Þjóðviljinn - 10.08.1978, Side 5
a/ erlendum vettvangi
Fimmtudagur 10. ágúst 1978 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 5
Handtekinn skæruliði — þeir hafa af nægum
mannafla að taka.
„Hvíta” Ródesía:
Muzorewa biskup og Vance utanrikisráðherra
Bandarikjanna. Bráðabirgðastjórnin ródesiska
leitar ákaft eftir stuðningi Vesturveldanna, sem
óttast á hinn bóginn að hún sé ekki hestur til að
veðja á.
Samfélag í upplausn
Hin „hvita” Ródesla virðist
vera I dauðateygjunum. Þaðer að
minnsta kosti álit bresku leyni-
þjónustunnar, og hún ætti að vera
flestum hnútum sæmilega
kunnug i þessari fyrrverandi
nýlendu Breta, þar sem breskætt-
aðir menn fara enn meö völd.
Leyniþjónustan tilkynnti nýlega
Callaghan forsætisráöherra
sinum að það mesta, sem Smith
fyrrverandi forsætisráðherra
Ródesiu og svartir félagar hans i
núverandi stjórn landsins gætu
gert sér vonir um, væri að halda
út til vorsins. I versta falli yrðu
„fjöldamorð og skrilræði” hlut-
skipti Ródesiu þegar I septem-
ber, eins og leyniþjónustan orðaði
það.
Þegar Ian Smith komst að
samkomulagi við þrjá blökku-
mannaleiðtoga (Muzorewa bisk-
up, séra Ndabaningi Sithole,
Chirau ættbálkshöfðingja) i mars
s.l. og deildi með þeim völdum I
orði kveðnu, var flestra mál að sú
eftirgjöf hvitra Ródesiumanna
kæmi fullseint til að bjarga
nokkru fyrir þá i landinu. Nú er
allt útlit fyrir að það ródesíska
samfélag, sem hvitir menn hafa
skipulagt og drottna yfir, sé að
leysast upp.
Skæruliðar
hraðmagnast
Meginástæðan til þess að Smith
veitti blökkumannaleiðtogum
hlutdeild i völdunum — sem hann
margsinnis áður hafði þvertekið
fyrir að gera — var ótti hvitra
landsmanna við skæruliða Föður-
landsfylkingarinnar, sem voru að
visu lengi vel ekki ýkja skæðir, en
færðust jafnt og þétt i aukana
gagnvart takmörkuðum liðskosti
Ródesiustjórnar. Þeir Muzorewa
og Sithole fullyrtu við Smith að
þeir gætu snúið skæruliðunum á
sitt band, og i trausti þess lét
Smith meira undan kröfum
þeirra en nokkurn hafði áður
dreymt um að hann myndi gera.
En þess i stað hefur skæruhern-
aðurinn magnast um allan
helming, siðan Ródesiustjórn
hætti að vera alhvit og varð
svarthvit. Skæruliðar Föður-
landsfylkingarinnar undir forustu
þeirra Roberts Mugabe og Joshua
Nkomo lita á Muzorewa og
Sithole sem leppa Smiths og vist
er um það að hin raunverulegu
völd eru áfram að mestu i
höndum hvitra, hvað sem liður
formbreytingunni á stjórninni.
Fyrir fáum mánuðum réðust
skæruliðar helst á afskekkta
staði, en nú ógna þeir umferð á
fjölförnustu vegum landsins og
hafa einu sinni svo vitað sé
komist inn i útborgir höfuð-
borgarinnar Salisbury. Augljóst
er að mikill hluti dreifbýlisins er
að meira eða minna leyti genginn
stjórnarvöldum i Salisbury úr
greipum. Fréttamenn kölluðu
árás Ródesiuhers á skæru-
liðabækistöðvar i Mósambik
nýlega ráðaley sislega
orvæntingaraðgerð, tilgangslitla
vegna þess, að nú eru skærulið-
arnir fyrst og fremst i Ródesiu
sjálfri.
örlög manna
Sitholes
Eftir þvi sem hernaðurinn
færist i aukana verður hann
grimmari. Um það vitnar
straumur flóttamanna úr landi og
milli landshluta bæði blakkra og
hvitra. Um 400 blökkumenn á dag
aö meðaltali koma utan úr
sveitum og safnast fyrir i hreysa-
hverfum kringum Salisbury. t
Sambiu og Mósambik eru margar
þúsundir ródesiskra blökku-
manna I flóttamannabúöum.
Sumt af þessu fólki óttast skæru-
liöana, annaö stjórnarherinn,
sumt kannski báða aöila.
Fylgi þeirra Mugabes og
Nkomos er án vafa mikiö, eins og
meðal annars sést á þvi að þeim
Sithole og Muzorewa hefur með
öllu mistekist að tæla frá þeim
liösmenn þeirra. Tilraunir i þá átt
hafa oft reynst dýrkeyptar fyrir
þá sem hafa reynt. Fyrir tveimur
mánuðum voru fjórir sendimenn
Sitholes, sem reyndu að fá skæru-
liöa til að leggja niður vopn,
skotnir til bana. 39 aðrir menn
Sitholes, sem reyndu hið sama,
voru handteknir, teknir af lifi og
likum þeirra raðað á alfaraveg
öðrum til viðvörunar.
Fjöldaflótti hvítra
Smith þykist nú sjá að hinir
svörtu stjórnarfélagar hans séu
ekki eins fylgismiklir og þeir létu
og hefur haft við orð að taka sam-
komulagið frá mars „til endur-
skoðunar.” Samkvæmt
samkomulaginu á i október að
fara fram almenn atkvæða-
greiðsla hvitra manna um nýja
stjórnarskrá, er meirihlutastjórn
blökkumanna á að byggjast á.
Verði stjórnarskráin samþykkt,
eiga almennar kosningar með at-
kvæðisrétti fyrir alla landsmenn
jafnt að fara fram snemma i
desember. En óliklegt er að
Smith þori að bakka með
samkomulag þetta, þvi að hvers-
konar undanhald frá þvi myndi
svipta hann þeim takmarkaða
stuðningi blökkumanna, sem
hann þó hefur enn.
Hvitir menn flýja landið i strið-
um straumum með hugarfari
þeirra, er yfirgefa sökkvandi
skip. Samkvæmt opinberri
skráningu hefur hvitum mönnum
búsettum i Ródesiu á nokkrum
mánuðum fækkað úr 270.00 i
240.000. Að minnsta kosti um 500
yfirgefa landiö á mánuði, og
raunverulegur flótti er að lik-
indum meiri, þvi að margir fara i
„fri” erlendis, staðráðnir i þvi að
koma ekki til baka. Þegar er full-
bókað i öll flug frá Salisbury um
áramótin næstu, þegar gert er
ráð fyrir að stjórn blökkumanna
undir forustu þeirra klerkanna
Muzorewa og Sithole taki við.
Ljóst er að hvitir menn hafa enga
trú á þvi að „hófsamir” blökku-
mannaleiðtogar standist skæru-
liðum snúning stundinni lengur —
auk þess sem þeir hafa auðvitað
stakt ógeð á aö komast undir
stjórn blökkumanna, hverjir sem
eru. Foreldrar eru farnir að neita
að senda syni sina i herinn.
„Kjarkurinn hefur aldrei verið
minni,” sagði ródesiskur þing-
maður nýlega.
Hver er sjálfum
sér næstur...
Þar að auki er efnahagur rikis-
ins kominn i rúst af völdum
striðsins. Stjórnin hefur nýlega
lagt á alla skattgreiðendur
landsins — um 80.000 talsins og
nær alla hvita — 12 1/2% auka-
tekjuskatt, sem að forminu til er
lán og á að endurgreiðast á næstu
þremur árum. Flestum hvitum
Ródesiumönnum finnst þetta
léleg fyndniog þessi skattlagning
verður að likindum til þess að
þeir herða landflóttann.
Sumir þeirra að minnsta kosti
reyna að bjarga þvi sem bjargað
verður — hver fyrir sjálfan sig.
Nýlega komst upp að allnokkrir
stjórnarembættismenn og kaup-
sýslumenn höfðu i félagi komið
miklum fjárfúlgum, sem átti að
verja til þess að kaupa vopn
handa Ródesiuher, á númeraöa
bankareikninga i Sviss. Ekki
hefur það mál orðið til að stæla
baráttukjark hvitra Ródesiu-
manna, sem verða æ færri i
sinum eigin her. Meirihluti hers-
ins er fyrir löngu blökkumenn,
sem ganga i herinn vegna
kaupsins sem boðið er upp á, og
erlendir málaliðar.
dþ
Afturganga nasismans á kreiki í Noregi:
Reynt að
endurreisa
fylgismenn
Quislings
7/8 frá Þorgrími
Gestssyni í Osló: Gamli
nasistadraugurinn, sem
hefur gengið Ijósum log-
um í Vestur-Þýskalandi
undanfarin ár, virðist nú
vera að ná fótfestu hér í
Noregi. Dagbladet í Osló
skýrir f rá því í dag að hin
svonefnda ,,stofnun
norskrar hernámssögu"
hafi hrundið af stað her-
ferð til að hreinþvo alla
áhangendur norska
föðurlandssvikarans
Quislings, sem voru
dæmdir fyrir samvinnu
Quisling (hér með Hitler vini slnum 1943)
„hugmyndir” hans i bréfaskóla.
- nú er fariö að kynna
sína við Þjóðverja i síð-
ustu heimsstyrjöld.
í síðasta númeri viku-
blaðsins Aktuell Rapport
eru viðtöl við nokkra af
þeim gömlu nasistum,
sem standa að herferð
þessari. Þeir telja nauð-
synlegt að landssvika-
uppgjörið svonefnda
verði endurmetið og
,,dregin upp sönn mynd
af atburðum striðsár-
anna".
Risaauglýsingar vikublaösins
um þetta efni, sem hafa veriö
settar upp út um alla borg, hafa
vakið mikil mótmæli. Meðal
annars kröfðust starfsmenn
sporvagna Oslóborgar þess, að
þau yrðu fjarlægð úr öllum
sporvögnum og viðkomustöðum
þeirra. Sömuleiðis vakti það
úlfaþyt þegar farið var að stilla
út og selja hjá Narvesen,
stærsta dreifingarfyrirtæVi
landsins á blöðum og tímarit-
um, málgagn nasistaflokksins,
Folk og Land. Forráðamenn
Narvesens segjast hafa tekið að
sér að selja þetta blað á sama
grundvelli og önnur blöð, með
tveggja mánaða reynslutima.
Dagbladet hefur einmitt eftir
þessu sama riti, að nasistar frá
striðsárunum komi saman viðs-
vegar um landið til að skemmta
sér og ræöa sameiginlegt
áhugamál: nasjónalsósialismann
— Við leggjum áherslu á að
vinna aö þvi að menn liti rétt-
um augum á söguna, segir einn
þessara manna i viðtali við
Dagbladet.
IVBergen gefur svonefnt
„Samfélag sósialeinstaklings-
hyggjumanna” út hugmyndir
og hugsanir Quislings sem
bréfaskóla. Gamlir nasistar
hafa i blaðaviötölum að undan-
förnu sagt, að þessi gamli for-
ingi þeirra hafi hlotið örlög,
sem verið hafi alls óverðskulduð
svo gáfuðum og snjöllum manni
sem þeir segja hann verið hafa.
Um samtök ungra nasista i
Noregi, Norsk Front, segja
gömlu nasistarnir, að þeir séu
„óstýrilátir strákar og óláta-
belgir,” en um leið hópur sem
vel takist að vekja athygli á
stefnunni.