Þjóðviljinn - 11.06.1978, Side 4
4 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 11. júnl 1978
UOBVIUINN
Málgagn sósialisma, verkalýðshreyfingar
og þjóðfrelsis
Útgefandi: Otgáfufélag Þjóöviljans. Framkvæmdastjóri EiBur Berg-,
mann Ritstjórar: Kjartan ólafsson Svavar Gestsson Fréttastjóri:
Einar Karl Haraldsson. Umsjón meB sunnudagsblaBi: Arni Bergmann.
Auglýsingastjóri: Gunnar Steinn Pálsson Ritstjórn, afgreiBsla, auglýs-
ingar: SIBumúla 6, Simi 81333 Prentun: BlaBaprent hf.
Óuppsegjanlegur
smánarblettur
Stjómarflokkarnir hafa verið svo vinsamlegir að
draga landhelgismálið inn i kosningabaráttuna.
Það er i fyrsta sinn sem Sjálfstæðisflokkurinn telur
sér henta að minnast á landhelgismálið i kosning-
um; til þessa hefur hann talið sér sæmst að þegja.
Nokkrar helstu staðreyndir landihelgi'jsmálsins eru:
1. Sjálfstæðisflokkurinn var andvigur útfærslu
landhelginnar i 12 milur. Alþýðuflokkurinn sat á
svikráðum við útfærsluna. Þegar þessir flokkar
mynduðu rikisstjórn saman i ársbyrjun 1960 var
það þeirra fyrsta verk að gera samninga við Breta
um að landhelgin yrði ekki framar færð út úr 12 míl-
um. Þessi samningur var óuppsegjanlegur að mati
þeirra viðreisnarráðherranna j þeir töldu þetta atr-
iði einn helsta kost samningsins. Hitt mun þó sönnu
nær að aldrei i sögu lýðveldisins hafi verið gengið
eins langt i þvi að afsala landsréttindum i hendur
útlendinga og i þetta sinn. Nauðungarsamningurinn
1961 er óuppsegjanlegur sem smánarblettur á rikis-
stjórn Alþýðuflokksins og Sjálfstæðisflokksins.
2. Þegar leið á sjöunda áratuginn varð ljóst að
ásókn erlendra veiðiskipa i islenska fiskistofna væri
stórlega vaxandi. Tilþess að svara þeim staðreynd-
um flutti Alþýðubandalagið fyrst flokka á alþingi
tillögu um 50 milna landhelgi, en innan 50 milnanna
veiðast nærri 100% þorsks sem fæst hér við land.
Sjálfstæðisflokkurinn var andvigur útfærslunni i 50
milur; Alþýðuflokkurinn kallaði hana „siðlausa
ævintýrapólitik.”
3. Vegna 12 milnanna og 50 milnanna átti islenska
þjóðin i harðvitugum átökum við útlendinga, Breta
og Vestur-Þjóðverja og allt Atlantshafsbandalagið.
Allan þann tima sem þessar erfiðu deilur stóðu yfir
sat Sjálfstæðisflokkurinn á svikráðumviðhagsmuni
íslendinga. Afstaða hans er sem skólabókardæmi
um óþjóðlega afstöðu. En þar var ekki um að ræða
hann einan; afstaða Alþýðuflokksins var engu
skárri,og Framsóknarflokkurinn var eins og drusla
i höndunum á sérlegum sendimönnum Atlantshafs-
bandalagsins. Alþýðubandalagið stóð eitt flokka
vörð um íslenska hagsmuni; en það hefði aldrei
dugað til eitt sér, ef ekki hefði þar komið til
. að öll þjóðin stóð sameinuð. — Það var
‘ * þjóðin sem sigraði hin óþjóðlegu öfl sem vildu
leggja landhelgismálið, réttnefnt „lifshagsmuna-
mál þjóðarinnar”, undir dóm útlendinga og At-
lantshafsbandalagið. Lúðvik Jósepsson sjávarút-
vegsráðherra Alþýðubandalagsins i báðum vinstri-
stjórnunum hafði þar forystu, en stefna Alþýðu-
bandalagsins var studd af meirihluta þjóðarinnar —
landsmönnum öllum að heita mátti.
4. Það var i tið vinstristjórnarinnar sem lögin um
200 milna landhelgi voru samþykkt á alþingi. Þróun
hafréttarmálanna varð ör á þessum tima vegna út-
færslunnar i 50 sjómilur sem vakti heimsathygli og
naut stuðnings þjóða um allan heim.
Landhelgismálið er eitt stærsta málið i siðari
tima sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar. An útfærslu
landhelginnar gætu landsmenn ekki náð tökum á
þvi verkefni að skapa hér aðstöðu til mannsæmandi
lifskjara. An landhelgisútfærslu engin islensk at-
vinnustefna, heldur stóriðja i eigu útlendinga. Út-
færsla landhelginnar er þvi hornsteinn undir þau
lifskjör sem þjóðin býr við i dag. Nú þarf þjóðin
'að sameinast um það af reisn og skynsemi að land-
helgin verði nýtt með heill framtiðar i huga;nýtingu
fiskistofnanna einkenni ræktun en ekki rányrkja.
Það er þakkarvert að stjórnarflokkarnir skuli
vera svo vitiausir að ræða um landhelgismálið; það
gefur Alþýðubandalaginu tækifæri til þess að rifja
upp mikilvægar pólitískar staðreyndir, sem ráða úr-
slitum um tilveru þjóðarinnar. —s.
...og þetr ramn fá fé sitt aftnr meft rentum og renturentum....
EINKABISNESS OG LÆKNISFRÆÐI:
Mútur til að komast
inn í læknaháskóla
Gífurlegur og vaxandi
fjárstraumur liggur um
heilbrigðisþjónustu eins og
menn vita - um leið er það
Ijóst, að eðli málsins sam-
kvæmt er einatt hægur
vandi fyrir óprúttna menn
að raka til sín miklu fé
fyrir störf á þessu svið.
Þetta leiðir til spillingar
sem víða er gagnrýnd. Hér
á eftir verður sagt frá
múthneykslum sem upp
hafa komist í sambandi við
mikla aðsókn að lækna-
námi í Bandaríkjunum.
SögB eru dæmi af tveim ungum
mönnum i New York. BáBir áttu
vel stæöa feöur - var annar faöir-
inn varaforstjóri kjörbúöar, hinn
var vlnsali. Báöir hinir ungu
menn vildu gerast^ læknar, en
höföu lokiö heldur lélegum próf-
um frá menntaskóla (college).
Báöir eru þessir ungu menn aö
ljúka læknanámi, en þeir hafa
fariö aö þvi meö mjög ólikum
hætti.
4
Borgaði
tólf miljónir
Annar sonurinn sótti um skóla-
vist i 27 læknaskólum og var hafn-
aö i öllum. Hann fékk ekki innrit-
un fyrr en faöir hans haföi lofaö
aö gefa viökomandi skóla 50
þúsundir dollara eöa um 12
miljónir króna.
Hinn faöirinn var einnig beöinn
um aö gefa viökomandi skóla eins
og tiu þúsundir dollara, eftir aö
syni hans haföi veriö hafnaö i ein-
um tólf læknaskólum. En sonur-
inn reyndist hafa bein i nefi, og
bannaöi fööur sinum aö leggja
fram þetta mútufé. Þess i staö fór
hann til ttaliu og tókst aö komast
aö i læknanámi viö háskólann i
Bolognu.
Skólinn sem hér er um aö ræöa
er Chicago Medical School. Kom-
iöhefur fram viö vitnaleiöslur, aö
þessi skóli hefur á undanförnum
árum haft um 10 miljónir dollara
út úr umsækjendum um hiö eftir-
sótta og siöar arövænlega lækna-
nám — eöa aðstandendum þeirra.
IJtbreitt
spillingarkerfi
Bandarisku læknasamtökin
hafa fordæmt þann sið aö tengja
saman „gjafir” til læknaskólanna
(sem eru einkafýrirtæki eins og
svo margir aörar menntastofnan-
ir I Bandarfkjunum) og skólavist.
En þessi siöur breiöist engu aö
siöur ört út. Heyrst hefur aö
sumsstaðar hafi allt að 250 þús-
undir dollara (nálægt 60 miljónir
króna) veriö boönar fram til aö
„greiöa fyrir” inngöngu einhvers
vafagemlings i læknaskóla.
Stundum hafa mútur verið
greiddar stjórnmálamönnum,
sem hafa áhrif á inngönguskil-
mála þeirra skóla sem njóta stuö-
nings af opinberu fé.
Skólinn hafði
frumkvæði
Blaðiö New York Times hefur
fariö i saumana á þessum mál-
um, og reynt aö fylgja þvi eftir af
dæmum um ungu mennina tvo
sem fyrr var frá sagt, Blaöiö hef-
ur komist aö þvi, að það er erfitt
aö fá fólk til aö tala um þetta. En
m.a. komst blaöið á snoð-
ir um undarlegustu tiltektir
framgjarnra foreldra: faðir þess
sem hafnaöi i Chicago, reyndi aö
beita bisnesssamböndum sinum i
Texas til aö fá son sinn tekinn inn
þar, hann lét hann skipta um lög-
heimili ef þaö gæti auöveldaö
honum að komast i læknanám á
Florida o.s.frv. Aö lokum fékk
faöirinn „skuldbindingarkort”
frá Chicago Medical School þar
sem blátt áfram var beðið um
50.000 dollara, sem greiöast
skyldu á næstu fjórum árum.
Hann sendi fyrstu greiösluna,
og sonurinn var tekinn inn sex
mánuöum siðar.
Þetta var
hrein fjárkúgun
Hinn stúdentinn átti einnig viö-
ræöur viö fulltrúa margnefnds
læknaskóla i Chicago.
— Ég hefi aldrei lent i öðru
eins, segir hann viö New York
Times. Allar spurningarnar snér-
ust um fjármál.
Stúdentinn segir, aö viku eftir
samtaliö heföi milliliður frá skól-
anum komiö til hans og talað um
„fjárhagsleg vandamál” skólans
og s’agt að nú þyrftum viö að
leggja fram 10.000 dollara
— Þetta var ekkert annaö en
f járkúgun og ég gat ekki látiö föö-
ur minn standa i þessu. Ég fékk
um sama leyti vilyröi fyrir skóla-
vist i Bolognu og fór þangað.
Þeir sem flýja land
Hann kvaöst hafa hitt flejri
bandariska læknastúdenta á
Italiu, sem hefðu sagt sér, frá
hliðstæöum dæmum — þaö var
ætlast til aö fjölskyldurnar borg-
uöu fyrir inntöku. Þá höföu
stúdentar og sögur aö segja af
þvi, aö pólitisk sambönd heföu
verið notuö til aö koma stúdent-
um ilæknanám t.d. i New York og
Ohio.
Hann bætti þvi viö, aö hann
vissi vel, aö meðal bandariskra
lækna væri litið niöur á þá sem
ljúka námi erlendis og myndi
þetta há honum i starfi siöar. Og
ég get engum sagt aö ég sé
„erlendur læknir” af þvi aö ég
neitaöi aö borga mútur.
Svo mörg eru þau orö — og
mættu þeir vel taka notis af, sem
telja áö meira einkaframtak leysi
flestan vanda — einnig á sviöi
heilsugæslu og lækninga.
(ByggtálHT)
AÐALFUNDUR
Kaupfélag Hafnfirðinga verður
haldinn í fundarsal Kaupfélags
Hafnfirðinga miðvikudaginn
14. júní kl. 20.30.
Dagskrá; Venjuleg aðalfundarstörf
Stjórnin