Þjóðviljinn - 08.07.1978, Blaðsíða 9
8 SIDA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 8. júll 1978
«
Dagskrá
áttunda
Landsmóts
L.H.
Miðvikudagur 12. júli:
Kl. 10.00 Stóðhestar dæmdir
dómarar starfa allan daginn.
Völlur II. /
Fimmtudagur 13. júlí:
Kl. 10.00 Kynbótahryssur
dæmdar. Völlur II.
Kl. 13.00 Spjaldadómar
gæðinga i B flokki. Völlur I.
Kl. 15.00 Kynning söluhrossa.
Völlur III.
Föstudagur 14. júli:
13.00 öllum einstaklings kyn-
bótahrossum riðiö inn á völl.
13.30 Mótið sett af formanni
Landssam bands hesta-
mannafélaga, Albert
Jóhannssyni
Kl. 14.00 Spjaldadómar gæðinga
í A flokki. Vtíllur II.
14.00 Kynbótahryssur kynntar.
Völlur I.
15.00 Unglingakeppni 10-12 ára
Völlur III.
16.00 Stóöhestar kynntir. Völlur
I.
17.30 Undanrásir kappreiða —
stökk 250m, 350 m og 1500 m
brokk — fyrri sprettur.
Kl. 20.00 Gæðingaskeið á Suður-
braut.
Kl. 21.00 Kvöldvaka (sérstök
dagskrá).
Laugardagur 15. júlí:
Kl. 10.00 Kynning á söluhross-
um. Völlur III.
Kl. 13.00 Stóðhestar — dómum
lýst. Völlur I.
14.00 Töltkeppni — keppt til úr-
slita. Völlur III.
15.30 Kynbótahryssur — dómum
lýst. Völlur I.
16.00 Unglingakeppni 13-15 ára
Völlur III.
17.00 Brokkeppni — seir.ni
sprettur.
17.15 Skeið — fyrri sprettur.
Kl. 17.30Milliriölar i 350m og 800
m stökki.
Kl. 18.00 Söluppboð á hestum.
Kl. 21.00 Kvöldvaka (sérstök
dagskrá).
Sunnudagur 16. júlí:
Kl. 11.00 Helgistund i Hvanna-
gjá, Hr. Sigurbjörn Eir.arsson
biskup prédikar.
Kl. 12.30 Hornaflokkur Kópa-
vogs leikur undir stjórn
Björns Guöjónssonar.
Kl. 13.00 Hópreið hestamanna
inn á mótssvæði.
KI. 13.10 Avörp flytja Land-
búnaðarráðherra og for-
maður stjórnar B.l.
Kl. 14.00 Kynbótahryssur i dóm-
hring — verðlaun afhent.
Kl. 14.30 Stóðhestar i dómhring
— verölaun afhent.
Kl. 15.30 10 bestu gæðingar i A
flokki — verölaunaafhending.
Kl. 16.00 10 bestu gæöíngar i B
flokki — verðlaunaafhending.
Kl. 16.30 Verölaunaafhending,
unglingar, tölt og gæðinga-
skeið.
Kl. 17.00 Seinni sprettur skeið
— verðlaunaafhending.
17.30 Urslit kappreiöa, stökk:
250m, 350m, 800m verðlauna-
afhending.
Kl. 19.00 Dregiö i happdrætti
landsmóts hestamanna.
Formaöur framkvæmdanefnd-
ar, Bergur Magnússon slitur
mótinu.
Framkvæmdanefnd landsmóts,
áskilur sér rétt til breytinga á
dagskrá.
Eins og fram hefur komið i fjöl-
miölum hefst Landsmót hesta-
manna miövikudaginn 12. júli
n.k. og lýkur þvi sunnudaginn 16.
júll. Mótiöveröur aö þessusinni á
Þingvöllum, nánar tiltekið I Skóg-
arhólum. 1 tilefni þessa atburöar
kvöddu þeir Pétur Hjálmsson,
framkvæmdastjóri I.andsmótsins
og Bergur Magnússon, formaöur
framkvæmdanefndar fréttamenn
tU fundar s.l. miövikudag. Var
safninu smalaö saman inni i
Fáksheimiii en siöan ekið til
ÞingvaUa, þar sem mótsstaöur-
inn var skoöaöur og þær fram-
kvæmdir, sem unnar hafa verið
þar tU undirbúnings inótinu, og
frá þvi sagt aö ööru leyti.
Stigið var úr bUnum við starfs-
mannaskálann þar eystra en siö-
an gengið út í „guðsgræna náttúr-
una” þar sem fundur var settur.
Urðu menn margs vísari af máli
þeirra Péturs og Bergs og mun
hér leitast við aö skýra frá þvi
helsta.
Áttunda landsmótið
Landssamband hestamanna
var stofnað 1949. Fyrsti formaður
þess var H.J. Hólmjárn.Þá Stein-
þór Gestsson, bóndi Hæli, siðan
Einar E. Sæmundsen og núver-
andi formaður er Albert Jóhanns-
son.
Landssambandið hélt sitt
fyrsta landsmót á Leirunum á
Þingvöllum 1950. Framkvæmda-
stjóri þess var formaður Sam-
bandsins,.H.J. Hólmjárn. Bergur
Magnússon var starfsmaður við
það mót og lauk miklu lofsorði á
stjórn Hólmjárns.dugnað hans og
fýrirhyggju. — Annað landsmót
L.H. var svo á bveráreyrum i
Eyjafirði 1954. Hið þriðja i Skóg-
arhólum á Þingvöllum 1958.
Fjórða á sama stað 1962. Fimmta
landsmótið varhaldið að Hólum I
Hjaltadal 1966. Hiö sjötta i Skóg-
arhólum 1970. Sjöunda á Vind-
heimamelum ÍSkagafirði 1974 og
svo er þá þetta, sem nú verður i
Skógarhólum hiö áttunda i röð-
inni. Þetta er þvi fimmta lands-
mótiö, sem haldiö hefur verið á
Þingvöllum. Tvö hafa verið i
Skagafirði og eitt i Eyjafirði.
— Og þaö er engin tilviljun að
einmitt sá staður „þar sem nú
stöndum vér”, var valinn þing-
staður til forna, þegar hesturinn
var eina farartækiö, sagði Berg-
ur. — Og sömu rök hniga að þvi nú
aðhér séu haldin landsmót hesta-
manna. Þótt mikill meiri hiuti
mótsgesta komi nú á öðrum
farartækjum en hestum þá er
alltaf mjög mikið um að menn
komi hingað riöandi hvaðanæva
af landinu, rétt eins og til forna.
Vitað er að þegar eru riönir úr
hlaði og áleiðis hingað hópar
hestamanna frá Isafirði, Húsavik
og Hornafirði.
Miklar umbætur á móts-
staðnum
Mjög mikiö starf hefur verið
unnið til lagfæringar á móts-
staðnum oghófstþaðþegar i des-
ember. Og enn er verið þar að
verki. Rennandi vatn hefur verið
leitt inn á svæðið. Snyrtiaðstaða
er orðin góð. Reist hefur verið 40
ferm. hús yfir minja-gripaversl-
un. Lagfærð aöstaða i stóöhesta-
húsi, i skrifstofu og mötuneyti.
Hótel Valhöll gerði tilboð i að sjá
um veitingar á mótinu og var þvi
tekið. Hægt verður að fá heitan
mat og ýmsa smárétti, allskonar
hrámeti og m jólk, svo aö eitthvað
sénefnt. Hægt verður að fá keypt-
Kvöldvökur á Landsmóti L.H.
Föstudaginn 14. júli.
Kvölddagskrá
Kl. 21-22:30.
Dagskrárstjóri: Klemenz Jóns-
son.
Kynnir: Gunnar Eyjólfsson.
1. Hornaflokkur Kópavogs
leikur. Stjórnandi: Björn
Guðjónsson.
2. Lárus Sveinsson og Sveinn
Birgisson blása til leiks.
3. Sýning barna og unglinga i
ýmsum greinum hesta-
mennsku. Stjórnendur: Kol-
brún Kristjánsdóttir og Ragn-
ar Tómasson.
4. Guðmundur Jónsson syng-
ur. Undirleikari: ölafur V
Albertsson.
5. Fákar eftir Einar Bene-
diktsson. Flytjandi: Gunnar
Eyjólfsson.
6. Kerruakstur. Stjórnendur:
Gréta Jónsdóttir og Freyja
Hilmarsdóttir.
7. Konur i sööli. Stjórnandi:
Kolbrún Kristjánsdóttir.
8. Heybandslest fer um völl-
inn. Stjórnandi: Sigurður
Gunnarsson frá Bjarnastöð-
um.
9. Flúðakórinn syngur. Stjórn-
andi: Sigurður Agústsson frá
Birtingarholti.
10. Leikþáttur. Flytjendur:
Flosi Ólafsson, Sigrlöur Þor-
valdsdóttir og Magnús Ingi-
marsson.
11. Hornaflokkur Kópavogs
leikur. Stjórnandi: Björn
Guðjónsson.
Laugardaginn
15. júli.
Dagskrárstjóri: Klemenz Jóns-
son.
Kynnir: Gunnar Eyjólfsson.
Dagskráin hefst kl. 21.00.
1. Hornaflokkur Kópavogs
leikur. Stjórnandi: Björn
Guðjónsson.
2. Einsöngur. Jón Sigurbjörns-
son syngur meö undirleik
Hornaflokks Kópavögs.
3. Þjóðdansar.Þjóðdansafélag
Reykjavikur sýnir.
4. Halli og Laddi og Siguröur
frá Kirkjubæ skemmta.
5. Vfsna-þáttur i umsjá Gunn-
ars Eyjólfssonar.
6. Róbert Arnfinnsson
skemmtir, ásamt Ilornaflokk
Köpavogs.
7. Tvöfaldur kvartett hesta-
manna syngur. Stjórnandi:
Lárus Sveinsson.
8. Fjöldasöngur undir stjórn
Lárusar Sveinssonar og
Garðars Cortes.
9. Hornaflokkur Kópavogs
leikur. Stjórnandi: Björn
Guðjónsson.
Um kvöldið veröur varöeldur
tendraður.
Laugardagur 8. júll 1978 ÞJÓDVILJINN — SIDA 9
ar nauðsynjar á tjaldstæöunum,
sem eru rúmgóö og vel frá geng-
in. Póst- og simamálastjórnin
brást hinsvegar mjög vonum for-
ustumanna mótsins, sem ekki
hefur komið fyrir áður. Þaöan
virðist engrar fyrirgreiðslu að
vænta nú og er það að sjálfsögöu
bagalegt. Hinsvegar verður mik-
ið um talstöðvar á staðnum og
bætir það úr skák.
Hlaupabrautir hafa veriö lag-
færðar svo sem kostur er og eru
þær nú í góöu ásigkomulagi. Rétt
þótti að færa dómpall nokkuð svo
hanner nú betur staðsettur en áð-
ur. Þá hefur og verið gerð brekka
fyrir áhorfendur. Er hún 150 m.
löneog 10m. breið. Mun kostnað-
ur viðgerö hennar hafa numið um
2 milj. kr.
Landnám á Svartagili
Mjög hefur nú rýmst um að-
stöðu fyrir landsmótið á Þingvöll-
um, þvi auk þess lands, sem þaö
hefur á leigu I Skógarhólum, hef-
ur það nú umráö yfir öllu landi
jarðarinnar Svartagils i Þing-
vallasveit. Haglendi fyrir hross
og aðstaöa til gæslu á þeim, hefur
þvi batnað aö miklum mun. Kom-
ið hefur verið upp fimm girðing-
arhólfum fyrir hross fyrir utan
girðingu á Svartagili. Og alls er
búið að bera 25 tonn af áburöi á
mótssvæðið.
Reiðvegir merktir
Þar sem fullvist er að fjöldi-
manna kemur riðandi á mótiö þá
hafa verið merktar og lagfærðar
sérstakar reiögötur, utan akveg-
anna. Hestamenn ættu þvi ekki að
þurfa að óttast ónæöi af bilum eða
ökumenn af riddaraliði. Hér er
um að ræða leið yfir Fellsendaflá
fyrir neðan Litlá-Sauðafell að
Brúsastöðum. Leiö frá vegamót-
um Grafnings-og Þingvallavegar
um Stiflisdal að Brúsastöðum. Þá
er og leið fleið frá Vatnsvikinu um
Skógarkot og Langsstig.
Langferðahesta er fyrirhugaö
að hafa á Svartagili en sýningar-
hross i Leirdal og þar i gæslu eig-
enda þeirra. Tekið verður á móti
hestum til geymslu i giröingum
frá hádegi á þriðjudag.
Hagagjöld og aðgangs-
eyrir
Hagagjaldi fyrir hrossin er
mjög stillt i hóf og er það aöeins
1000.- kr. fyrir hrossið yfir allan
tímann. Hnakkar verða teknir til
geymslu ef óskað er, gegn 100,-
kr. geymslugjaldi i hvert sinn
sem tekið er við hnakki.
Aðgangur aö mótinu er krT
5000,- fyrir manninn og gildir
miðinnfyrir allt mótið. Þeir sem
ekki koma fyrr en á sunnudag,
greiða hinsvegar kr. 2000,- en
börn 13 ára og yngri fá ókeypis
aðgang að mótssvæöinu. Hefur
einhverntima verið haldin dýrari
skemmtun á Islandi.
Lögreglan i Amessýslu mun
annast löggæslu á mótinu og
Hjálparsveit skáta á Selfossi
veröur þar með tjaldbúðir og
annast þar öryggiseftirlit og veit-
Frá v.til h.: Klemens Jónsson, Pétur Hjálmsson, Bergur Magnússon, Bjarni Ansnes
Mynd: Leifur.
Að mörgu þarf að hyggja. Bergur og Pétur ræða við einn smiðinn, sem annast undirbúning
á mótssvæðinu. Mynd: Leifur.
Blaðamenn punkta sem ákafst niður upplýsingar frá þeim Pétri og Bergi. Mynd:Leifur.
Þeim fer fækkandig'ömluréttunum sem hlaðnar eru úr hraungrýti. Hér er ein, allbarleg
ennþá, og er engin óprýði að henni á hinum forna þingstað. Mynd Leifur.
ir fólki aðstoð, eftir þvi, sem viö
verður komið og þörf reynist fyr-
ir.
400 - 500 sýningarhross
Ekki liggur ennþá meö öllu ljóst
fyrir hversu mörg hross koma til
sýningar og keppni á Landsmót-
inu. En gæðingar i A og B-ftokki
munu vera skráöir um 190 og eru
Þ* varahestar meötaldir. Kyn-
bótahross veröa væntanlega um
lOOogervalá þeim mjögstrangt,
eins og áður hefur raunar verið
bent á hér i blaöinu. Þorkell
Bjarnason, hrossaræktarráðu-
nautur, hefur að undanförnu ferð-
ast um allt land til þess að skoöa
kynbótahross, hesta og hryssur.
A þessum ferðum sinum hefúr
hann skoðaö 500 -600 hross og þar
af valið ein 100 til þess að sýna á
mótinu. Hér er þvi um strangt úr-
val að ræða.
Kappreiðahross geta trúlega
orðiö frá 120 til 130, en til þeirra
hrossa, sem þátt taka i kappreið-
unum, eru einnig gerðar mjög
miklar kröfur. Um 25 hestar
mæta væntanlega tiltöltkeppni og
10 i góðhestaskeið. Og ekki má
gleyma unglingakeppninni, sem
fram fer á föstudag laugardag en
i henni taka þátt einir 40 ungling-
ar.
A laugardag verður söluuppboð
áhrossum ogstjórnar þvi Gunnar
Bjarnason, ráðunautur. Hrossum
þeim, sem þannig veröa boöin til
sölu, þarf m.a. aö fylgja heil-
brigðisvottorð frá dýralækni.
Eigendur þeirra söluhrossa, sem
fara i sýningarhring, þurfa aö
greiða 10 þús. kr. fyrir hross,
vegna margvislegs kostnaðar,
sem þessari verslun fylgir.
Allt mótið mun verða kvik-
myndað. Verður byr jað á að taka
myndir af þeim, sem eru á leið á
mótsstað á fimmtudag, kl. 5-6.
Aðstandendur lands-
mótsins
Það eru 13 hestamannafélög á
Suðurlandi, sem reka mótiö að
þessu sinni, ásamt Landssam-
bandi hestamanna. Búnaðarfélag
Islands er og aðili aö rekstrinum
að því leyti, aö það leggur þvi til
framk væmdastjóra, Pétur
Hjálmsson og svo er starf hrossa-
rætkarráðunauts, Þorkels
Bjarnasonar, kostað af þvi. Rikiö
leggur hins vegar fram fjármuni
til verðlaunaveitinga.
Hundruð starfsmanna i
sjálfboðavinnu
Mót eins og þessi krefjast aö
sjálfsögðu óhemjumikils starfs
svo að enginn fær gert sér grein
fyrir þvi til neinnar hlitar, sem
ekki hefur tekiö beinan þátt i
sliku. Og starfsfólkiö á mótinu,
um 500 manns vinnur ailt i sjálf-
boðavinnu. Hestamannafélögin
skipta þvi á milli sin. Staönar
verða um 400 vaktir og tekur hver
vakt 8 klst. Þessi fórnfýsi hesta-
manna felur i sér skýringuna á
þeirri bjartsýni, aö unnt sé að
stilla aðgangseyri svo mjög i hóf,
sem um getur hér að framan.
Kvöldvökur og happ-
drætti
A föstudags- og laugardags-
kvöldum verða fluttar skemmti-
dagskrár undir stjórn Klemensar
Jónssonar, leiklistarráðunauts
Rikisútvarpsins. Þær birtast
annars staðar hér i blaðinu I dag,
ásamt dagskrá mótsins alls, og
vísast til þeirra þar.
Þess skal svo aö endingu getið
að Landssambandið efnir til
happdrættis á mótinu. Vinningar
eru sex: 1. Góðhestur meö reið-
tygjum, verðmæti 1 milj. kr. 2.
Samvinnuferö til Hollands á
Evrópumeistaramót islenskra
hesta 1979, fyrir tvo, verðmæti kr.
300þús. 3. Sunnuferð til Mallorka,
verðmætikr. 150,þús. 4. útsýnar-
ferð til Costa del Sol 24. sept,
verömæti kr. 100 þús. 6. Flugferð
til London fyrir tvo, verömæti kr.
160 þús. Verömæti vinninga alls
er kr. 1.810.000,-. Fjöldi útgefinna
miða er 8000 og verð hvers miða
kr. 500,-. Dráttur fer fram hjá
sýslumanni Arnessýslu sunnu-
daginn 16. júli. Upplýsingar um
vinningsnúmer eru veittar i
slmum 19200 og 30178.
Og svo lauk Þingvalladvölinni
með ágætri veislu inni i veitinga-
skúr hjá Höllu.
,-mgh
Mót-
mæla-
verk-
fallið
1. og 2.
mars
Greinargerð frá
opinberum aðilum
um þátttöku í
vinnustöðvuninni
Giskað er á að þátttaka í
mótmælaverkfállinu 1. og
2. mars síðastliðinn hafi
verið 60-70% hjá verka-
lýðsfélögum innan Alþýðu-
sambandsins á höfuðborg-
arsvæðinu. Fjármálaráðu-
neytið telur að 4.700 ríkis-
starfsmenn hafi lagt niður
vinnu annan hvorn daginn
eða báða af um 9.500 ein-
staklingum á BSRB eða
BHM-kjörum sem komu til
greina sem þátttakendur í
verkfalli.
Þessar upplýsingar koma fram
i Hagtíðindum, mánaðarriti Hag-
stofu Islands, júnihefti. Segir þar
svo um mótmælaverkfallið:
„Launþegasamtökin snerust
gegn efnahagsráðstöfunum þeim,
er fólust i lögum nr. 3/1978, og
fylgdu mótmælum sinum eftir
með þvi að stofna til vinnustöðv-
unar dagana 1. og 2. mars 1978.
Hér var yfirleitt ekki um að ræöa
verkfall ákveðiö af þar til bærum
stéttarfélagsaðilum og tilkynnt
hlutaðeigandi atvinnurekenda-
samtökum, heldur var til þessar-
ar vinnustöövunar stofnað með
hvatningarsamþykktum viökom-
andi heildarsamtaka og ýmissa
annarra stéttarsamtaka. Þannig
skoraði miðstjórn Alþýðusam-
bands Islands og Tiumannanefnd
þess á félagsmenn að leggja niður
vinnu þessa daga, og sambönd og
félög innan ASI gerðu hliöstæöar
samþykktir. Hið islenska prent-
arafélag lýsti þó yfir verkfalli og
tilkynnti það viðsemjendum sin-
um, stjórn og trúnaðarmannaráð
Dagsbrúnar ákvað vinnustöðvun
þessa og auglýsti hana. — Stjórn
Bandalags starfsmanna rikis og
bæja skoraði á félagsmenn sina
að mæta ekki til vinnu þessa daga
og sama gerði Launamálaráö
Bandalags háskólamanna.
Þátttaka i þessum aðgerðum
var, þegar til kom, mismikil eftir
starfsgreinum og landsvæöum.
Giskað er á 60-70% þátttöku ASI-
fólks i Reykjavik og nágrenni, en
þátttaka var mjög mismikil eftir
stéttarfélögum, mest hjá Dags-
brúnarmönnum, en tiltölulega lit-
il hjá Iðjufólki, svo einhver dæmi
séu nefnd. A Suðurnesjum var
nokkuð almenn þátttaka ASI-
fólks i vinnustöðvun þessari, en
þar átti hún samkvæmt hvatn-
ingu stéttarsamtaka aðeins aö
standa einn dag. A Vestfjarða-
kjálkanum var ekki þátttaka i
vinnustöðvun nema á tsafirði. A
Norðurlandi og Austurlandi var
þátttaka i þessum aðgeröum
sums staðar mikil og annars staö-
ar litil, i Ve$ti[Tiannaeyjum var
nokkuð almenn þátttaka i þeim.
— Um 12000 einstaklingar á
BSRB- eða BHM-kjörum taka
laun hjá rikinu sem launþegar i
fullu starfi eða hlutastarfi, en af
þeim komu a.m.k. 2500 ekki til
greina sem þátttakendur i þess-
um aðgerðum vegna öryggis- eða
heilbrigðisþjónustustarfa. Sam-
kvæmtupplýsingum launadeildar
fjármálaráðuneytis gerðu um
4700 starfsmenn ekki fullnægj-
andi grein fyrir fjarvist og þar af
var um fjóröungur frá vinnu að-
eins annan daginn. Þátttaka
rikisstarfsmanna var mjög
breytileg eftir starfshópum, t.d.
Framhald á 14. siðu