Þjóðviljinn - 21.07.1978, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 21.07.1978, Blaðsíða 6
6 SIÐA — ÞJÓDVILJINN Föstudagur 21. júli 1978 NOTAÐ •>WTT — Valdajafnvægið I heiminum er að raskast og þá er voðmn vls. Ég segi nú fyrir sjálfan mig, ég skil ekki alltaf Morgunblaðið mitt og er ég þó allur af vilja gerður og meira en það. Tökum til dæmis blaðið á þriðjudaginn var. >ar er ágætur og dugmikill leiðari um það, að ekki megi svo fara. að Alþýöubandalagið verði i forystu bæði i rikisstjórn og i borgarstjórn Reykjavikur. Þar segir ..Frá sjónarmiði borgara- lega sinnaðs fólks væri hér um mjög alvarlega þróun að ræða sem hlvti að kalla á margvisleg viðbrögð." Þetta er alveg rétt. En svo er við hliðina á leiðaran- um löng slefurgrein um dýrð Nýsköpunarstjórnarinnar, sem var reyndar eina yfirsjónin sem Olafur minn Thors átti sök á á löngum og giftusamlegum ferli. Það er meira að segja vitnað til yfirkommans Einars Olgeirsson- ar um að þetta hafi veriö „vin- sælasta og gifturikasta stjórn sem tsland hefur átt.”,Því meira að segja slegið upp. £g skil þetta ekki alminnilega. Annaðhvort eru kommarnir varasamir eða ekki og ekkert múður með það'. Það var lika frétt i sama blaði, sem mér þótti merkileg. Hún seg- ir frá þvi. að samsteypustjórn kommúnista og sósialista hafi tekið við völdum i San Marino. Þetta er smáriki eins og menn ar allt kemur til alls, þegar hann var að tala um „margvisleg við- brögð” borgaralegs fólks. Þetta þurfum við Sjálfstæðir menn að fara að undirbúa meö myndarskap. Blóðlaust valdarán er alveg prima. Og jafnvel þótt einhver komm- inn snýtti rauðu, hvað gerði það til? Annaö eins hefur nú gerst. Skaði vita.endaspurðiskáldið: Hvarer San Marino? og hefur aldrei fund- ið það. 1 þessari frétt segir: „Siöast fóru kommúnistar með völd i rikinu árið 1957 en þeir voru hraktir frá völdum með blóðlausu valdaráni”. Það er nefnilega þaö. Þetta er kannski það sem leiðarahöfundurinn átti við, þeg- Ég heimta hreinar línur, og ekkert múdur Jafnréttismál eru erfid vid blada- mannabarinn Fréttatil- kynning frá Hamri og Sigð Stofukommarnir taka fúna fæturna ofan af borði og taka að spyrna bolta. Hvers vegna'' Það verður eingin bylting görr af fóta- fúinni þjóð. Þeir sem slægja fisk- :nri, — Þeir sem yrkja jörðina, þeir sem halda krepptum fingr- urn um pennann — Þeir þarfnast tilbreytingar. Þeir þarfnast hreyfingar: Lúnir Ifkamar Ijúk- ast upp úr bosinu. Sósaliskir kroppar munda sig i dialektiskum sveiflum til byltingarbaráttunn- ar. Þú gengur graðari til bóls, grimmari til stéttaátakanna, mætir þú á æfingu hjá Hamri og Sigð á þriðjudögum og fimmtu- dögum kl. 20.00 og laugardögum um nónbil. Lausnaroröin eru: Liðugur Lfkam Léttstigur, —LLL. Búum j borgarastéttinni banabeð meö LLL. Mætið öll á æfingarnar. Hamar og Sigð 'knattspyrnu- deild.i Bresk blaðakona, Sheila Gray, gerði merka tilraun á dögunum. Hún reyndi að rjúfa þá einokun sem karlar hafa til þessahaftáþviaðfá afgreiðslu við barinn á blaðamannaknæp- unni El Vino I London. Knæpan var ekki með öllu lokuð konum. Þær máttu sitja við borð innarlega I kránni og var til þess ætlast aö þar sætu þar kvenlegar og stilltar og drykkju kampavln. Sheila Gray vildi afnema allt þetta misrétti I áfengismálum. Sheila Gray fór meö málið fýrir dómstólana en tapaði. Astæðan sem til er greind I dómsoröi er á þá leiö, aö menn vilji vernda konur fyrir þvl að veröa fyrir átroðningi viö bar- inn ogsvo þvlaö heyra þaö bölv ogklámsem bargestireru vanir aö senda sin á milli. (MÓÐVILJINN fyrir 40 6rum Dætur Reykjavikur III (Vorið hlær,siðari hluti) eru nýkomnar á bókamarkaðinn. I þessari bók segir frá ævintýrum ungu stúlknanna á Þingvöllum á þúsund ára afmæli Alþingis árið 1930. Nokkur eintök af fyrsta og ööru hefti fást enn hjá bók- sölum. Þetta er sérstaklega bók ungu stúlknanna þótt fleiri kjósi vitanlega að eiga hana. Þjóðviljinn 6. júll 1938 Okkur hefur borist umsókn frá gömlum félaga og fóstbróöur, Ingvari Agnars- syni. Ingvari skal bent á, að ekki þarf að sækja nema einu sinni um inngöngu, hafi viðkomandi hlotið inngöngu I það sinnið. Hljóti menn hins vegar ekki inngöngu (eins og Bessý) má hins vegar sækja um eins oft og þörf er á, þang- að til að umsækjandi telst full- gildur meðlimur. Svo kemur umsókn Ingvars: „Stefnt í vítisátt” „Hið lága getur ekki, af eigin hvötum eða af eigin rammleik teygt sig I átt til hinnar æðstu veru en hin æðsta vera getur lotið niður að hinu lægsta til að hefja það á hærra stig, en við þessa lútan missir hin æðsta vera nokkuð af mætti sinum, svo henni gengur hægt og erfiðlega að upphefja hið lægsta á hærra stig, uns það hefur náð þeim þroska og þvi viti, sem með þarf, til þess að taka undir meðhinni æðstu veru, vitandi vits. En eftir þvi að viti og þeim undirtektum hefur verið náð, þarf ekki að liða á löngu, þar til algjör stefnubreyting getur hafist, á hnetti hinnar lágþroska veru, sem til þess tima, hefur ekki þekkt hlut- verk sitt, en lifað I algjöru stefnuleysi eða þá stefnt i vítisátt. Hvenær vitkast hin lága vera, maðurinn nægilega til að geta tekið undir með hinni æðstu veru, svo að björgun geti oröið? Hversu lengi á þjáð mann- kyn enn að biða eftir dögun hins nýja heimsskilnings? Eða er þegarfariðað rofa til I þessum efnum, þrátt fyrir allt? (Morgunblaðið, 19/7) Alyktun: Persónuleg skoðun mlnér sú, aö hin lága vera nái fyrst hinum æöri verum, þegar hún gengur I Alku- klúbbinn. Þar með getur Ingvar talið sig vera hólpinn. Hins vegar er stefnt I vltisátt, á meðan verur ráfa um blind- andi utan vébanda klúbbsins. Þess vegna ráðleggur for- maðurinn sem flestum að sækja um sem fyrst, og þar með gera tilraun til aö ná sambandi viö hinar æðri verur. Meðheimsskilningi, Hannibat ö. Fannberg formaður

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.