Þjóðviljinn - 03.10.1978, Qupperneq 12
12 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN i Þriðjudagur 3. október 1978
Umsjón: Magnús H. Gíslason
ÚTGERÐ
Seiðagengd
hefur seinkað
rækjuveiðum
— Hér hefur verið
sæmileg atvinna i sum-
ar eða frá þvi um miðj-
an -júni, er bátarnir
byrjuðu með dragnót-
ina og fram að siðustu
mánaðamótum. Siðan
hefur nokkuð dregið úr
atvinnu. Þannig fórust
fréttaritara Þjóðvilj-
ans á Bildudal, Ingi-
mar Júliussyni, orð i
viðtali við Landpóst
laust fyrir siðustu
helgi.
Sumir afla vel, aðrir
miður
A þessum tima voru þrír
bátar hérá dragnót og fiskuðu á-
gætlega. Aörir þrir voru á skaki
en afli þeirra var misjafn. Þessi
. fiskur var nú uppistaðan i vinn-
unni i frystihúsinu. Þeir eru
raunar með tvo báta, Hafrúnu
og Steinanes, en þeir hafa legið
mikið i sumar, bæði vegna við-
gerða og rekstrarörðugleika.
Steinanes var þó um tima i júli
á trolli en aflaði litið.
Svo byrjuðu þeir hér á linu-
veiðum ummiðjan mánuðinn en
það er mjög tregur afli hjá
þeim, enn sem komið er, enda
segja þeir að það sé mikið af
togurum hér úti fyrir. En það
gæti nú ræst úr þvi.
En Hafrún liggur hér við
bryggju og hefur svo verið um
tima. Sagt er að hún muni vera
til sölu. Þrátt fyrir þetta hefur
þessi afli nægt til þess, að fólk
hefur haft vinnu hjá Fiskvinnsl-
unni þennan tima.
Svo hefur landað hér, nú i
þessum mánuði, báturinn Birgir
frá Patreksfirði, — einum tvisv-
ar sinnum, — dálitlum slatta af
grálúðu. Það er nú aöallega sá
fiskur, sem við höfum haft við
vinnsluhér iþessum mánuði þvi
dragnótabátarnir hættu flestir
um mánaðamótin og dekkbát-
arnir einnig. Einn þeirra hefur
þó verið að þar til i dag. Hann
mun vera búinn að fá um 160
tonn frá því i júli.
Hörpudiskur
Einn bátur hefur verið hér á
hörpudiskaveiðum. Aflinn hefur
verið unninn hjá Rækjuveri h.f.
Þessar veiðar hafa gengið vel
og raunar hefur varla verið
hægt að afkasta öllu meira i
verksmiðjunni. Þessum veiðum
lauk nú um miðjan mánuðinn.
Rækjan
Rækjuveiðin byrjar hér vana-
lega 1. eða uppúr 1. október. Við
vitum þó ekki hvernig það verð-
ur núna þvi það er, eðaa.m.k.
var töluverð seiöagengd hér I
firðinum. Ég veit ekki til þess
að það sé búið að athuga það á
nýhvað þvi llöur; það gæti þvi
dregist að rækjuveiðin byrjaöi.
Bæði skakbátarnir og dragnóta-
bátarnir munu fara á rækju-
veiðar þegar þær verða leyfðar,
þeir eru þegar undir það búnir
að mestu leyti a.m.k.
Byggingar
Byggingaframkvæmdir hafa
verið nokkrar hér i sumar en þó
aðallega unnið við hús, sem
byr jað var á á s-.l. ári eða fyrr.
Veriðer að grafafyrir grunni
að stækkun á verksmiðjuhúsi
Rækjuvers h.f. og mun það
verða nokkuð stór bygging.
Engar framkvæmdir hafa
verið hjá hreppnum i súmar.
Kennaraskortur
Skólinn er ennþá ekki byr jað-
ur en ætti þó að vera það. Ég
veit ekki hvernig það er með
kennara. Skólastjórinn, sem hér
hefur verið og konahans, fluttu
burtu, en þau voru bæði kenn-
arar hérna og ég veit bara ekki
hvort ennerbúiðaðfákennara I
þeirra stað. Vonandi tekst það
en illt er að skólinn skuli ekki
geta tekið til starfa á eðlilegum
tima.
Verið var hinsvegar að setja
tónlistarskólann hér i gær, en
hanner einskonar útibú frá tón-
listarskólanum á Patreksfirði.
Við tónlistarskólann er aðeins
einn kennari. Tónlistarkennsla
fór og fram hér i fyrra vetur.
Ég veit ekki gjörla um aðsókn
að skólanum núna en i fyrra
hafði einn kennari nóg að gera.
Baldur fer hamförum
Leikfélagið okkar, Baldur,
sýndi Skjaldhamra Jónasar
Arnasonar hér i vor og viða um
Vestfirði. Núhefur það á nýhaf-
ið sýningar á leikritinu. Er búið
að sýna leikinn fimm sinnum
hér heima og um siðustu helgi
fór félagið til isafjarðar og
Bolungarvikur og sýndi þar.
Eru sýningarnar þá orðnar 15.
Aðsóknhefur verið mjög góð og
undirtektir ágætar. Leikstjórinn
er Kristin Anna Þórarinsdóttir.
Engin slátrun
Hér á Bildudal verður vist
engin sauðfjárslátrun i haust.
SláturhUsið er i lamasessi. Það
er verið að breyta gamalli
niðursuðuverksmiðju i slátur-
hús. ij/mhg
Svo sem áður hefur
komið fram i fréttum
hér i blaðinu þá eru f jór-
ir dekkbátar gerðir út
frá Hrisey, að sögn
fréttaritara Þjóðviljans
þar, Guðjóns Björns-
sonar. Skal þeirra nú
getið nánar:
Þorfinnur
Hann er 6 tonn. Eigandi hans er
Aslaugur Jóhannsson. Aslaugur
hefur „róið einn á báti” á þessu
ári. 1 vor var hann á grásleppu-
veiðumog gerðiþáút frá Flatey.
hannþannig búinn að stunda sjó-
inn I meira en 40 ár.
Eyfell
Eyfell er 10 tonn og eigendur
þess eru Hörður Snorrason og'óli
Björnsson. Þeir voru á netaveið-
um fram á vor og öfluðu 160 tonn.
Úr þvi fóru þeir á handfæraveið-
ar. Sagði Óli að færaafli heföi
verið lélegur og „helst ekki fisk
að fá fyrr en fram undir Kolbeins-
ey". NU búast þeir félagar á neta-
veiðar.
Haförn
Haförn er 27 tonn. Eigandi er
Jóhann Sigurbjörnsson. Hann
stundaði netaveiðar og fékk 220
Hrisey.
Valþór og fleiri
Valþór hefur og verið gerður Ut
frá Hrisey en hann er i eigu
Óskars Hermannssonar á
Akureyri. Hefur hann stundað
handfæraveiðar. Óskar var ekki
viðlátinn er fréttamaður hugðist
ræöa við hann.
Þá munu, fyrst um sinn, tveir
dragnótabátar frá Dalvik leggja
upp afla sinn i Hrisey, Vinur og
Otur. Sömuleiðis 36 tonna bátur
frá Litla-Arskógsandi, Vinur,
sem þeir bræður, Gylfi og Brynj-
ar Baldurssynir, hafa nýlega
keypt. Þeir hyggjast bráðlega
hefja dragnótaveiðar en fara sið-
an á net. Munu þeir leggja aflann
upp i Hrisey, i vetur a.m.k.
(Heim.: Norðurland).
gb/mhg
Útflutningur á fersku dilkakjöti
Parisar, þangað sem þeir voru
komnir morguninn eftir. Kaup-
mannahafnarkjötið var komið i
búðir þar samdægurs en Parisar-
kjötið var sent áfram til Grenoble
og selt þar.
Tilraun þessi var gerð að undir-
lagi Markaðsnefndar, sem land-
búnaðarráðuneytið skipaði á sið-
asta ári. Staöfest hefur veriö að
utan, að báðar sendingarnar hafi
náð áfangastað I mjög góðu ásig-
komulagi, og einnig hafa borist
fregnir af þvi, að i Kaupmanna-
höfn hefðiþettakjöthorfið eins og
dögg fyrir sólu i verslunum.
Hinsvegar sýndi það sig við
þessa tilraun, aö verðið, sem
fékkst fyrir kjötið i Frakklandi er
of lágt til þess að grundvöllur sé
fýrir þvi, að halda áfram slikum
útflutningi þangaö. Stafar það
fyrst og fremst af þvi, að
Islendingar þurfa að greiða sér-
stakan verðtryggingartoll af kjöt-
inu þar i landi.
P Danmörku þótti verðið einnig
full lágt, en þó hefur verið ákveð-
ið að halda áfram tilraunasölum
þangað, i þeirri von, að þar verði
hægt að skapa aukna eftirspurn,
sem siðan myndi leiöa til hækk-
andi verðs. Af þeim sökum hefur
veriðákveðiöað senda aðrasend-
ingu þangað. Verður hún mun
stærrien hin fyrri, eða 4 tonn, og
siðan er ætlunin, að senda viku-
lega kjöt með flugi til Kaup-
mannahafnar sláturtiðina Ut.
(Heim.: Sambandsfréttir)
—mhg
Aflinn var 33 tunnur af hrognum.
Að grásieppuveiðunum loknum
fór Aslaugur á handfæri og telur
sig muni hafa aflað 15 tonn á
færin.
Aslaugur byrjaði sinn sjó-
mannsferil 9 ára gamall og þá á
linu, með Jónasi Jóhannssyni. Er
Búnaöar-
blaöið
Freyr
1 seinasta hefti Freys, sem
blaðinu hefur borist, er eftir-
greint efni:
Að búa betur að sinum,
forustugrein. Nýr kjötmats-
formaður og nýjar reglur
fyrir kjötmat, (Jónmundur
ólafsson, kjötmatsformaö-
ur, hefur nú látið af störfum
eftir langa og góða þjónustu
en við tekið Andrés Jó-
hannesson frá Sturlu-Reykj-
um). Einkunnir hrúta á
sæðingarstöðvum, eftir Jón
Viðar Jónmundsson, Skýrsla
um brautskráða búfræðinga
1978. RefabUskapur— ný bú-
grein mikilla möguleika,
viðtal Júliusar J. Daniels-
sonar við Sigurjón Bláfeld
Jónsson, loðdýraræktar-
ráðunaut Búnaöarfélags
íslands, Landssamband
veiðifélaga 20 ára. Birt er
fundargerð siðasta aöal-
fundar og skýrsla formanns
sambandsins, Þorsteins Þor-
steinssonar á Skálpastöðum
um störf stjórnarinnar frá
aðalfundi 1977. Þá eru og
nokkrar tölulegar upp-
lýsingar um veiöimál.
Flokkun og mat á gærum,
eftir Svein Haligrimsson.
Ofbeit — offramleiðsla, hug-
leiðingar um landnýtingar-
mál, eftir Ólaf R. Dýrmunds-
son, landnýtingarráðunaut
ogloks eru Erlendir þættir.
—mhg
tonn á vertiðinni. Siðan prófaði
Jóhann handfærin en gafst illa.
Varð hann fyrir mikium vélarbil-
unum og fleira var öndvert. NU
hefur Haförnin hinsvegar farið
þrjá róðra með dragnót og fengið
40 tonn, mestmegnis kola. Kolann
sagði Jóhann vera á litlum svæð-
um og yrði trúlega stutt i honum
ef margir stunduðu þær veiðar.
Fyrir nokkru var gerð
tilraun til þess að flytja
út ferskt dilkakjöt með
flugvélum til Danmerk-
ur og Frakklands.
Nánar tiltekið var þessu þannig
háttað, að kjötskrokkar af dilk-
um, sem slátrað vará Selfossi 11.
sept., voru settir i sérstaka um-
búðakassa, tveir og tveir samap,
og hinn 13. sept. fóru svo 100
skrokkar með þotu Flugleiða til
Kaupmannahafnar og 88 skrokk-
ar með annarri þotu til Luxem-
borgar. Hinir siðarnefndu voru
svo sendir áfram með bifreið til
í HRÍSEY