Þjóðviljinn - 22.10.1978, Blaðsíða 24

Þjóðviljinn - 22.10.1978, Blaðsíða 24
ÞJÓÐVIUINN Sunnudagur 22. október 1978 Abalslmi ÞjóOviljans er 81333 kl. 9-21 mónudaga til föstu daga, kl. 9-12 á laugardögum og sunnudögum. Utan þessa tima er hægt aö ná i blaöamenn og aöra starfs menn blaösins i þessum simum: Ritstjórn 81382, 81527 812S7 og 81285, útbreiösla 81482 og Blaöaprent 81348. Skipholti 19, R. t BUOIM simi 29800, (5 línurr'-CL " Verslið í sérverslun með litasjónvörp og hljómtœki Atvinnumadur? Æ, ég veit þad ekki íslandsmeistarinn í skák, Helgi Olafsson, sem vann sér alþjóðlegan meistaratitil í skák fyrr á þessu ári mun tefla á 3. borði á ölympíumótinu í Argentínu, en á 1. og 2. borði verða stórmeistar- arnir Fríðrik Olafsson og Guðmundur Sigurjónsson. Helgi er þekktur fyrir ein- stakt keppnisskap og því spurðum við hann fyrst hvaða möguleika hann teldi íslensku sveitina eiga á mótinu? — Friðrik spáði 15. til 20. sæti í viðtali við sjónvarpið á dögunum, ég get alveg tekið undir það. Með smá heppni gætum við kannski náð 10. sæti, en tef It verður eftir Monrad-kerfinu. Undirbúningurinn — Hvernig hafiö þiö hagað undirbúningi ykkar fyrir keppn- ina? — Allt siöan i mai i vor hafa veriö haldnar æfingar einu sinni I viku. Þótt æfingasóknin hafi ekki alltaf veriö uppá þaö besta, hafa æfingarnar aldrei falliö niöur. A Rœtt við Helga Ólafsson, alþjóð- legan skákmeist- ara, sem teflir á 3. borði íslensku sveitarinnar á ÓL-mótinu þessum æfingum höfum viö fariö yfir byrjanir og reynt aö kynna okkur helstu nýjungar sem komið hafa fram aö undanförnu á þvi sviöi. — Telur þú ykkur hafa haft gott af þessum æfingum? — 1 sjálfu sér held ég aö þessar æfingar hafi ekki haft mikiö aö segja, nema hvaö ég tel þaö hafa gildi aö hópurinn komi saman og skapi þá liösstemningu sem nauö- synleg er i fiokkakeppni. Einnig má telja þaö jákvætt, aö reynt hefur veriö aö finna út byrjanir fyrir hvern sveitarmeölim, sem falla best aö hans skákstil, þar kemur svona hópvinna aö gagni, þvi betur sjá augu, en auga. — Nú hefur þú lagst undir feld i ruman mánuö, dvaliö á Akureyri og legiö yfir skák, hvaö hefuröu helst lagt áherslu á? — Ég hef aö sjálfsögöu legið yfir skák almennt, en mestur timi hefur fariö I byrjanirnar, ég tel byrjanir hafa veriö mina veikustu hliö, ég kem alltof oft útúr byrj- unum með leiðindastööur, sem ég tel vera óþarfa og hef veriö að reyna aö laga þetta. Ég verö aö játa, að ég hef ekki lagt nógu mikla áherslu á þennan mikil- væga þátt skákarinnar á liðnum árum. Ég er hinsvegar ekki mikiö fyrir utanbókarlærdóm I skák, þ.e. aö tefla byrjanir eftir bók- inni, eins og þaö er kallaö, mér þykir þaö óskáklegt. — Ertu meö einhverjar nýjung- ar I byrjunum á takteinum? — Nei, en þaö er oft svo aö ef maöur vill ekki fara eftir bókinni og leikur einhverjum leik, sem siöan stenst, þá telst hann nýjung eftir í., þannig er þaö oft. — Þú ert þekktur fyrir þaö, aö tefla mjög hratt og jafnvei ásak- aöur fyrir aö leika of hratt og rannsaka ekki stööurnar nógu vel, hvaö viltu segja um þetta? — Fyrir þaö fyrsta finnst mér umhugsunartiminn 1 skák of langur og aö hann mætti stytta töluvert og enda hlýtur þaö aö gerast fyrr eöa seinna. Sannleik- urinn er sá, aö menn lenda oftast i timahraki fyrir þá sök aö eyða alltof löngum tima i byrjanir, sem þeir kunna, slikt er aö min- um dómi óþarfi og ég hef aldrei vaniö mig á þaö. Timahrak er versti óvinur skákmanna og sem betur fer hef ég oftast komist hjá þvi. Jú, ég hef lent I timahraki, það fer aldrei hjá þvi aö sllkt geti komiö fyrir, en þaö hendir mig afar sjaldan. Mikilvægasti hluti skákarinnar er vanalega I kring- um 40. leik og þá riöur á aö hafa nægan tima. — Þú náöir alþjóðameistaratitii I vor er leiö og næsti áfangi er þá fyrri hluti stórmeistara, áttu von á aö ná honum á ólympiumótinu? — Ég vil nú helst engar yfirlýs- ingar gefa um þaö, viö veröum bara aö biöa og sjá. Þó tel ég þaö frekar óliklegt, bæöi vegna þess aö þaö er oröiö nokkuö langt siöan ég tók siðast þátt i stórmóti og eins vegna þess aö þarná er um sveitakeppni aö ræða og þá verö- Framhald á bls. 22 Njóttu dagsins meö Dentokeí Xyliiol cr núitúrulcgt saeticini Hressandi, sykurlaust tyggigúmmí frá Wrigley’s Gerstu félagsmaður í Máli og menningu Mál og menning gefur i ár út um það bil þrjátiu bækur. Meðal útgáfubóka eru þrjár islenskar skáldsögur, smásagna- safn, þrjár ljóðabækur, fjögur þýdd skáld- verk, barnabækur og fræðirit að ógleymdu einhverju merkasta ævintýrasafni verald- arbókmenntanna, Þúsund og einni nótt. Eitt af megin verkefnum Máls og menn- ingar er að gera almenningi kleift að eign- ast góðar bækur við viðráðanlegu verði. Þetta hlutverk rækir Mál og menning með þvi að bjóða félagsmönnum útgáfubækur sinar 15-25% undir markaðsverði. Árgjald félagsins er 3.500 krónur. Innifalið i þvi eru 4 hefti Timarits Máls og menn- ingar, á fimmta hundrað blaðsiður af sögum, ljóðum og ýmis konar ritsmiðum. Liki félagsmönnum ekki útgáfubækurnar eru þeir ekki skyldugir til að kaupa nokkra þeirra. Ath. Engin skyldubókakaup! Það borgar sig að vera félags- maður í Máli og menningu Verösamanburöur Keyptar 2 bækur. Meöalv. Alm. verö Fél. verö. Sparnaöur 5.880 kr. eint. 11.760 9.760 2.000 Keyptar 4 bækur. Meöalv. 7.800 kr. eint. 31.200 26.520 4.680 Keypt ritsafn Þórbergs Þóröarsonar (13 bindi); Sparnaöur 10.870 krónur. Af þessum þremur dæmum sést glöggt að það sparast háar upphæðir við það að vera félagsmaður i Máli og menningu. Sendu okkur linu, hringdu, eða fylltu út meðfylgjandi inntökubeiðni og sendu til Máls og menningar, Laugavegi 18, Reykjavik. Undirritaður óskar eftir að gerast félags- maður í Máli og menningu. Nafn Heimili Póstnúmer Mál og mennlng Laugavegi 18, Reykjavík. Simart 24240 og 15199.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.