Þjóðviljinn - 09.06.1978, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 09.06.1978, Blaðsíða 16
Föstudagur 9. júnl 1978 A&alslmi Þjóöviljans er 81333 kl. 9-21 múnudaga til föstu- daga, kl. 9-12 á laugardögum og sunnudögum. Utan þessa tlma er hægt aö ná I blaöamenn og aöra starfs- menn blaösins I þessum simum: Ritstjórn 81382, 81527, 81257 og 81285, útbreiösla 81482 og Blaöaprent 81348. 81333 Einnig skal bent á heima- sima starfsmanna undir nafni Þjóöviljans i sima- skrá. r Oskar Vigfússon, forseti Sjómannasambandsins: Stígum ekki hrunadansinn sporléttir Tekur við gengisfelling eða ný stjórn með breytta efnahagsstefnu? Ég tel að við höfum náð því sem hægt var i þessari lotu/ og megum þvi nokkuð vel við una, sagði óskar Vigfússon forseti Sjó- mannasambands Islands um nýja fiskverðið. Hins vegar teljum við að okkur hafi borið meira til þess aðhalda í viðhækkun launa i landi, og að fisk- verðið hefði þurft að hækka um 20% til þess. Með því er ég ekki að segja að laun i landi séu of há, sérstaklega ekki hjá þeim sem við fiskvinnsluna starfa, heldur aðeins að hluta okkar sjómanna hef- ur enn versnað. Viö erum þvi hvergi nærri á- nægöir, en þó eru i þessu ljósir punktar, sem komu á óvart og vega þungt i sambandi við Óskar Vigfússon: Náöum þvisem hægt var, en teljum aö okkur beri meira. sumarvertlðina. Þar á ég við hækkun á veröi karfa og ufsa, sem hækkuöu meira én almennt fiskverö. Ég rengi ekki þær tölur, sem Eyjólfur K. tsfeld rekur i Morg- unblaðinu i gær, þar sem segir aö Verðjöfnunarsjóður verði þurr- ausinn eftir 2 mánuöi. Þannig er einfaldlega haldið á efnahags- málunum I þessu landi að Verð- jöfnunarsjóður stendur ekki undir sér I góðæri og undirstöðuat- vinnuvegur landsmanna er rek- inn með þeim hætti að viö blasir eymd og volæði I ágústlok. Hvað þá tekur við er ekki gott aö spá um, — ný gengisfelling eöa ný stjórn með breytta efnahags- stefnu? Meöan hlutirnir eru látnir reka svona á reiðanum, getum við sjó- , menn ekki annað en tekið þátt I þessum hrunadansi áfram; en viö stigum hann ekki sporléttir. —AI Alþýðubandalagið og Alþýðuflokkurinn í bæjarstjóm Hafnarfjarðar: Vildu ganga að kröfu verkafólks Meirihlutinn felldi tillögu þeirra Ægir Sigurgeirsson: ósmekkleg vinnubrögö meirihlutans sist til þess fallin aö leysa deiluna. Atvinnuhorfur stúdenta sæmilegar Áttatíu manns á skrá Atvinnuhorfur stúdenta eru sæmilegar og slst verri en undan- farin ár, ef marka má starfsemi atvinnumiölunarinnar, sagöi Nanna Pétursdóttir hjá atvinnu- miðlun stúdenta. Hjá okkur hafa 130 manns skráð sig, 85% þeirra eru karlar og 15% konur. 50 eru farnir út af skránni og höfum við getaö út- vegað 38 þeirra vinnu. Skráning er hins vegar enn i fullum gangi.enda er prófum ný- lokið og menn koma hér á hverj- um degi og skrá sig. Atvinnurek- endur hringja mikið og bjóða vinnu viö allt milli himins og jarðar, — ráöskonustöðu i sveit, byggingavinnu, næturvörslu o.fl o.fl. AI Viðtalstímar borgarf ulltrúa Borgarfulltrúar Alþýöubanda- lagsins hafa viötalstlma kl. 17-18, þriöjudaga, miövikudaga og föstudaga aö Grettisgötu 3, simi 17500. Á fundi í bæjarstjórn Hafnarfjarðar i fyrra- kvöld sem fulltrúar Abl. og Alþýðuf lokks í samninga- nefndinni höfðu beðið um, lögðu þeir fram tiliögu sem hljóðar svo: „Með tilliti til hins alvarlega ástands sem nú rikir i fiskiðjuveri BÚH og þeirrar nauðsynjar að reksturinn þar geti tafarlaust hafist á ný og starfsfólk aftur komið til starfa, þá samþykkir bæjarstjórn að ráöa nýja verk- stjóra til starfa þar fyrst um sinn meðan verið er aö finna endan- lega lausn á þessum málum bæjarútgeröarinnar. Jafnframt samþykkir bæjarstjórn að þeir starfshættir skuli teknir upp i BÚH sem gert var ráö fyrir i til- lögu bæjarfulltrúa sem lögö var fyrir fund starfsfólksins sl. mánudag.” Tillagan var felld með 7 atkv. gegn 4. Sagöi fulltrúi Abl. i nefnd- inni, Ægir Sigurgeirsson.aö jafn- framt heföu verið lögö fram nöfn tveggja verkstjóra, sem búiö var að ræða við og voru tilbúnir aö hefja störf þegar i stað. Fulltrúar Sjálfst.flokks, Framsóknar og Óháðra lögðu siðan fram tillögu sem var efnislega samhljóða þeirri tillögu, sem starfsfólkið hafði fellt fyrr I vikunni, þar sem gert er ráð fyrir breyttum starfs- háttum i Fiskiðjuverinu, fundum með starfsfólki o.fl., en að sömu verkstjórar starfi áfram. Hafði starfsfólkiö þá fellt tillöguna meö 68 atkv. gegn 43 og 4 seölar voru auöir. I þessari tillögu sem bæjarstjórn samþykkti nú með 7 atkvæðum —- hinir sátu hjá, — var að auki gert ráö fyrir aö máliö yröi endurskoðað eftir tvo mánuöi. Tillagan var svo birt i Morgun- blaðinu i gær og þótti fulltrúum starfsfólks mjög óviðkunnanlegt aö lesa hana i blööum, áöur en þeir fengu hana i hendur, en þeir fengu hana ekki fyrr en á hádegi i gær. Sagði Ægir aö þessi vinnu- brögð væru mjög ósmekkleg og sist til þess fallin að leysa deil- una. Boðaður hefur veriö fundur með starfsfólki fiskiðjuversins i dag kl. 4 þar sem fjallaö verður um tillögurnar sem bornar voru upp i bæjarstjórninni og mun verkafólkið taka afstööu til þeirra. — þs. Verkfallsmenn á Selfossi senda stuðningskveðju Þið munuð sigra | Sendu 350 þúsund krónur til starfsfólks BUH Formanni Hllfar I Hafnarfiröi Hallgrimi Péturssyni hefur bor- ! ist eftirfarandi skeyti frá „fyrr- verandi verkfallsmönnum I I smiöjum Kaupfélags Arnes- ' inga, Selfossi”: „Beröu verkfallsmönnum | Bæjarútgerðarinnar kveðju I okkar. Barátta þeirra er bar- * átta allra verkamanna fyrir ! mannlegri reisn og réttlæti. Gefist ekki upp. Þiö munuð sigra. . Fyrrverandi verkfallsmenn i smiöjum K.A. á Selfossi”. Skeyti þetta er dagsett 6. júni. Seinnipartinn I dag barst mér póstávisun, — sagöi Hallgrlmur Pétursson viö blaöið i gær- kvöldi, — upp á 350 þús. kr., frá þeim mönnum, sem undirskrif- aö hafa framanskráö skeyti, og er þessi upphæö ætluö til styrkt- ar þvi fólki, sem hér á i verk- • falli. Viö viljum hér með koma á framfæri alúöarþökkum fyrir [ þann mikilsveröa og drengilega stuöning, fjárhagslegan og sið- ferðilegan, sem i þessu felst, sagöi Hallgrimur Pétursson. ■ -mhg I ATVINNUHORFUR menntaskolanema Útlitið er dekkst hjá 16 og 17 ára Yngstu aldurshópar mennt- skælinga eiga erfiöast meö aö fá vinnu, sagöi ólafur ólafsson hjá atvinnumiölun menntaskólanna. 110 manns hafa látið skrá sig hér og skiptist það jafnt á bæði kynin. Meginhluti þeirra eru úr yngstu árgöngunum 16 og 17 ára, kannski vegna þess að þeir vita ekki hvar helst er að bera niður. Við höfum getað útvegaö 30 manns vinnu, en okkur skortir rekstrarfé frá ráðuneytinu og höfum þvi ekki getað auglýst eins og nauðsynlegt er. AI Kinda- bjúgu 564 % 1253 kr. 1-júni 1978 222 kr. 1-ág. 1974 Kinda- bjúgu 103% 247 kr. 14. jan. 1974 122 kr. 1971 1. &g. Hrktu 1111 vlntlrl •l)4/aa Hækkanir í tíð hægri stjórnar Baráttu- samkoma að Borg Alþýðubandalagið á Suð- urlandi efnir til baráttu- samkomu að Borg, Gríms- nesi,föstudaginn 16. júní og hefst hún kl. 21. A baráttusamkomunni koma fram: Eyvindur Erlendsson, leikari. Halla Guðmundsdóttir, leikkona. Bergþóra Arnadóttir, syngur baráttusöngva. Leikhópur frá Selfossi skipaður þeim Emiliu B. GrSnz, Kristinu Steinþórsdóttur, Sigurlinu Guð- mundsdóttur, Hildi Gunnarsdótt- ur, Katrinu I. Karlsdóttur, Hildi- gunni Daviðsdóttur, og Sigriði Karlsdóttur. Jón Sigurbjörnsson, söngvari. Garðar Cortes, söngvari. — Stutt ávörp .flytja: Guðrún Helgadóttir. Garðar Sigurðsson. Kynnir: Baldur Óskarsson. Að lokum verður stiginn dans fram eftir nóttu. Hljómsveitin Kaktus leikur. Sunnlendingar! Fjölmennið á baráttu- samkomu Alþýðubanda- lagsins að Borg. Alþýðubandalagið Suður- landi.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.