Þjóðviljinn - 02.08.1978, Blaðsíða 5
Miðvikudagur 2. ágúst 1978 ÞJóÐVILJINN — SIÐA 5
a/ erlendum yettvangi
Frá Harlem, blökkumannaborgarhluta I New York. Þar og I ö&rum blökkumannagettóum er áfengi og eiturlyf helsta huggun fjölda fólks.
Bandarískír blökkumenn:
Kreppan kemur þyngst niöur á þeim
Upp úr síöari heims-
styrjöld tók í vaxandi mæli
aö gæta réttindabaráttu
bandarískra blökku-
manna, og komst mestur
skriður á hana á sjöunda
áratugnum. óneitanlega
var talsverðu áorkað.
Blökkumenn fá nú að neýta
kosningaréttar síns, en til
þessa hafði þeim verið gert
það því sem næst ófært að
minnsta kosti í suðurríkj-
unum. Blökkumenn fóru
að geta notfært lögin sér til
varnar, en til þessa höfðu
þeir verið því vanastir að
lögunum væri beitt gegn
þeim sem hverju öðru kúg-
unartæki kerfisins.
Samt sem áður fer þvl viðs-
fjarri ennþá að svartir Banda-
rikjamenn séu eins vel settir og
hvitir. Kynþáttamisrétti lifir enn
góðu lifi á flestum sviðum þjóð-
lifsins, og I kreppu undanfarinna
ára gætir þess, að blökkumenn
séu að missa sumt af þvi, sem
þeir unnu á siðastliðnum áratug.
Samdrátturinn og atvinnuleysið
veldur' þvi, að hagur blökku-
manna er á margan hátt verri en
var fyrir tiu árum. Og ekkert
bendir til þess að von sé á breyt-
ingum til hins betra, nema siður
væri.
Hálfu meiri barnadauði
Blökkumenn eru um tíundi hluti
ibúa Bandarikjanna, en hins veg-
ar er fjórðungur bandariskra at-
vinnuleysingja svartur. Þriðj-
ungur allra þeirra, sem yfirvöld
flokka sem fátæklinga, eru
blökkumenn, og fjórðungur
þeirra sem fá hjálp frá þvi opin-
bera. Eðlileg afleiðing þessa er
svo að fjórðungur afbrotamanna
er svartur.
Hinsvegar er ekki nema einn af
hverjum 200 kjörnum embættis-
mönnum i Bandarikjunum svart-
ur — og tæplega þó. Af hundrað
öldungadeildarþingmönnum er
einn blökkumaður og 16 af 435
þingmönnum i fulltrúadeild
Bandarikjaþings. Blökkumenn i
áhrifastöðum i atvinnulifinu eru
svo fáir, að ekki tekur þvi aö telja
þá með. Meðaltekjur blökku-
manna eru að meðaltali aöeins
60% af meðaltekjum hvitra.
Meðallifslengd blökkumanna er
fimm árum undir þvi sem er hjá
hvitum — hvað kemur ekki sist til
af þvi að barnadauði hjá blökku-
mönnum er helmingi meiri. Það
út af fyrir sig segir sina sögu, þvi
á árunum rétt eftir siöari heims-
styrjöld var barnadauðinn hjá
blökkumönnum einnig hálfu
meiri en hjá hvítum löndum
þeirra.
Kernernefndin
Þannig mætti lengi telja.
Blökkumenn eru að jafnaði miklu
verr settir með húsnæði en hvitir
menn, þeir fá lélegri skólamennt-
un og sáralitið af marktækum
áhrifum og valdi kemur i þeirra
hlut. Hinsvegar fá þeir ærið af
kúgun og niðurlægingu i ýmsum
myndum.
Fyrir tiu árum skilaði svokölluð
Kerner-nefnd niðurstöðum sin-
um. Lyndon B. Johnson forseti
skipaði þá nefnd og verkefni
hennar var að komast að raun um
orsakir svæsinna kynþáttaóeirða,
sem orðum höfðu i fjölmörgum
bandariskum borgum árin á und-
an, einkum þó 1967. Um 250
manns voru drepnir i þeim óeirð-
um, um 12.000 særðust og slösuð-
ust og eignatjónið nam mörg
hundruð miljónum dollara. Kern-
er-nefndin komst að þeirri niður-
stöðu, að aðalástæða óeirðanna
væri uppreisn blökkumanna gegn
óþolandi ániðslu samfélagsins.
Þeir hefðu misst þolinmæðina
gagnvart félagslegu og efnahags-
legu misrétti og kynþáttahyggju
hvitra manna.
Tvö samfélög
Nefndin lét i ljós þá skoðun, að
ef ekki yrðu snarlega gerðar ráð-
stafanir til bóta, væri hætta á þvi
að Bandarikin klofnuöu i raun i
tvö samfélög, annað fyrir hvlta og
hitt fyrir svarta. — Spurning er að
visu, hvort Bandarikin hafa ekki
allt frá upphafi sinu verið klofin
þannig niður i rót. Blökkumenn-
irnir voru fluttir nauðugir frá ■
Afriku, glötuðu afriskri menningu
sinni að mestu i þrældómnum og
hvitir húsbændur þeirra gættu
þess eftir bestu getu aö þeim tæk-
ist ekki að tileinka sér menningu
hvitra manna i staðinn, sem þó
var óhjákvæmilegt að þeir gerðu
að einhverju marki. Eftir að
blökkumönnum var að nafni gefið
frelsi, var þorri þeirra litlu eða
engu betur settur en áður, og
stækur kynþáttahroki hvitra
manna sá til þess að samfélögin
tvö héldust aðskilin áfram.
Kerner-nefndin lagði til meðal
annars að alrikisstjórnin gripi
myndarlega inn i málin og stór-
bætti menntunaraðstæður
blökkumanna, gerði stórátak i
húsnæðismálum og tryggði svört-
um atvinnuleysingjum vinnu.
Skýrsla nefndarinnar vakti mikl-
ar umræður, en að dómi leiðtoga
blökkumanna að minnsta kosti
var næsta litið gert til þess að
fara að ráðum hennar.
Bilið breikkar
Hið efnahagslega bil á milli
hvitra og svartra er eitthvað
svipað og var fyrir tiu árum — og
nú sér kreppan til þess að það fer
breikkandi. Atvinnuleysi hefur að
visu allar götur siðan eftir strið
verið meira i Bandarikjunum en
Vestur-Evrópu, en eftir 1973 hrið-
versnaði ástandið i þeim málum.
Ibúar gettóanna eru að minnsta
kosti eins margir og álika ein-
angraðir og vonlausir og fyrr.
Engin furða þótt sumir talsmenn
réttindasamtaka blökkumanna
segi að umbæturnar á sjöunda
tugnum hafi aldrei verið ætlaðar
til þess að bæta kjör blökku-
manna, heldur að friða þá.
Það kann nú að vera fullmikið
sagt. t fyrra var yfir miljón
bandariskra blökkumanna i lang-
skólanámi, sem er meira en
helmings aukning frá þvi fyrir tiu
árum. Á sama tima hefur tala
svartra borgarstjóra fjórfaldast
og dómara tvöfaldast, og svona
mætti lengur telja. En þetta sið-
asttalda lita sumir blökkumenn á
sem þýðingarlitinn yfirborðs-
árangur og þykjast sjá þar hrekki
kerfisins. Tilgangurinn með
þessu sé, segja þeir, að hefja
sárafámennan forustukjarna
blökkumanna upp til jafns við
forustuhópa hvitra með það fyrir
augum að villa um fyrir þorra
blökkumanna og telja þeim trú
um, að þeir hafi náð fullu jafnrétti
i raun. („Borgarstjórinn i sjálfri
Washington er svartur, og svo
þykist þið ekki hafa jafnrétti! ”)
Misrétti i skólakerfi
A lægri stigum skólakerfisins
sæta blökkumenn i raun hrotta-
legu misrétti, þótt það gangi út
yfir fleiri en þá. Grunn- og ung-
lingaskólar eru að jafnaði þeim
mun lélegri, sem borga- og
sveitafélögin eru fátækari, og
mjög oft er það svo að i slikum
byggðafélögum eru blökkumenn i
meirihluta. 1 skólunum þar verða
nemendur þess helst visari að
framtið þeirra er dapurleg og
Martin Luther King. áhrifamesti
leiðtogi bandariskra blökku-
manna i réttindabaráttu þeirra,
var myrtur fyrir tiu árum. Ýmsu
hefur þokað áleiðis fyrir blökku-
menn siðan — öðru aftur á bak.
vonlitil. 1 blökkumannagettóun-
um eru skarar ungra manna, sem
aldrei hafa haft atvinnu og hafa
enga von um að fá hana — eru
raunar fyrir löngu hættir að
hugsa um svoleiðis nokkuð. Þeir
liggja i dópi, gerast afbrotamenn
og hata samfélagið. Mörgum
eldri blökkumönnum, sem hafa
gamla daga til samanburðar,
finnst ótrúlega mikið hafa áunnist
til bóta fyrir blökkumenn. En
unga gettófólkið hefur engu
kynnst nema þeirri eymd, sem
það lifir i og hrærist frá fæðingu.
Frá sjónarmiði þess skiptir það
minna en engu máli, hvort i Was-
hington er svartur eða hvitur
borgarstjóri.
Hægrisveifla
Fáir treysta sér til að spá góðu
um þetta i náinni framtið. Sam-
drátturinn og vaxandi atvinnu-
leysi hefur komið af stað hægri-
sveiflu meðal hvitra Bandarikja-
manna. Menn verða eigingjarn-
ari, hræddari og loka augunum
fyrir vandræðum grannans. A
sjöunda tugnum viðurkenndu
hvitir Bandarikjamenn nokkuð
almennt, að minnsta kosti i orði
kveðnu, að blökkumenn ættu rétt
á þvi, sem þeir börðust fyrir. Nú
er frekar rikjandi tilhneiging i þá
átt að gæta þess, að blökkumenn
taki ekki neina þá vinnu, sem
hvitir kynnu að hafa áhuga á.
Að þessu athuguðu ec það engin
furða þótt Andrew Young, aðal-
fulltrúi Bandarikjanna hjá Sam-
einuðu þjóðunum, sem er blökku-
maður og tók þátt i réttindabar-
áttunni á sjöunda áratugnum,
skilgreini hugtakið mannréttindi
ekki á nákvæmlega sama hátt og
aðrir bandariskir ráðamenn.
dþ.
• Blikkiðjan
Asgaröi 7, Garöabæ
Onnumst þakrennusmiöi og
uppsetningu — ennfremur
hverskonar blikksmíöi.
Gerum föst verötilboö
SIMI 53468
Tökum að okkur
smiði á eldhúsinnréttingum og skápum,
bæði i gömul hús og ný. Sjáum ennfremur
um breytingar á innréttingum. Við önn-
umst hvers konar húsaviðgerðir, úti og
inni. Verkið unnið af meisturum og vönum
mönnum.
T résmíðaverkstæðið
Bergstaðastræti 33 — Simar 41070. og 24613
Hússt j ómarskóli
Suðurlands,
Laugarvatni
Vegna margra umsókna og fyrirspurna
um eins vetrar hússtjórnarnám hefur ver-
ið ákveðið að halda uppi kennslu með
sama hætti og verið hefur auk tveggja ára
hússtjórnarnáms samkvæmt fyrri auglýs-
ingu.
Ennþá er unnt að bæta við nokkrum nem-
endum og þurfa umsóknir að hafa borist
fyrir 15. ágúst n.k.
Nánari upplýsingar veitir skólastjóri i
sima 99-6123 og menntamálaráðuneytið.
Skólastjóri.
í Auglýsingasíminn er ^
[ 81333 UOBVIUINN J