Þjóðviljinn - 29.03.1978, Síða 3
Miðvikudagur 29. mars 1978 'l'JÓÐVILJINN — StÐA 3
Ófridlegt i Namibiu:
Þjódflokkshöfdingi myrtur
28/3 —Clemens Kapuuo, höfðingi,
Herero-þjóðflokksins i Namibiu,
var skotinn tilbana i gær. Óvist er
hverjir hafa verið. þar að verki,
enda þótt suðurafrisk yfirvöld
kenni SWAPO, sjálfstæðishreyf-
ingu Nantibiu, um drápið.
Kapuuo var I iltölulega Ieiðitamur
Suður-Afrikumönnum. óttast er
að morðið á honum kunni að leiða
til alvarlegra illinda milli
Herero-manna og Ovambo-þjóð-
flokksins, sem er miklu fjölmenn-
ari og sá stærsti i landinu.
Flestir stuðni ngsman na
SWAPO eru sagðir vera af þeim
þjóðflokki. t s.l. mánuði kom til
blóðugra átaka milli Ovambóa og
Hereróa og voru þá 14 menn
drepnir.
Sagt er að innan skamms muni
Bretland, Bandarikin,
Frakkland, Kanada og
Vestur-þýskaland leggja fyrir
-Buður-Afrikustjórn áætlun þess
efnis, að Namibia fái sjálfstæði og
hljóti sú stjórn, sem tekur við i
landinu samkvæmt áætluninni,
alþjóðlega viðurkenningu. Aætlun
þessi var gerð eftir meira en árs
samningaumleitanir við SWAPO
og Suður-Afrfkustjórn. Nú er
óttast að morðið á Kapuuo verði
til þess að Suður-Afrika hafni
þessari áætlun og reyni þess i stað
að stilla upp i Namibiu rikis-
stjórn, sem likleg sé til þess að
verða Suður-Afriku þjál i taumi.
Suður-Afrikustjórn hefur lofað
þvi að Namibia skuli verða sjálf-
stæð fyrir árslok.
Bændur harðir móti flugvelli
Opnun vallarins hefur veriö frestað tiu sinnum
28/3 — Mörg flugfélög eru I
standandi vandræðum með
samgöngur við Japan vegna þess
að orðiðhefur að fresta opnun nýs
alþjóðlegs flugvallar við Narita,
um 60 kilómetra norðaustur af
Tókió. Gert er ráð fyrir aö opnun
flugvallarins dragist i mánuð, og
stafar þetta af harðri andstöðu
bænda, sem búa f nágrenni við
flugvöllinn. Þeir hafa frá upphafi
verið mjög mótfaUnir flugvellin-
250.000 vesturþýskir
verkamenn frá vinnu
28/3 — Vesturþýskir verkalýðs-
leiðtogar og atvinnurekendur
hófu i dag þriðju tilraunina til
þess aö binda endi á verkfallið i
vesturþýska málmiðnaðinum,
sem hefur valdið þvi, að yfir
250.000 verkamenn hafa verið
frá vinnu s.l. tvær vikur. Verði
vinnudeila þessi ekki leyst
næstu dagana, er viðbúið aö
stytta verði vinnutima
hundruðþúsunda verkamanna i
28/3 — Flestir þeirra 160.000
bandarisku kolanámumanna,
sem hafa verið i verkfalli i hátt á
fjórða mánuð, hafa nú snúið aftur
til vinnu eftir að þeir höfðu
viðbót, aðallega í bílaiðnaði
Hér er bæði um að ræða verk-
föll og verkbönn atvinnu-
rekenda. Verkamenn krefjast
8% launahækkunar á þessu ári,
en aðalágreiningurinn virðist
vera um viðbótarkröfu verka-
lýðssamtakanna þess efnis, að
verkamönnum, sem missa at-
vinnuna sökum aukinnar tækni-
- væðingar, séu tryggð sömu laun
og áður.
samþykkt nýjasta samningstil-
boðið með litlum meirihluta at-
kvæða. Verkfall þétta er hið
lengsta i sögu bandarisks kola-
náms.
um vegna þess að þeir sjá fram á
mikinn hávaða af völdum um-
ferðarinnar. Róttækir vinstri-
sinnar hafa að sögn komið bænd-
unum til aðstoðar.
Lögreglulið hafði slegið hring
um völlinn, en flugvallarand-
stæöingar sáu við þeirri varð-
gæslu og komst mikið lið þeirra
inn á völlinn eftir skólpræsum.
Var liö þetta vopnað hömrum og
járnstöngum og braut og braml-
aði tækjabúnaöinn i flugturnin-
um. 1 gærkvöldi gerði lögreglan
svo gagnárás og tók með áhlaupi
virki úr steinsteypu, sem flug-
vallarandstæðingar höfðu byggt á
flugvallarsvæðinu. Varð þar
harður bardagi, en flestir flug-
vallarandstæðinga komust undan
eftir 300 metra löngum neðan-
jarðargöngum, sem þeir höfðu
grafið inn á völlinn og lögreglan
hafði til þessa ekki haft hugmynd
um. Lögreglan segist þó hafa
handtekið allmarga i eltingar-
leiknum eftir göngunum.
Flugumferöin til og frá Tókió
verður nú enn um sinn að fara öll
fram um Haneda-flugvöllinn,
sem orðinn er of lítill fyrir hana.
Narita-völlurinn var tilbúinn þeg-
ar 1973, en vegna harðarar and-
stöðu bændanna i kring hefur enn
ekki veriö hægt að taka hann i
notkun. Hefur opnun hans alla
sverið frestað tiu sinnum.
Bandariskir kolanámumenn
aftur til vinnu
ERLENDAR FRÉTTIR
/ stuttu
méH
V _______
Harðnandi bardagar
i Ródesíu
28/3 — A fréttum frá Ródesiu er
svo aö skilja að mikiö lið skæru-
liða ZANU, samtaka þeirra er
eru undir stjórn Roberts Muga-
be, hafi nú ráöist inn i
austurhluta landsins frá
Mósambik og geisi þar harðir
bardagar milli ZANU-liða og
Ródesiuhers. Fréttir af bardög-
um þessum eru óljósar, þvi að
ZANU hefúr ekkert látið frá sér
fara um þá og allar fregnir frá
Ródesiu sæta nú strangri rit-
skoðun stjórnarvalda.
Framlinurikin svoköiluðu,
Tansania, Mósambik, Bots-
vana, Sambia og Angóla, hafa
öll lýst yfir stuðningi við þá
ákvörðun Föðurlandsfylk-
ingarinnar, sem ZANU á aöild
að, að færa f aukana hernaðinn
gegn Ródesiustjórn, sem sumir
leiðtogar blökkumanna hafa nú
fengið hlutdeild i. Vesturveldin
kvið'a þvi nú mjög að framlinu-
rikin og Föðurlandsfylkingin
leiti eftir auknum stuðningi frá
Kúbu og Sovétríkjunum.
Begin stmgur upp á
nýjum viðræðum við Sadat
28/3 — Israelska útvarpið skýrði
svo frá i dag að Menakhem
Begin, forsætisráðherra Israels,
hefði skrifað Sadat Egypta-
landsforseta bréf með þeirri
uppástungu, að samningavið-
ræöur rikjanna, sem hafa verið i
sjálfheldu um skeið, yrðu
teknar upp að nýju. Viðræöur
þessar hafa legið niðri siðan
Egyptar slitu þeim vegna þess
einkum, að Israelar harðneit-
uðu að leggja niður nýbyggðir
sinar á Sinai.
Talsmaður tsraelsstjórnar
sagði eftir stjórnarfund á
páskadag að Begin ætlaði að
leggja fyrir Sadat nokkrar
nýjar uppástungur, en upplýsti
ekki hvers efnis þær
UDpástungur væru. Að sögn
útvarpsins krafðist Carter
Bandarikjaforseti þess ekki, að
tsraelar skiluðu Vesturbakka-
héruöunum, er þeir Begin rædd-
ust við fyrir skemmstu. Begin
er ennþá sagður halda fast við
það aö tsrael lofi engu um það
að leggja niður nýbyggðir sinar
i Vesturbakkahéruðunum.
200.000 heimilislausir
af völdum flóða
28/3 — Um 200.000 manns eru hjálpar vegna þess aö flóðin
heimilislausir eftir óskapleg hafa valdið miklum skemmdum
flóð i Mósambik, og er þaö stór- á vegum og járnbrautum. Einn-
fljótið Zambezi, sem flætt hefur ig hefur eyðilagst mikið af
yfir bakka sina. Mjög erfitt er uppskeru, meöal annars á
að koma þeim nauðstöddu til bómullarekrum.
Hörmulegt að fólk sé gabbað þannig
— segir landlæknir um ferö
íslendinga til andaskurdlæknis
á Filipseyjum
A laugardag fyrir páska var
sýnd bresk kvikmynd i
sjónvarpinu um andaskurð-
lækningar á Filipseyjum sem
vakið hefur mikia athygli, ekki
slst vegna þess að nýlega er
kominn þaðan hópur tslendinga
sem var að leita sér lækninga á
þennan hátt. Myndin fletti ofan
af andaskurðlæknunum sem
algjörum loddurum sem hefðu
fé út úr fólki undir fölsku yfir-
skini. Þjóöviljinn hafði af þessu
tilefni samband við Ólaf ólafs-
son Iandlækni, Aldlsi Jónsdótt-
ur, sem hafði frumkvæði að þvi
að Terðin var farin, og Ingvar
Georgsson gjaldkera hjá Ferða-
skrifstofunni Sunnu.
Sálarrannsóknar-
félagið sneri sér til
landlæknis
Ólafur Ólafsson landlæknir
sagðist telja svona lækningar
hina mestu fásinnu og hörmu-
legt að fólk léti gabba sig á
bennan hátt. Sennilega mis-
mkilja Vesturlandabúar þetta
allt, sagði hann. Filipseyingar
lita llklega á svona aðgerð sem
symból fremur en læknisaö-
gerð.
Landlæknir sagðist ekki hafa
haft önnur afskipti af þessum
andaskurðlækningum en þau,að
til sin hefðu komiö nokkrir
menn frá Sálarrannsóknar-
félaginu og lýst með mikilli
innlifun lækningaaðferöum
Antonio Agpaoa og árangri
þeirra og farið fram á að land-
læknisembættið tæki þátt I
kostnaði af þvi að fá þennan
mann til tslands. Sagðist land-
læknir hafa svaraö fólkinu að
hann sæi ekki ástæðu til þess að
styrkja þetta þar sem aðferðir
þessa trúarlæknis kæmu ekki
heim og saman við þá læknis-
fræðilegu kunnáttu sem nú væri
þekkt.
„Antonio” á ekkert
sameiginlegt við
loddarana
Þá hafði blaðið samband við
Aldisi Jónsdóttur, en hún hefur
skrifast á við trúarlækninn
Antonio Agpaoa I nokkur ár og
átti frumkvæöi aö t>vi aö ferö
tslendinganna væri farin og var
sjálf meöal þátttakenda. Hún
sagöi António þennan ekki eiga
neitt sameiginlegt viö loddar-
ana sem sýndir voru i myndinni.
Rikisstjórnin á Filipseyjum
stæði á bak við lækningastöð
hans og aðferðir sem hann beitti
væru með allt öðrum hætti
heldur en komiö heföi fram i
myndinni.
Fer í astrallíkama
heimsálfa á milli
Aldis Jónsdóttir sagði að
vinkona sin hefði handleggs-
brotnaö fyrir nokkrum árum og
hefði brotið verið vitlaust sett
saman. Hefði hún þá ákveðið aö
skrifa trúarlækninum Antonio
Agpaoa, en um hann hafði hún
heyrt Ævar Kvaran tala á fundi
hjá Sálarrannsóknarfélaginu.
Sendi hún bréf með hraöi og baö
hann að hjálpa vinkonu sinni.
Fékk hún fljótlega bréf til baka
frá Tony — en svo kallar Aldls
trúarlækninn — þar sem hann
sagði að fyrsta bréfið frá tslandi
væri kærasta bréf sem hann
hefði nokkurn tima fengið.
Siðan hafa þau skrifast á og vin-
konan orðið alheil i handleggn-
um. Tony er svo sterkur miðill
að hann getur farið i astral-
likama heimsálfa á milli, sagði
Aldis.
„Fólk meö
Tómasareðli á
ekki aö koma
nálægt þessu”
Þá sagði Aldis að amerfsk
• kona að nafni Francis heföi
haldið fyrirlestra þar ytra um
lækningaaðferðir Tonys og sagt
að 90% af öllum sjúkdómum
væru geðræns eðlis af þvi að
Guð legði ekki sjúkdóma á
menn. Þess vegna byggöist það
mikið á fólkinu sjálfu hvort þaö
læknaðist. Lækningin kæmi oft
eftir á og yrði fólkið sjálft aö
hjálpa til meö þvi að hugsa
jákvætt og útibyggja hræöslu,
ótta og áhyggjur.
Fólk með Tómasareðli á ekki
að koma nálægt þessu. Nokkrir
af tslendingunum i ferðinni voru
algjörlega neikvæðir, sagði hún.
ólafur óiafsson landiæknir
Fékk aö þreifa
Aldis sagði að lækningaað-
ferðir Tónýs væru gjörólikar
þeim sem sýndar voru i sjón-
varpinu. Hann væri ekki með
krepptar hendur þegar hann
skæri fólk upp, og hann dregur
vefi og æxli út með sáratöngum.
Sjálf sagðist hún hafa verið með
slitna þind og Tony hefði byrjað
á að opna sig við brjóstholið
með lófanum og tekið slitið úr
þindinni. tslensk kona sem meö
var í ferðinni fékk að þreifa inn i
þindina. Þá fór læknirinn líka
inn i hægri mjöðm og axlir
minar sagði Aldis, og þessi
sama Islenska kona tók mynd af
æxli sem hann dró út.
t upphafi tók Tony 6—7 sm
breitt léreftsband eða eitthvaö
likt þvi og lét Guðna Þóröarson i
Sunnu halda i annan endann, en
hann var með I ferðinni, og mig i
hinn, sagði Aldis. Siðan skar
hann bandið margsinnis i
sundur meö útréttum fingrum.
Biskup varar viö
Sá sem ekki getur gert
greinarmun á þvi sem við sáum
og þvi sem sýnt var I sjónvarp-
inu, sér ekki mun á hvitu og
svörtu, sagði Aldis. Sjálf er ég
búin að sjá svo mikiö úr öðrum
heimi að ég þarf ekki vitnanna
við. Ég hef séð framliöið fólk og
einu sinni birtist mér Jesús
Kristur og það i skýru raf-
magnsljósi, sagði hún að lokum.
Þess skal getið aö Sigurbjörn
Einarsson biskup varaði við
andaskurðlækningum i messu á
páskadagsmorgun.
Sunna hefur ekki
auglýst
I breska sjónvarpsþættinum á
laugardag kom fram að i
Bandarikjunum hefur verið
bannað að auglýsa ferðir til
þessara andaskurðlækna. Þjóð-
viljinn hafði samband við
Ingvar Georgsson gjaldkera hjá
Sunnu.og sagði hann að Geir P.
Þormar ökukennari hefði komið
að máli við feröaskrifstofuna
fyrir hönd þessa fólks og beöið
hana um að skipuleggja hana og
annast ferðastjórn. Hótel og
ferðir voru pantaöar beint til
Filipseyja og Heba Jónsdóttir
tók að sér fararstjórn. Ferðin
var ekkert auglýst og Sunna
hefur ekki i hyggju að hafa
frumkvæöi að slikum ferðum i
framtiðinni.
Þess skal getið að islenskur
læknir átti I upphafi að hafa far-
arstjórn á hendi, en dró sig til
baka á siðustu stundu. —GFr.
(