Þjóðviljinn - 31.08.1978, Qupperneq 11
Fimmtudagur 31. ágúst 1978 ÞJÓÐVILJÍNN — SIÐA' 11
IN MEMORIAM
Helgi Bergsson
Enn er höggvið skarð i röð
þeirra, er þreyttu stúdentspróf i
Menntaskólanum i Reykjavik
voriö 1934. Or þeim mannvals-
bekk hafa margir fallið i valinn
fyrir aldur fram, ég nefni hér
Lárus Páisson og Hermann
Einarsson, og nú hefur hjartaslag
orðið að aldurtila einum bekkjar-
bræðranna, Helga Bergssyni,
framkvæmdastjóra, sem andað-
ist i sjúkrahúsinu á Akureyri að-
faranótt 23. ágúst.
Helgi Bergsson fæddist i
Reykjavik 25. janúar 1914, sonur
Bergs Pálssonar, skipstjóra og
fyrri konu hans, Helgu Magnús-
dóttur. Aö stúdentsprófi loknu hóf
hann nám i London School of
Economics en þaðan fór hann
eftir eitt ár til háskólans i Stokk-
hólmi og lauk þar prófum i hag-
fræði og ensku 1939.
Er Helgi kom til Sviþjóðar hafði
litill en samstilltur hópur
islenskra námsmanna hreiðrað
um sig i höfuðborg Svia, sem i
þann tima litu „Sagornas ö” mjög
rómantiskum augum. Höfðu
sumir pótintáta þar i borg gaman
af að bjóða heim þessum furðu-
fuglum, er töluðu mál, sem
sænskir stúdentar spyrtu saman
við finnska tungu meö samheitinu
„obegripiska”.
Það þótti harla góð viðbót við
litlu islensku nýlenduna er Helgi
Bergsson bættist i hana og það þvi
fremur, sem hann kom með konu
með sér og hana ekki af verra
taginu, Lineyju Jóhannesdóttur,
glæsilega og aðsópsmikla gáfu-
konu af þvi fræga Laxamýrar-
kyni, en henni kvæntist Helgi
sumarið 1936 og stofnuðu þau
hjón fyrsta heimili nýlendunnar.
bangað geröist okkur einhleyp-
ingunum brátt tiöförult enda
dæmaiaust gott að gista þessi
hjón, nokkuö ólik við fyrstu sýn,
en i raun óvenju samrýmd og
bættu hvort annað upp með ein-
stökum hætti. Ekki var efnunum
fyrir að fara frekar en hjá flest-
um öðrum i islensku nýlendunni
en gestrisnin lét sig slikt litlu
varða.
Sumarið 1938 eignaðist nýlend-
an sitt fyrsta barn, er þeim Helga
og Lineyju fæddist sonur. Ari sið-
ar skall önnur heimsstyrjöldin á,
Liney fór heim i október 1939 með
frumburð sinn en Helgi komst
heim með all ævintýralegum
hætti sumarið 1940. Eftir heim-
komuna gerðist hann fulltrúi hjá
Verslunarráði Islands, þar sem
hann starfaði i 14 ár, lengst af
sem skrifstofustjóri. Siöar gegndi
hann margháttuðum störfum á
sviði verslunar og viðskipta.
Hann var m.a. framkvæmda-
stjóri Verslanasambandsins h.f.
1954-60 og stjórnarformaður
skipafélagsins Hafskip frá stöfn-
un þess til 1960, en Helgi var
hvatamaður að stofnun þessa
skipafélags. bar sagði það til sin,
að hann var sonur skipstjóra og
sjávarunnandi. Hann kaus og
helst að búa við sjávarströnd og
að þvi kom lika, að þau hjónin
eignuðust fallegt hús i Sörlaskjóli,
en fyrir meir en áratug fluttu þau
i Kópavoginn að binghólsbraut
71, þarsem báran gjálfrar svo að
segja við húsvegg og ú-ið i æðar-
kollunum heyrist inn i stofu.
bess er ekki að dyljast, aö það
heilsuleysi sem bagaði Helga
Bergsson allan siðari hluta ævi
hans, var honum mikill fjötur um
fót, slævði meðfædda framtaks-
semi hans og dró úr fram-
kvæmdaþoli. Hæfileikar hans
fengu þvi alls ekki að njóta sin
sem skyldi.
beim hjónum varð þriggja
barna auðið.þau eru: Páll, læknir
Jóhannes, starfsmaöur hjá
reiknistofnun bankanna og Liney,
kennari.
1 meir en fjóra áratugi eða allt
frá Stokkhólmsárunum, hafa þau
Helgi og Liney verið i hópi nán-
ustu vina konu minnar og min,
trygg bæði i bliðu og striðu. Mikið
eigum við þeim að þakka. og
þessa dagana er efst i huga hvað
við eigum Helga upp að unna, en
þvi fá orð trauðlega lýst. Lifsgleði
veittu, svo lengi kostur er, gæti
hafa verið kjörorö hans. Mönnun-
um liður mjög misjafnlega vel i
návist annarra, en návist Helga
var alveg sérstaklega notaleg og
lifgandi. Viðmót hans yljaði og
lýsti með einhverri innri birtu er
stafaöi frá þessum svipfríöa
sjentilmanni. Natin umhyggja
hans og hugulsemi var ætið söm
við sig og góölátlegur, dálitið
kankvis húmor hans. var af þvi
tagi, sem laðar fram bros en vek-
ur ekki hrossahiátur.
Lengi gekk hann vanheill til
skógar en honum var það gefið á
þeirri göngu að gleðja aðra.
Sigurður Þórarinsson
Ferðaskrifstofa
ríkisins:
Kjartan
Lárusson
forstjóri
Samgönguráðherra hefur skip-
að Kjartan Lárusson, viðskipta-
fræðing, i stöðu forstjóra Ferða-
skrifstofu rikisins, frá 1. sept. n.k.
að telja.
Kjartan er fæddur 20. júni 1945.
Hann lauk kandidatsprófi frá við-
skiptadeild Háskóla Islands vorið
1972.
Hann hóf að námi loknu störf
hjá samgönguráðuneytinu að
Ferðamálakönnun Sameinuðu
þjóðanna, en frá 1. sept. 1973
hefur Kjartan starfað hjá Ferða-
skrifstofu rikisins fyrst sem að-
stoðarforstjóri, en var settur for-
stjóri Ferðaskrifstofu rikisins 11.
nóv. 1976.
Kona Kjartans er Anna Karls-
dóttir.
Kópawogskaupstaöur Kl
Gæsluvöllur
Félagsmálastofnun Kópavogs óskar að
ráða starfsfólk á nýjan gæsluvöll i Efsta-
hjallahverfi, sem tekinn verður i notkun i
haust. Æskilegt er, að væntanlegir
umsækjendur hafi reynslu við uppeldis-
störf. Laun samkv. kjarasamningi bæjar-
félagsins. Umsóknareyðublöð liggja
frammi á Félagsmálastofnuninni,
Álfhólsvegi 32 simi 41570, og þar veitir
dagvistarfulltrúi jafnframt nánari
upplýsingar um starfið. Umsóknarfestur
er til 11. sept. n.k.
Félagsmálaráð
Þurrkaður harðviður
Einnig fyrirliggjandi hnota, .japönsk eik
og oregon pine. Harðviðargólflistar fyrir
parket. Sendum i póstkröfu um allt land.
^.. .
HÖFÐATÚNI 2 - REYKJAVÍK
Sími: 22184 (3 Knur)
Blikkiðjan
Ásgarði 7, Garðabæ
Önnumst þakrennusmiði og
uppsetningu — ennfremur
hverskonar blikksmíði.
Gerum föst verðtilboð
SIMI 53468
Styrkur til
háskólanáms i Japan
Japönsk stjórnvöld bjóða fram styrk handa tslendingi til
háskóianáms I Japan námsárið 1979-80 en til greina kemur
að styrktimabil verði framlengt til 1981. Ætlast er til að
styrkþegi hafi lokið háskólaprófi eða sé kominn nokkuð
áleiðis i háskólanámi. Þar sem kennsla við japanska
háskóia fer fram á japönsku er til þess ætlast að styrkþegi
leggi stund á japanska tungu um a.m.k. sex mánaða skeið.
Umsækjendur skulu ekki vera eldri en 35 ára. Styrkfjár-
hæðin er 146.000 yen á mánuði og styrkþegi er undan-
þeginn skólagjöldum. Auk þess fær styrkþegi 25.000 yen
við upphaf styrktimabiisins og alit að 42.000 yen til kaupa
á námsgögnum. Þá er og veittur ferðastyrkur.
Umsóknir um styrk þennan, ásamt staðfestum afritum
prófskirteina, meðmælum og heilbrigðisvottorði, skulu
sendar menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6,
Reykjavik, fyrir 22. september n.k. — Sérstök umsóknar-
eyðubiöð fást i ráðuneytinu.
Mennta mála r áðuney tið
25. ágúst 1978
Styrkur til
háskólanáms i Sviss
Svissneskstjórnvöld bjóða fram styrk handa tslendingi til
háskólanáms i Sviss skólaárið 1979-80. Ætlast er til að
umsækjendur hafi lokið kandfdatsprófi eða séu komnir
langt áleiðis i háskólanámi. Þeir sem þegar hafa verið
mörg ár i starfi, eða eru eldri en 35 ára, koma að öðru
jöfnu ekki til greina viö styrkveitingu. Styrkfjárhæöin
nemur 800 svissneskum frönkum á mánuði fyrir stúdenta,
en allt að 950 frönkum fyrir kandidata. Auk þess hlýtur
styrkþegi nokkra fjárhæð til bókakaupa og er undan-
þeginn kennslugjöldum. — Þar sem kennsla i svissneskum
háskólum fer fram annaðhvort á frönsku eða þýsku, er
nauðsynlegt að umsækjendur hafi nægilega kunnáttu f
öðru hvoru þessara tungumála. Þurfa þeir að vera undir
það búnir aö á það verði reynt með prófi.
Umsóknum um styrk þennan skai komið til menntamála-
ráðuneytisins, Hverfisgötu 6, Reykjavik, fyrir 1. nóvem-
ber n.k. — Sérstök umsóknareyöublöð fást I ráðuneytinu.
Menntamálaráðuneytið
25. ágúst 1978.
Styrkur til
háskólanáms i Sviss
Svissnesk stjórnvöld hafa tilkynnt ab þau bjóbi fram i
löndum sem aðild eiga að Evrópuráðinu sex styrki til
háskólanáms i Sviss háskólaárið 1979-80. — Ekki er vitað
fyrirfram hvort einhver þessara styrkja muni koma I hlut
tsiendinga. Styrkir þessir eru eingöngu ætlaðir til fram-
haldsnáms við háskóla og eru veittir til tiu mánaða náms-
dvalar. Styrkfjárhæðin er 950 svissneskir frankar á
mánuði og auk þess fá styrkþegar allt að 500 franka styrk
til bókakaupa. — Þar sem kennsla I svissneskum
háskólum fer fram annabhvort á frönsku eða þýsku er
nauðsynlegt að umsækjendur hafi nægilega þekkingu á
ööru hvoru þessara tungumáia. Þurfa þeir að vera undir
það búnir, að á það verði reynt með prófi. Umsækjendur
skulu eigi vera eldri en 35 ára og skulu hafa lokið háskóla-
prófi áður en styrktimabil hefst.
Umsóknir um styrki þessa skulu sendar menntamála-
ráðuneytinu, Hverfisgötu 6, Reykjavik, fyrir 1. nóvember
n.k. á tilskildum eyöubiöðum sem þar fást.
Menntamálaráðuneytið
25. ágúst 1978
Menningarsjóður
íslands og Finnlands
Tilgangur sjóðsins er aö efla menningartengsl Finnlands
og Islands. 1 þvi skyni mun sjóðurinn árlega veita feröa-
styrki og annan fjárhagsstuðning. Styrkir verða öðru
fremur veittir einstaklingum, en stuðningur viö samtök'
kemur einnig til greina ef sérstaklega stendur á.
Umsóknir um styrk úr sjóðnum skulu sendar stjórn
Menningarsjóðs islands og Finnlands fyrir 30. september
1978. Aritun á tslandi er: Menntamálaráðuneytið,
Hverfisgötu 6, Reykjavik. Æskilegt er að umsóknir séu
ritaðar á sænsku, dönsku, finnsku eða norsku.
Stjórn Menningarsjóðs
íslands og Finnlands,
28. ágúst 1978
Tilkynning frá Valhúsaskóla
Valhúsaskóli Seltjarnarnesi mun hefja
starfsemi sina sem hér greinir:
1. sept. 1978 föstudagur kl. 9 — kennara-
fundur.
4. og 5. sept. mánudagur, þriðjudagur —
undirbúningsstörf.
6. sept. miðvikudagur kl. 14 — skóla-
setning i Miðgarði.
\
Skólastjóri