Þjóðviljinn - 02.08.1978, Blaðsíða 7
Miðvikudagur 2. ágúst 1978 'ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 7
JFyrirvarar Guöbergs samrýmást ekki innsta kjarnan-
um í kenningum vinstri manna. Án þess kjarna er
alsigurvilji þeirra siölaus, samstaöa þeirra blekking,
boöskapur þeirra fals. Þá ástunda þeir málamiölun
Heildarsýn er skýri allt
og leysi sérhvern vanda
Athugagreinar i tilefni af blaöagrein
eftir Guöberg Bergsson rithöfund
11. júní birtist i Þjóðviljanum
grein eftir Guðberg Bergsson er
hann nefnir Hugleitt milli kosn-
inga. Greinin er i ýmsu tilliti
ágæt jafnvel frábær, nánast
einsdæmi i islenskum blaða-
skrifum eins langt og yngri
menn muna. Greinin er um-
hugsunarverð, full af skopleg-
um og skarplegum athuga-
semdum, skynsamlegum rök-
um eða hugmyndatengslum.
En það er hér ekki ætlunin að
bera lof á Guðberg heldur að
gagnrýna hann. Þrátt fyrir góða
kosti greinarinnar er ég and-
snúinn henni i stærstu dráttum
og held að Guðbergur hafi
rangt fyrir sér i nokkrum veiga-
miklum atriðum. Guðbergur
' dregur reyndar engar skarpar
ályktanir af hugleiðingum sin-
um og fer að nokkru leyti vel á
þvi þar sem hugleiðingarnar
eru almenns eðlis og eiga við
allt stjórnmálalif og allar
stjórnmálastefnur, alla stjórn-
málamenn og alla stjórnmála-
flokka. Engu að siður er ber
tónn greinarinnar glöggan vott
þess að Guðbergur er hallur
undir vinstristefnu og heildar-
sýn á þjóðmál. Hann virðist
vilja taka öll mál undir
sjónarhorn stjórnmálanna, en
kvartar aðeins undan þvi að við
eigum ekki nægilegum né held-
ur nægilega góðum mannskap á
að skipa til að fást við öll mál
með þessum hætti. (Með þessu
vil ég alls ekki eigna Guðbergi
t—------------------;-----------
þessar skoðanir eða þessa af-
stöðu, mér er i raun alveg sama
hver skoðun Guðbergs er. Mér
virðist eignarréttur manna á
skoðunum eða hugsunum og öll
rök sem reisa má á sliku harla
fánýt miðað við samhengi
skoðananna og tengsla þeirra
við umræðuefnið.) Þessari
skoðun er ég andvigur, tel hana
ranga i einstökum atriðum. Hér
verður i miklu skemmra máli
en vert væri reynt að færa fram
nokkrar athugasemdir Guð-
bergs sjálfs sem rök gegn þess-
ari megin skoðun.
„Þjóðir leysa vandamál sin i
svefni og i draumi engu siður en
maðurinn” segir Guðbergur.
Jafnframt segir hann: „Sköp-
unarvilji þjóða, einstaklinga og
listamanna hefur yfirbragð-
annars hugar....” Þetta hlýtur
að verða að lesa þannig að
lausnir vandamála og Sköp-
unarviiji séu ekki einvörðungu
háð vitanda viti, heldur séu
óræðar að verulegu leyti. Vafa-
laust er þetta rétt um hin
stærstu og mikílvægustu vanda-
mál og um vilja til sköpunar
hinna bestuverka, þótt þaöeigi'
hvorki við um flest hversdags-
leg vandamál né heldur um þau
sköpunarverk sem flestir njóta
og eru nauðsynlegur grunnur
meiri verka. En af óræði lausn-
anna, af undirferli skynseminn-
ar, má draga þá ályktun að það
sé alls ekki hægt að draga öll
vandamál fram i dagsljósið og
leysa þau þar vitandi vits og af
ráðnum hug, og ef það er i
rauninni ekki hægt, þá er óskyn-
samlegt að reyna það og hættu-
legt að þykjast þegar hafa gert
það. En þetta siðasta gera ein-
mitt allir þeir sem telja sig hafa
á valdi sinu einhverja þá
heildarsýn er skýri alla skapaða
hluti og leysi öll vandamál.
Þetta gera marxistar leynt og
ljóst. Þeir leggja manna mesta
áherslu á heildarsýn einnar
stefnu, þeir telja að heimurinn
verði þá fyrst réttlátur og sjálf-
um sér samkvæmur þegar þeir
hafa náö fullum sigri og þá jafn-
framt eytt öllum skoðunum öðr-
um. Slika algera sigurlöngun er
aðeins hægt að réttlæta með þvi
að þeir telji kenningu sina
nægja til skýringar allra hluta i
smáu og stóru. Kenningin er þvi
andstæð skoðunum þeirra sem
sjá að best er að sofa á sumu en
láta sig dreyma um annað.
En i seinni tilvitnuninni hér að
ofan má einnig sjá annað sem
mælir gegn hverri þeirri
heildarsýn sem eins og marx-
isminn horfir á þjóðfélagiö utan
frá, þ.e. ræðir fyrst um þjóð-
félagið og siðan um einstakling-
inn og stöðu hans i þjóðfélaginu.
Það er fyrst og fremst einstak-
lingurinn sem er skapandi. Þess
eru enginn dæmi að þjóðfélög né
heldur önnur félög hafi skrifað
góða bók, málað málverk eða
yfirhöfuð unnið nokkur verk, til
þess þarf einstaka menn. Það er
aðeins hægt aö tala um sköp-
unarvilja — og þjóðarvilja — i .
einhverri mjög yfirfærðri merk-
ingu, hugsanlega sem einhvers
konar samansafnaðan vilja ein-
stakra þegna og þó veldur jafn-
vel þetta verulegum vandamál-
um i notkun orðsins „þjóðar-
vilji”. „Almenningur er ævin-
lega skapandi....” segir Guð-
bergur lika og það er lika rétt ef
það er skilið þannig að einstak-
lingar meðal almennings séu
skapandi. Það eru hvorki em-
bættismenn né verkamenn, lær-
dómsmenn né skjalskipaðir
listamenn sem skapa, það gera
aðeins heilskapaðir einstakling-
ar, einhverjir þeir sem vegna
áskapaðra eða áunninna kosta
eða galla, færni eða ixinsýni,
verður ekki skipaö i einviðan
tignar- og hlutverkastiga þjóð-
félagsins, sem svo auöveldlega
má færa yfir i launastigann.
Skipulag eða stofnanir geta
aldrei tryggt það að það verði
skapað, hvað þá að þær geti
sjálfar skapað. Sköpun er ævin-
lega i þvi fólgin að eitthvað
verður þar sem ekkert var áður.
Hvernig i ósköpunum eiga
stofnanir eða skipulag sem svo
sannarlega eru og hljóta að vera
fastmótaðar, þar sem um þær
gilda reglur og skipulagið verð-
ur að vera rakið eða rekjanlegt
út i ystu æsar, hvernig eiga
þessi fyrirbæri að gera eitthvað
úr engu?Til þess er greinilega
engin von iremur en til þess að
maður sem að fullu og öllu bind-
ur sig i reglukerfi, skipar sér
eða lætur skipa sér i eitt full-
mótað og fullrekjanlegt hlut-
verk getur skapað, hann getur
aðeins likt eftir þvi sem áður
hefur verið gert eða hugsað og
bundið er i reglukerfi hans og
hlutverki. Þetta geta stofnanir
að sjálfsögðu lika. Það er meöal
annars af þessum ástæðum að
það er auðvelt að skipuleggja
skóla og kennslu, þar er skilað
íþvi sem þegar er fyrir, en það er
ómögulegt að skipuleggja rann-
sóknir, þótt góð kennsla feli i sér ,
sköpun og óformlegar rann-
sóknir megi skipuleggja til
fullnustu.
Auk þess sem að ofan er rakið
bendir seinasta setning greinar-
innar eindregið til þess að það
væri hin mesta rangsleitni að
drótta þeim skoðunum að Guð-
bergi sjálfum, sem hér hafa
veriö tileinkaöar mörgum skoð-
anabræðrum hans um einstök
mál og hér hefur verið andmælt
með orðum Guðbergs sjálfs.
Hann segir: „Verði vinstri-
stjórn mynduð... verður sú
stjórn að vara sig öðru fremur á
vitahring herstöðvamálsins, á
vissu bráðræöi óþroskaðasta
hluta vinstrafólks og á sjálfs-
ánægju barnalega hugsjóna-
mannsins”.
Þessi varúð, þessir fyrirvar-
ar, samrýmast ekki heildar-
stefnu eða stórasannleik eða
trúnni á Kinalifselexir, sem er
innsti kjarni hörðustu kenning-
ar einlægustu og óskiptustu
vinstrimanna. En án þessa
innsta kjarna er alsigurvilji
vinstrimanna siðlaus, samstaða
þeirra blekking, kenningaboð-
skapur þeirra fals. Þeir eru þá
eins og aðrir i þvi að þeir verða
aö miðla málum. Þeir ættu að
biðja Guð að varðveita andmæl-
endur og ágreiningsefni og
glæpi i hófi.
Halldór Guðjónsson
(Fyrirsagnir eru Þjóðviljans).
Alþýðubandalagið á Vesturlandi
Þórsmörk 11.-13. ágúst
ÍJr för Alþýðubandalagsins á Vesturlandi á Látrabjarg i fyrra.
Sumarferð Alþýðubandalagsins á Vestur-
landi verður í Þórsmörk f ár. Verður
dvalist þar helgina 11.-13. ágúst.
Góðir leiðsögumenn verða með í ferðinni.
Farið verður frá Akranesi föstudag 11. klukk-
an 14.30 og frá Borgarnesi kl. 16.00.
Þessir taka við þátttökutilkynningum:
Akranes: Jóna Ölafsdóttir sími 1894
Borgarnes: Sigurður Guðbrandsson s. 7190
og 7122
Hvanneyri: Ríkharð Brynjólfsson s. 7013
Búðardalur: Kristjón Sigurðsson s. 9S2175
Hellissandur: Sæmundur Kristjánsson s.
.6767
Grundarf jörður: Ragnar Elbergsson s. 8715
Skráið ykkur sem fyrst.
Allir velkomnir
Þórsmörk — ævintýri