Þjóðviljinn - 09.03.1978, Blaðsíða 10

Þjóðviljinn - 09.03.1978, Blaðsíða 10
10 SÍÐA — ÞJÓDVILJINN Fimmtudagur 9. mars 1978 KR sigraði IR og IR-ingar úr leik KR sigraði ÍR 114:80 - lón Eftir tapið i gærkvöldi eru IR-ingar úr leik i Bikar- keppni KKÍ. Þeir töpuðu stórt fyrir KR i gærkvöldi og urðu lokatölur leiksins 114:80 eftir að KR hafði haft for- ustu í leikhléi 53:50. iR-ingar stóðu í KR-ingum i fyrri hálfleik og voru þá síst lakari aðili leiksins. Þeir voru af og til með forustu og maður hafði það á tilfinningunni að gamla góða KR ætlaði að fá smákeppni frá liði IR/ en að þessu sinni vantaði tvoaf lykilmönnum liðsins þá Agnar Friðriksson og Þorstein Hallgrímsson. Jörundsson skoraði 27 stig Þetta veikti lið 1R mikið og var sem aðrir leikmenn misstu kjarkinn við það að þeir léku ekki með. KR-ingar byrjuðu siðari hálfleikinn með miklum látum og gerðu nær þvi samstundis út um leikinn og lokatölur urðu eins og áður segir 114:80. Jón Sigurðsson var bestur KR-inga að þessu sinni og hann var einnig stigahæstur með 24 stig. Einar Bollason kom næstur með 22 stig. Hjá 1R var Jón Jörundsson langbestur og lék nú sinn besta leik með ÍR i vetur. Hann var einnig stighæstur og skoraði 27 stig þrátt fyrir að hann þyrfti að yfirgefa leikvöllinn þegar aðeins 14 min. voruliðnaraf siðari hálfleik. Leikinn dæmdu þeir Guðbrandur Sigurðsson og Þráinn Skúlason og gerðu það nokkuð vel. SK. Liverpool tapaði Enn aukast sigurlikur Notthingham Forest i ensku deildarkeppninni. Helsti keppinautur Forest tapaði nefnilega i gærkvöldi fyrir Derby á útivelli með fjórum mörkum gegn tveimur. Það skipti sköpum fyrir Liverpool að landsliðsmarkvörð- urinn Ray Clemence var meiddur á öxl og gat þvi ekki leikið. Þeir Charlie George, Gerry Daly og Andy Crawford skoruðu mörk Derby en þeir Kenny Dalglish Og David Fairclough skoruðu mörk Liverpool. Við tapið hrapaði Liverpool nið- ur i 6. sæti og fara nú möguleikar liðsins á sigri i 1. deildinni dvin- andi með hverjum leik. Forest er efst með 45 stig eftir aðeins 29 leiki en i öðru sæti er Man. City með 39 stig eftir 30 leiki. Everton er i þriðja sæti með 39 stig eftir 30 leiki og Arsenal er i fjórða sæti með 38 stig að loknum 31 leik og siðan kemur Leeds með 36 stig eftir 30 leiki og loks Liverpool með sama stigafjölda eftir jafn- marga leiki. SK. England vann Englengdingar léku i gærkvöldi á sama tima og Liverpool og Derby áttust við vináttuleik i knattspyrnu gegn Italiu. Leiknum lauk með sigri Englands 2:1 eftir að staðan í leikhléi var 1:1. Mörk Englands skoraði Nottingham Forest leikmaðurinn Tony Woodcock og átti hann mjög góðan leik. Mark ítaliu skoraði Bagni. 22 þúsund urðu vitni að þessum sæta sigri Englands. SK. Meistaramót í badmmton Meistaramót Reykjavikur i badminton verður háð i Laugar- dalshöllinni um næstu helgi. Keppt verður i öllum greinum i A-flokki, meistaraflokki og öðl- ingaflokki. Þátttakendur verða fjölmarg- ir frá Reykjavikurfélögunum, og liklega verða flestir fremstu badmintonmenn landsins með. Nú verður i fyrsta sinn i Reykjavikurmóti, keppt i öllum greinum i öðlingaflokki. t þeim flokki taka þátt þeir sem náð hafa 40 ára aldri. Gróska er i badmintonstarf- inu nú um þessar mundir, og er þvi liklegt að um mikla og harða keppni verði að ræða. Gaman verður til dæmis að fylgjast með þeim Jóhanni Kjartanssyni og Sigurði Haraldssyni, en þeir eru núverandi Islandsmeistarar, og hafa sigrað i flestum mótum i vetur. Einnig verður kepnnin i A-flokki að öllum likindum mjög hörð, en þar stendur keppnin einkum milli Valsmannsins, Hrólfs Jónssonar, K.R.-ingsins Hjalta Helgasonar og T.B.R.- ingsins, Guðmundar Adolfsson- ar. Kvennakeppnin verður mjög spennandi. Kristin Magnúsdótt- ir hin unga badmintonstjarna T.B.R. vann Lovisu Sigurðar- dóttur i ,,Tropicana”-mótinu fyrr i vetur, en Lovisa hefur verið ósigrandi i meira en fimmtán ár. Gaman verður að fylgjast með leikjum þeirra nú um helgina. t öðlingaflokki er staðan með svipuðu móti og i meistaraflokki fyrir fimmtán árum siðan. Jón Árnason, margfaldur tslands- meistari keppir hér, og ekki má gleyma þeim Huldu Guðmunds- dóttur og Jóninu Nieljóhnius- dóttur. , Blaðamannafundur Körfuknattleikssambandsins: BETRI FJARHAGUR OG GÓÐAR TERTUR Það verður ekki annað sagt en að forustulið körfuknattleikssambandsins hafi tekið blaðamönnum vel er þeir mættu til blaðamannafundar hjá KKI fyrir stuttu. Kræsingar miklar voru á borðum og var það einn stjórn- armeðli.mur sem þær útbjó af mikilli snilld. Það sem helst skyggði á fund þennan var hversu dræm þátttaka blaða- mannanna var. Það voru aðeins Þjóðviljinn og útvarpið sem mættu en engu að siður kom ýmislegt gott og ekki gott fram á fundinum og verður nú reynt að skýra frá þvi helsta sem rætt var. Polar Cup Það kom fram að Pólar Cup eða norðurlandamót i körfu- knattleik er á næstu grösum og verður það haldið hér að þessu sinni. Mótið fer fram i Laugar- dalshöllinni og er fyrir nokkru búið aðekipa svokallaða Polar Cup nefnd sem hefur með framkvæmd mótsins að gera. Formaður hennar Helgi Agústs- son, sem frægari er fyrir afskipti sin af utanrikismáium þessarar þjóðar, mætti á fund- inn og skýrði hann t.d. það hvernig nefndin heföi hugsað sér að afla fjár til keppninnar, þvi að eins og flestir vita er allt annað en ódýrt að halda mót sem þessi. Helgi sagði að sótt hefði verið um styrk til Norræna Menningarmálasjóðsins og von- uðust þeir til að fá þaðan um 100 þúsund danskar krónur. Þá væri einnig treyst á innkomu af leikj- unum og siöast en ekki sist aug- lýsingum en þær eru sá þáttur peninganna sem heldur öllu iþróttalifi i landinu gangandi. Kostnaður samfara keppninni væri um 3. milj. króna og væri það von þeirra i nefndinni að ekki yrði tap á keppninni. Þá hafði einnig verið gerður samn- ingur við Sjónvarpið i sambandi við myndatökur frá mótinu. 1. deild breytt Þá var skýrt frá breytingu á deildaskiptingunni sem ákveðin var á siðasta ársþingi KKt. Haldið var aukaþing KKl 9. desember s.l. og var þar samþykkt að fækka liðum i 1. deild úr 8 i 6 og einnig að fækka umferðum úr 4 i 2. Þetta er gert til að fækka leikjum á komandi keppnistimabili þvi eins og komið hefur fram hér i blaðinu er ætlunin að keppa i svokallaðri úrvalsdeild næsta ár og verður samfara þeirri breyt- ingu um gifurlega fjölgun á leikjum að ræða. Landslið valið Landslið það sem æfa á fyrir Polar Cup hefur verið valið og er það skipað 16 leikmönnum en siðar verða 10 leikmenn valdir til að leika i sjálfu mótinu. Þess- ir 16 leikmenn eru: Kristinn Jörundsson IR, Jón Sigurðsson KR, Atli Arason Á, Kári Maris- son UMFN, Gunnar Þorvarðar- son UMFN, Þórir Magnússon Val, Torfi Magnússon Val, Jón Héðinsson tS, Bjarni Gunnar Sveinsson tS, Simon Ölafsson Fram, Bjarni Jóhannesson KR, Kolbeinn Kristinsson tS, Geir Þorsteinsson UMFN, Kristján Agústsson Val, Þorsteinn Bjarnason UMFN, Jónas Jóhannesson UMFN og Pétur Guðmundsson sem leikur með bandariska háskólaliðinu University of Washington. Mun hann koma til landsins stuttu áður en að mótið hefst og mun hann örugglega styrkja liðið mikið. Þjálfari verður Helgi Jóhannsson en einnig eru sterk- ar likur taldar á þvi að aðstoö- arþjálfari Péturs Guðmunds- sonar Denny Houston komi hingað til lands og muni hann ásamt Helga þjálfa liðið siðustu vikuna fyrir mótið. Batnandi fjárhagur Þá er rétt að geta þess hér, að fram kom a' fundinum að tap KKl hefur ekki aukist. Núver- andi stjórn hefur lækkað skuldasúpuna úr rúmum 5 milljónum i 3 miljónir og verður það að kallast afrek út af fyrir sig. Þetta er nokkuð sem ekki hef- ur frést fyrr og eru svo sannar- lega gleðilegar fréttir þó seint komi. Er vonandi að stjórn KKI haldi áfram á sömu braut og takist að koma KKl á rétta hlið enda er það nauðsynlegt þegar sýnt er i hversu miklum upp- gangi iþróttin er nú hér á landi. Risinn Pétur Guðmundsson leikur með tslandi á Noröurlandamót- inu og verður mikill fengur i komu hans.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.