Þjóðviljinn - 22.10.1978, Blaðsíða 21

Þjóðviljinn - 22.10.1978, Blaðsíða 21
Sunnudagur 22. október 1978 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 21 t Adolf J. Petersen: má/ Krónan slegin áli úr Sumarið er gengið um garð. Eitttlmaskeið i árinu hefur lok- ið ferð sinni og runnið inn i tim- ans djúp, og veturinn hafið sitt skeið. Visnamál óska öllum les- endum sinum góös og gleöilegs vetrar. Þrátt fyrir það að bdast megi við að veður verði stund- um meðfrostioghriðum eins og tilheyrir vetrinum, þá er það vlst að á góðviðrisdögum skart- ar náttúran oft sinni töfrafeg- urð i hvitum klæðum. A vetrum er hægt að njóta margskonar unaðssemda náttúrunnar, eigi slður en á öðrum árstimum. Það hefur ætlð þótt hyggins- háttur hvers búandi manns að byrgja bú sitt af nægum forða fyrirmenn og djír. Svo mun það enn vera og veröa um langan tíma. Þó Visnamál hafi nokkurn forðafyrir sig aðleggja, þá gera þausér vonir um að þeim bætist verulega I bú á þessum nýbyrj- aða vetri og fái ríflega ábót frá vinum sinum og velunnurum. Full ástæða er til að ætla að þær vonir rætist, þar sem nú þegar hafa borist nokkur góð bréf, sem leiftra af velvild og áhuga ásamt verulegu dlleggi í vetrar- kostinn. Fyrst er bréf frá Magnúsi Jónssyni frá Barði. Hann lætur gamminn geysa sem fyrr, fullur af glettni og gamanyrðum, hef- ur verið farið að lengja eftir að Vi'snamál kæmu úr sumarorlofi, en þegar þau komu aftur þá kvað hann: Visnamálin komin á kreik, hvild úr sumarfrii, Adoif klár f Ijóöaleik úr iöngu fyllirii. 1 bréfi sinu segir Magnús: „Að gamni sendi ég þér nokkrar visur er éggerði á þeim tima er mikið stóð til; meðal annars tóku konur sér verkfallsdag. Tilefnið til þessa skáldskapar er auðskilið. Sjálfráður skaltu með hvort þú lætur það koma fyrir nokkurs manns sjónir, eða husl- ar það án yfirsöngs og ræðu. Fært I letur með vinarhug.” Visnaflokkinn sem Magnús sendi má skoða sem tlmarlmu sem hann segir að sé auöskilin, enda gerist það I nútimanum sem hann kveður um: Vikið skal hér orðum að elju um þjóðarsómann, fjöllum hærra flýgur þaö að fjandinn sleiki rjómann. Héðan sist er frétta fátt, fæstir hafa á nokkru vit, klækjarefir himinhátt hausinn derra og svlkja iit. Bretar hóta herskipum. Hoffmenn fitna á veröbólgum. Þjóðarbú I þolraunum, þurfafólk i háskólum. Nýtt frá niðurgreiðslunum nautakjöt i veislunum. Stjórnin veltir vöngunum á veiöiþjófa-fundunum. Dátar i varnarvirkjunum, vöxtur I barnastyrkjunum. Klerkar i tómum kirkjunum. krökkt I syndamyrkrunum. Krónan slegin áli úr. öll að tæmast forðabdr. Taprekstur á kisil-kúr. Krafla sprengir af sér múr. Geira augu orðin þreytt, alvarlegum stöðugt beitt. Breta-fjandinn fær þó veitt, forðast glápiö ekki neitt. ólafs hvassa orrahríð engum sýnir hótin blið, Vfcis hirtir leigulýð, iagabáika reifar smið. Einar Natós-fór á fund, fékk að tala þar um stund. Okkar fáu fiskapund fara i breskan veiðihund. Pólitikin tvlráð er, trúða fjölgar builunum. Moggalið með Framsókn fer i feluleika ruliunum. Konur reistar stika um storð, stoltar kenna máttarins, slyðru- reka af sér orð undir lægjuháttarins. Sterka kynið klórar sér, krökkt er af lús I fötunum. 1 hvaða flik sem farið er fjölgar á henni götunum. I niðurlagi segir Magnús aö þetta hafi hann ort á árunum 1975-76, og er það auðheyrt. Magnús er aðdáandi ferskeytl- unnar;hefur notaö form hennar til að tjá huga sinn og viðhorf. Hann kveður til hennar þessa snjöllu visu: Ornar stakan arma hlý andar-taki minu, meðan vakir veitul I vængja-blaki sinu. Björn Jónsson I Alftá skrifar að hann hafi selt meðeiganda sin- um sinn hluta I flugvélinni sem þeir áttu saman, og hafi hann greitt gjaldið til fulls, en sér hafi gjaldið orðið litil geðbót, orðið hvimleitt innanbrjósts og I óróleikanum hafi smá-komið fram i hugann þessar visur sem hann kallar Hugarflugur: Mér hefur dugað mæta vel minu I hugarflugi lltil fluga, létt sem þel, er lónar i bugum geðs um hvel. Má sú duga mér nú ein, mæðu buga veldi, er með hugar ærin mein áls ég flugu seldi. Flugvélin hét Cardinal (Kardináli), en sama daginn og Björn seldi hluta sinn I flugvél- inni kom fréttin um dauöa páfans i Róm, og Björn kvað: Ramakvein um Rómarstól reist er aö fóni Páli. Syng ég einnig sorgargól, seldur er Kardináli. Aður en legra er haldið, segir Björn: ,,Gef ég þér botn í for- prjónið siðasta”: Aður landinn færði fórn fékk ei neitt i staðinn. Þrúkkar um völinn þriein stjórn, þrefaldast nú skaðinn. Vonandi ekki, segir Björn, en þannig liggur i ríminu, og mörg gloppan og stóri sannleikurinn hefur orðið rimsins vegna. Björn meinar að botn sinn eigi þá að skilja sem öfugmæli. Þökk sé þeim MagnUsi og Birni fyrir bréfin. „Mættum við fá meira að heyra.” í Þjóðviljanum var auglysing frá þekktri húsgagnaverk- smiðju sem býður Mekka-hús- gögn með höfðingssvip, svo sem allskonar skápa, hornskápa, vinskápa o.s.frv. Kunningi Visnamálalas auglýsinguna og kvað: Ef þig vantar góðan grip, glæstan likan Mekka, þá hafðu skáp með höfðingssvip I horni og vin að drekka. garðinum Allt í gegnum símann. Spái I spil og bolla. Hringið I sima XXXXX milli 10-12 á morgnana og 7-10 á kvöldin. Strekki dúka i sama númeri. Auglýsing I VIsi. Kindarlegar fréttir. Er sauðaþjófnaður hafinn á ný? Fyrfirsögun I Tímanum. Þarfasti þjónninn. Um dómkerfiö eins og það er nú framkvæmt hef ég ýmislegt að athuga. Það er rétt hjá þér. Ég er á móti þvi að staöla hestadóma um of. Það er eins meö hross og kvenfólk. Ég vil bara láta per- sónulegan smekk ráða. Magnús Finnbogason I Tlmanum. Bara til skrauts. Sjómaðurinn átti aöra byssuna og ffkniefnin og öxina en kunningi hans átti hina byssuna. Að sögn Kristins Ólafssonar kom ekkert þaö fram viö yfirheyrslur, sem benti til þess að byssunum hefði verið smyglað inn i landið meö það i huga aö þær ætti að nota til ákveðinna verka siðar meir. Morgunblaöiö. Orsök og afleiðing. Saturday Night Fever er fyrst og fremst skemmtimynd og sem slik er hún skinandi góð. Sögu- þráðurinn er nánast enginn. Tra- volta leikur átján ára strákkvik- indi, sem á sér þrjú áhugamál: diskódans, spariföt og kvenfólk. Þau notar hann til tvenns, diskó- dans og uppáferða. Dagblaðið. Hvað með Bravó? Þegar forsætisráðherra hefur sagt: „heill forseta vorum og fósturjörð”, hrópa viðstaddir húrra fjðrum sinnum. Og þótt annar siður betri hafi ekki veriö fundinn, verkar þetta slavneska hróp ætiö jafn ókunnuglega enda þýöir það samkvæmt orðanna hljóðan „til Paradisar” og mætti ætla að Islenskum þingheimi t.d. væri eitthvað annaö ofar i huga svona i byrjun þings. Svarthöfði I VIsi. ...svo sem vér og fyrirgef- um vorum skuldunautum. Miðvikudaginn 4. þ.m. ákvað sambandsstjórn hins alræmda auövaldsrikis vestast i Þýska- landi, að gefa 30 hálf- eða al -- sósialiskum eymdarrikjum að fullu eftir skuldir samtals aö fjár- hæð DM 4.300.000.000 Morgunblaöið. Mörg eru Rússans launráð. Dagblaðið I góðum félagsskap. Franska stórblaöiö Le Monde birtir i hverri viku tilvitnanir i ýmis dagblöö viöa um veröldina. Óvenjulegt er að islensk blöð séu notuö til aö vitna I, en á dögunum var Dagblaðið eitt fimm blaöa sem tekið var úr. Hin voru Pravda, Time, New York Times og Le Soir. Dagblaðið. Lýs milda Ijós. Þannig má segja, að Hagalin sé i senn einn þjóölegasti höfundur íslendinga og jafnframt einhver alþjóðlegasti hornbjargsviti, sem sögur fara af i samanlagðri bók- menntasögu okkar. Morgunblaðið. Lífshugsjónin. Ég hefi alla tið verið á móti bjór og verð það þar til ég dey. Bragi Sigurjónsson alþm. Jólagleði í vændum. Veröum sennilega hengdir i desember. Alþýðublaðiö. Brestur er á illu frestur. Byggingariönaðurinn : Er við- komvbrestur á næsta leyti? Fyrirsögn í Morgunblaðinu. Iðntæknlstofnun íslands Keldnaholti óskar að ráða skrifstofumann. Vélritunarkunnátta nauðsynleg. Umsóknir skulu sendar stofnuninni að Keldnaholti, 110 Reykjavik, fyrir 28. októ- ber n.k. Fundur um kjaramálin Launamálaráð BHM boðar til almenns fundar um kjaramál nk. þriðjudag kl. 13.30 I Súlnasal Hótel Sögu Mætum öll Launamálaráð BHM LOKAÐ mánudaginn23. október frá kl. 12 á hádegi vegna jarðarfarar Sigurðar Ingimundar- sonar forstjóra. Tryggingastofnun rikisins Laugavegi 114 LOKAÐ vegna jarðarfarar Sigurðar Ingimundar- sonar forstjóra, mánudaginn 23. október n.k. kl. 13-15. Verkstjórnarfræðslan Iðntæknistofnun íslands Skipholti 37, Reykjavik. Auglýsingasíminn er 'l , 81333 j

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.