Þjóðviljinn - 31.08.1978, Síða 10
10 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 31. ágúst 1978
/
Armenningar bestir
Reykjavikurmótið, sem nú er
um garð gengið var stigamót og
'þegar eftir er að keppa i tugþraut
og 4x1500 metra boðhlaupi karla
er staðan þannig hjá Reykja-
vikurfélögunum. Armann er efst
með 17.258 stig. IR-ingar eru i
öðru sæti með aðeins 13.682 og
KR-ingar reka lestina með 3.742
stig. SK.
Reykjavíkur-
meistarar í
Y
aumingjaskap
Það eru ef laust fáir sem vita það að Reykjavíkur
mótinu i frjálsíþróttum er nú lokið. Mót þetta
einkenndist af einstöku framlagi KR-inga sem sjá
áttu um mótið. Fyrsta dag mótsins mættu sárafáir
starfsmenn og var orðið það hart« ári hjá þeim KR-
ingum í lokin að blaðamaður sá (undirritaður) er
staddur var á staðnum varð að taka að sér að mæla
kringlukast kvenna og kúluvarp karla. Hefur nokk-
ur lesið aðra eins þvælu. En þetta er sannleikur þvi
miður.
Það verður að segjast eins
og er að sjaldan eða aldrei
hefur eitt frjálsiþróttamót
verið jafn illa haldið og um-
rætt Reykjavikurmót.
Fleiri tugir keppenda sem
æft hafa fyrir mótiö eftir
bestu getu urðu meira og
minna^ að hætta þátttöku
vegna starfsmannaleysis.
Til hvers er verið að
byggja hér iþróttamannvirki
fyrir hundruö miljóna króna
ef ekki er hægt að láta eitt
frjálsiþróttamót rúlla i gegn
átakalaust?
Það væri gaman að fá svar
þeirra sem sjá áttu um mótið
við þeirri spurningu.
Þeir menn sem áttu að sjá
til þess að þetta mót gæti far-
ið fram á sómasamlegan
hátt geta nú fátt eitt gert
annað en aö skammast sin
fyrir sina frammistöðu.
Er engu likara en að þessir
einstaklingar séu sálarlaus-
ir.
En einu geta þeir þó glaðst
yfir. Þeireru ómótmælanlega
Reykjavikurmeistarar i
aumingjaskap.
Þetta er frammistaða sem
ekki gleymist og er eins og
áður sagði þessum mönnum
til ævarandi skammar.
SK.
Evrópumótið i frjálsum iþróttum
Frábært hjá Thompson
Hann hefur forystu í tugþrautinni með 4459 stig eftir
fyrri dag. Elias aftarlega
Bretinn Dayley Thomp-
son náði frábærum árangri
i tugþraut á fyrri degi
keppninnar á Evrópu-
meistaramótinu i Prag i
gærkvöldi. Hann hefur 4459
stig eftir fyrri daginn.
Árangur hans er þessi í
einstökum greinum: 100 m
hlaup/ 10/69, langstökk
7,93, kúluvarp 14,69, há-
stökk 2,04 og 400 metrana
hljóp hann á 47,77 sek.
Annar er Alexander
Grebenyuk frá Sovétríkj-
unum með 4.171 stig.
Elias Sveinsson var meðal þátt-
takenda og eftir fyrri daginn
hefur hann 3.681 stig og er i 21.
sæti af 24 keppendum. Arangur
hans i sömu greinaröð og hjá
Thompson er þessi: 11,24;
6,17:14,1771,95 og 51,50.
Evrópumeistari i kúluvarpi
kvenna varð Ilona Slupianek frá
Austur Þýskalandi, varpaði kúl-
unni 21,41 metra sem er nýtt
Evrópumeistaramótsmet. önnur
varð Helena Fibingerova Tékkó-
slóvakiu með 20,86 m.
Evrópumeistari i langstökki
kvenna varð heimsmethafinn
(7,09) Vilma Bardauskiene frá
Sovétrikjunum, stökk i gærkvöldi
6,88 m. önnur varð Angela Voigt
A-Þýskalandi stökk 6,79 m.
I 100 metra hlaupi karla sigraði
ttalinn Pietro Mannea á 10,27 sek.
en annar varð Eugen Ray A-
Þýskalandi i 10,36 sek.
Evrópumeistari i 100 m hlaupi
kvenna varð Marlies Gohr frá A-
Þýskalandi hljóp á 11,13 sek. önn-
ur varð Linda Haaglund Sviþjóð á
11,29 sek.
Bestum tima i 800 metra hlaupi
kvenna i undanrásum náöi Anita
Weiss A-Þýskalandi 1,58,8 min. i
800 m hlaupi karla náði Sebastian
Coe bestum tima 1,47,6 en i þessu
hlaupi var keppt i undanúrslitum.
1 400 metra hlaupi karla.undan-
rásum náði bestum tima Franz
Peter Hofmeister V-Þýskalandi
eða 46,28 sek.
t 400 metra hlaupi kvenna náði
Vasili Archipenko bestum tima i
undanrásum hljóp á 49,92 sek.
SK.
Óskar vann þrautina
Pólland
Pólverjar sem leika gegn ts-
lendingum hér á landi eftir viku
léku i gærkvöldi vináttulandsleik
i knattspyrnu gegn Finnum. Pól-
verjar sigruðu með aðeins einu
marki gegn engu og það var
Stefán Majewski sem skoraði
sigurmarkið 10 min. fyrir leiks-
lok.
vann
Þá lék Austurriki gegn Norð-
mönnum i gærkvöldi i Austurriki.
Austurrikismenn sigruðu 2:0 og
var staðan sú i hálfleik. Það voru
þeir Hans Krankl og Pezzey sem
skoruðu mörk Austurrikismanna.
Ahorfendur voru 14.491.
A-Þýskaland og Búlgaria léku
einnig og gerðu jafntefli 2:2. SK
óskár Thorarensen sigraði i
fimmtarþrautinni á Reykjavíkur-
mótinu I frjálsum iþróttum i gær-
kvöldi og hlaut hann 3.082 stig.
Vésteinn Hafsteinsson keppti
Erlendur Valdimarsson vann
besta afrekiö á Reykjavikurmót-
inu sem lauk i gærkvöldi. Hann
kastaöi kringlunni 61,54 metra en
það er aðeins of seint gert hjá Er-
lendi þvi Evrópumeistaramótið
er nú hafiö. En engu að siður er
þetta mjög góður árangur hjá Er-
lendi og sýnir að hann er að kom-
'ast i sitt gamla form.
Sveit Ármanns setti nýtt Is-
landsmet I 4x400 metra boð-
sem gestur og náöi sér i 3.187 stig
sem er aðeins 18 stigum frá ung-
lingametinu. Hann er i HSK og
keppti þvi eins og áður sagði sem
gestur. SK.
hlaupi, hljóp á 4.00,1 sek. Eldra
metið var 12 sek. lakara. t sveit-
inni voru þær Lára, Sigrún og
Katrin allar Sveinsdætur tima-
•varðar Sigmundssonar, og fjórða
Sigurborg Guðmundsdóttir.
Þá vakti ungur kúluvarpari,
Hermundur Sigmundsson, at-
hygli, er hann kastaði 9,02 metra
sem er mjög góður árangur hjá 14
ára pilti. önnur úrslit verða að
biða betri tima. SK.
Erlendur með 61,54
/
og Islandsmet i 4x400 m boðhlaupi kvenna
Þeir hafa það gott ensku leikmennirnir I knattspyrnunni þegar 1. deildin er ekki I gangi. A þessari mynd
er það Liverpool leikmaðurinn Souness sem „hvflist” meö einni sænskri en sú ku vera fegurðardrottn-
• ing þar i landi. En nú er enski boltin byrjaður að rúlla á ný og þá er enginn friður til tómstundaiðkana.
Enski
deildarbikarinn:
Ipswich,
Wolves
ogWHam
úr leik
Enska deildar-
bikarnum var fram
haldiö i gærkvöldi voru
þá leiknir 10 leikir. Úr-
slit urðu nokkuð óvænt
og voru t.d. Wolves,
Ipswich og West Ham
slegin út úr keppninni.
Annars urðu úrslit
þessi:
Leicester - Derby 0:1
Aston Villa-Sheff. Wed. 1:0
Blackpool - Ipswich 2:0
Chester - Coventry 2:1,
Crewe Alexandra - Notts
C. 2:0
Oxford -Plymouth 1:1
Reading - Wolves 1:0
Stockport - Man.Utd. 2:3
Sunderland-Stoke 0:2
West Ham-Swindon 1:2
Einnig var leikið i
skoska deildarbikarn-
um og þar urðu úrslit
þessi:
Ayr - Stranraer 1:0
Airdrieonians -
Dunfermline 3:0
Berwick-St.Mirren 1:3
Brechin-Hibs 0:3
Clyde-Motherwell 3:0
Cowdenbeath - Hamilton 3:2
Dundee U.-Celtic 2:3
East Five - Arbroath 0:1
Hearts - Morton 0:3
Kilmarnock - Alloa 2:0
Meadowbank - Aberdeen 0:5
Partick Th.-Falkirk 1:1
Rangers - Forfar 3:0
Raith-QP 4:2
Stenhousemuir - Clydebank
1:0
SK.
T ækniitámskeið
Badmintonsamband Is-
lands hefur ákveöið að halda
tækninámskeið dagana 16.
og 17. september og fer það
fram i iþróttahúsi TBR við
Gnoðavog.
Stjórnandi námskeiðsins
verður Garöar Alfonsson.
Námskeiðið er sérstaklega
ætlað þeim sem ætla sér að
sækja A-stigs leiðbeinenda-
námskeið B.S.I. á næsta ári.
Þar sem þátttaka er tak-
mörkuð, eru þeir sem áhuga
hafa á að sækja þetta nám-
skeið, beðnir að hafa sam-
band við Rafn Viggósson i
sima: 84451 og 30737, fyrir 10.
september.
Badmintonsamband Islands.