Þjóðviljinn - 08.07.1978, Síða 3
Laugardagur 8. júll 1978 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3
Blaðamanna-
verkfall yfir-
vofandi í
Noregi
Þorgrlmur Gestsson simar
frá Noregi:
A miðnætti aðfararnótt
sunnudags fara niu hundruð
blaðamenn við 71 norskt blað
I verkfali náist ekki sam-
komuiag viö blaðaiítgef-
endur fyrir þann tima. Ef til
verkfalls kemur verður það
fyrsta blaöamannaverkfalliö
I sögu norskra dagblaða.
Blaðamannfélagið valdi þá
leið að segja upp störfum
ákveðins fjölda félagsmanna
sinna til að landið yrði ekki
algjörlega blaöalaust á með-
an á hugsanlegu verkfalli
stæði. Eigendur þeirra blaða
þar sem verkfall var ekki
boðað brugðust við þessu
með þvi að setja verkbann á
blaðamennina. Arbejder-
pressen, sem m.a. gefur út
Arbejderbladet, er sjálf-
stæður samningsaðili. For-
ráðamenn hennar hafa boð-
að verkbann frá 25. þessa
mánaðar. Framámenn I
Verkamannaflokknum hafa
gagnrýnt þá ákvörðun harð-
lega og benda á að það minni
óþyrmilega á aögerðir at-
vinnurekenda sem Verka-
mannaflokkurinn barðist
gegn áratugum saman.
Samningaviðræðum milli
blaðamanna og útgefenda
hefúr ekkert miðaö áfram og
loks lýstu útgefendur þvi yfir
um siðustu helgi að viðræður
væru gagnslausar á þessu
stigi málsins. Þeir höfðu þá
ekki hvikað frá upphaflega
tilboði sinu um 0.9% hækkun
á meðalkaupi sem jafngildir
86.50 norskum krónum i
hækkun á mánuði. Krafa
blaðamanna er um 4.2%
kauphækkun eða kr. 350
krónur. Auk þess fara blaða-
menn fram á þriggja mán-
aða barnsburðarleyfi á laun-
um, aukin áhrif á stjórn
blaðanna, þar á meðal I sam-
bandi við mannaráðningar,
og lagfæringar á greiðslum
fyrir aukavinnu.
Útgefendur hafa visað öll-
um þessum kröfum alger-
lega á bug.
Sænska öryggislögreglan:
Sökuð um samstarf
við hryðiuverkamenn
5/7 — Sænska fréttastofan
TT skýrir svo f rá að morð-
ið á Rolovic/ ambassador
Júgóslaviu í Stokkhóími,
sem framið varisendiráði
Júgóslavíu þar í apríl 1971/
hafi verið skipulagt með
aöstoð starfsmanna
sænsku öryggislögreglunn-
ar, SAPO. Morðið frömdu
liðsmenn króatisku hægri-
öfgasamtakanna Ustasja.
Fullyrðingin um hlutdeild
SAPO í morðinu kemur frá
einum Júgóslava þeirra
sem áttu þátt í undirbún-
ingi árásarinnar á sendi-
ráðið.
Maður þessi talaði það
sem hann taldi sig vita um
málið inn á segulband, og
var frásögn hans fyrir
skömmu birt í júgóslav-
neska tímaritinu Nin. Ut-
anríkisráðuneytið sænska
fékk svo senda þýðingu á
greininni frá sendiráði
Svía i Beograd.
Myrtur í Svíþjóð
Ekki er hægt að krefja mann-
inn, sem inn á bandiö talaði, frek-
ari sagna um málið, þvi áö hann
er ekki lengur á lifi. Hann var
myrtur i desember 1975 i Falken-
berg i Sviþjóð. Hann var félagi i
Ustasja og formaöur miðnefndar
félagsskapar þessa i Evrópu.
Hann skýrir svo frá á segul-
bandinu, að einn af foringjum
Ustasja, Króati að nafni Blaz,
hafi haft góð sambönd við sænsku
öryggislögregluna. Blaz flýði frá
Júgóslaviu fyrir 20 árum og hefur
siðan starfað meðal Ustasja-
manna i Vestur-Þýskalandi og
Ástraliu.
10. febrúar 1971 tóku Ustasja-
menn á vald sitt ræöismanns-
skrifstofu Júgóslava I Gautaborg.
En eftir sólarhring gáfust þeir
upp samkvæmt skipun frá Blaz,
sem komist hafði að þvi hjá kunn-
ingjum sínum i SAPO, aö hvorki
ræöismaðurinn né aðrar mikil-
vægar persónur væru meðal gisl-
anna. Taldi Blaz þvi að júgóslav-
nesk yfirvöld myndu ekki sam-
þykkja að láta Ustasja-fanga I
Júgóslaviu lausa i skiptum fyrir
glslana.
SAPO gaf grænt Ijós
Skömmu siðar kom Blaz til
Stokkhólms og fyrirskipaði liðs-
mönnum sinum þar að taka á sitt
vald sendiráð Júgóslava þar á-
samt með öllu starfsliðinu. I
skiptum fyrir starfsliðiö átti að
knýja júgóslavnesk stjórnarvöld
til þess að láta lausa niu menn úr
Ustasja, sem voru i júgóslav-
neskum fangelsum. Formaður
miðnefndarinnar, sá er inn á
bandið talaði, var á móti þessu
vegna þess, -að aðeins þremur
mönnum var ætlað að taka sendi-
ráðiö, en það taldi hann ekki næg-
an liðstyrk. Blaz sagði honum þá,
að hann þyrfti ekki að hafa á-
hyggjur af sænsku lögreglunni.
SAPO hafði sem sé fullvissað
Blaz um, að hún myndi ekki
skipta sér af sendiráðstökunni.
Eftir morðið á ambassadornum
fyrirskipaði Blaz nýja og „stóra”
aðgerð, sem átti að framkvæma
þegar morðingjarnir yrðu leiddir
fyrir rétt. En hann hætti við þær
fyrirætlanir, þegar sambands-
menn hans i SAPO sögðu honum,
að aðgerðin myndi ekki borga sig.
Áhrifamiklir vinir
Sumarið 1972 kom Blaz enn til
Sviþjóðar. Hann sagði þá mönn-
um sinum þar, að hinir áhrifa-
miklu vinir hans i SAPO hefðu
látið hann vita, að nú væri timinn
fullnaður til nýrrar aðgerðar,
sem sé að frelsa Ustasja-fangana
úr Kumla-fangelsinu. Arangurinn
varð vel skipulagður fjöldaflótti
úr Kumla i ágúst sama ár. 15
fangar sluppu, þar á meöal þeir
tveir Júgóslavar, sem dæmdir
voru fyrir morðiö á ambassa-
dornum. Þeir voru þó handteknir
aftur fáeinum dögum siöar.
En mánuði siðar var Júgóslöv-
um þessum sleppt úr Kumla, þeg-
ar Ustasja-menn rændu flugvél i
Malmö.
Þessi uppljóstrun þykir að von-
um ekki góð til afspurnar fyrir
sænsku öryggislögregluna. Hún
hefur jafnan verið hreiður hægri-
manna og sænskar leyniþjónustu-
stofnanir eiga að baki nokkuð
flekkóttan feril. A árum siðari
heimsstyrjaldar áttu til dæmis
leyniþjónustustofnanir Þjóðverja
greiðan aðgang að flestu, sem
njósnaþjónusta Svia vissi.
Uppbótar-
þingsætum
úthlutað
Landskjörstjórn kom
saman til fundar í gær
til að úthluta uppbótar-
þingsætum. Lands-
kjörnir þingmenn eru
þessir:
1. Björn Jónsson (A), 2.
Finnur Torfi Stefánsson (A),
3. Olafur Ragnar Grimsson
(G), 4. Gunnlaugur Stefáns-
son (A), 5. Friðrik Sophusson
(D), 6. Hjörleifur Guttorms-
son (G), 7. Jósep H. Þor-
geirsson (D), 8. Bragi Niels-
son (A), 9. Ólafur G. Einars-
son (D), 10. Geir Gunnarsson
(G), 11. Arni Gunnarsson
(A).
Eftirtaldir þingmenn eru
varamenn landskjörinna
þingmanna: Frá Alþýðu-
fiokki Agúst Einarsson,
Bjarni Guðnason, Jón Bald-
vin Hannibalsson, Bragi
Jósepsson og Gunnár Már
Kristóf ersson . Frá
Sjálfstæðisflokki Steinþór
Gestsson, Halldór Blöndai og
Sigurlaug Bjarnadóttir. Frá
Alþýðubandalagi Hannes
Baldvinsson, Soffia Guö-
mundsdóttir og Skúli Alex-
andersson. —eös
Bardögum liirnir í Beirút
Hætta á stríði ísraela og Sýrlendinga
7/7 — Bardögum hefur aö
mestu siotaö i Beirút, höfuðborg
Libanons. Sýrlendingar hættu
stórskotahrið sinni á austurborg-
ina, þarsem kristnir menn búa og
varðliöasveitir hægrimanna hafa
bækistöðvar, sennilega vegan
hótana Eliasar Sarkis, Llbanons-
forseta, um aö segja af sér. Einn-
ig kann hér nokkru aö valda um
ótti Sýrlendinga viö að tsraelar
skerist i leikinn til stuönings
hægrimönnum.
Enda þótt stjórnin I Libanon fái
litlu ráðið, óttast margir vaxandi
upplausn efSarkissegirafsér,og
á þaö munu Sýrlendingar ekki
vilja hætta að svo stöddu. Þar aö
auki er greinilegt að öflugustu
riki Vesturlanda styðja Sarkis og
hafa ambassadorar þeirra lagt
fast að honum að hætta við af-
sögnina. Hið sama gera leiðtogar
ýmissa libanskra stjórnmála- og
trúflokka.
Veruleg hættaer talin á að strið
brjótist út milli Israels og Sýr-
lands út af Libanon, og sagði blað
eitt i Libanon i dag að svo gæti
auðveldlega farið ef Sarkis gerði
alvöru úr þvi að segja af sér.
Hestameim! Nýkomið:
___ íslenskir ^Enskir Areentískir
Reiðbuxur stretch 13.900.
ílauel 14.900.—
Pískar frá 1.290-- 1.690—
ístöð, margar tegundir,
frá kr. 2.190- 10.900—
Kappreiðarskeifur úr áli, iitiar
fjaðrir nr. 3V2- 4'/2
Einnig tannraspar frá 13.895—
- 20.370-
Argentískir
— vönduð vara
AUar járningarvörar, hamrar, hnykkingartengur, hnifar, sex
tegundir af naglbítum, nasamúlar, krossmúlar o.fl. o.)
sérverslun hestamaimsins
Lóuhóiar 2-6. Sími 75020