Þjóðviljinn - 08.07.1978, Qupperneq 16

Þjóðviljinn - 08.07.1978, Qupperneq 16
AQalstmi Þjóöviljans er 81333 kl. 9-21 mðnudaga til föstu- daga, kl. 9-12 á laugardögum og sunnudögum. Utan þessa tima er hægt aö ná i blaöamenn og aöra starfs- menn blaösins i þessum simum: Ritstjórn 81382, 81527, 81257 og 81285, iltbreiösla 81482 og Blaöaprent 81348. 81333 Einnig skal bent á heima- sima starfsmanna undir nafni Þjóöviljans I slma- skrá. Verkefnaleysi 1 Stálvík Skipasmiðastöðin fæst við smiði vörubílapalla, meðan samið er um smíði þriggja skuttogara í Póllandi DJOÐVIUINN Laugardagur 8. júli 1978 Bryjólfur ö. Steinsson, (t.v.) trúnaöarmaður i Stálvik hf. og Guöjón Jónsson formaöur Málm- og skipasmiöasambandsins, ræöa um hiö alvarlega atvinnuástand i stööinni. (Mynd: eik) Engin tilboð bárust i Tónabæ 7,9 imlljóna tap frá ára- mótum Æskulýðsráð mun á næstunni taka ákvöröun um framtiö Tóna- bæjar, en ekkert tilboö barst i eignina þegar hún var auglýst til sölu f vor. Frá 6. mai hefur staðurinn ver- iö lokaður og hefur öll æskulýðs- starfsemi þar lagst niður. Ómar Einarsson fulltrúi hjá Æskulýðs- ráði sagöi i samtali við Þjóðvilj- ann i gær, aö taprekstur hússins frá áramótum fram til 1.7. næmi 7,9 miljónum króna og einnig sagöi hann, að ódýrara væri að reka staðinn lokaðan en opinn. Aætlað söluverðmæti Tónabæj- ar er um .200 miljónir króna, en rekstur staðarins hefur á undan- förnum árum verið helsti „höfuö- verkur” æskulýösráðs, bæði vegna tapsins, mikils viðhalds- kostnaðar og sifelldra kvartana frá ibúum og lögreglu vegna drukkinna unglinga, sem söfnuð- ust þar fyrir framan. Aö lokum gafst ráðið upp á að reka staöinn og vildi selja hann. Þó ákveðið hafi verið að aug- lýsa Tónabæ til sölu sF vetur, hefur engin ákvörðun verið tekin um hvernig söluandvirðinu skvldi variö. —AI Landhelgisgæslan byrjuð eftirlit með laxveiði Reynt að sporna viö netaveiði á laxi Frcgnir hafa borist um ferðir varðskipa og jafnvel flugvéla meö ströndum noröaniands til at- hugunar á þvi, hvort stunduö kunni að vera ólögleg laxveiði I sjó. Menn munu misjafnlega hressir yfir þessum athöfnum Gæslunnar og telja aö þær spilli hlunnindum, m.a. meö þvi aö fæla burtu æöarfugl. Klaöiö haföi tal af Þresti Sigtryggssyni, skipherra, og spuröi hann hvort Landhcigis- gæslan heföi fengist viö þetta eftirlit aö undanförnú. Framhald á 14. slðu! Skipasmíðastöðin Stál- vik í Garðabæ er nú verk- efnalaus. Þar vinna rúm- lega 100 manns# sem fást nú við smáviðgerðir á skip- um og smiða palla á vöru- bíla! Á sama tima er beðið eftir samþykki íslenskra stjórnvalda vegna smíði og innflutnings þriggja skut- togara frá Póllandi, en þrjú útgerðarf yrirtæki hafa undirritað samninga um smiði togaranna i Pól- landi. Þetta er lýsandi dæmi um at- vinnustefnu fráfarandi rikis- stjórnar. Afgreiðslutimi pólsku togaranna er langur, þvi gert er ráð fyrir að fyrsta skipið komi eftir 2 1/2 ár. Og þótt pólsku tog- ararnir yrðu eitthvað ódýrari en innlendir, liggur i augum uppi hvort er þjóðhagslega hagkvæm- ara sú gjaldeyriseyðsla eða inn- lend verðmætasköpun með nýt- ingu þess vinnuafls, þekkingar og aðstöðu sem hér er fyrir hendi. Er blaðamaöur og ljósmyndari Þjóðviljans komu i Stálvik hf. I gær, var þar tómlegt um að litast. Aö visu er búiö að semja um smiði tveggja skuttogara, fyrir Grindvikinga og Grundfiröinga, en framkvæmdir geta ekki hafist af fullum krafti fyrr en lán til smiöanna hafa verið samþykkt af viðkomandi yfirvöldum. Venju- lega er lánað um 85% af verði skuttögara, og lánar Fiskveiði- sjóður 75% en Byggðasjóöur 10%. A meðan allt er i slikri óvissu um framtiðina, eru litil verkefni fyrir hið fjölmenna starfsliö. SmiÖaðir eru vörupilspallar i stað skuttogara og fengist viö viögerð- ir á nokkrum skipum. Samkvæmt upplýsingum Brynjólfs O. Steins- sonar, trúnaðarmanns i Stálvik, er nú verið að vinna að viðgerðum á varðskipinu Þór og tveimur öðrum skipum. Þessi stöðvun skipasmiðanna hefur 1 för með sér, aö bónus starfsmannanna lækkar til muna, en bónusinn hefur komið vel út i nýsmiðinni. Rúmir tveir mánuðir eru siöan siöasta skipi sem smiðað var i Stálvik, skuttogaranum Arinbirni RE, var hleypt af stokkunum. Brynjólfur sagði, að ef verkefni heföu verið áframhaldandi, hefði nú verið kominn upp skipsskrokk- ur og byrjað að setja skipið sam- an. En á gólfinu þar sem pláss er fyrir heilan skuttogara, stendur nú aðeins einmanalegur vörubill. —eös Hraðbraut Grænn 1 Akureyri lCjrænn 1 heitir hraðbrautin okkar til Akureyrar. Við munum fljúga í 12-14 þús. feta hæð og áætlaður flugtími er u.þ.b. 55 mínútur. Velkomin um borð. Fullkomiii leiósögutæki vísa beina og örugga leiÓ FLUCFÉLAC ÍSLANDS ÍNNANLANDSFLUG

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.