Þjóðviljinn - 29.03.1978, Side 2
2 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Mi&vikudagnr 29. mars 1978
mimrnSímmmm
/4
^SKSSSáÍÍSSÍffin
)wm
100
skátar
í land-
könnun
Bandalag islcnskra skáta mun i
sumar gangast fyrir 10 daga
rannsóknarleiðangri á öskju-
svæðinu i samvinnu viðskáta frá
hinum Norðurlöndunum og Nor-
rænu eldfjallastöðina.
Um lOOskátar, 18 ára og eldri,
frá Danmörku, Finnlandi,
Færeyjum, íslandi, Noregi og
Sviþjóð munu ferðast um og
kanna svæði sem afmarkast af
Mývatni, Jökulsá á Fjöllum,
Vatnajikli og Skjálfandafljóti.
A leið sinni munu þeir vinna að
athugun á gróðri og dýralifi svo
og kanna jarðsögu svæðisins.
Verkefni þetta, sem hlotið hefur
nafnið „Vulcan Projekt 1978”, er
framhald á þeirri samvinnu eldri
skáta á Norðurlöndum sem hvað
hæst bar er þeir stóðu saman að
alheimsmóti skáta, Nordjamb
1975.
Nordisk ungdomsfond hefur
veitt styrk til þessa verkefnis og
verður hann notaður til að jafna
ferðakostnað erlendra þátttak-
enda.
Hver
vill
skrifa
til
Póllands?
Þjóðviljanum hefur borist bréf
frá 21 árs gömlum Pólverja,
Krzysztof Sokotowski, sem óskar
eftir að komast i brefasamband
viö íslendinga.
Kristof skrifar á þýsku, og er i
pólsk-islensku vinafélagi i Pól-
landi. Hann segist hafa óljósar
hugmyndir um Island og Islend-
inga, en segir aö landiö töfri sig
eftir viðkynningu við bækur Hall-
dórs Laxness. Ahugamál Kristofs
utan Island eru fótbolti, kvik-
myndir, og tónlist. Hann les
lögfræði við háskóla i Póllandi og
yrði þakklátur ef einhver vildi
senda honum linu. Heimilisfangið
er:
Krzysztof Sokotowski,
Marwowa 6A ml
913 h 8
POLSKA
Or „Vaknið og syngið” eftir Clifford Odets, sem leikfélag Kópavogs
sýnir annaö kvöld,og er öllum heimill ókeypis aögangur meðan húsrúm
leyfir. A myndinni er Bergerfjölskyldan, taiiö frá vinstri: Faðirinn
(Guðbrandur Valdimarsson), móðirin (Guöriður Guöbjörnsdóttir),
dóttirin (Svanhildur Jóhannesdóttir), afinn (Leifur Ivarsson) og sonur-
inn (Viðar Eggertsson).
Leikfélag Kópavogs 20 ára
Býöur á leiksýningu
annað kvöld
Bessi Bjarnason og Margrét Guömundsdóttir vekja hvarvetna hrifn-
ingu áhorfenda I bandarlska gamanleiknum sem Gisli Alfreðsson leik-
stýrði.
Á sama tíma að
árf ’ sýnt um Suðurl.
I gær var hin núja leiksýning
Þjóðleikhússins ,,A sama tima að
ári” sýnd i fyrsta sinn á Selfossi
við ‘mikinn fögnuð áhorfenda.
önnur sýning verður á verkinu i
Selfossbiói i kvöld.
Fyrir páska var þessi banda-
riski gamanleikur sýndur fimm
sinnum i Vestmannaeyjum og
niu sinnum á Húsavik þar sem
hann var frumsýndur. A báðum
þessum stöðum var húsfyllir
fram á siðustu sýningu.
A næstunni verður leikritið sýnt
viða um suðurland, og reýnt verð-
ur að sýna i flestum þeim félags-
heimilum og samkomuhúsum þar
sem þvi verður við komið, segir í
frétt trá Þjóðleikhúsinu. 1 dag,
29. mars, verður sýning i Stapa,
30. mars að Minni-Borg i
Grimsnesi, 1. april að Hvoli, 2.
april i Aratungu, 3. april að Flúð-
um, 4. april á Hellu, 5. april i Vik i
Mýrdal og 6. april að Kirkju-
bæjarklaustri.
Þrjú leikrit i gangi
hjá félaginu
Vegna 20 ára afmælis Leikfé-
lags Kópavogs, hefur það ákveöið
að kynna starfsemi sina með þvi
að bjóða fólki, á meðan húsrúm
leyfir, á sýningu þess á „Vaknið
og syngið” eftir Clifford Odets,
annað kvöld, fimmtudagskvöld
kl. 20.30i Félagsheimili Kópavogs
(Kópavogsbió) Húsið verður opn-
að kl. 20. Gestum gefst kostur á
veitingum i hléi, i veitingastofu
hússins. Þar verða myndir úr
fyrrisýningum félagsins til sýnis.
Mikil gróska er nú i starfsemi
félagsins og má taka það til
marks að Leikfélag Kópavogs
sýnir um þessar mundir þrjú leik-
rit. Það er einsdæmi, að áhugafé-
lag sé með svo margar sýningar i
gangi á sama tima. Barnaleikrit-
ið „Snædrottningin” hefur verið
sýnt við mjög góða aðsókn siðan
um miðjan nóvembersl. og verða
enn nokkrar sýningar á þessu vin-
sæla barnaleikriti. „Jónsen
sálugi” hefur skemmt áhorfend-
um undanfarið. Framvegis mun
gamanleikurinn „Jónsen sálugi”
verða sýndur á miðnætursýning-
um á föstudögum, jafnframt þvi
að vera sýndur á venjulegum
kvöldsýningum. Leikritið „Vakn-
ið og syngið” sem sýnt verður á
fimmtudagskvöld, var frumsýnt
fyrr i þessum mánuði. „Vaknið og
syngið” hefur vakið talsverða
athygli og orðið umdeilt.
Leikstjóri er Haukur J. Gunnars-
son og leikmynd gerði Björn
Björnsson. Næsta syning á
„Vaknið og syngið” verður
mánudaginn 3. april. Miðasala
Leikfélags Kópavogs er opin dag-
lega frá kl. 18. Simi 41985.
Leikfélag Kópavogs býður alla
velkomna annað kvöld i
Kópavogsbió.
ARSTWJ!
A
Hver af asknfendum Visis
eð því að tahu þátt í áshrifendagetraun Vísis, hefur jafríi
'■&: : möguleika til þess að verða eiruim híl ríkctfþ^k
líringdu strax, símirin er 8 66 11. ’<VW
WÆMfó
niH......„„ipBi , l
'fX
Áskrifendagetraun wpMsm
XTÝQTCS'liÍÍ
. V ÍOIO
VWXL:, ■■■ VV #*■ 'T >~-"r..”,■ *&■•■ 1. -J. "