Þjóðviljinn - 18.05.1978, Qupperneq 15

Þjóðviljinn - 18.05.1978, Qupperneq 15
Fimmtudagur 18. mai 1978 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 15 Afmælisrit Styrktar- félags van- gefinna Styrktarfélag vangefinna á 20 ára afmæli um þessar mundir og hefur félagið i tilefni þess gefið Ut stórt og vandað afmælisrit. Ritið ér 82 bls. að stærð. I þvl er rakin saga félagsins og einnig er greint frá átarfi þess i dag. Húsnæðis- málastofnun lánaði 5,9 miljarða á síðasta ári Á árinu 1977 námu lánveitingar Húsnæðismálastofnunar rikisins samtals 5.977.8 miljónum króna til byggingar og/eöa kaupa á 3879 ibúöum. Var hér um að ræða lán- veitingar úr Byggingarsjóði rik- isins og Byggingarsjóði verka- manna sem og af hinu sérstaka framlagi rikissjóðs til nýbygging- ar ibúða i stað heilsuspillandi húsnæðis. SGHF áskotn- ast fé Samtök grásleppuhrognafram- leiðenda S.G.H.F. voru stofnuð 12. nóvember 1977. Samtök grá- sleppuhrognaframleiðenda eru landssamtök sjómanna og verk- enda grásleppuhrogna. Tilgangur samtakanna er að vinna að hinum ýmsu hagsmuna- málum sjómanna og verkenda er þennan útveg stunda, t.d. verð- ákvörðun á grásleppuhrognum uppúr sjó, útflutningur fyrir meðlimi samtakanna, hærra verð á söltuðum grásleppuhrognum til útflutnings, betri nýting sjávar- aflans, aöild meðlimanna að hinu almenna sjóðakerfi sjávarút- vegsins, en á þeim vettvangi hafa þeir nánast enga fyrirgreiöslu fengið, þrátt fyrir að þessir aðilar hafa skilað á land sjávarafla að verðmæti um 800 miljónir króna á ári hverju á þvi 3ja mánaða tima- bili sem vertiðin stendur. Með lögum um breytingar á lögum um Sölustofnun lagmetis- iðnaðarins er samþykkt voru á alþingi 28. april siðast liðinn er lagt 3% svonefnt „fullvinnslu- gjald” á útflutt grásleppuhrogn. Fá S.G.H.F. 1% til sinna samtaka á sama hátt og L.I.tJ. og Samtök sjómanna fá af hinu almenna út- flutningsgjaldi af sjávarafurðum. Samtök grásleppuhrogna- framleiðenda opnuðu eigin skrif- stofu að Siðumúla 37, Reykjavik, þann 16. mai s.l. Simi samtakanna verður 86686. Pípulagnir Nýlagnir, breyting ar, hitaveitutenging- ar. Simi 36929 (milli kl. 12 og 1 og eftir kl. 7 a. “kvöldin) Þorsteinn Sveinsson, formaður Þjóðleikhúskórsins tekur við Menningarsjóðsstyrknum Þjóðlelkhúskóriim hlaut Menningars j óðsstyrkinn Að loknum afmælistónleikum Þjóðleikhúskórsins 8. mai s.l, sem haldnir voru I tilefni 25 ára afmælis kórsins, afhenti Sveinn Einarsson Þjóðleikhússtjóri styrk úr Menningarsjóði Þjóð- leikhússins. Styrkurinn var að þessu sinni veittur Þjóðleikhúskórnum, og er það nýmæli, þar eð styrkurinn hefur til þessa eingöngu verið veittur einstökum listamönnum leikhússins. Styrkupphæðin nem- ur 300 þús. krónum og lét Þjóð- leikhússtjóri svo ummælt við af- hendingu styrksins, að honum fylgdi sú ósk sjóðsstjórnar, aö upphæð þessi yrði vísir að utan- fararsjóði Þjóöleikhúskórsins, söngfólki til hvatningar og upp- örvunar. Þorsteinn Sveinsson, lögmaður, formaður Þjóðleikhúskórsins, tók við styrknum og þakkaði fyrir kórsins hönd. Árás Suöur-Afríkumanna 600 drepnir — Sænska blaðið Dagens Nyheter skýrir svo frá aö nærri 600 manns hafi verið drepnir I sprengjuárás Suöur-Afriku- manna á flóttamannabúðir I Cassinga i Angóiu. Sænskur blaðaljósmyndari, Sven Asberg, sem kom á staðinn, tók myndir af 15 metra langri og fimm metra breiðri fjöldagröf, sem honum var sagt að 460 lik hefðu verið jarðsett i. Hann sá lik af konum og börnum þar á meðal og eflirlifendur sögðu honum að fjöldi barna hefði verið meðal hinna drepnu. Loftárás þessi átti sér stað I siðastliðinni viku, þegar suður- afriskt herlið geröi árásir langt inn I Angólu, og var árásunum að sögn Suður-Afrikumanna beint gegn bækistöðvum SWAPO, sjálfstæðishreyfingar Namibiu, sem hefur griðland i. Angólu. Suður-Afrikumenn sögðust þá hafa eyðilagt aöal- bækistöö SWAPO. Sænski ljós* myndarinn kvaðst ekki hafa séð nein merki þess að herbækistöð hefði verið I flóttamannabúöun- um. Skóli var á meðal bygging- anna, sem eyðilagðar voru i árásinni. Frá aðalfundi Mjólkursamlags KEA: Adeins 20% framleiðsl- unnar neyslumjólk Aðalfundur Mjólkursamlags KEA var haldinn i Samkomuhús- inu á Akureyri þriðjudaginn 2. mal 1978 og hófst hann kl. 10.30 árdegis. Fundinn setti formaöur kaupfélagsstjórnar, Hjörtur E. Þórarinsson, Tjörn. A fundinum mættu um 140 m jólkurfra m leiðendur. Mjólkursamlagsstjóri, Vern- harður Sveinsson, flutti ýtarlega skýrslu um rekstur Mjólkursam- lagsins á árinu 1977 og las og út- skyrði reikninga þess. Innlagt mjólkurmagn var 23.912.674 litrar og hafði aukist um 1.782.098 litra eða 8.05% frá fyrra ári. Fitumagn mjólkurinn- ar var að meðaltali 4,148%. Mjólkurframleiðendur voru 313 og hafði fækkað um 7 frá fyrra ári. Meðalinnlegg á mjólkur- framleiðanda var 76.398 litrar. Af mjólkinni var 19.87% selt sem neyslumjólk en 80.13% fór til framleiðslu á ýmsum mjólkur- vörum. A árinu 1977 var framleitt: 627 tonn smjör 743 tonn ostur af ýmsum tegundum 70 tonn mysuostur og mysingur 160 tonn skyr 35 tonn þurrmjólk 216 tonn kasein 35 tonn youghurt Reikningsyfirlit ársins sýndi, að heildarverð til framleiðenda fyrir innlagða mjólk varð kr. 84.20 hver ltr. Sumarbúðir skáta að Úlfljótsvatni Eins og undanfarin ár verður fjölbreytt æskulýðsstarf á vegum skáta að Clfljótsvatni I sumar. Auk foringjanámskeiða og ann- arrar starfsemi, sem einskorðast við félaga skátahreyfingarinnar, verða rekin þar útilifsnámskeið og sumarbúðir sem standa öllum börnum opin. Otilifsnámskeiðin eru ætluð fyrir 11—-14 ára krakka. Sumarbúðirnar eru nú orönar hefðbundinn þáttur i sumarstarf- inu að Olfljótsvatni. Þær eru ætl- aðar 7—11 ára börnum. Bæjarfógetaembættið í Bolungarvik Heildartilboð óskast i innréttingar hús- næðis fyrir skrifstofu fógeta og lögreglu- stöð i ráðhúsi Bolungarvikur. Innifalið i verkinu er einangrun og plötuklæðning litils hluta útveggja, smiði og uppsetning innveggja, hurða og innréttinga, málning og dúkalögn. Verkinu skal að fullu lokið 1. mars 1979. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Borgartúni 7, Reykjavik, gegn 10.000 kr. skilatryggingu. Tilboð verða opnuð á sama stað miðviku- daginn 31. mai 1978, kl. 11.00 INNKAUPASTOFNUN RIKISINS BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844 PÓSTHÓLF 1441 TELEX 2006 BLAÐBERAR óskast 1 eftirtalin hverfi: Austurborg: Rauðalækur Seltjarnarnes: Skólabraut Okkur vantar tilfinnanlega blaðbera i þessi hverfi, þó ekki væri nema til bráða- birgða i nokkrar vikur. DJOOVWNN Vinsamlegast hafið samband við af- greiðsluna, Siðumúla 6.— Simi 81333. ® ÚTBOÐf Tilboð óskast i „Ductile pipur” fyrir Vatnsveitu Reykjavikur. útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri Frikirkjuveg 3 Reykjavik. Tilboðin verða opnuð á sama stað fimmtudaginn 8. júni 1978 kl. 11 f.h. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR Fnkifkjuvegi 3 — Sími 25800 Aðalfundur Reykjavikurdeildar Norræna félagsins verður i Norræna húsinu 23. maí 1978 kl. 20:30. Fundarefni: Venjuleg aðalfundarstörf. Stjórnin. Tökum að okkur smiði á eldhúsinnréttingum og skápum, bæði i gömul hús og ný. Sjáum ennfremur um breytingar á innréttingum. Við önn- umst hvers konar húsaviðgerðir, úti og inni. Verkið unnið af meisturum og vönum mönnum. T résmíða verkst æðið Bergstaöastræti 33 — Simar 41070 og 24613

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.