Þjóðviljinn - 02.08.1978, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 02.08.1978, Blaðsíða 1
Aukafundur Sölumiðstöðvar Hraðfrystihúsanna: Fundir um allt land Rekstrarvandi frysti- húsa á Suöurnesjum og í Vestmannaeyjum var meginumræðuef nið á aukafundi Sölumiðstöðv- ar hraðf rystihúsanna sem haldinn var í Reykjavík síðdegis í gær. Fundurinn samþykkti að fela stjórnarmönnum að boða frysti- húsamenn til funda hver á sin- um stað og ennfremur verði frystihúsamönnum innan Sjávarafurðadeildar SIS boðiö á þessa fundi. Áformað er að hvort hann reynir stjórn- armyndun ' Albert tók ekki þátt í þing- flokksfundi iLíkur á að Geir reyni fyrst að mynda stjórn ilfri allra flokka Þessi mynd var tekin á aukafundi Sölumiðstöðvar hraðfrystihús- anna i gær. Ljósm. Leifur. könnuö verði á þessum fundum afstaða manna til áframhald- andi reksturs, en eins og kunn- ugt er þá hafa flest frystihús á Suöurnesjum hætt fiskmót- töku og sagt upp starfsfólki sinu. Þaö munu verða um 300 manns sem þar missa atvinnu sina strax, en við það^ bætist annað eins af sjómönnum sem ekki munu róa. Stefnt er að þvi að þeir fundir sem S.H. boðar til verði lokið fyrir miðjan mánuðinn, en þá verði boðað til stjórnarfundar, þar sem lekin verður afstaöa til þeirra vandamála sem nú blasa viö i rekstri frystihúsanna. —Þig Geir Hallgrimsson hafði enn ekki tekið formlega ákvörðun um það hvort hann tæki að sér að reyna að mynda rikisstjórn er Þjóðviljinn ræddi við hann i gær- kvöldi. En á honum mátti þó heyra að allar likur væru á þvi að hann tækist verkið á hendur. Miðstjórn og þingflokkur Sjálf- stæðisflokksins sátu á fundum allan eftirmiðdaginn i gær og varð engin formleg niðurstaða af fundinum. Þjóðviljinn var viðstaddur er fundur hófst og spurði þá nokkra Sjálfstæðismenn að þvl hvað þeim þætti um hugsanlega stjórn- arþátttöku flokks sins. Guðmundur Karlsson, alþm. sagðist ekki vera fráhverfur stjórnarþátttöku, en kvaðst ekki hafa neinar sérstakar hugmyndir um hvers konar stjórn bæri aö mynda. Er við inntum Kjartan Gunn- arsson aö þvi hvernig honum litist á þjóðstjórn, þ.e. stjórn allra fjögurra flokkanna á þingi, svar- aði hann af bragði: „Þjóðstjórn, það er stjórn þar sem allir eru jafn ábyrgöarlausir”. Sverrir Iiermannsson sagði að Geir ætti að reyna að mynda stjórn, það væri skylda stærsta flokksins að reyna slikt. Hann taldi þjóðstjórn ekki fjarri lagi, en þó væri afstaða Alþýðu- bandalagsins þar óljós „eftir aö þeir fóru að draga sig út úr pólitik með þvi aö neita viðræðum”, sagði Sverrir. „Einnig er afstaða „nýja flokksins á gamla grunnin- um” okkur nokkuð óljós. Við þekkjum grunninn, en nú er bara að sjá hvort ekki fer að slá i það sem ofan á en” Albert Guðmundsson vildi ekkert segja er hann kom á fundinn, en Sverrir: Geir á að reyna. það vakti athygli blaöamanns að hann var fyrstur til að yfirgefa fundinn, og tók ekki þátt I þeim þingflokksfundi sem haldinn var I framhaldi af miðstjórnarfundin- um. Er Albert yfirgaf fundinn spurðum við hann hvort niöur- staöan væri fengin. „Nei”, svar- aði kappinn * á hlaupunum út, „áttirðu virkilega von á einhverri niðurstöðu? ”, „Já”, svaraði blaöamaðurinn i sakleysi sinu. „Það datt mér.aldrei i hug”, var svar Alberts Guðmundssonar. Kjartan: t þjóðstjórn eru allir á- byrgðarlausir. Ákvöröun um hádegi í dag. Geir Hallgrimsson sagði, að enginn hefði snúist öndverður gegn þvi að hann hefði forystu um viðræður um myndun rikisstjórn- ar, en vildi ekkert um umræður innan Sjálfstæðisflokksins segja. Kvaðst hann þurfa að ráðgast við nokkra menn áður en hann gæfi svar sitt, en svarið myndi koma öðru hvoru megin við há- degið I dag. eng. UOWIUINN Miðvikudagur 2. ágúst 1978 -163 tbl. 43. árg. Lúðvík Jósepsson um slit viðræðna: Kröfur um áframhald á efnahagsstefnu hægri stjórnar gátu ekki verið grundvöllur vinstra samstarfs. Slikum kröfum neitar launafólk i landinu og fulltrúar þess Hvers vegna tókst ekki að mynda vinstri stjórn? Vegna þess að Alþýðuflokkur og Fram- sóknarflokkur vildu ekki fram- kvæma vinstri stefnu. Krafa þeirra flokka um tvöfalt meiri kjaraskerðingu en fólst I bráða- birgðalögum rikisstjórnarinnar réð úrslitum. Stjðrnarmyndunarviðræður Alþýðuflokks, Alþýðubandalags og Framsóknarflokks strönduðu á þvi að Alþýðuflokkur taldi óhjá- kvæmilegt að lækka gengið um minnst 15% og að launafólk gæfi eftir 7% af umsömdu kaupi eða jafngildi þeirra verðhækkana sem af gengislækkuninni leiddi. Tillögum Alþýðuflokksins um þetta neitaöi Alþýðubandalagið. Alþýðuflokkurinn krafðist áframhalds á efnahagsstefnu rikisstjórnar thalds og Fram- sóknar. Þessari kröfu neitaði Alþýðubandalagið og þessari kröfu neita allir forystumenn i samtökum launafólks. Fulltrúar Framsóknar lögðu aldrei fram neina tillögu. Þeir fylgdu að sjálfsögðu kauplækk- unartillögu Alþýðuflokksins og báru sig illa undan tillögum Alþýðubandalagsins um fækkun oliufélaga, fækkun vátryggingar- félaga, lækkun verslunarálagn- ingar og skattlagningu á fyrir- tæki. Af þessari reynslu verður launafóik að læra. Það sér nú aö á Alþýðuflokkinn er ekki hægt aö treysta, og vinstri menn sjá aö á Framsóknarflokkinn er ekki heldur hægt að treysta. Alþýðubandalagiö eitt hefur i þessum viðræðum staðið við sina yfirlýstu vinstri stefnu. Sjá grein Lúðviks Jósepssonar á siðu 8 og 9. Ólafur Jóhannesson: Líst illa á þjóðstjórn Fersónulega list mér ekki vel á þjóðstjórn sagði Ólafur Jóhann- esson formaður Framsóknar- flokksins er Þjv. hafði samband við hann i gær. En þá hafði frést að likiegast væri að Geir Hall- grimsson myndi reyna slika stjórnarmy ndun. „Það hefur engin ákvörðun veriö tekin i Framsóknarflokkn- um um framhald á stjórn- armyndunarviðræðum. Við höld- um miðstjórnarfund á föstudag og þar veröur um þessi mál f jall- að. Þriggja flokka stjórn Sjálf- stæðisflokks, Alþýðuflokks og Framsóknarflokks hefur ekkert verið rædd i okkar röðum og um þann möguleika vil ég ekkert tjá mig fyrr en eftir miðstjórnar- fundinn á föstudag”. eng Alþýöubanda- lagid ekki i stjórn sem litlu yill breyta — segir Ragnar Arnalds um stjórnarmyndun SJA BAKSÍÐU Miðstjórn og þingflokkur Sjálfstæðisflokksins funduðu lengi dags 1 gær um það hvort Geir ætti að reyna stjórnarmyndun. Geir svarar í da

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.