Þjóðviljinn - 29.03.1978, Blaðsíða 11

Þjóðviljinn - 29.03.1978, Blaðsíða 11
Handbolti í Svíþjóð: „Bjartsýnn á sigur Lugi” Liö Jóns Hjaltalíns Magnússonar, Lugi, hef- ur nú tryggt sér rétt til þátttöku i fjögurra liða úrslitunum um sænska meistaratitilinn í hand- knattleik. „Við lékum nú siöast gegn Guif og náðum að sigra 23:21 eftir hörkuleik”, sagöi Jón er Þjóðviljinn hafði samband viö hann i Svlþjóð i gærkvöldi. „Það er nú ljóst hvaða lið koma til með að berjast um sænska meistaratitilinn. Það eru lið Lugi, Istad, Heim og fé- lagið sem Agúst Svavarsson leikur með, Drott. Þessi fjögurra liða úrslita- keppni hefst á morgun og eigum við i Lugi þá að leika gegn istad hér i Lundi.Drott á þá að leika gegn Heím,” sagði Jón enn- fremur. Leikiö verður heima og heim- an og á Lugi að leika seinni leik- inn gegn Istad á sunnudaginn. Keppninni er þannig háttað aö þaö lið sem vinnur stærri sigur á heimavelli á rétt á heimaleik i þeim næsta svo það er eins gott fyrir Jón og félaga hans i Lugi aö standa sig á morgun. Jón sagði að Agúst Svavarsson væri nú einn af markahæstu leik- mönnunum i „All Svensk- an” en hann mætti ekki leika meö Drott i úrslitakeppn- inni þar sem hann upp- fyliti ekki búsetuskílyrðí þau sem sett væru. Væri þeim erlendu leikmönnum sem leika i Sviþjóð aöeins heimilt að leika með liði sinu ef þeir hefðu búið i Sviþjóð i ekki skemri tima en eitt ár. „Ég er bjartsýnn á að okkur i Lugi gangi vel i úrslitakeppn- inni og vona að okkur takist að krækja I sænska meistaratitil- inn þegar yfir lýkur” sagði Jón Hjaltalin Magnússon aö lokum. SK. ANDREW PIAZZA sést hér á þessari mynd skera niður netiö á körfunni sem KR lék á I síðari hálfleik. Þetta er frægur siður i Bandarikjunum, en forstöðumaður Laugardalshallar, Gunnar Guðmannsson, tók þessu afar illa. „Eí KR-ing- ar kaupa ekld nýtt net, þá verður ekki spilað hér á fimmtudag” „Það er alveg ljóst að ef KR-ing- ar verða ekki búnir að kaupa nýtt net i körfuna, þar sem þeir skáru netið úr, verður ekki leikið hér i Bikarnum á morgun,” sagði Gunnar Guðmannsson er hann sá hvar Andrew Piazza var aö skera netiö úr körfunni (Sjá meðfylgj- andi mynd). — SK. / Island tapaði 120:41 tslenska Unglingalandsliðið sem nú keppir á Evrópumóti unglinga i körfuknattleik i Lud- vigsburg i Þýskalandi lék gegn Vestur Þjóðverjum i gærkvöldi og mátti þola stórtap, 120:41. Er Þjóðviljinn hafði i gærkvöldi samband við Jón Kristján Sig- urösson fyrirliða liðsins, var frek- ar dauft I honum hljóðið. Sagði hann að Þjóðverjarnir hefðu tekið stlfa pressu strax eftir skor- aöa körfu og við hana hefði is- lenska liðið ekkert ráðiö. Vestur-Þjóðverjum heföi geng- ið illa á mótinu til þessa og það hefði verið greinilegt aö nota átti Islenska liðið sem nokkurs konar upphefð i augu þýskra áhorfenda, eins og Kristján orðaði það. Liðiðhefði áður leikið gegn Pól- landi og Belgiu og tapað báöum leikjunum með 20 til 30 stiga mun. En islenska liöið á eftir að leika gegn tveimur slappari liöum rið- ilsins, Portúgal og Luxemburg, og að sögn Kristjáns Yoru allir landsliðspiltarnr staðráðnir i þvi að vinna þá tvo leiki sem eftir væru. Hann bað að lokum fyrir kveðjur frá þeim öllum til vina og vandamanna. ^ SK. Punktar úr Isl.-nióti i körfu: V ítahittni Dunbar einsdæmi islandsmótinu i körfu- knattleik er nú lokið og er þá tilvaliö aö líta á ýmsar tölur mótinu samfara. Við skulum byrja á vitanýt- ingu einstakra leikmanna, og eins og sjá má á töflunni hér aö neðan er þaö Dirk Dunbar tS sem heíur hlotið vitastyttuna i ár. Nýting hans er frábær. svo ekki séu notuö sterkari orð. AB brenna aðeins af sex skotum af 84, þaö hlýtur aö teljast eins- dæmi hér á landi og bótt viöar væri leitað. En tafla 10 bestu vitaskyttnanna litur þannig út: Þessir leikmenn tóku 56 vita- skot eða fleiri: 1. Dirk Dunbar 1S V B4—78 92.9% 2. Rick Hockenos Val 56—49 87.5% 3. Jón Héðinsson tS 62—47 75.8% 4. Einar Bollason KR 62—44 71.0% 5. Andrew Piazza KR < 63—44 69.8% 6. Mark Christiensen Þór 75—52 69.3% 7. Gunnar Þorvarðarson UMFN 71—49 69.0% 8. Jón Sigurðsson KR 81—55 67.9% 9. Jón Björgvinsson A ' 83—55 66.3% 10. Kristinn Jörundsson ÍR 103-68 66.0% SK. Dunbar sá stigahæsti Hinn frábæri leikmað- ur stúdenta, Dirk Dunbar varö einnig stigahæsti einstaklingur islands- mótsins 1978. Hann skor- ar 460 stig sem er met í stigaskorun i islandsmóti hér á landi. Eins og sjá má á töflunni hér að neðan raða Bandarikja- 1. Dirk Dunbar 1S 2. Rick Hockenos Valur 3. Mark Christensen Þór 4. Simon Ólafsson Fram 5. Andrew Piazza KR 6. Kristinn Jörundsson tR 7. Þorsteinn Bjarnason UMFN 8. Jón Sigurösson KR 9. Atli Arason Armann 10. Erlendur Markússon tR mennirnir þrír.sem hér Ieika,sér i þrjú efstu sætin og kernqr það engum á óvart. Sfmon Ólafsson skorar mest af islensku leikmönnunum eða 330 stig eða að meðaltali 23.6 stig I leik sem er mjög góður ár- angur. Annars litur taflan yfir 10 stigahæstu leikmenn tslands- mótsins þannig út: Þessir leikmenn skoruðu 200 stig eða 1977—1978 fleiri i 1. deild stig leikir mt. 460 13 35.4 407 14 29.1 363 14 25.9 330 14 23.6 325 14 23.2 312 14 22.3 288 14 20.6 281 14 20.1 250 13 19.2 234 10 23.4 SK. Stúdentar hittu best Stúdentar mega vel við una yfir árangri sínum i nýloknu islandsmóti. Þeir eiga stigahæsta leik- mann mótsins, bestu vitaskyttuna.og þeir, það er að segja liðið allt, er einnig efst á blaði yfir vitanýtingu féiaga. Nýting felagsins er tæp 70% sem er mjög góður árangur. Athygli vekur að iangneðsta og lélegasta liö deildarinnar, Armann, fær langflest vitaskot i mótinu. Liðiö fær 408 skot, en hittir aðeins úr 239 sem ekki er nægilega golt. Einnig vekur þaö athygli að Valur og Þór fá tii tölulega mun færri vitaskot en önnur lið deildarinnar. En tafl- an okkar litur annars þannig út: Í.IS 2. UMFN 3. Valur 4. KR 5.1R 6. Armann 7. Þór 8. Fram 353—243 68.8% 366—23664.5% 297—186 62.6% 375—230 61.3% 341—201 58.9% 408-239 58.6% 279—162 58.4% 385—203 52.7%

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.