Þjóðviljinn - 09.09.1978, Blaðsíða 13
Laugardagur 9. september 1978 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 13
sérstakt fyrir þeirra stöðu og
þeirra vandamál. Það var bæði
vekjandi og kom illa við suma.
Verkalýðsforystan brást illa við
þegar þær gagnrýndu kaup-
trygginguna. Það má ekki. Allir
voru svo ánægðir með hana á
sinum tima, hún var áfangasig-
ur, en hefur siðan ekki reynst
neitt neitt. Þær fengu skammir
og þótti hart að þær skyldu
segja þetta, en þessi mál verður
að ræða opinskátt.
Dæmigert
kvennamál!
Jafnréttissiðan: Við höfum
minnst litillega á starfið eins og
það hefur veriðyen hvaða verk-
efni finnst ykkur vera brýnust á
næstunni?
Vil. Dag.: Væri ekki hugsan-
legt verkefni að snúa sér að
barnaárinu. Það hefur verið
skipuð nefnd i sambandi við
barnaárið og i henni eru ein-
göngu konur, sem er alveg
dæmigert. Karlmennirnir sem
fara með öll völd i samfélaginu
eru ekkert með. Þetta er dæmi-
gert kvennamál!
Vil. Harð.: Hvað er þettalEiga
karlar engin börn?
Vil. Dag.: Af þvi að við vorum
að ræða um kynferðislega kúg-
un þá dettur mér i hug að skóla-
kerfið bregst enn þá skyldum
sinum i sambandi við kyn-
fræðslu i skólum. Það mætti
vekja athygli á þvi.
Vil.Harð.: Það mætti einnig'
taka dagvistunarmálin fyrir
ekki veitir af.
Guðrún H.: Við þurfum að
leiðrétta þann misskilning að
við séum einhverjir barnahat-
arar eins og margir álita frá þvi
að umræðan um fóstureyðingar
stóð sem hæst. Það sem við
viljum i raun og veru er að börn
verði velkomin. Það þarf að
hætta að einblina á að þarna er
einhver ólétt stelpa sem þarf að
fá fóstureyðingu strax. Það á að
mæna á öll ófæddu börnin og
segja: Þarna eru miljónir
ófæddra barna sem þurfa betri
heim og það strax. Það þarf lika
að taka upp mannréttindi fjöl-
skyldunnar.
Sannkallad
guösord!
Vil. Dag.: Já, en þarna
kemur einmitt stéttaskiptingin i
ljós. Borgarastéttin kemur sér
alltaf upp einhverri þrælastétt
til að vinna að uppeldis- og
þjónustumálum i samfélaginu.
Við sjáum hvernig þessi mál
þróast i Sviþjóð t.d. Þar flytja
þeir inn vinnuafl langt að. Það
eru Asseriumenn og islenskar
lækisfrúr sem skúra sjúkrahús-
in i Uppsölum. Það er engin
lausn að koma upp vanbúnum
barnaheimilum eða lengja
skólatimann, varpa verkunum
yfir á nýja láglaunahópa —
kvennahópa — nýja þrælastétt.
Svo er það þetta með barna-
vinnuna. Hana þarf að kanna.
Við hvaða störf fást börn, það er
stór hluti barna sem vinnur allt
árið. 1 fyrsta lagi eru næstum öll
blöð borin út af börnum, þau eru
sendlar o.fl. Þetta fólk er orðið
útslitið og gamalþreytt um tvi-
tugt.
Jafnréttissiðan: Að ekki sé
minnst á allan þann fjölda
stelpna sem eru að passa börn
allan guðslangan daginn — Nei
það er ábyggilegt að ástandið i
dag er ekki beysið hvorki hvað
varðar konur eða börn.
Vil Dag.: Astandið i dag er
konum ekki i hag. Nú er sungið
um það i blöjum ihaldsins hvað
barnaheimili séu hættuleg.
Þetta er merki þess að kreppa
er i nánd. Það er óttinn við at-
vinnuleysið. Nú á að ná kon-
unum aftur inn á heimilin og
prestarnir taka undir sönginn.
Ræðan hans Þóris Stephensen
þótti sannkallað guðsorð!
Jafnréttissiðan: Það er
greinilegt að á öllu þvi sem hér
hefur verið rætt að það er nóg af
verkefnum framundan. Bæði
þarf að verja það sem áunnist
hefur og láta ekki hrekja okkur
til baka, og eins þarf að halda
baráttunni áfram á ýmsum
sviðum. En fyrst og fremst
verðum við að sameinast betur
og ræða saman til að skipu-
leggja nýja sókn.
Um Evrópu-
mót o.fl...
Evrópumótið í
Skotlandi —
yngri flokkur
Eins og komið hefur fram i
fréttum, hafnaði islenska liðið i
14. sæti af 19 þátttökuþjóðum.
Liðið náði viðunandi árangri
gegn efstu þjóðum mótsins, en
slökum gegn neðri þjóðunum,
hverju sem það er að kenna. I
heild má segja að árangur 'liðs-
ins sé svipaður og náðst hefur á
slikum mótum fyrr. tsland
hefur þrivegis tekið þátt i
keppni þessari, árið 1974
hafnaði liðið i 11. sæti af 20 þjóð-
um. Arið 1976 varðliðið i 13. sæti
af 18 þjóðum og nú verður það i
14. sæti af 19 þjóðum. Næst
verður mótið haldið i tsrael,
árið 1980. Lið tslands var þannig
skipað: Sverrir Armannsson
fyrirliði, Guðmundur Sv. Her-
mannsson, Sigurður Sverrisson,
Skúli Einarsson og Sævar Þor-
björnsson.
Aðeins 1 lið annað á mótinu
var skipað 4 mönnum eins og
það islenska og 1 lið hafði 5
menn. öll hin höfðu 6 manna lið.
Með smámeðbyr hefði liðið
getað náð 9.-10. sæti, svo segja
má að við stöndum svipað og við
höfum verið s.l. 3-4 ár.
Úrslit mótsins urðu þessi:
1. Bretland 271 stig
2. Sviþjóð 253 stig
3. Austurriki 232 stig (sigv.76)
4. V-Þýskaland 232 stig
5. Pólland 227 stig
6. Noregur 219 stig
7. Belgia 214 stig
8. Frakkland 202 stig
9. ttalia 188 stig
10. Grikkland 184 stig
11. Spánn 181 stig
12. Danmörk 173 stig
13. trland 167 stig
14. tsland 156 stig
15. Holland 154 stig
16. Finnland 151 stig
17. Ungverjaland 143 stig
18. Portúgal 108 stig
19. tsrael 104 stig
Ef við athugum úrslit i ein-
stökum leikjum tslands við
þessar þjóðir, kemur i ljós að
gegn 9 efstu þjóðunum hlýtur Is-
land 80 stig, en gegn 9 neðri
þjóðunum aðeins 76 stig. Ef
sæmilega hefði gengið á mótinu
gegn neðri þjóðunum, t.d. liðið
hefði fengið 110-120 stig út úr
þeim (af 180-190 mög.) þá hefði
liðið lent i 8“9. sæti á mótinu.
Þá er einnig vert að vekja
athygli á þvi, að liðið varð
„norrænn” meistari i Skotlandi,
hlaut flest stig innbyrðis i
keppni norrænu þjóðanna. Alls
54 stig.
Frá BR
Félagið mun hefja vetrarstarf
annan miðvikudag, 20. sept.,
með 1 kvölds tvimennings-
keppni þar sem allir eru að
sjálfsögðu hjartanlega
velkomnir.
Sú nýbreytni verður tekin
upp, til að byrja með, að keppni
hefst kl. 19.30, hálf-sjö. Arið-
andi er þvi fyrir væntanlega
þátttakendur að mæta timan-
lega til skráningar. Keppnis-
stjóri verður Ólafur Lárusson,
Formaður félagsins er Baldur
Kristjánsson.
Nákvæm keppnisdagskrá er i
vinnslu og mun liggja fyrir
innan skamms. Félagar eru
hvattir til að taka með sér nýja
félaga. Mætum öll
Frá Ásunum
Úrslit s.l. mánudags urðu
þessi:
A-riðill:
1. Guðmundur Páll Arnarson —
Sverrir Armannsson 209.
2. Jón Þorvarðarson — Omar
Jónsson 199.
3. Runólfur Pálsson — Vigfús
Pálsson 191.
4. Steinberg Rikharðsson —
Tryggvi Bjarnason 186.
5. Albert Þorsteinsson —
Sigurður Emilsson 171.
úmsjón:
Ölafur
Lárusson
6. Sigurjón Tryggvason — Valur
Sigurðsson 163.
B-riðill:
1. Erla Sigurjónsdóttir — Jó-
hannes Arnason 219.
2. Halla Bergþórsdóttir —
Esther Jakobsdóttir 193.
3. Baldur Bjartmarsson — Jón
Oddsson 190.
4. Einar Valur Kristjánsson —
Steingr. Steingrimsson 171.
5. Einar Þorfinnsson — Sig-
tryggur Sigurðsson 167.
6. Einar Guðjohnsen — Þor-
lákur Jónsson 164.
Meðalskor 165stig.
Keppt var i 2x12 para riðlum.
Sumarspilamennsku Asanna
lýkur næsta mánudag, og annan
mánudag hefst svo haust-tvi-
menningskeppni BAK, sem er 3
kvölda tvimenningur. t stiga-
keppni félagsins i sumarbridge
er keppni orðin mjög spenn-
andi:
1. Esther Jakobsdóttir 11 stig
2. Þorlákur Jónsson 10,5 stig
3. Guðmundur Páll Arnarson 10
stig
4-6. Sævar Þorbjörnsson 8 stig
4-6. Baldur Bjartmarsson 8 stig
4-6 Jón Oddsson 8 stig
7-9. Guðmundur Pétursson 6 stig
7-9. Oddur Hjaltason 6 stig
7-9. Sverrir Armannsson 6 stig
Aðalfundur félagsins verður
haldinn á næstunni. Nánar
siðar.
Léttmeti frá
New Orleans
Eins og oftlega vill brenna
við, þegar haldið er stórmót, likt
og i New Orleans, þá eru saman
komnir margir „andans” menn,
sem gjarnan láta gamminn
geysa, við öll möguleg og
ómöguleg tækifæri. Hér er einn
góður:
Pierre Jais er frægasti spilari
Frakklands, fyrr og siðar. Hann
spilaði lengi á móti öðrum fræg-
um Frakka, að nafni Albarran,
sem var frægur fyrir það að tala
alltaf á frönsku, við öll tækifæri.
t landsleik á Evrópumóti á móti
Bretum, þar sem enska var að-
eins leyfð, varð Albarran það á
að tala á frönsku við Jais og
Bretar mótmæltu við keppnis-
stjóra, sem gaf Albarran
áminningu. Skömmu siðar varð
Albarran það á að tala á
frönsku aftur, og enn var kallað
á keppnisstjóra, sem sagði að
Albarran yrði visað frá keppni,
ef þetta kæmi fyrir aftur.
Albarran sást ekki bregða i
neinu, heldur sneri sér að Pierre
Jais og sagði (á ensku): „Let us
get on with the game, Pierre. I
beg you pardon, Peter, Peter.”
Albarran var lengi kallaður
eins konar franski hr. Culberts-
son. Hann dó 1960.
Pierre Jais spilaði einmitt á
mótinu i New Orleans, á móti
ungum frönskum spilara, lið-
lega tvitugum, að nafni Dom-
inique Pilon. Sá er bráðefni-
legur, og hlaut einmitt góð verð-
laun. á mótinu, er nefnist:
Verðlaunaspil blaðamannsins i
ár.
Það leiðréttist hér með, að
Pilon er karlmaður en ekki
kvenmaður, en það kom fram i
einu dagblaðanna hér i bæ fyrir
skömmu.
Reykjavíkurdeildin
í bridge
Bridgedeild Reykjavikur er
nefnd manna, sem skipuð er
fulltrúum félaganna i Reykja-
Framhald á bls. 18.
Myndlistaskólinn í Reykjavík
flytur nú í nýtt húsnæði að
Laugavegi 118
Kennsla hefst 9. október.
Börn og unglingar:
5 — 7 ára mán. og f immt. kl. 10 —11.30
Kennari, Björk Einarsdótfir.
5 — 7 ára þrið. og föst. kl. 13 —14.30
Kennari Katrín Briem.
Blandaður aldur 5— 10 ára þrið. og föst. kl. 10
— 11.30
Kennari, Katrin Briem.
8—llára mán. og f immt. kl. 15 — 16.30
Kennari, Sólveig Helga Jónasdóttir.
10—12ára þrið. og föst. kl. 15 —16.30
Kennari, Borghildur Öskarsdóttir.
8— 11 ára mið. kl. 15 — 16.30 og laug. kl. 10 —
11.30
Kennari Sigrún Gunnlaugsdóttir
10— 12 ára mið. kl. 17 — 18.30 og laug. kl. 12 —
13.30
Kennari, Sigrún Gunnlaugsdóttir
Unglingar 13— 16 ára mán. og f immt. kl. 17 —
18.30
Kennari, Katrín Briem.
Unglingar 13— 16 ára þrið. og föst. kl. 17 —
18.30
Kennari, Margrét Friðbergsdóttir.
Unglingar 13— 16 ára þrið. og föst. kl. 19 —
20.30
Kennari, Valgerður Bergsdóttir.
Unglingar 13 — 16 ára mið. kl. 19 — 20.30 og
laug. kl. 14 — 15.30
Kennari, Björk Einarsdóttir.
Skólagjöld í barna og unglingadeildum er kr.
22.000.- tímabilið 9. okt. 78 — 27. jan. 79. Allt
efni er innifalið (leir, glerungar, pappír, dúk-
ur og fleira).
Ath. Við veitum 10% systkinaafslátt
Fullorðinsdeildir
Teiknun fyrir byrjendur (hlutateikn.) mán.
og fimmt. kl. 20. — 22.15
Kennari, Hilmar Helgason. Verð kr. 26.000.-
Teiknun fyrir byrjendur (hlutateikn.) þrið. og
föst. kl. 20 — 22.15
Kennari, Lísa Guðjónsdóttir. Verð kr. 26.000.-.
Modelteikn. fyrir byrjendur, mán. og fimmt.
kl. 17.30 — 19.45
Kennarar, Guðrún Svava Svavarsdóttir og
Hilmar Guðjónsson. Verð kr. 33.000.-.
Módelteikn. mán. og f immt. kl. 20 — 22.15
Kennari, Hringur Jóhannesson. Verð kr.
33.000.-.
Modelteikn. þrið.ogföst. kl. 17.30 —19.45
Kennari, Jón Þ. Kristinsson. Verð kr. 33.000.-.
Modelteikn. þrið. og föst. kl. 20 — 22.15
Kennari Hringur Jóhannesson. Verð kr.
33.000.-.
Framhaldsdeild laugardaga kl. 10 — 15.15
Kennarar Baltasar, Hringur Jóhannesson og
Magnús Pálsson. Þessi deild er ætluð fólki
með teiknimenntun. Verð kr. 33.000.- (7. okt —
20. jan).
Höggmyndadeild mánud. kl. 17 — 22.15 og
modelteikn 1 sinni i viku eftir vali. Kennarar
Hallsteinn Sigurðsson, Helgi Gíslason og
Ragnar Kjartansson. Verð kr. 42.000.-.
Höggmyndadeild miðvikud. kl. 17 — 22.15 og
modelteikn 1 sinni í viku eftir vali. Kennarar
Hallsteinn Sigurðsson, Helgi Gíslason og
Ragnar Kjartansson. Verð kr. 42.000.-.
Ath. Allar deíldir miðast við ;ímabilið9. okt. 78
— 27. jan. 79.
Innritun fer fram í skólanum á gamla staðn-
um Mímisvegi 15, Ásmundarsal kl. 9 — 12 og
13.30— 18.30 alla daga nema laugardaga^sími
11990
Skólagjöld greiðist við innritun.
Málaradeildir verða auglýstar siðar.
/
Myndlistaskólinn býður ykkur
velkomin í nýtt húsnæði að
Laugavegi 118
Skólastjóri