Þjóðviljinn - 09.09.1978, Qupperneq 16
16 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 9. september 1978
Umsjón: Ásmundur Sverrir Pálsson
SPJALLAÐ VIÐ GUÐNA HALLDÓRSSON
Um Evrópumeistaramótíö í
Guðni Halldórsson er
nýlega kominn heim
írá Evrópumeistara-
mótinu i Prag, sem
haldið var á dögunum.
Þangað fór hann sem
aðstoðarmaður ís-
lenska iþróttafólksins.
Blaðamaður spurði
Guðna nokkurra spurn-
inga:
— Hvernig varö árangurinn
á mótinu?
— I mörgum greinum náðist
ágætur árangur, sem þegar er
búið að geta um i islenskum
blöðum, en mesta athygli vakti,
hve yfirburðir A-Evrópuþjóða
voru miklir. Það er ljóst aö
iþróttamenn þessara þjóöa eru
studdir mun meira en þekkist i
V-Evrópu. Þeir þurfa engar
áhyggjur að hafa af afkomu
sinni. Þeim er gert mögulegt að
stunda æfingar af eins miklu
kappi og þeir hafa áhuga á.
Efnilegum iþróttamönnum er
strax sinnt, ekki einungis eftir
aö þeir eru komnir á toppinn.
Þeir búa við bestu skilyröi til
iþróttaiðkunar, sem þekkjast i
veröldinni. Það má segja, að
EM f frjálsum séu eiginlega
orðin A-Evrópumeistaramót,
slikir eru yfirburðirnir. Vestur-
evrópskir frjálsiþróttamenn eru
studdir af einstökum fyrirtækj-
um, en frekast þannig, aö þau
taka þá upp á arma sina, þegar
toppnum er náð. Þetta er um
leið augiysing fyrir fyrirtækin,
þvi að Iþróttamennirnir skarta
þeirra nöfnum.
Prag
og
fleira
— Teluröu aö þetta sé æskileg
lcið til stuönings?
— Ja, með þessu móti er vel
séð fyrir þeim bestu og vinsæl-
ustu og við það hef ég i rauninni
ekkert að athuga. Mætti hugsa
sér, að þessi leiö yrði farin á
Islandi, en Frjálsiþróttasam-
bandinu jafnframt séð fyrir
nægu fjármagni, til að sinna
þeim vel, sem vilja stunda
þessa iþrótt ogsýna hæfileika til
þess. Staðreyndin er sú, að timi
Frjálsiþróttasambandsins fer
mjög mikið i peningasnap og
sér ekki út úr.
Hitt vil ég taka fram, að ég tel
þaö siðferðilega rangt, að
iþróttamenn auglýsi t.d. tóbak
og vin. En hvernig sem stutt
veröur við bakið á islenskum
iþróttamönnum, stendur sú
staöreynd óhögguö, að æfingar
taka tima og timinn kostar pen-
inga.
— Þú talar um mikla yfirburöi
A-Evrópuþjóöa.
— Já. Það vakti t.d. athygli,
Guöni Halldórsson
að i aðeins einni keppnisgrein
áttu þær ekki fulltrúa á verð-
launapallinum,en það var i 1500
m. hlaupi.
— Fór mótiö vcl fram?
— Því verður ekki neitað. Röð
og regla var á öllum hlutum.
Hins vegar átti sér stað leiðin-
legtatvik fyrirúrslitakeppnina i
kúluvarpi. A mótinu var sér-
stakt kallherbergi, sem iþrótta-
menn þurftu að vera mættir i
eigi siðar en 30 mfn. fyrir
keppni. Var þar athugaður út-
búnaður keppenda. Starfsmenn
meinuðu breska kúlu-
varparanum Capes að hefja
keppni á þeim forsendum, að
ekkert númer var framan á
honum.
Var þetta auðvitaö bara at-
hugunarleysi af honum. Capes
var kominn i keppnisham og i
hita leiksins ruddi hann starfs-
mönnunum frá. Úr þessu varð
mikiðmál og Capes dæmdur frá
keppni. Langur timi leið, áður
en keppnin gat hafist og hafði
biðin mjög slæm áhrif á
hina keppendurna, svo sem
Hrein, sem átti fyrstur að kasta,
og Stahlberg þann finnska.
Misstu þeir einbeitinguna og
keppnisskapið niður. Capes
áttaði sig auðvitaö fljótt á þvi,
að þetta stimabrak hafði mjög
slæm áhrif á hina keppendurna,
a.m.k. suma, og kom m.a. til
okkar, niðurbrotinn maður, og
baðst afsökunar. En það vakti
athygli okkar, aö rússnesku
kastararnir héldu ró sinni. En
það þarf ekki að vera svo undar-
legt, þvi aðsálfræðingarsjá um,
að rússneskir keppendur haldi
andlegu jafnvægi i svona mót-
um.
— ÞU hefuroftaren einu sinni
fariö utan. Hefurðu orðið var
viö, aö almenningur þekkti tii
fslenskra frjálsiþróttamanna?
— Já, það hef ég orðið var við.
A Noröurlöndum þekkja t.d. all-
ir Hrein Halldórsson. Hann
hefur orðið meiri landkynning
fyrir Island, ef svo má að oröi
komast, en margur bæklingur-
inn, sem átt hefur að þjóna þvi
hlutverki.
— Aö lokum vil ég taka það
fram, aö Reykjavikurleikarnir
eru tvlmælalaust iþróttinni til
framdráttar. Okkur gefst kostur
áaö sjá snjalla Iþróttamenn og
etja kappi viö þá, þetta örvar
menn mikiö. Wolfgang Schmidt
sagöi mér, aö Island væri hans
draumaland sem keppnis-
staöur.
—ASP.
Leikir
um
helgina
1. deild, laugardagur:
Keflavikurvöllur kl. 14.00
IBK :Vikingur
Vestmannaeyjavöllur kl. 14:00
IBV:Fram
Kaplakrikavöllur kl. 14:00
FH:ÍBK
1. deild, sunnudagur:
Laugardalsvöllur kl. 15:00:
Valur:tA
2. deild, laugardagur:
Laugardalsvöllur kl. 16.30:
Fylkir: IBÍ
Akureyrarvöllur kl. 16.30:
Þór:Austri
I dag leika einnig Magni og Sel-
foss á Akureyrarvelli. Keppa liöin
um þaö, hvort þeira hlýtur bik-
arinn i 3. deildJLeikurinn hefst kl.
13.30.
KR-
dagurinn
á morgun
Sunnudaginn 10. sept. ætla
KR-ingar aö tileinka félagi sfnu
og nefna hann KR-dag. Veröur
hann haldinn f félagsheimili
þeirra viö Frostaskjól. Slfkur
dagur hefur veriö árlegur
viðburður i starfi félagsins, en
siðan 1975 hefur hann fallið niöur
vegna endurbóta og nýbygginga á
völlum félagsins. Aö þessu sinni
verður dagurinn haldinn hátfö-
legur með leikjum og keppni i
ýmsum iþróttagreinum, sem
félagiö hefur á stefnuskrá sinni.
I lögum KR segir: „Tilgangur
félagsins er aö iöka knattspyrnu
og sem flestar aörar likams-
iþróttir og glæöa áhuga almenn-
ings fyrir gildi þeirra.” I fréttatil-
kynningu frá félaginu kemur
fram, aö þaö hafi meö stööugri
uppbyggingu og endurbótum
KR-ingar hafa lengi átt góöu körfuknattleiksliöi á aö skipa. Hér eru núverandi tslandsmeistarar I
fþróttinni.
reynt aö nálgast þetta takmark. A
félagssvæöinu standi nú yfir
miklar byggingaframkvæmdir,
-- á iþróttahúsum og skiöasvæöi ,
félagsins i Skálafelli. Leggja'
KR-ingar allt kapp á að útbúa
sem besta aðstööu til iþrótta-
iðkunar og aö hún hæfi sem flest-
um. Einnig segir, að félagiö vilji
viðhalda og ef la góðan félagsanda
og undirbúningur sé þegar hafinn
að teikningu nýs félagsheimilis.
KR verður 80 ára á næsta ári og
vonir standa til, aö þá veröi hafin
bygging á þessu þarfa húsi.
Dagskráin hefst kl. 10.00 á
morgun með knattspyrnuleik KR
og Vals i 6. flokki, og fjöldi ann-
arra leikja fylgir svo I kjölfariö. 1
Iþróttahúsinu fer fram hand-
knattleikur, körfuknattleikur
(sýningaratriði), lyftingar,
borötennis og fjaöraknattleikur.
KR-ingar vænta þess, að sem
flestir sjái sér fært aö koma.
Kaffiveitingar veröa i félags-
heimiiinu.
Keflavíkurvöllur 1. deild
Keflavík — Víkingur kl. 14.00
_____ Krækjja kefflvikingar í UEFA sætið? ÍBK