Þjóðviljinn - 18.05.1978, Síða 20
MOÐVIUINN
Fimmtudagur 18. mai 1978
F]
•1
Lj
Muniö kosningahappdrætti Alþýdubandalagsins. • Glæsilegir ferda- og bókavinningar
1000 kr. miðinn. • Eflum kosningasjóðinn!
Styrkjum kosningasókn Alþýðubandalagsins! • Verum fljót að gera skil!
Samninganefnd Alþýðusambands Vestfjarða:
__
Oskar aUsherjar-
verkfalls 1. júní
A fundi samninganefndar
Alþýöusambands Vestfjaröa siö-
degis i gær þar sem 36 af 41
nefndarmönnum sátu fór hún
fram á aö verkalýösfélögin á
Vestfjöröum boöi til verkfalls
l.júni n.k. Ályktun hennar er
eftirfarandi:
„Þar sem atvinnurekendur á
Vestfjöröum samþykkja ekki aö
samningar þeirra viö Alþýöu-
samband Vestfjarða frá 4.janúar
haldi fullu gildi og hafa jafnframt
hafnaö tillögum um igildi þess
sem afnumið var l.mars s.l. fer
samninganefnd ASV fram á þaö
viö aöildarfélögin aö þau boöi öll
sameiginlega til allsherjarvinnu-
stöövunar frá og meö l.júni n.k.
Ef atvinnurekendur tjá sig fúsa
til viðræöna fyrir þann tima er
stjórn ASV gefin heimild til könn-
unarviöræðna og falið aö kalla
alla samninganefndina saman ef
vænta má verulegs árangurs.”
—GF
Samningafundir með atvinnurekendum í gær:
Örlítil hreyfing —
en ekkert tilboð
Næstu fundir á morgun
1 gær kl. 2 var samningafundur
10 manna nefndar ASl og at-
vinnurekenda og stóö hann I tvo
tima en kl. 4 hófst samningafund-
Bandalag islenskra listamanna
Lýsir andstödu
viö NORDSAT
r
Islendingar hætti þátttöku í undirbúningi
norræna gerfihnattarins
Aöalfundur Bandalags is-
lenskra listamanna 1978 lýsir
andstöðu sinni viö áform um
stofnun og rekstur norræns gervi-
hnattakerfis til sjónvarpsmiölun-
ar — NORDSAT — sbr. tillögur
um þaö efni sem geröar voru á
vegum norrænnar ráöherra-
nefndar árið 1977.
Aðalfundur Bandalags
islenskra listamanna sér hvorki
fjárhagslegan né samfélagslegan
grundvöll fyrir tilkomu sliks
gervihnattakerfis. Samvinnu
Norðurlanda á sviöi menningar
og upplýsinga má efla á langtum
ódýrari hátt og árangursrikari en
meö tækni, sem bæöi er mjög dýr
og enn á tilraunastigi. Aöalfundur
islenskra listamanna varar einn-
ig viö þeim áhrifum sem vænta
má við tilkomu gervihnattakerf-
isins. Þaö er ekki einungis lifsaf-
koma islenskra listamanna sem
er i húfi, heldur mun tiföldun á
framboði sjónvarpsefnis marka
sin spor á starfsemi félagasam-
taka og framtakssemi einstakl-
inga.
1 samræmi viö ofangreinda af-
stöðu, beinir aðalfundur banda-
lags islenskra listamanna þvi til
fulltrúa tslands i umfjöllunar-
nefndum NORDSAT, að þeir
hætti þátttöku i téðum nefndum
en sinni i staöinn aökallandi verk-
efnum, sem innlend samtök og
inniendar stofnanir hafa fyrir
löngu krafist úrlausna á.
Greinargerð
Afstaða aðalfundar Bandalags
islenskra listamanna 1978 gegn
NORDSAT byggist meöal annars
á eftirfarandi atriðum:
a. Aukið framboö á sjónvarps-
efni mun hafa óæskileg félagsleg
áhrif. Hér má nefna m.a. minnk-
andi þátttöku almennings i
félagslifi, minnkandi neyslu inn-
lendrar framleiðslu á sviði lista
og fræöslu ásamt minnkandi
framtakssemi einstaklinga.
b. Framboð á sviöi skemmtana,
fræöslu, menningar- og tóm-
stundaiöju er svo mikiö hér á
landi, aö það reynist fólki erfitt aö
nýta þaö til fulls og notfæra sér
alla framboðna möguleika. Þaö
er þvi enginn skortur á tóm-
stundagamni hér á landi.
Framhald á 18. siðu
ur Verkamannasambandsins viö
atvinnurekendur.
Aö sögn Snorra Jóns-
sonar forseta ASt kom ekkert til-
boðfram af hálfu atvinnurekenda
en á þessum fundum var i fyrsta
skipti farið að ræöa um málefna-
lega lausn málsins og má þvi
segja aö örlitil hreyfing sé á við-
ræðunum. Næstu fundir eru boð-
aðir á morgun kl. 2 Þá ræöa at-
vinnurekendur i tvennu lagi viö
Verkamannasambandiö annars
vegar og 10 manna nefndina hins
vegar. Undirnefndir eru starfandi
og sitja i þeim Guðmundur
J.Guðmundsson og Snorri Jóns-
son af hálfu ASl en Kristján
Ragnarsson og Hallgrimur
Sigurðsson af hálfu atvinnurek-
enda. Undirnefnd i deilu Verka-
mannasambandsins skipa Guð-
mundur J.Guömundsson og Jón
Helgason en sömu menn af hálfu
atvinnurekenda. —GFR
LOtan af fyrirhugaöri glerhöll á Hótel lslands lóöinni.
Námsmenn í Gautaborg
Vilja halda í
bæjarsjarma
mið
Yfir 70 islenskir námsmenn
nú búsettir i Gautaborg hafa
sent borgaryfirvöldum I
Reykjavik mótmæli vegna
fyrirhugaðs niðurrifs á Hótel
tslands lóöinni viö Hafnar-
stræti.
Á undirskriftarlistunum
segir: „Viö undirrituö mót-
mælum kröftuglega þeirri
ákvöröun bogarstjórnar
Reykjavikur aö rifa húsin i
kringum „Hallærisplanið” og
byggja þar i staðinn höll. Við
bendum borgarstjórninni á aö
nota nýja miöbæinn við
Kringlumýri til slikra fram-
kvæmda, en leyfa gamla
bænum að halda sinum
,',sjarma”.
Þetta er annar listinn, sem
Þjóðviljanum berst meö mót-
mælum vegna Hallærisplansins
frá námsmönnum I Sviþjóð.
Hinn fyrri var frá Uppsölum og
þar skrifuðu einnig um 70
manns undir mótmælin.
Stofnfundur leigjendasamtaka
Alþýduhúskjallarinn klukkan 8 I kvöld
t kvöld klukkan 8 verður hald-
inn stofnfundur samtaka leigj-
enda. Fundarstaður er i kjallara
Alþýöuhússins i Reykjavik.
Fundarboöendur hvetja leigj-
endur ibúöarhúsnæöis til aö
sækja fundinn og gerast stofn-
félagar, en einnig aörir áhuga-
menn um húsaleigu-og húsnæöis-
mál vetkomnir.
Um miðjan april sl. var haldinn
undirbúningsfundur að stofnun
leigjendasamtaka. Jóhannes
Agústsson blaðamaöur á sæti i
undirbúningsnefndinni, og hann
skýrði Þjóöviljanum frá fyrir-
hugaðri dagskrá stofnfundarins I
kvöld. Jón Kjartansson frá Pálm-
holti, rithöfundur, gerir almenna
greinfyrirstörfum undirbúnings-
nefndar. Jón Ásgcir Sigurðsson
starfsmaöur Þjóöviljans skýrir
hugmyndir undirbúningsnefndar
um fjármál væntanlegra
léigjendasamtaka. Þá veröur
tekin afstaöa til fyrirliggjandi
lagafrumvarps og samtökunum
kjörin stjórn.
A stofnfundinum i kvöld verður
gerð grein fyrir málefnum þeirra
starfshópa sem myndaðir voru á
undirbúningsfundinum i april.
Meöal verkefna hópanna má
nefna: Staösetning leiguhúsnæöis
i borginni. Fyrirframgreiösla,
tiökanlegt form hennar og lög-
mæti. Leiguibúðir Reykjavikur-.
borgar og framleiguhúsnæði
borgarinnar. Þróun húsaleigu-
mála undanfarin ár. Opinber
áform um byggingu leiguhúsnæö-
is. Afdrif tillagna um aö húsa-
leiga sé frádráttarbær frá skatti.
Af þessari upptalningu sést að
verkefni fyrirhugaðra leigjenda-
samtaka eru margþætt og full
þörf á þvi að leigjendamálin séu
tekin föstum tökum. Meöal leigj-
enda er það fólk i borginni sem
býr við mest öryggisleysi i félags-
málum og hefur úr litlu aö spila.
Það skiptir þvi miklu að leigj-
endur bindist samtökum um
hagsmunamál sin. _k
Tillaga um starfshætti bargarstjórnar, nefnda og ráða borgarinnar:
Fundir fyrir
opnum tjöldum
Lokaðir meirihlutafundir verði bannaðir
íkvöld veröur haldinn siöasti
borgarstjórnarfundur fyrir
kosningar. Þar veröur meöal
annars á dagskrá tillaga frá
Þorbirni Broddasyni, en hún
fjallaöi um leiöir tilþess aö örva
áhuga og þátttöku Reykvikinga
í stjórnun borgarinnar.
Tillagan gerir I stuttu máli
ráð fyrir þvi aö allir fundir
borgarstjórnar, nefnda og ráöa
borgarinnar veröi haldnir fyrir
opnum tjöldum og almenningi
og fjölmiðlum veittur aðgangur
að þeim nema i sérstökum
undantekningartilfellum. Þá
gerir tillagan einnig ráö fyrir
þvi aö dagskrá hvers fúndar i
borgarstjórn Reykjavikur veröi
auglýst rækilega i fjölmiðlum
a.m.k. tveimur dögum fyrir
fund.
Þá segir i tillögunni: Oheimilt
skal aö halda lokaöa meiri-
hlutafundi fulltrúa I borgar-
stjórn eöa hjá stjórnum nefnda
Þorbjörn Broddason.
og ráöa borgarinnar, þar sem
mál er varða almenning eru
rædd og ákvarðanir kynnu að
vera teknar.
Þorbjörn sagöi I stuttu sam-
tali við J*jóðviljann i gær, aö
mikiö vantaöi á aö Reykviking-
ar sýndu störfum kjörinna fúll-
trúa sinna nægilegan áhuga og
aðhald. Hann taldi þaö aöallega
stafa af tvennu, annars vegar
þvi, aö fundir mikilvægra
nefnda og ráöa borgarinnar eru
lokaðir almenningi og fjölmiöl-
um og hins vegar vegna þess aö
ákvaröanir um afgreiðslu mála
eru teknar á lokuöum fundi
meirihlutans daginn fyrir borg-
arsyórnarfundi.
Þessi tillaga kemur til með aö
reyna á vilja meirihlutans til
þess að sýna lýöræöisást sina i
verki, sagöi Þorbjörn og hvort
þeir þora að láta fylgjast meö
störfum sinum og ákvarðana-
tekt.
A lokuöum fundum þeirra
fara fram efnisrsgar umræöur
um allar tillögur minnihluta-
flokkanna. Almenningur á eng-
an aðgang að þessum umræöum
og fær aldrei aö heyra neitt frá
þeim. Þegar til borgarstjórnar-
fundar kemur eru örlög tillagn-
anna ráðin og undantekningar-
litiö eru þær feildar, visaö frá
eða breytt algerlega.
Það veröur athyglisvert að
fylgjast með hver örlög þessar-
ar tillögu Þorbjarnar verða, en
þaðhefur liklega veriö ákveðið i
gær á fundi sem aðeins borgar-
fulltrúar Sjálfstæöisflokksins
h^fa aögang aö. —AI
Nú reynir á lýðræðisást Sjálfstæðismanna, segir Þorbjörn Broddason, borgarfulltrúi