Þjóðviljinn - 08.09.1978, Blaðsíða 9
t
8 SIÐA — ÞJÓÐVILJINNL Köstudagur 8. september 1978
ADDA BÁRA SIGFÚSDÓTTIR,
borgarfulltrúi í Reykjavík:
„Samtökin
hafa
mikilvægu
hlutverki
aö gegna”
,,Þar sem ég hef veriö formað-
ur allsherjarnefndar þingsins
hefur hugur minn verið bundinn
• viö viðfangsefni nefndarinnar
fremur en við verkaskiptingu
ríkis og sveitarfélaga eða stað-
greiðslukerfið, sem eru aðalmál
þingsins,” sagði Adda Bára
Sigfúsdóttir, borgarfulltrúi i
Reykjavik, þegar blaðamaður
gómaði hana vestur á Hótel Sögu.
„1 allsherjarnefndinni höfum
viö einkum tekið á ýmsum málum
sem erubrennandi i augnablikinu
hjá sveitarfélögunum fremur en
langtímaskipulagningu. Þar ber
hæst fjármálin og m.a. fjallaði
nefndin um þann hluta tekna sem
felast i Jöfnunarsjóöi sveitar-
félaganna. t þann sjóð rennur
m.a. viss hluti söluskatts og þeg-
ar söluskattur er felldur niður af
ákveðnum vöruflokkum, eins og
nú stendur til að gera, þá þýöir
það tekjurýrnun sem sveitar-
félögin eiga erfitt meö að mæta.”
— Hvernig er Uthlutað Ur þess-
um sjóði?
,,1 meginatriðum erUthlutunúr
sjóðnum gerð i hlutfalli við ibúa-
fjölda, en svo er einnig gert ráð
fyrir þvi aö hægt sé að rétta hlut
þeirra sveitarfélaga sem höllum
fæti standa.
Þetta er aðeins eitt dæmi um
mál, sem er sameiginlegt hags-
munamál allra sveitarfélaga og
um leið sérmál litilla sveitar-
,,t mörgum málum eiga öll /
sveitarfélögin sa meiginlegra'
hagsmuna að gæta.”
félaga sem litlar tekjur hafa. Slik
mál eru mýmörg, og þing sem
þetta vekur gjarna athygli á mál-
um sem eölilegt er að sveitar-
félögin i heild beiti sér i gagnvart
rikisvaldinu. Þannig er þvi t.d.
farið með verðlagningu á landi,
en dýr landakaup brenna mjög á
mörgum sveitarfélögum. T.d. var
samþykkt hér á þinginu áskorun
til rikisstjórnarinnar um að hún
setji lög um aö eignarnámsverð-
mæti lands skuli miöast við þann
afrakstur sem eigandi hefur haft
af landinu en ekki miöast við legu
landsins, eins og algengt er.
Þetta er að minu mati mikiö
þarfaverk, og óskandi væri að slik
lög yrðu sett hið fyrsta.
Samtök sveitarfélaga og lands-
þing þeirra hafa mikilvægu hlut-
verki að gegna. I mjög mörgum
málum hafa öll sveitarfélögin
sameiginlegra hagsmuna að gæta
og þvi er nauösynlegt að einhver
aðili,eins og samtökiageti komiö
fram fyrir hönd þeirra allra
gagnvart alþingi og rikisstjórn.”
—AI
HILMAR INGÓLFSSON,
bæjarfulltrúi í Gardabæ:
„Samvinna
um stærri
verkefni
stendur
okkur
næst”
,,Ég hef saknaö þess úr um-
ræðum hér að ekki skuli frekar
hafa verið rætt um að taka upp
nauösynlega samvinnu sveitar-
félaganna um stærri verkefni,”
sagði Hilmar Ingólfsson, bæjar-
fulltrúi i Garðabæ.
„Ég tel nauðsynlegt að ná sliku
samstarfi sérstakiega á sviði
skipulagsmála hér á höfuðborg-
arsvæöinu, en þaö strandar á
ýmsu. Kópavogur hafði á sinum
tima forgöngu um að kalla saman
til samtaka sveitarfélaga á höfuð-
borgarsvæðinu, — þau vorusettá
laggirnarogbúiðer aösetja þeim
lög. Meginverkefnið var að setja
upp þróunarstofnun höfuðborgar-
svæðisins, en i þessum efnum
hefur bökstaflega ekkert gerst.
Hilmar Ingólfsson: ,,Bind
ákveönar vonir viö að hinn nýi
f élagsmálar áðherr a, sem er
reyndur sveitarstjórnarmaðui
hreinsi til varðandi verkaskipt-
inguna.”
AUir vilja halda sinu og vera
smákóngar hver á sinum stað, og
meðþeim hætti er ekkihægt aö ná
heUbrigðu samstarfi.”
,,Það er ekki nóg að tala um
sameiningu litlu hreppanna úti á
landi, þegar stóru sveitarfélögin
geta ekki komið sér saman við
lausn stærri mála sem brenna á
þeim öUum. Ég eins og fleiri set
nú aUt traust á aö Reykjavikur-
borg gerist virkur aðili að sam-
tökum sveitarfélaga á höfuð-
1 fyrradag lauk i Reykjavik .11,
landsþingi Sambands isl. sveitar-
félaga. Eins og skýrt hefur verið frá i
Þjóðviljanum var aðalumræðuefni
þingsins verkaskipting rikis og
sveitarfélaga og skattkerfið. Einnig
var kosin ný stjórn og formaður sam-
bandsins, en landsþingin eru haldin á
fjögurra ára fresti að afloknum
sveitarstjórnarkosningum.
Hér birtist siðari hluti viðtala sem
blaðamenn Þjóðviljans áttu við þing-
fulltrúa.
SKULI ALÉXANDERSSON,
oddviti á Hellissandi:
borgarsvæðinu til að þessi mál
þokist eitthvaö áfram, og ég vona
að á næsta landsþingi snúist um-
ræður frekar um þessi mál.
Þetta eru nefnilega þau mál,
sem standa næst okkur bæjarfuU-
trúum hér á svæðinu, og liklega
væri réttast að stofna til ,/iöfuð-
borgarráös” sem fjalli um og
leysi brýn verkefni, þvi bæjar-
stjórnirnar viröast ekki geta
komið sér saman um sUkt.
Ég bendi Uka á ágæta sam-
vinnu sveitarfélaganna á Suður-
nesjum. Þeir eru með sameigin-
lega hitaveitu, sameiginlegan
fjölbrautaskóla, vegagerð o.fl.,
og nú stendur til að reisa sam-
eiginlega sorphreinsunarstöð.
Þetta samstarf hefur reynst hag-
kvæmt öllum aðilum og sveita-
stjórnirnar eru sjálfstæðar eftir
sem áöur. Spurningin er hvort
samstarf þeirra leiðir ekki til
þess að SASIR, Samband sveitar-
félaga i Reykjaneskjördæmi
skiptist í tvennt, þannig að
sveitarfélögin á Suðurnesjum
veröi sjálfstæðir aðilar og jafnvel
sjálfstætt kjördæmi og við hinir
snúum okkur að frekari sam-
vinnu við Reykjavik.”
— Hvað með verkaskipting-
una?
,,I ýmsum málum rikir afar ó-
eðlileg verkaskipting milli rikis-
ins og sveitarfélaganna. Siðasta
rikisstjórn stóð sig t.d. engan
veginn í stykkinu i skólamálum,
og enn eru engin lög til um fram-
haldsskólastigið. Ibúar sveitar-
félaganna þrýsta auðvitaö á um
þá þjónustusem eðlilegt er, og af-
leiöingin er sú aö sveitarfélögin
sitja uppi með framhaldsskóla-
reksturinn. Ég bind ákveðnar
vonir við að hinn nýi félagsmála-
ráöherrasem er reyndur sveitar-
stjórnarmaður hreinsi til varð-
andi verkaskiptinguna.
Annars hafa menn hér talað um
aðnauösynlegt væri að fá skýrari
linur og glögg skil milli verkefna
rikis og sveitarfélaga. Ég tel þaö
engan veginn nóg ef menn fá ekki
þá þjónustu hjá rikinu, sem nauð-
synleg er, og vil nefna eitt dæmi.
Siðan rikið tók yfir alla löggæslu,
hafa euðvitaðveriðhreinni linur i
verkaskiptingu þar, — en sveitar-
félögin hafa engin áhrif á það
hvort þau yfirhöfuð fá þá lög-
gæslu sem nauðsynleg er. Garð-
bæingar hafa hvað eftir annað
fengið synjun þegar beðið hefur
verið um aukna löggæslu i bæinn,
og m.a.s. bauðst bæjarstjórnin til
að borga brúsann, en allt kom
fyrir ekki. Leyfið var ekki veitt.”
—A1
„Samtökin
eru
ólýðræðis-
lega
byggð
upp”
,,Égtel að þessi samtök séu góö
sem upplýsingaaðili og umræöu-
grundvöllur, en ég tel frálcitt aö
gera þau aö ákveöinni stjórn-
sýslustofnun eins og hugmyndir
hafa verið uppi um, vegna þess aö
þau eru ólýöræöislega byggö
upp,” sagöiSktili Alexandersson,
oddviti á Hellissandi.
„Fulltrúar á þetta þing eru
kjörnir af sveitarstjórnunum
sjálfum og eru fyrst og fremst
fulltrúar hvers meirihluta, sem
myndast hefur. Minnihlutaflokk-
arnirhafaáttmjögfáafulltrúa og
ekki I neinu hlutfalli við atkvæða-
fylgi sitt i landinu. Þess vegna er
þingiö ekki ályktunarhæft i
sveitarstjórnarmálum sem eru
stórpólitisk mál. Sem umræöu- og
fræðslustofnun hafa samtökin
hins vegar komiö að mjög miklu
gagni, og ég hef nákvæmlega
sömu skoðun gagnvart lands-
hlutasamtökunum. Þau eru ágæt
heima I héraði til síns brúks, en
alls ekki sem stjórnunartæki.”
— Hvað segir þú um verka-
skiptinguna?
„Eg varð fyrir vonbrigðum
með að tvéir seinni þættirnir i
vinnnu verkaskiptingarnefndar-
innar, — tekjustofnabreytingin og
stórnsýslubreytingin, — skyldu
ekki liggja fyrir þessu þingi. Þess
vegna var ekki unnt að taka af-
stööu til verkaskiptingarinnar
Skúli Aiexandersson: ,,Mínni-
hlutaflokkar hafa átt fáa fulltrda
og ekki i neinu hlutfalli viö at-
kvæðafylgi sitt.”
sjálfrarnema að litlu leyti. Ég tel
það lika galla aö umræður um
þessi efni voru litlar og nær engar
um framtið nefndarinnar sjálfr-
ar.”
— Hvað með aukna samvinnu
sveitarfélaganna um stærri verk-
efni?
„Slikt getur að vissu leyti
komið til greina, en þó eru mögu-
leikarnir takmarkaðir vegna
sveitarstjórnarskipunar. Það er
auðvitað hægt að stofna til sam-
vinnu 2ja eða 3ja sveitarfélaga
um ákveðið málefni, en slikt hleö-
ur utan á sig Þá þarf aö búa til
nýja stjórn utan um samstarfið,
sem siðan vinnur sjálfkrafa að
mestu. Þannig er ákvörðunar-
valdið fært frá sveitarstjórnunum
yfiri fjarlægaristofnanirogmeö
þvi tel ég hættu á að tengsl og
þátttaka almennings og jafnvel
sveitarstjórnarmanna i ákvörö-
unartektinni minnki."
—AI
SIGURJÓN PÉTURSSON,
forseti borgarstjórnar Reykjavíkur:
„Pólitísk samsetning
þingsins í engu sam-
ræmi við þjóðarvilja,-”
„A þessu þingi má sjá
annmarka hins fullkomna full-
trúalýöræðis,” sagði Sigurjón
Pétursson, forseti borgarstjórnar
Reykjavikur. „011 sveitarfélögin
kjósa sér a.m.k. 1 fulltrúa, sem i
raun er fulltrdi þess meirihluta
sem myndast hverju sinni I sveit-
arstjórninni. Pólitisk samsetning
þingsins er þvi i engu samræmi
við þjóöarvilja og breytt flokka-
fýlgi i siðustu kosningum skilar
sér aö litlu leyti inná þetta þing”.
„Ég hef nú á þessu þingi
starfað I kjörnefnd og er það I
fyrsta sinn sem Alþýðubandalags-
maður á sæti þar. Menn munu al-
mennt sammála um að viö upp-
stillingu til stjórnar og fulltrúa -
ráösberiað fylgja þremur megin-
sjónarmiöum: 1. Að samsetning
stjórnar úr þéttbýli og dreifbýli sé
sem jöfnust. 2. Að allir lands-
hlutar hafi fulltrúa inni i stjórn-
inni og fulltrúaráðinu og 3. að
pólitisk samsetning þjóðarinnar á
hverjum tima endurspeglist i
stjórninni. Það hefur tekist
misjafnlega að fylgja þessum
markmiöum, ágæUega með hin
fyrri tvö, en tæpast er hægt að
segja hið sama um hið siöast
talda.
Alþýöuflokkurinn hefur t.d.
ekki átt fulltrúa I stjórninni s.l. 8.
ár. Alþýðubandalagið hefur s.l. 4
ár átt 1 fulltrúa, Loga Kristjáns-
son, en engan þar á undan. Ég
tel ákaflega mikilvægt
að stjórn og fulltrúa-
táö Sambands Isl.sveitar-
félaga sé þannig samsett aö þar
komi fram öll sjónarmið sem uppi
eru i sveitarstjórnum, bæði
byggðaleg og pólitisk.
Flokkarnir hafa að visu
markað litla stefnu I málefnum
sveitarfélaga á flokkslegum
grundvelli og mér er nær að halda
að skoðanir manna á sveitar-
stjórnarmálum fari ekki eftir
flokkslinum nema að takmörkuðu
ieyti. Það hefur t.d. verið almenn
skoðun sveitarstjórnarmanna,
hvar i flokki sem þeir standa, að
auka beri verkefni sveitar-
félaganna. Sveitarstjórnir standa
verkefnunum nær og hafa staðar-
þekkingu, sem aðrir, svo sem em-
bættismenn rikisins,hafa ekki til
að bera. Hins vegar þegar um
stærri mál, svo sem raforkumál
er að ræöa, þá eru skoð-
anir skiptar og þar má greina
misjöfn sjónarmið sem tengjast
annars vegar flokkspólitik og hins
vegar landshlutasjónarmiðum”.
— Hvað með verkefni þingsins?
„Þetta þing fjallar um um-
ræðuefni sveitarfélaga og þinga
um langan tima: Verkaskiptingu
ríkis og sveitarfélaga og skatta-
kerfið. Það fyrmefnda er nú
aðeins að þokast áfram, en ákaf-
lega gengurþað hægt. Éghef uppi
ákveðnar efasemdir um stað-
greiðslukerfi skatta og er
hræddur um að það reynist
sveitarstjórnunum ekki nógu
hagkvæmt. Min skoðun er þvi sú,
að það veröi aö gaumgæfa sér-
staklega vel áður en þaö verður
KRISTINN V. JÓHANNSSON,
forseti bæjarstjórnar í Neskaupstaö:
„Sameiningin er
brýn naudsyn”
Kristinn V. Jóhannsson, forseti
bæjarstjórnar á Neskaupstaðjvar
einn þeirra 6 sveitarstjórnar-
manna sem unnu upp i samvinnu
við jafnmarga fulltrúa ríkisins
tillögur um verkaskiptingu rikis
og sveitarfélaga, en tillögur 12
manna nefndarinnar voru aðal-
umræðuefni landsþingsins. Krist-
inn átti einnig sæti i þingnefndinni
sem fjallaði um tillögurnar, en
þingið samþykkti yfirlýsingu um
verkaskiptinguna, þar sem lýst
var yfir ánægju með þennan
áfanga og jafnframt lögð áhersla
á að siðari þáttunum tveimur,
tekjuskiptingunni og stjórnskip-
aninni yrði lokið hið fyrsta.
„Menn voru almennt sammála
um að ekki væri unnt að taka
fullnaðarákvöröun um verka-
skiptinguna fyrr en siðari þættirn-
ir tveir liggja fyrir”, sagði Krist-
inn. „Nefndarálit þingsins var al-
mennt orðað, — tekin var jákvæð
afstaða til tillagnanna i heild og
um ágreiningsefni urðu ekki
miklar umræður, einfaldlega
vegna þess að þó að ýmislegt ork-
aði tvimælis i tillögunumþá töldu
menn að ekki væri unnt að taka
afstöðu til einstakra þátta fyrr en
séð er fyrir endann á tekjuskipt-
ingunni og umdæmaskipaninni.”
— Telur þú að nefndin geti lokið
störfum fyrir áramót eins og lagt
er að henni i áliti þingsins?
,,Ég tel það nú nokkra bjart-
sýni. Ég held við gætum klárað
annan þáttinn á þeim tima en
varla báða. Ætli það verði fyrr en
undir vorið sem þessu lýkur hið
fyrsta, en þó fer það auðvitað eftir
hversu mikla áherslu félags-
málaráðherra leggur á að hraða
störfum nefndarinnar. Við skiluð-
um áfangaskýrslunni i april s.l.
en siðan hefur nefndin ekki verið
kölluð saman.”
— Nú hafa orðið stjórnarskipti
og nýr félagsmálaráðherra tekið
við, auk þess sem mikil manna-
skipti hafa orðið i sveitastjórnum
og i stjórn sambandsins. Verður
nefndin ekki stokkuð upp með til-
liti til þess?
„Ég held að menn telji eðlilegt
að þessi nefnd ljúki sinu verki en
þaö er félagsmálaráðherra aö
ákveða hvort skipt veröur um
menn i nefndinni.”
— Verður ekki erfiðast að taka
á sameiningu sveitarfélaga og
breytingu á umdæmaskipun
landsins?
„Skilningur sveitarstjórnar-
manna á nauðsyn þess að sam-
eina sveitarfélögin hefur farið
vaxandi. Stór hluti þeirra er of
litill til að taka við auknum verk-
efnum en auðvitað er óljóst hvað
„starfhæfar einingar” eru i þess-
um efnum. 1 Danmörku hafa þeir
komist að þeirri niðurstöðu að i
Sveitarstj órnarmenn teknir tali
Sigurjón Pétursson
lögfest til þess að það skapi ekki
aukna fjárhagserfiðleika fyrir
sveitarfélögin.”
— En sameining sveitarfélaga?
„Sameiningin hefur verið lengi
á dagskrá. Aðalmarkmið hennar
er að skapa það stórar heildir að
þau gætu unnið vel að nauösyn-
legum verkefnum og skapa
þannig aukið jafnræði f þjónustu
við landsmenn. Þetta hefur
reynst erfitt viðureignar og siðan
ég man eftir i bili, hefúr aöeins
einsameining átt sér stað, en það
var þegar Eyrarhreppur og tsa-
fjöröur voru sameinaðir. Hins
vegar hefur stóraukist aðsveitar-
félög tækju upp samvinnu sfn i
milli um stærri verkefni, svo sem
byggingar og rekstur skóla”.
- Hvað með samvinnu eða sam-
einingu sveitarfélaganna á höfuð-
borgarsvæðinu?
„Sameining þessara sveitar-
félaga hefur ekkikomiö alvarlega
tilumræðu. Þessisveitarfélög eru
öll stór á íslenskan mælikvarða
og stærðar sinnar vegna eru þau
fær um að halda uppi nauð-
synlegri þjónustu. Hvaö sam-
vinnuna varðar þá eru til Samtök
veeitarfélaga á höfuðborgar-
svæðinu, en verkefni þeirra hefur
aðallega verið hugsað á sviði
skipulagsmála.
AI
Kristinn V. Jóhannsson
hverju sveitarfélagi þurfi að búa
5000 manns hiö fæsta, en okkar
einingar yrðu að sjálfsögðu að
vera minni. Menn hafa oftast
nefnt tölu einhvers staðar á bilinu
60-70 sveitarfélög i þessu sam-
bandi og það tel ég ekki fjarri
lagi, en nú eru sveitarfélögin hér
224 og mörg þeirra með innan við
200 ibúa.
Þar sem ég bý I Neskaupstað
eru tvö sveitarfélög innan sama
fjallahrings. Þetta var einn
hreppur fram til 1913 en þegar
þéttbýli fór að aukast þótti ekki
eðlilegt að saman væru i sama
sveitarfélagi þorp og sveit. Nú
búa um 1700 manns i Neskaupstað
en i sveitahreppnum um 130-140
manns. Þeir sækja alla sina þjón-
ustu út til okkar. Þetta er sama
læknishérað, sama kirkjusóknin,
sami vinnumarkaðurinn og sama
skólaumdæmið, nema hvað þeir
eru með barnaskóla fyrir 6 fyrstu
bekkina, en eftir það koma
krakkarnir út til okkar.
Sameining sveitarféiaganna er
mjög viðkvæmt mál og mikið til-
finningamál fyrir marga, sér-
staklega á smærri stöðunum. Ég
tel algera nauðsyn á að fækka og
sameina sveitarfélögin, helst með
frjálsri sameiningu eins og gert
hefur verið i Finnlandi, en ef það
tekst ekki, þá með lagaboði. Ég
held það yröi skammær sársauki,
sem menn yrðu fljótir að gleyma.
Menn halda að með sameiningu
við stærri sveitarfélag veröi þeir
útundan, en eins og nú er hafa
litlu hrepparnir ekki fjárhagsiegt
bolmagn til neins, og ógerningur
er að færa þeim aukin verkefni”.
Föstudagur 8. september 1978 ÞJÓÐV.ILJINN — StÐA 9
Sveitarstjórnarmenn á landsþingi:
Vilja stað-
greiðslu skatta
sem allra fyrst
11. landsþing Sambands isl.
sveitarfélaga, sem lauk í fyrra-
dag í Reykjavík/ f jallaði um
staðgreiðslukerf i skatta. I
ályktun þingsins um stað-
greiðsluna segir að þingið sé
fylgjandi því að slíkt inn-
heimtukerfi komist á sem fyrst.
Verðtrygging helstu tekjustofn-
ana sveitarfélaga hefur aug-
Ijósa kosti fyrir þau og um leið
ibúa þeirra að því tilskyldu, að
staðgreiðslukerf ið reynist
framkvæmanlegt og virkt.
Landsþingið telur þvi út af fyrir sig
jákvætt, að lagt hefur verið fram á
Alþingi frumvarp til laga um stað-
greiðslu opinberra gjalda en hefur ekki
aðstöðu til að meta, hvort ákvæði frum-
varpsins tryggi framkvæmd þess, verði
þaö lögfest.
1 þessu sambandi er bent á, að öll
stjórnun og framkvæmd staðgreiðslu-
innheimtunnar verður samkvæmt
ákvæðum frumvarpsins I höndum
embættismanna rikisins. Er þvi eðli-
legt, aö rikisvaldið ábyrgist og tryggi
sveitarfélögum skil á hlutfallslegum
greiðslum samkvæmt fjárhagsáætl-
unum þeirra, svo sem lögð var áhersla á
i umsögn sambandsins haustið 1968. Hér
er um grundvallaratriöi að ræða, sem
markar i veigamiklum atriðum afstöðu
landsþingsins til frumvarpsins i þeirri
mynd, sem það liggur nú fyrir.
Um önnur einstök ákvæði
frumvarpsins vill landsþingið
taka fram:
1. Ekki verður fallist á nauðsyn þess, að
innheimtufé alls staðar af á landinu
verði jafnóöum safnað til innleggs á
reikning hjá Seðlabanka Islands (sbr.
43.gr.)
2. Nauðsynlegt er að greiðsla stað-
greiðslugjalda til sveitarsjóða berist
mun oftar en mánaöarlega, helst dag-
lega og alis ekki sjaldnar en vikulega
(sbr. 57. gr. 1. mgr.).
3. Akvæði um, að haldið veröi eftir 3% af
innborguðu fé til að standa undir
kostnaði við innheimtu og álagningu
stefnir að þvi að velta verulega aukn-
um kostnaði yfir á sveitarfélög og
krefst þvi endurskoðunar og lækkunar
að þvi er tekur til sveitarsjóðagjalda
(sbr. 57. gr. 2 mgr.).
4. Frumvarpið gerir ráð fyrir að „eftir-
áinnheimta” sveitarsjóðsgjalda verði
i höndum innheimtumanna sveitar-
sjóða (sbr. 63 gr.). Þótt ljóst sé, að
sveitarfélög verða áfram með marg-
vislega innheimtu, sem ekki fellur
undir staðgreiðsluna, viröist hag-
kvæmara og eölilegra, að slik „eftir-
áinnheimta” verði i höndum inn-
heimtuaðila staðgreiöslugjalda.
Leidrétting
1 frétt Þjóðviljans um stjórnarkjör á
iandsþingi Sambands isl. sveitarfélaga i
gær leyndist meinleg villa. Rétt er að i
tillögu Suðurnesjamanna aö stjórn var
gert ráð fyrir 1 Alþýðubandalagsmanni
en ekki eingöngu Sjálfstæðis- og Fram-
sóknarmönnum eins og sagt var i frétt-
inni. Þá sagði ennfremur að i tillögu
Björgvins Guðmundssonar hefði Jóhann
G. Möller verið settur inn i stað Sigur-
geirsSigurðss. bæjarstjóra á Seltjarn-
arnesi, en rétt er að gerð var tillaga
um Ólaf Björnsson úr Keflavik i stað
Sigurgeirs. Eftir sambræðslufund kjör-
nefndar og tillögumanna var gerð ný
tillaga sem siöan var samþykkt og var
þá Jóhann Möller frá Siglufirði settur
inn f stað Bjarna Þórs Jónssonar,
bæjarstjóra á Siglufiröi, en Sigurgeir
var áfram inni.
—AI
Sjálfvirk símstöð
veröur tekin í notkun
nú um mánadamótin
fyrir Gaulvetja-
bœjar- og Villinga-
holtshreppa
Þrjár aörar
sjálfvirkar stöðvar í
gagnið fyrir áramót
Reiknaö er með að sjálfvirka sim-
stöðin á Hamri verði tekin I notkun um
næstu mánaðamót, en stöðin mun þjóna
Gaulverjabæjar- og Villingaholts-
hreppum.
Samkvæmt upplýsingum Þorvarðar
Jónssonar hjá Tæknideild Landssimans,
var sjálfvirka stöðin sett upp á Selfossi
til bráðabirgða. Húsið var siðan flutt
fyrir nokkrum dögum á grunninn, sem
búið var að steypa á Hamri, og verður
nú unnið aö þvi að setja allar einingar i
stöðina og tengja húsið viö vatn, raf-
magn, klóak og strengjalögn og prófa
stöðina. Talið er að þetta verk taki
septembermánuö og veröur stöðin þá
tilbúin i byrjun október. Sjálfvirka sim-
stöðin á Hamri átti samkvæmt áætlun
að vera tilbúin 1. september sl.
Stöðin er 100 númera, og leggst hand-
virk simaafgreiðsla niöur þegar hún
verður tekin i notkun.
Simanúmer á öllu landinu eru i
kringum 80 þúsund, og eru 6-7% þeirra
handvirk, þ.e. ekki tengd sjálfvirkum
stöðvum. A einstaka stað á landinu
hefur máitð verið leyst meö radió-
stöðvum, t.d. hafa eyjar á Breiðafirði
simasamband um radióstöö við Stykkis-
hólm, Mjólkárvirkjun hefur slikt radio-
samband til Bildudals og veöurat-
hugunarstöðin á Drangsnesi til Nes-
kaupstaðar.
Þorvarður taldi að helsta aðferðin til
að leysa simamál dreifbýlisins væri að
koma upp litlum sjálfvirkum stöðvum á
þéttbýliskjörnum, sem viöa virtust vera
að myndast, einkum á Suöurlandi.
Landssiminn væri með 30 númera
stöðvar, sem siðan má stækka upp i 90
númer, og virðast þær henta vel i slikum
þéttbýliskjörnum.
Nýjar sjálfvirkar simstöðvar, sem
opnaðar verða á næstu mánuðum fyrir
utan stöðina á Hamri eru þrjár: Á
Laugalandi i Holtum, Rangárvalla-
sýslu, aö Fljótum i Skagafirði og Ara-
tungu i Biskupstungum. Allar þessar
simstöðvar verða opnaðar fyrir árslok.
—eös