
talið að raunverulega ástæðan væri
pólitisk og runnin undan rifjum Jón-
asar frá Hriflu. Að beiöni LR var til-
kvödd sérstök dómnefnd og leikið fyrir
hana en jafnframt var boðið alþingis-
mönnum og fleiri fyrirmönnum og
varð húsfyllir á þessari sérstöku
sýningu. Banninu var siðan aflétt með
öllum greiddum atkvæðum gegn at-
kvæði Jónasar frá Hriflu.
Sýnirtg Menntaskólans við Sund
núna byggist á uppfærslu Guörúnar
Asmundssdóttur á þessu verki á Akur-
eyri 1972 en þá skrifaði Jón Hjartarson
forleik sem einnig er leikinn núna.
Gerist hann i búningsherbergjum
leikarafyrir sýningu ogþá hætta ma. 4
leikarar við að koma fram og hvislari
verður að taka aö sér 3 hlutverk.
í þessari sýningu Gisla Rúnars er
bætt við ýmsum bröndurum og er fullt
af uppákomum i verkinu. T.d. er dóm-
nefndin mætt til staðar i salnum og
skiptir sér af verkinu og vegna alls
konar innskota verður verkið með
dálitið hráum blæ. Að öðru leyti er
nákvæmlega fylgt ’ staðfæring-
unni frá 1940 ogbúningar eru frá þeim
timum. Reynt er að ná stemningunni
sem rikti i Iðnó á hinni frægu frum-
sýningu 1940.
Uþhr, 50 manns taka þátt I
sýningunni þar af eru um 30 hlutverk i
leiknum. t hléum er boðiö upp á jass.
Sviðsmynd er gerð af nemendum eftir
hugmyndum leikstjórans.
Almennar sýningar veröa dagana 9.,
10., 12., 13., og 14. marskl. 20.00. —GFr
29 af 33 kennurum Menntaskólans á Akureyri
Ríkisstjórnin hefur
glatað trausti okkar
sem viðsemjandi um kaup og kjör
Þann fyrsta þessa mánaðar gerðu 29
af 33 kennurum Menntaskólans á
Akureyri samþykkt þar sem þeir
„átelja harðlega þá framkomu rikis-
stjórnarinnar að ómerkja með lögum
kjarasamninga, sem hún sjálf gerði
fyrir aðeins ársfjórðungi, svo og
kjaradóma, sem grundvallaðir hafa
verið á þessum samningum.” Kenn-
ararnirláta þaðfylgja I samþykktinni
að „með þessari lagasetningu hefur
stjórnin glatað trausti okkar sem
viðsemjandi um kaup og kjör.”
Undir þessa yfirlýsingu rita eins og
áður sagði 29 af 33 kennurum skólans
og eru þeir sem hér segir: Valdimar
Gunnarsson, Stefán Þorláksson,
Sigurður Bjarklind, Ole Lindquist,
Jóhann Sigurjónsson, Magnús H.
Ólafsson, Magnús Kristinsson, Ragn-
heiður Gestsdóttir, Böövar
Guðmundsson, Sverrir Páll Erlends-
son, Asmundur Jónsson, Jón Hafsteinn
Jónsson, Tómas Ingi Olrich, Þórir
Haraldsson, Gunnar Frimannsson,
Hilmar Bragason, Ragnar Þ.
Ragnarsson, Anna Ingólfsdóttir,
Stefania Arnórsdóttir, Snæbjörn
Friðriksson, Rafn Kjartansson,
Sigriður P. Erlingsdóttir, Bárður
Halldórsson, Jón A. Jónsson, ólafur
Rafn Jónsson, Tryggvi Gislason,
Bryndis Þorvaldsdóttir, Vilhjálmur
Ingi Árnason og Sigrún Sveinbjörns-
dóttir.
Þjóöleikhúskórinn 25 ára
t dag 9. mars, er Þjóöleikhúskórinn
25 ára. Hann hefur tekið þátt I öllum
óperu- og óperettusýningum,
söngverkefnum öörum og ýmsum leik-
ritum þjóðleikhússins allt frá stofnun
kórsins. Þá hefur hann og sungið bæöi
á vegum rikisútvarpsins með Sin-
fónóuhljómsveit íslands og fyrir sjón-
varpið og farið i söngferðalag til
Ameriku með leikurum á vegum Þjóð-
leikhússins o.fl.
Ætlunin var, að Þjóðleikhúskórinn
héldi afmælistónleika á sjálfan af-
mælisdaginn i Þjóöleikhúsinu, en i
samráði við Þjóðleikhússtjóra, Svein
Einarsson, hefur þeim verið frestað,
þar til siöar á leikári þessu, þar sem
söngfólk er fast við æfingar og undir-
búning að frumsýningu óperunnar
„Káta ekkjan” sem.frumsýnd verður
22. mars n.k.
A afmælistónleikum Þjóðleikhús-
kórsins veröa flutt verk af þessum 25
ára ferli. Stjórnandi kórsins á tónleik-
um hans veröur Ragnar Björnsson,
hljómsveitarstjóri, en æfingar með
honum annast Carl Billich.
Þjóðleikhúskórinn er blandaður kór
skipaöur um 40 söngmönnum. For-
maður hans hefur verið samfleytt i 21
og 1/2 ár Þorsteinn Sveinsson, lög-
maður, en aðrir I stjórn kórsins frú
Svava Þorbjarnardóttir, gjaldkeri og
Jónas O Magnússon, trésmiðameist-
ari, ritari.
Siöar verður sagt frá væntanlegum
afmælistónleikum.