Þjóðviljinn - 29.03.1978, Side 5
MiBvikudagur 29. mars 1978 ÞJÓÐVILJINN — SIDA 5
Skólamálaráðstefna Alþýðubandalagsins hefst á föstudag
Skólinn annist jöfnum
höndum frummenntun
og fullorðinsfræðslu
Rætt vid Tryggva Þór Aðalsteinsson,
fræðslufulltrúa MFA
Ráðstefna Alþýöubandalagsins
um skólamál hefst i Þinghól i
Kópavogi nk. föstudagskvöld, 31.
mars, ogstendurtil sunnudagsins
2. aprll. Ráðstefnan er opin öllum
áhugamöhnnum um skólamál.
„Það er brýnt, að Alþýðu-
bandalagið haldi ráðstefnu sem
þessa,” sagðiTryggvi Þór Aðal-
steinsson fræðslufulltrúi
Menningar- og fræðslusambands
alþýðu i viötali við blaðið. „Þarna
kemur saman fólk úr hinum ýmsu
greinum þjóðlifsins til aö ræða
skólamál og sósialiska skóla-
stefnu.”
Tryggvi Þór sagðist sjálfur
hafa hugsað sér aö leggja mesta
áherslu á þátttöku i umræöu um
verkmenntun, og sömuleiöis vildi
hann beita sér fyrir umræðu er
lýtur að hlutverki islenskra skóla
og frjálsra félagasamtaka i full-
orðinsfræðslu.
„Það má ljóst vera,” sagði
Tryggvi Þór, „þó að það hafi
ekki verið rætt sem skyldi, hvorki
i Alþýöubandalaginu né annars
staðar, að hlutverk skóla I þjóð-
félagi sem okkar hlýtur að vera,
jöfnum höndum, að annast frum-
menntun og fulloröinsfræðslu,
þ.e.a.s. að gegna veigamiklu
hlutverki I fræðslu fullorðinna,
bæöi hvað varðar frjálst nám og
endurmenntun til starfa.”
Tryggvi Þór sagði ennfremur,
að þvi hefði lengi verið haldið
fram, að iðnmenntunin hafi verið
hornreka 1 islensku skólakerfi.
„Þó að þau mál sérstaklega hafi
verið meira til umræðu manna á
meðal og sömuleiðis til meðferð-
ar af opinberri hálfu á undanförn-
um árum en áður, þá er óhætt að
segja, að enn vanti mikið á, að
verkmenntunin hafi hlotið þann
sess sem henni ber,” sagði
Tryggvi Þór.
Um fjölbrautaskólana sagði
Tryggvi Þór, að það væri reyndar
ekki komið i ljós ennþá, hvað þeir
muni gera til þess að mennta fólk
til starfa i atvinnulifinu. En það
væri tvimælalaust rétt stefna,
áðeyða i skólakerfinu sjálfu þess-
um skýra mismun, sem verið
hefur milli bóknáms og verk-
náms.
„Það vill nú oft verða svo, að
menn áliti aö skólamál og mótun
skólastefnu sé eingöngu fyrir þá
sem beinlinis starfa að skólamál-
um, svokallaða skólamenn. Ég vil
fyrir mitt leyti visa þessu á bug,
töluverðu máli. Þó að menn sitji
nám, þá snerta skólamálin okkur
sem foreldra t.d. Og hvað okkur
iðnaðarmenn varðar, hlýtur
skipulavnp,na vsnntunar aö
skipta okkur mjög miklu máli og
lika sá hluti iðnmenntunarinnar,
sem við köllum endurmenntun og
starfsþjálfun,” sagði Tryggvi Þór
Aðalsteinsson að lokum. —eös
Slasaðist ad Gjögri
sóttur í flugvél
Siöastliöinn laugardag var
Adolf Tþorarensen á Gjögri fyrir
þvi slysí. aö ofan á hann féll snjó-
hengja meöþeim afleiöingum, aö
flytja varö hann i skyndingu meö
flugvél i sjdkrahús I Reykjavik.
Nánari atvik eru þau, að um
4-leytiöá laugardag fóru þeir Axel
og Adolf á Gjögri, ásamt tveim
mönnum öðrum, að bjarga reka-
trjám undan sjó. Svo hagar
þarna til, að háir bakkar eru að
sjónum, en miklar snjóhengjur
vilja gjarnan myndast i brúnun-
um og svo var nú. Ætlun þeirra
félaga var að nota bil til þess að
draga trén úr fjörunni og upp á
bakkann og hugðust þeir moka
geil gegnum snjóhengjuna svo
hægt yrði að draga upp trén.
Þegar Adolf var aö seilast eftir
rafti, sem lá inni I snjóskúta,
hrundi hengja ofan á hann. með
fyrrgreindum afleiðingum. Þeir
félagar voru þarna skammt frá
og urðu þess þegar varir hvernig
komið var. Gekk þeim greiðlega
að ná Adolfi úr snjónum.'Var sam-
stundis hringt á flugvél frá
Vængjum, sem kom um hæl þótt
flugskilyrði væru erfið. Var Adolf
fluttur I sjúkrahús i Reykjavik.
Kom i ljós að hann var fótbrotinn
og eitthvað meira meiddur. Liðan
hans mun nú eftir atvikum góð.
— mhg
Fimm
íslend-
mgar a
skákmót
í USA
Likur á ad Friðrik
Olafsson komist
ekki á mótiö
1 byrjun april hefst I Bandarikj-
unum geysilega sterkt skákmót,
þar sem margir af sterkustu
skákmönnum heims verða meöal
þátttakenda. Akveðiö var aö sex
Islendingar tækju þátt i mótinu,
en nú er útlit fyrir aö Friörik
Ólafsson stórmeistari komist ekki
á mótiö og þvi verði fimm landar
meðai þátttakenda.
Þeir sem fara á mótið eru:
Guðmundur Sigurjónsson stór-
meistari, Helgi ólafsson, Margeir
Pétursson, Jón L. Arnason og
Jónas P. Erlingsson.
Keppt verður eftir Svissneska
kerfinu svo nefnda, en þaö er aö
mörgu leyti lfkt Monrad-kerfinu
sem margir þekkja.
tslensku keppendurnir halda
utan nk. föstudag.
—S.dór
Aiþýöubandalagia — Ráðstefna um skólamál — Alþýðubandalagið
Skólinn og þjóðfélagið
Um næstu helgi efnir Alþýðubandalagið til ráðstefnu um
skólamál, samkvæmt samþykkt síðasta landsfundar flokksins.
Ráðstefnan fer fram i Þinghól, Hamraborg 11, Kópavogi á laugardaginn
fram til klukkan þrjú að Grettisgötu3, Reykjavik.
Með ráðstefnunni hyggst Alþýðubandalagið mynda vettvang þar sem áhuga-
fólk geti skipst á skoðunum og miðlað upplýsingum um skólamál. Leitast verður
við að greina og skýra stöðu skólans og unnið verður að stef numótun um þróun
skóiamála. Meðal helstu þátta sem f jallað verður um eru: markmið skólans
yf irlýst og dulin, einstaklingurinn í skólasamfélaginu, innri gerð og starfshættir
skólans, staða einstakra námsbrauta innan skólakerf isins, kröfur sósíalista um
lýðræðislega hætti og félagslegan jöfnuð. Til nánara yfirlits vísast í umræðu-
ramma sem menntamálanefnd miðstjórnar Alþýðubandalagsins tók saman i
vetur og sendi út til aðila innan og utan f lokksins, sjá einnig í Þjóðviljanum 11.
mars s.l.
Hefðbundin framsöguerindi verða engin fiutt á ráðstefnunni, en starf
hennar hefst með þvi að ýmsir þátttakenda gera grein fyrir viðhorfum
sinum til skóla og samfélags með hliðsjón af umræðurammanum. Þegar
hafa borist tilkynningar frá eftirtöidum mönnum um framlög: Björn
Bergsson Vestmannaeyjum, Gunnar Árnason sálfræðingur, Hallur Páll
Jónsson ísafirði, Hörður Bergmann námsstjóri, Jónas Pálsson skóla-
stjóri, Loftur Guttormsson sagnfræðingur, ólafur Proppe kennari. Enn-
fremur frá starfshópum iðnnema og frá starfshópi I Neskaupstað.
Ráðstefnan er öllum opin.
Þátttökugjald er 1.000 krónar.
Dagskrá
Föstudagur 31. mars i Þinghól.
20.30 Ráðstefnan sett, Svava Jakobsdóttir
alþingismaður.
Flutt undirbúin framlög, frá þátttak-
endum er varða m.a.: Ræfiieikamat —
„greind”, námsmat, verknám — fram-
haldsmenntun, innra starf skóla og
tengsl við umhverfið.
Ákveðið um viðfangsefni umræðuhópa
ráðstefnunnar.
Laugardagur 1. april.
9.30 að Grettisgötu 3.
Umræðuhópar starfa um ýmis afmörkuð
viðfangsefni samkvæmt ákvörðun al-
menna fundarins kvöldið áður.
15.00 i Þinghól, almennur fundur.
Framhald á kynntum framlögum frá
þátttakendum.
Skýrt frá starfi umræðuhópa.
Frjálsar umræður.
Sunnudagur 2. april i Þinghól.
10.00 Umræðuhópar.
13.30 Almennur fundur.
Skýrt frá starfi umræðuhópa.
Frjálsar umræður.
Niðurstöður dregnar saman.
Björn
Gunnar
Hallur Páll
Hörður
Jónas
Loftur
,ólafur
Svava
+4