Þjóðviljinn - 10.08.1978, Síða 12
12 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 10. ágúst 1978
FLÍSALAGNIR
Maður vanur flisalögnum óskast til starfa
strax við nýbyggingu fjórðungssjúkra-
hússins i Neskaupstað. Upplýsingar i sima
97-7600 Neskaupstað.
Dráttarbrautin hf
Starfskraftur óskast
til afgreiðslustarfa i sérverslun við
Laugaveg hálfan daginn, fyrir hádegi.
Tilboð sendist i pósthólf 491 merkt
„LAUGAVEGUR”.
Staða fulltrúa
Staða fulltrúa á Skattstofu Suðurlandsum-
dæmis, Hellu, er laus til umsóknar.
Æskilegt er að umsækjandi hafi lokið prófi
i viðskipta- eða lögfræði eða hafi langa
starfsreynslu við skatta- eða bókhalds-
mál.
Sé þess óskað eru möguleikar á að útvega
góða leiguibúð.
Umsóknir ásamt upplýsingum um aldur,
menntun og fyrri störf sendist skattstjóra
Suðurlandsumdæmis fyrir 5. september
n.k.
F'jármálaráðuneytið,
3. ágúst 1978.
ð
Álafoss h.f.
Óskum eftir að ráða nú þegar starfsfólk i
verksmiðju okkar, Mosfellssveit. Nánari
upplýsingar i starfsmannahaldi.
Álafoss h.f.
Mosfellssveit, simi 66300
Blaðberar —
óskast
Hátún (nú þegar)
Bólstaðahlið (sem fyrst>
Tómasarhagi (frá 20. ágúst)
afleysingar
Múlahverfi (ágúst)
Neðri-Hverfisgata (19.-26. ágúst)
DJÖÐVHJINN
Siðumúla 6. Simi 8 13 33
Skattskráin var lögð
hér fram í versluninni
Suðureyri þann 13. júlí s.l
Ekki var búist við henni
f yrr en 18. eins og auglýst
hafði verið í fjölmiðlum.
Álögð gjöld samkvæmt
þeirri skrá eru kr.
122.843,000 á 270 gjaldend-
ur. Samkvæmt yfirliti
minu er sundurliðun á
aðalatriðum þessi:
Tekjuskattur kr.
54.444.034,- á 148 gjald-
endur, svo margir eru í
núlli.
Suðureyri við Súgandafjörð.
Gísli Guðmundsson skrifar:
r
F
UR SKATTSKRA
SUÐUREYRAR
Lltsvör urðu kr.
51.877,800 ,- á 244 gjald-
endur.
Sjúkratryggingargjald
er kr. 9.702.100,- Það eru
201, sem fá það í hausinn
Skyldusparnaður er kr.
4.008.000,-, þeir eru 42,
sem eiga að greiða hann.
Þetta er svona það helsta,
sem þarna er að sjá.
Barnabætur fá nú 78
sálir, samtals kr.
13.969.500
Skattskráin mun yfirleitt
vera vel lesin hér á Suðureyri
Margir bölva nú upphátt, aðrir i
hljóði og enn aðrir, sem hljóta
að vera ánægðir með núllin sin.
Ég hef litið á þessa skrá. Þar
má lika sjá hvað hver og einn
hefur mikið útsvar.
Ég mun nú skrá hér nokkra af
þéim, sem mest eiga að greiða
t.d. i tekjuskatt, útsvar og svo
samanlögð upphæð allra þeirra
skatta. Einnig mun ég staldra
við hjá þeim fátæku og smáu,
sem virðast samkvæmt gjöld-
um rétt draga fram lifið. Getur
það verið að skattalaga-netin
séu mjög stórriðin og að tekjur
manna geti lekið þar út? Ef svo
er ætti að vera hægt að minnka
þá möskva i öfugu hlutfalli við
veiðarfæri togaranna. Þar eru
möskvar stækkaðir.
Svo að ég sleppi nú öllu gamni
þá er það undravert hvað fólk
virðist lifa hér góðu lifi af litlum
tekjum. Það á sér sjálfsagt lika
stæð hér sem annarsstaðar að
sumir menn eru i góðum stöðum
og konur þeirra vinna einnig úti
en tekjur eru þó litlar þótt lifað
sé kóngalifi.
Ég tel hér fyrst upp yfirmenn
af m/s Elinu:
Arinbjörn Sigurðsson, skip-
stjóri, tekjuskattur kr.
1.394.385,-, útsvar kr. 718.400,-,
samtals kr. 2.597.977,-.
Pétur Sigurðsson 1. stýrimað-
ur, tekjuskattur kr. 1.251.693,-,
útsvar kr. 668.700,-, samtals kr.
2,251,091.-.
Ólafur Ólafsson, 2. stýrimað-
ur. Tekjuskattur kr. 1.310.273,-,
útsvar kr. 701,100,-, samtals kr.
2.402.495.-.
Sveinn Þorkelsson, annar vél-
stjóri. Tekjuskattur kr.
1.129.765,-, útsvar kr. 685.700,-,
samtals 2.170.958,-.
Simon Jónsson bátsmaður
Tekjuskattur kr. 1.042.421,-,
útsvar kr. 564.800,-, samtals kr.
1.858.973,-.
Bergur Guðmundsson, mat-
sveinn. Tekjuskattur kr.
1.164.005,-, útsvar kr. 554.200,-,
samtals kr. 2.054.618,-.
Skipstjórar á línubátum:
Bragi Ólafsson, skipstjóri á
Ólafi Friðbertssyni. Tekjuskatt-
ur kr. 1.568,509,-, útsvar kr.
707.000,-, Samtals kr. 1.742.814,-.
Bjarni Kjartansson, (Kristján
Guðmundsson), Tekjuskattur
kr. 726,129,-, útsvar kr.
545.400, -, alls kr. 1.479,500,-.
Einar Guðnason, (Sigurvon).
Tekjuskattur kr. 406.929,-,
útsvar kr. 448.000,-, alls kr.
962.249,-,
Þá eru það forstjórar, fisk-
kaupmenn og bilstjóri Freyju
hf.:
Einar Ólafsson, forstj. Tekju-
skattur kr. 1.600.870,-, útsvar kr.
629.400, -, alls kr. 2.597.204,-,
Páll forstj. Freyju hf. Tekju-
skattur kr. 692,718,-, útsvar kr.
426.100,-, alls kr. 1.283.146,-.
Erling Auðunsson, fiskkaup-
andi. Tekjuskattur kr. 0,00, út-
svar kr. 247,500,-, alls kr.
352,792,-.
Eðvarð Sturluson, aðalbil-
stjóri. Tekjuskattur kr.
1.283.609,-, útsvar kr. 516,900,-,
alls kr. 2.030.762.-.
Gestur Kristinsson, rafveitu-
stjóri. Tekjuskattur kr.
1.252,662,-, útsvar kr. 606,700,-,
alls kr. 2.152.698,-.
Kristinn Jónsson, verkstjóri.
Tekjuskattur kr. 1.156.389,-,
útsvar kr. 621,300,-, alls kr.
2.077.108,-.
Rúnar Hallsson, vélaverk-
stjóri. Tekjuskattur kr.
1.210.404,-, útsvar kr. 583,900,-,
alls kr. 1.858,793,-.
Ég fer nú ekki lengra i þessa
upptalningu. Allir þeir, sem hér
eru nefndir, eru að einhverju
eða öllu leyti á vegum Fiskiðj-
unnar Freyju hf, nema Erling
Auðunsson, fiskkaupandi.
Bændur hér i sveit eru eigin-
lega 8 talsins. Yfirlit um þá er
þannig:
Friðbert Pétursson Botni.
Tekjuskattur kr. 180.381,-,
útsvar 269.000,-, alls kr. 516,345,-
Guðmundur Pálmason, Sól-
stöðum. Tekjuskattur kr.
48.025,-, útsvar kr. 174,100,-, alls
kr. 236,272,-. Guðmundur er
kominn á tiræðisaldur og kona
hans á áttræðisaldri og bú
þeirra er mjög litið, 40 ær, 1 kýr
og 1 hestur svo ekki verður ann-
að sagt en þau standi sig vel.
Aðrir bændur eru skattlausir
nema Karl Guðmundsson en
gjöld þeirra eru:
Karl Guðmundsson, Bæ, kr.
200,557,-.
Guðmundur Þorleifsson, Bæ,
kr. 197.236,-.
Birkir Friðbertsson, Birkihlið,
kr. 228,511,-.
Þórður A. Ólafsson, Stað, kr.
143.466,-.
Þorleifur Guðmundsson, Bæ,
kr. 117,672,-.
Að siðustu er það Ólafur
Þórðarson, oddviti, skólastjóri
og varaþingmaður Framsóknar
fram að siðustu alþingiskosning
um. Var stjórnarformaður
Kaupfélags Súgfirðinga hin sið-
ustu ár og sat þá nokkrum sinn-
um á þingi. Kaupfélagið andað-
ist þann 31. jan. i vetur og mun
ekki aftur upp risa. Ólafur hefur
á leigu jörðina Laugar og elur
þar töluvert af búpeningi eða
fast aö 100 fjár og töluvert af
hrossum. Skattur hans er nú
454.560,-, útsvar kr. 367,500,-, og
samanlögö gjöld hans sam-
kvæmt skattskrá eru kr.
916,724.-.
Fiskiðjunni Freyju hf. er gjört
að greiða kr. 7.803.900,- i að-
stöðugjald. Allir skattar hennar
samkvæmt skattskrá eru kr.
18.063.915,-. Fiskiðjan greiðir
engan tekjuskatt.
Eina fyirtækið hér á Suður-
eyri, sem greiðir tekjuskatt, er
verslunin Suðurver hf., kr.
1.605.900,-. og aðstöðugjald kr.
1.000.000,-.
Kaupfélag Súgfirðinga fór,
eins og fyrr segir, á hausinn 31.
jan s.l. Við félagsmenn höfum
ekki enn fengið að vita hvert tap
þess var siðustu 13 mánuðina.
Min ágiskuner 20 milj. kr. tap.
Og þá er þess'ári upptalningu
lokið.
Gisli Guðmundsson.
VOf
r
Umsjón: Magnús H. Gíslason