Þjóðviljinn - 09.09.1978, Síða 9
Laugardagur 9. september 1978 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 9
Þriðja grein laganna er mjög mikil-
væg: Þar er gert ráð fyrir að hafi ekki
verið um annað samið fyrir 1. desember
næstkomandi verði grunnlaun og tilhög-
un verðbóta óbreytt frá þvi sem nú er.
Hér er ekki um að ræða lögbindingu
kjara heldur tryggingu rikisvaldsins
fyrir þvi að þeirri launastefnu verði fylgt
sem um hefur verið rætt við verkalýðs-
hreyfinguna af hálfu stjórnarflokkanna i
sumar
gangur á þvi aö tryggingabætur
fylgdu sjálfkrafa öðrum kaup-
hækkunum i landinu. 1 þessum
lögum er beinlinis kveðið á um að
svo skuli vera.
— Það er rétt að i þessum lög-
um er svo fyrir mælt að bætur al-
mennra trygginga skuli hækka til
jafns við verkamannalaun. Oft
hefur það verið látið dragast úr
hömlu og áður verið heimild i lög-
um til þess að hækka þau á næstu
sex mánuðum eftir almennar
kauphækkanir samkvæmt kjara-
samningum. Vinstri stjórnin sið-
asta gerði það að reglu að hækka
bæturnar samhliða og nú slær
þessi rikisstjórn þvi beinlinis
föstu i löggjöf.
Niðurfærsla
verðlags
Þjóðviljinn: Frá upphafi hefur
það veriö Ijóst að þessi rikisstjórn
hygðist beita sér fyrir einhvers-
konar niðurfærsluleið. Hvernig er
það útfært samkvæmt þessum
lögum?
— Með niðurfærslu vöruverðs,
niðurgreiðslum á landbúnaðar-
vörum og mjög ströngu verölags-
eftirliti. Þá er gert ráð fyrir að
sömu reglum verði fylgt og áður
um skerðingu á álagningarpró-
sentu við gengislækkanir. Þetta
mun hafa það i för með sérað
álagningarhlutfall verður lægra
en verið hefur um langt árabil.
Ljóst er að nýju verðlagslögin
sem áttu að taka gildi i nóvember
munu ekki verða framkvæmd að
þvi er varðar frjálsa verðmynd-
un.
Tekjuöflun
fyrir ríkissjóð
Þjóðviijinn: En i þessum bráða-
birgðalögurn eru ýmis ákvæði um
tekjuöflun fyrir ríkissjóð til þess
að standa undir kostnaði við
niðurfærsluna.
— Um það má almennt segja að
um er að ræða eignaskattsauka,
viðbót við tekjuskatt fjölskyldna
sem höfðu vel yfir meðallaun árið
’77, hækkun vörugjalds á nokkr-
um vöruflokkum og skatt á ferða-
lög til útlanda, auk niðurskurðar
á útgjöldum rikissjóðs. Um það
hefur verið rætt að sú afturvirkni
sem þarna er bryddað upp á i
sambandi við tekjuskatt brjóti i
bága við lög, en lögfræðingar
frjármálaráðuneytisins hafa siað
þennan lagabálk af mikilli ná-
kvæmni og ég treysti þvi að svo sé
ekki.
Einfaldara með
veltuskatti
Þjóðviljinn: En er hér ekki um að
ræöa ærið fiókna skattlagningu
sem hefði mátt gera einfaldari?
— Við Alþýðubandalagsmenn
hefðum talið það æskilegra aö
hafa hluta þessarar skattlagning-
ar i formi veltuskatts frekar en
vörugjalds. Um það náðist hins-
vegar ekki samstaða meðal
stjórnarflokkanna. Ég bendi á að
i samstarfsyfirlýsingunni er
ákvæði um að flýta endurskoðun
skattalaganna i heild. Þá koma
þessir skattar sem nú er verið að
leggja á að sjálfsögðu einnig til
endurmats.
Þvi hefur verið borið við að
veltuskatturinn leggist á tap-
fyrirtæki en ég minni á að stjórn-
völd hér á landi hafa löngum ver-
iðófeimin við að leggja einskonar
veltuskatta — t.d. útsvar sem
flatan skatt — á „fyrirtæki” sem
nefnast heimili án tillits þess
hvort um væri að ræða taprekstur
eða ekki.
Mikilvægt skref
Þjóðviljinn: Það stefnumá!
Alþýðubandalagsins að fella niö-
ur söluskatt af matvöru virðist nú
komið i höfn með þessum bráða-
birgðalögum. Hver er þýðing
þess?
— Ég hef alltaf verið þeirrar
skoðunar að söluskattur sem
legðist á allar vörur væri óeðli-
legur og ranglátur. Og að það sé
réttlátara að hafa skattheimtu i
beinum sköttum en óbeinum.
Við höfum nú stigið skref i
þessa átt. Það er að segja með þvi
að fella niður söluskatt af brýn-
ustu lifsnauðsynjum almennings.
Þar með er þeirri skattlagningar-
stefnu hafnað að börn og aldraðir
þurfi að borga skatt af þvi sem
þau leggja sér til munns burtséð
frá tekjum þeirra og öllum fé-
lagslegum aðstæðum.
Kerfistregða
og ferðamanna-
gjaldeyrir
Þjóðviljinn: Afhverju var ekki
haldið fast við þá hugmynd að
leggja 20% skatt á umframgjald-
eyri?
— Það er rétt að stjórnarflokk-
arnir voru með þá hugmynd að
tvöfalda gjaldeyrisskammtinn til
ferðamanna — úr 350 dollurum i
700 — en leggja 20% skatt á við-
bótina. Það voru hinsvegar talin á
þvi öll tormerki i bankakerfinu að
framkvæma þetta og embættis-
menn rikis og banka töldu að með
þessu væri rikið i raun og veru að
efna til beinnar samkeppni við
svartamarkaðinn með gjaldeyri
sem sagt er að blómstri i landinu.
Ég er þó á þvi að frekar heföi átt
að reyna þetta form heldur en
10% flatan ferðalagaskatt af
ýmsum ástæðum. En ég vil leggja
á það áherslu að hér er um tfma-
bundinn skatt að ræða og reynist
hann illa ber að fella hann niður.
Framhald á 18. siðu
Með bráðabirgðalögunum hefur þeirri
skattlagningarstefnu verið hafnað að
börn og aldraðir þurfi að borga skatt af
þvi sem þau leggja sér til munns burtséð
frá tekjum þeirra og öllum félagslegum
aðstæðum.
Þórir Daníelsson frkvstj. Verkamannasambandsins
Óraunsæi að
vísitölumálið
leysist fyrir
1. desember
Þórir Danielsson
Já, ég hcf heyrt um þessa
bókun ríkisstjórnarinnar um visi-
tölumálið og er ekkert nema gott
um hana að segja en málið er svo
stórt i sniðum að það er óraunsæi
að það leysist fyrir 1. desember,
sagði Þórir Danielsson fram-
kvæmdastjóri Verkamannasam-
bands Islands i samtaii við
Þjóðviijann i gær.
Nefnd, sem skipuð væri til að
endurskoða visitölukerfið gæti
hugsanlega skilað einhverju
byrjunaráliti i lok nóvember en
þetta er svo mikið hagsmunamál
bæði fyrir launþega og þjóðina i
heild að ekki má hrapa að neinu.
Út af fyrir sig er mikill sigur
fyrir launþega að kaupránið er nú
numið úr gildi, og framlenging
kjarasamninga til 1. des. 1979,
nema um annað verði samið,
fellur mjög að okkar hug-
myndum, sagði Þórir að lokum.
—GFr
ÞUNN HELGI
ÁN ÞJÓÐVILIANS
Sunnudagsblað Þjóðviljans flytur fróðlegt og
skemmtilegt helgarlesefni
Efni m.a.:
— Mér er það fyllilega
ljóst, að þeim sem
sinna dagskrárstörf-
um finnst þeir oft vera
óþægilega háðir
ákvörðunum útvarps-
ráðs.
• Andrés Björnsson
segir álit sitt á starf-
semi Ríkisútvarpsins,
stöðu þess og fram-
tiðarmöguleikum.
— Börnunum leyfist
að taka þátt i opin-
skárri umfjöllun um
kynlif, án þess að vera
þrúguð af þeirri hafta-
stefnu, sem mörg
þeirra búa við dag-
lega.
• Þjóðviljinn ræðir við
tvo þýska leikara, sem
starfa við barnaleik-
hús i V-Berlin.
Atvinnuleysi, ofsóknir
og mannhvörf er hið
daglega brauð alþýð-
unnar i Chile.
• Fimm ár eru liðin
frá valdaráni herfor-
ingjakliku Pinochets.
Erla Sigurðardóttir
skrifar ýtarlega grein
um ástandið i Chile i
dag.
— 1 þessari bók eru
ýmsar upplýsingar,
sem ég hef orðið mér
úti sem blaöamaður.
• Sunnudagsblaðið
kynnir i þetta sinn
nýja skáldsögu eftir
Úlfar Þormóðsson,
sem kemur út á næst-
unni.
— Égvardæmdur ár-
ið 1953 i lifstiðar
fangelsi. Hinar opin-
beru ákærur voru all-
ar á sama veg; við
vorum dæmdir fyrir
landráð, svik við þjóð-
ina og njósnir.
•Helgarviðtalið er við
tékkneska prófessor-
inn og útlagann
Eduard Goldstiicker.
— Þeir krakkar, sem
hafa mestar tekjur
eða vasapeninga
fremja mun oftar af-
brot en hinir sem litið
fá.
• Silja Aðalsteinsdótt-
ir fjallar um athyglis-
veröa ritgerð um af-
brot og glæpi islenskra
unglinga.
UOWIUINN
BLAÐIÐ SEM
MENN LESA