Þjóðviljinn - 09.06.1978, Qupperneq 3
Föstudagur 9. jiíni 1978 ÞJÓDVILJINN — SIÐA 3
Þing Sambands íslenskra barnakennara:
Skorar á kennara að
sinna ekki
æfíngakennslu
fyrr en kennaraprófin verdi metin
jafngild til launa. Nafninu breytt
í Samband grunnskólakennara
máli, hafi það ekki verið til lykta
leitt fyrir þann tima.
Þingið skorar á félaga SÍB að
ráða sig ekki sem æfingakennara
i grunnskólum landsins né taka
kennaranema til æfingakennslu
fyrr en ákveðum þeim sem vitn-
að er til hefur verið fullnægt.”
A blaðamannafundi sem stjórn
SÍB hélt i tilefni þingsins, kom
fram að kennaraskortur var
meiri i vetur en veturinn 1976-77.
Fjórðungur grunnskólakennara
hefur ekki kennaramenntun og
árleg kennaraskipti skapa mikil
vændræði viða i dreifbýlinu. Höf-
uðorsakir kennaraskortsins og
25. þing Sambands islenskra
barnakennara var haldið á Hótei
Loftieiðum 1.-3. júni sl. Þingiö
sátu 75 fulitrúar frá 10 kennara-
félögum sambandsins.
Menntamálaráðherra, formað-
ur BSRB og fulltrúar annarra
kennarasamtaka ávörpuðu þing-
ið, auk framkvæmdastjóra
Norrænu kennarasamtakanna, er
sat þingið i boði stjórnar SÍB. Dr.
Wolfgang Edelstein og Sigurjón
Björnsson prófessor fluttu erindi
sem þeir nefndu: „Nokkrar nið-
urstöður rannsókna á börnum i
Reykjavik og hugsanleg þýðing
þeirra fyrir skólann.” Erindið
vakti mikla athygli þingfulltrúa.
Veigamesta breytingin sem
gerð var á lögum sambandsins
var nafnbreyting. Heitir sam-
bandið nú: Samband grunnskóla-
kennara, skammstafað S.G.K.
Stöðugt er unnið að sameiningu
kennarasamtakanna þriggja i
ein heildarsamtök og rikir vilji
fyrir þvi að sú sameining megi
takast sem fyrst.
Þingið lagði áherslu á að
kennarasamtökin yrðu virkari i
stefnumótun skólamála i landinu.
Það undirstrikaði þörfina á stór-
auknu fjármagni til ýmissa
þjónustustofnana skólanna, svo
sem fræðsluskrifstofa, skóla-
rannsóknadeildar, Rikisútgáfu
námsbóka o.f.l. en fjárskortur
stendur i vegi fyrir að þessar
stofnanir þjóni þvi hlutverki sem
grunnskólalögin ætla þeim.
Þingið fagnaði framkomnu
frumvarpi um Kennaraháskóla
Stjórn og varastjórn Sambands grunnskólakennara.
Islands og þeirri meginstefnu
sem þar er mörkuð, þ.e. að Kenn-
araháskólinn skuli annast upp-
eldis- og kennslufræðilega mennt-
un allra kennara á grunnskóla- og
framhaldsskólastigi.
1 kjaramálum kennarastéttar-
innar ber hæst launajöfnun
kennaraprófanna gömlu og nýju,
og var eftirfarandi samþykkt:
„25. fulltrúaþing SIB krefst
þess að ákvæði aðalkjarasamn-
ings um að kennarapróf verði
metin jafngild til launa án tillits
til þess á hvaða tima þau eru tek-
in, komi til framkvæmda nú þeg-
ar. Þingið beinir þvi til stjórnar
SIB að hún beiti sér fyrir sam-
ræmdum aðgerðum allra félaga
SIB i upphafi næsta skólaárs, i
samræmi við stjórnir svæðasam-
bandanna, fyrir þessu réttinda-
tiðra kennaraskipta töldu stjórn-
armenn sambandsins vera léleg
laun, húsnæðisvandræði og ófull-
nægjandi búnað skóla og að-
stöðu kennara.
Þingið lagði áherslu á að
kennarasamtökin þurfi að vinna
að því á næstu árum að bæta stór-
lega kaup og kjör kennara, auk
þess sem nauðsyn beri til að
breyta viðhorfi almennings og
ráðamanna til skólamála.
Aðalstjórn sambandsins var
endurkjörin. Hana skipa: Valgeir
Gestsson formaður, Bjarni
Ansnes, Elin ólafsdóttir, Guðjón
B. Jónsson, Kristin H. Tryggva-
dóttir, Páll Guðmundsson og
Ragna ólafsdóttir. Sambandið
hefur nýlega flutt starfsemi sina
ásamt fleiri aðildarfélögum
BSRB i nýtt húsnæði að Grettis-
götu 89. —eös
Átta ára stjórn Sjálfstæöismanna á Selfossi er lokiö:
Nýr meirihluti
myndaður
Fyrsti fundur bæjar-
stjórnar Selfoss var hald-
inn s.l. miðvikudag/ að því
er Sigurjón Erlingsson,
bæjarf ulltrúi Alþýðu-
bandalagsins, tjáði okkur í
gær.
— A fundi sögðu fulltrúar
Alþýðubandalags, Alþýðuflokks
og Framsóknarflokks að
Framboðsfundir í
Norðurlands
kjördæmi vestra
Framboðsfundir hafa nú verið ókveðnir i Norður-
landskjördæmi vestra,og verða þeir sem hér segir:
Hvammstanga mánudaginn 12. júní, kl. 20.30.
Varmahlíð, þriðjudaginn 13. júní, kl. 14.00.
Blönduósi, fimmtudaginn 15. júní, kl. 20.30
Skagaströnd, föstudaginn 16. júní, kl. 20.30.
Siglufirði, mánudaginn 19. júní, kl. 20.30.
Hofsósi, þriðjudaginn 20. júní, kl. 20.30.
Sauðárkróki, fimmtudaginn 22. júní, kl. 20.30.
—mhg
myndaöur hefði verið meirihluti
þessara þriggja flokka um kosn-
ingu forseta og nefnda og sam-
vinnu um málefni bæjarins þetta
kjörtimabil. Meiri hlutann mynda
6fulltrúaraf9 i bæjarstjórn, af A-
lista Steingrimur Ingvarsson, Af
B-lista Ingvi Ebenhardsson, Haf-
steinn Þorvaldsson, Gunnar
Kristmundsson og Guðmundur
Kr. Jónsson og af G-lista Sigurjón
Erlingsson. Forseti bæjarstjórn-
ar var kjörinn Ingvi Ebenhards-
son og varaforsetar þeir Sigurjón
Erlingsson og Steingrimur Ing-
varsson. Bæjarráð skipa: Sigur-
jón Erlingsson, Hafsteinn Þor-
valdsson og Óli Þ. Guöbjartsson,
sem er af D-lista.
Meðal þeirra nefnda, sem kosn-
ar voru á fundinum, var bygg-
inga- og skipulagsnefnd. I henni
eru tveir fulltrúar úr bæjarstjórn,
samkvæmt lögum, og eru það
þeir Sigur jón Erlingsson og Stein-
grímur Ingvarsson.
A fundinum var lögð fram, af
fulltrúum meiri hlutans, tillaga
að reglugerð um stjórn bæjar-
mála, til fyrriumræðu. Þá var og
af sömu aðilum lögö fram og
samþykkt tillaga um ráðningu
Erlendar Hálfdánarsonar i starf
bæjarstjóra, en hann var sveitar-
stjóri á Selfossi siðasta kjörtima-
bil.
Eins og kunnugt er voru sam-
þykkt lög um kaupstaðarréttindi
Selfoss skömmu fyrir sveitar-
stjórnarkosningarnar.
se/mhg
Nokkrir fulltrúar á þingi SIB
Nytt f iskverð ákveðið:
13-14% hækkun
Nýtt fiskverð hefur verið á-
kveðið fyrir timabilið 1. júni til
30. september og er það að með-
altali 13.5—14% hærra en það
verð, er gilti til mailoka.
Hækkun er nokkuð breytileg
eftir tegundum:
Þorskur
Ýsa
Ufsi
Karfi
Steinbitur
Hækkarum
12.7%
12.6%
26.9%
15.3%
18.6%
Aðrar tegundir hækka yfir-
leitt um 13—14% i verði, en verð
á grálúðu hækkar þó minna.
Auk þessara mismunandi verð-
breytinga eftir fisktegundum
voru gerðar nokkrar breytingar
á innbyrðis verðhlutföllum milli
stærðar- og gæðaflokka, einkum
að þvi er varðar verð á þorski
og ýsu. Þannig hækkar verð á
þorski og ýsu i fyrsta gæðafl.
meira en verð á sömu tegundum
i öðrum og þriðja gæðaflokki.
Verð á stórum þorski (70 cm og
yfir) hækkár aftur á móti
nokkru minna en á miðlungi
stórum og smáum þorski. Þess-
ar breytingar á verðhlutföllum
taka mið af markaðsverði af-
urða erlendis og framleiðslu-
kostnaði þeirra hérlendis, aö
teknu tilliti til hins nýja viðmiö-
unarverðs, sem stjórn Verðjöfn-
unarsjóðs fiskiðnaðarins hefur
ákveðið fyrir freðfiskafurðir á
verðtímabilinu, sem hófst 1.
júnl s.l.
Verðið var ákveðið með at-
kvæðum seljenda og odda-
manns, gegn atkvæðum kaup-
enda.
I yfirnefndinni áttu sæti Jón
Sigurðsson, sem var oddamaður
nefndarinnar, af hálfu seljenda
Ágúst Einarsson og Óskar Vig-
fússon, af hálfu kaupenda Arni
Benediktsson og Eyjólfur Isfeld
Eyjólfsson.
Þá hefur Verðlagsráö sjávar-
útvegsins ákveðið eftirfarandi
lágmarksverð á hörpudiski frá
1. júni til 30. september 1978:
Hörpudiskur i vinnsluhæfu á-
standi:
a) 7 cm á hæð og yfir, hvert kg.
kr. 46.00
b) 6 cm að 7 cm á hæð, hvert kg
kr. 36.00.
Verðið er miðað við, að selj-
endur skili hörpudiski á flutn-
ingstæki viö hlið veiðiskips og
skal hörpudiskurinn veginn á
bilvog af löggiltum vigtarmanni
á vinnslustað og þess gætt, að
sjór fylgi ekki með.
Verðið miðast við gæða- og
stærðarmat framleiðslueftirlits
sjávarafurða og fari gæöa- og
stærðarflokkun fram á vinnslu-
stað.
Kjósið strax
Eitt atkvædi getur ráöiö úrslitum
Félagsmenn í Alþýðu-
bandalaginu í Reykjavik
og stuðningsmenn G-list-
ans sem ekki verða heima
á kjördag eru eindregið
hvattir til að kjósa strax.
Upplýsingar um utankjör-
f undarkosningu eru veittar
á Grettisgötu 3, síma 17500.
Kosið er í Miðbæjarskóla
frá klukkan 10-12 árdegis,
frá klukkan 2-6 miðdegis
og frá klukkan 8-10 á
kvöldin.
Félagar 1 Alþýðubandalaginu
sem vita af stuðningsmönnum
flokksins sem staddir eru úti á
landi eru eindregiö hvattir til að
hafa samband við þá og hvetja þá
til að kjósa hjá næsta bæjarfógeta
sýslumanni eða hreppsstjóra sem
fyrst og koma atkvæðinu suður til
yfirkjörstjórnar eða til skrifstofu
flokksins á Grettisgötu 3 sem
allra fyrst.
Minnug þess að eitt einasta at-
kvæði getur ráðið úrslitum i
kosningunum og um framhaldið
eftir þær, skulum við brýna það
fyrir öllum okkar stuðnings-
mönnum sem eru á faraldsfæti að
kjósa strax og skrifa skýrt og
greinilega stórt G á kjörseðilinn.
Fjölskyldufélag Landhelgisgæslu
Gefur í orlofsheimilasjóð
Stjórn Ýs, fjölskyldufélags
Landhelgisgæslumanna, afhenti á
dögunum Sta rfsm annaf élagi
gæslunnar eina miljón króna að
gjöf I orlofsheimilasjóð.
Gisli ólafsson tók við fénu úr
hendi Elinar Skeggjadóttur for-
manns Ýs og flutti félögum Ýs
þakkir. Fénu hefur verið safn-
ao m.a. með sölu Landhelgis-
plattans fyrir siðustu jól og með
blóma- og kökusölu.
Framkvæmdir eru hafnar við
orlofsheimili gæslunnar 1 Gufu-
dalssveit i Baröastrandarsýslu.
Keypt hafa verið sumarhús og er
nú unnið við að koma þieim upp.