Þjóðviljinn - 22.10.1978, Síða 13

Þjóðviljinn - 22.10.1978, Síða 13
12 SIÐA — ÞJÓÐVILJINNi Sunnudagur 22. október 1978 Sunnudagur 22. október 1978 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 1:3 Kvöldsólin heldur áfram að skína þegar hjólið ber mig niður til strandar, þar er bær sem á írsku heitir Cloch na Rón, Roundstone, eða Kringlusteinn. Og eins og önnur kvöld þá þarf að byr ja á að svipast um eftir húsaskjóli hjá góðri konu sem auglýsir B og B, Bed and Breakfast, rúm og morgunverð. Það sýnist helsti atvinnuvegur i sýslunni a$ selja rúm og morgun- verö. Og I leiðinni er hann vitnis- buröur um stööu irsku konunnar: hún er meö tvo krakka á hælunum og einn i maganum og bóndinn situr á kránni. Þá er sá kostur vænstur aö innrétta þrjú eöa fjög- urherbergi, eöa byggja viö húsiö og leigja sumargestum — konan er heima hvort sem er. Það gæti verið verra A Kringlusteini fékk ég inni h já frú Kane. Hún var rauðhærð og brosmild og haföi fest upp banda- rlska fánann I stofunni. Daginn eftir var hellirigning, ég kom heim gegnvotur eftir daglanga ferð á hjólinu og þurfti aö leggjast upp I rúm meöan þaö seig úr brókum. En frú Kane gekk sig út I dembuna eins og ekkert væri og fór aö hengja upp þvott. Einn' kostgangarinn spuröi hvort þaö borgaöi sig aö hengja þvott á snúru I svona vætu. Hann þornar náttúrlega ekki, sagöi frú Kane, en hann veröur aö minnsta kosti hreinn. Þetta heyröi ég inn um glugg- ann og mundi allt I einu eftir samanburöi sem Heinrich Böll geröi á írum og löndum sínum, Þjóöverjum. Hjá okkur Þjóöverj- um, sagöi Böll, er allt sem fyrir kemur þaö versta sem gat gerst. En Irar segja: It could be worse Þaö gæti veriö verra. Kannski hefur þú handleggs- brotnaö, en it could be worse, þú heföir getaö brotnaö á báöum fót- um. Frú Kane var af þessum þjóðlega skóla. Við litla höfn En ég ætlaöi aö segja frá fyrra kvöldinu mlnu á Kringlusteini. Kringlusteinn er lltiö þorp. Þaö er varla nema ein húsaröö upp af lltilli höfn. í höfninni eru nokkrir smábátar, sá stærsti er komin á 1 þurrt og er ónýtur. Klukkan er farin aö ganga niu, en þetta litla samfélag er hiö sprækasta. Karl- arnir viöra sig fyrir utan fimm krár og fara svo inn aftur þvl þeir hafa nógan starfa þar: Jósep Cor- an segir mér aö sá drekki litiö sem sötrar einn pott á kvöldi, uss þaö er ekki neitt. Litlar Danfvals- búðir eru opnar ef þig vantar filmu, eldspýtur eða The Conn- acht Tribune, sem er áreiðanlega Kringusteinn, Cloch na Rón, er ekki nema ein húsaröö. Myndir og texti ÁB. KVÖLDKYRRÐA KRINGLUSTEINI rýrasta blaö I heimi. Amma gamla vaktar búöina og kallar á dóttur sína f rá smákrökkunum og sjónvarpinu ef með þarf. Mat- stofan býður upp á soðinn lax og hefur ekki ennþá komiö sér upp grilli, LSG. Tvær stelpur Þarna viö höfnina eru sögur úr litlum sjávarplássum aö gerast enn meö sama hætti og I Keflavlk fyrir þrjátlu árum. Þaö eru krakkarnir sem leika þessar sög- ur, sem eiga sér hvorki upphaf né endi og fléttast saman meö sjálf- sögöum þokka eins og þang I fjöru. Þarna eru tvær stelpur. önnur er falleg og veit af því.hin er mjó og föl og dregur meö nærveru sinni fram bogana sem eru að spennast á likama vinkonunnar. Þær eru niöri viö ónýta bátinn og strákafans I kringum þær, en strákarnir eru ögn of litlir. Þaö væri meira gaman ef þeir væru stærri. En eitthvaö veröur aö gera I málinu: sú sem er falleg fer ööru hvoru úr skónum og stig- ur út I sjóinn og lyftir pilsinu, slöu og skrautlegu, alveg mátulega mikiö upp á legg. Einn strákurinn stenst ekki mátiö og kastar smá- steini sem segir plomp rétt viö fætur hennar — og ósjálfrátt rykkist pilsið enn hærra. Þær vinkonurnar stríddu líka strákun- um með þvi' aö dansa saman: hl, ekki kunnið þið þetta, asnar. Og þaö fóru á milli þessar eilifu glós- ur, haha, hann er skotinn I systur þinni. Hér ræöur vestannepjan rlkjum Hér var áöur klaustur rikmannlegt Þessi irskumælandi svæöi I vestri búa yfir ein- faldleik miöalda. Fólkiö er bundiö jöröu og hvert ööru. Sérhverjum steini i túninu hefur veriö velt þúsund sinnum, og menn þekkja hvern krók sem hugsun manns tekur á sig. Og Himnariki er hér nálægt jöröu. Þaö er hérna fyrir suövestan, sagöi gömul kona, hálft annaö fet yfir mannshæö. Og Himnariki er eins heimilislegt og þaö var skáldinu sem orti: Bjór fyrir Konung konunganna Fólki Himnaríkis vil ég bjóða inn í hús mitt og bera á borö fyrir það keröld til góðrar kæti. Ég vil að allir séu þeir kátir við drykkju sína. Ég vil einnig að Jesús sitji hér með öðrum. Ég vildi bjóða Marium þrem því dýrð þeirra er mikil ég mundi vilja fá gesti úr hverju horni Himnaríkis. Stórt vatn af bjór vil ég færa Konungi konunganna. Glaður sé ég f jölskyldu himnanna drekka það um eilífð alla. t Úr inngangi aö frásögnum Peig Sayers). Gleymum því ekki aö þaö er margt aö gerast I einu. Skyndi- lega hafa krakkarnir I fjörunni horfiö frá þvl aö skjóta niður dós- ir úti á höfninni, þvi aö smápolla- hrekkjusvln hafa dembt yfir þá möl. Við könnumst vel viö þessa stráka, þeir eru fimm ára eöa sjö ára, og þeir fá ekki aö vera meö, og þess vegna vilja þeir hefna sln á samfélaginu. Þeir stóöu vel aö vigi, þvi aö þeir gátu faliö sig á bak viö vegg viö niöurkeyrsluna og gátu hlaupið bognir meöfram honum þegar krakkarnir I fjör- unni svöruöu þeim meö mikilli skothriö. Þeir hafa skotgrafar- vegg og geta verið á sífelldri hreyfingu og sent sin skeyti úr nýjum og nýjum staö. Einn steinninn neöan úr fjörunni lendir maklega I hausnum á mér, þetta er eins og smávigsla, eins- konar innlimun I samfélagiö. / A bremsulausu hjóli Þarna var lika einn pottormur enn minni: hann var aö gera at I fulloröna fólkinu, laumaöist aftan aö þvi, sló þaö I rassinn. Og stórir slöttólfar, sem brunuöu um á hjólum, mjög misgóöum og voru nýbúnir aö læra aö segja fucking. Þetta voru töffarar. Einn var með sixpensara sem var miklu eldri en hann sjálfur, áöan sat hann á kránni á horninu og bar sig mannalega enda þótt hann mætti ekki drekka nema limon- aöi. Annar sýnir þessum smá- stelpum, sem hann er eiginlega skuldbundinn til aö fyrirllta, hvaö I honum býr meö þvl aö bruna niður brekkuna niður á bryggju á sannarlega bremsulausu hjóli og dempa hraöann meö klossunum einum saman... Ung móöir var komin út á stétt aö kikja á mannlifiö meö spánýtt barn og dillaöi þvf stolt eins og aldrei heföi fæöst barn áöur (sem er satt) og nágrannakonurnar komu meö lifsreynda forvitni I svipnum og spuröu um hægöir og matarlyst. Tvær nunnur, önnur 1 aranpeysu,enbáðarmeö svartar veifur nýlátins páfa á höföi, gengu settlega yfir götuna, og þaö sljákkaöi ögn í krökkunum á meöan. Handan viö fjöröinn, yfir á eynni Inishnee, var einhver aö kaúa. Fjöröurinn var spegilslétt- ur, þangiö sterkbrúnna en ella i kvöldsólinni og Tólf Pinnar risu bláir I noröri. Móreykurinn situr I nösunum og vill ekki hverfa þaö- an. Orðinn að smjöri t raun og veru hefur ekkert gerst. En ég er löngu oröinn aö mjúku smjöri innvortis. Fullur af sáttfýsi I garö allrar skepnu. Mig langar I meiri félagskap en þann sóma sem krakkarnir sýndu mér meö þvi aö dangla I rassinn á mér og henda I mig grjóti. Sjáöu fugl- ana, þeir hafa nógan félagsskap þar sem þeir sitja i löngum röðum á fjórum simalinum og höföu svo hátt áöan þegar ég gekk fram hjá þeim, aöég trúi þvi ekki aö Cloch na Rón hafi veriö I símasam- bandi viö umheiminn þá stund- ina. En hvaö á ég aö gera? Fara inn á næstu krá? Þar er komiö sjónvarp, sem nú þegar hefur framiö alvarlegt tilræöi á irskri samtalslist. Og hvaö ætti ég aö segja viö þetta fólk? Spyrja um örlög gellskunnar? Þreyta þaö meö andskotans Bretanum eina feröina enn? Nei, ég dreg mig heldur heim til frú Kane. Ég held mér saman eins og gamli kirkju- garðurinn sem er vaxinn illgresi upp fyrir skakka krossa og yfir- gefna klaustrið úti á tanga, sem horfir blindum gluggum Ut I vestanblæinn. Þar er enginn núna nema einn hvitur hestur. Hann kom auga á mig og gekk I áttina til min. öllu hallar hér niöur aö llitilli höfn. Stærsti báturinn lá ónýtur I fjöruboröinu, en krakkarnir ekki komnir á ról þegar þessar myndir voru teknar. Nokkrir sportbátar; héöan er og sóttur lax og humar.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.