Þjóðviljinn - 28.10.1978, Síða 3

Þjóðviljinn - 28.10.1978, Síða 3
Laugardagur 28. október 1978 ÞJÓDVILJINN — SIÐA 3 Jón Sigurðsson hagrannsóknarstjóri nefndakóngur ársins 1977: Fékk 2,8 miljónir kr. í þóknun Heildarkostnaöur rikisins vid stjórnir, nefndir og ráð 229 miljónir Komin er út skýrsla um stjórn- ir, nefndir og ráö rlkisins áriö 1977 og kemur þar I ljós ab heildarfjöldi nefnda var á árinu 465 og haföi fjölgaö um 32 frá ár- inu áöur. ÁUs sátu 2340 menn i þessum nefndum og var kostn- abur viö þær nær 229 miljónir króna. Alls fá 17 menn yfir 1. miljón króna hver i nefndaþóknun og er þar ókrýndur nefndakóngur Jón Sigurösson hagrannsóknar- stjóri. Hann fékk á árinu 2.800.688 krónur fyrir þessi störf. Jón Sigurbsson fékk laun fyrir eftirfarandi nefndastörf: Samstarfsnefnd um háskóla- málefni (212.649 kr), verölagsráö Varðskip með loðnuflotanum meðan veiðar eru stundaðar ► yfír vetrarmánuðina Mjög er nú rætt um öryggis- mál sjómanna, cinkum loönu- sjómanna, meöan veiöar eru stundaöar langt noröur i hafi yf- ir þann árstima, sem allra veöra er von, vetrarmánuöina. Og nú nýverið hefur stjórn Far- manna og fiskimannasambands tslands skrifaö dómsmálaráöu- neytinu bréf, þar sem þess er óskaö, aö eitt varöskipanna sé æfiniega meö loönuflotanum á miöunum til aöstoöar ef eitt- hvaö bjátar á. Ingólfur Ingólfsson forseti FFSI, sagöi I gær aö hann von- aöist til aö dómsmálaráðuneytið yrði við þessari ósk; slikt yröi til mikils öryggis fyrir flotann. Hann benti á i þessu sam- bandi, aö meðan norski loðnu- flotinn stundaði veiöar I haust við Jan Mayen, heföi öryggis og eftirlitsskip allan timann verið meö flotanum; Norðmönnum þætti ekki verjandi að senda fiskiskip sin svo langt norður i höf, án þess að fyllsta öryggis væri gætt. —S.dór sjávarútvegsins (220.299 kr), stjórn veröjöfnunarsjóös fiskiðn- aöarins (247.200kr), stjórn trygg- ingasjóös fiskiskipa (109,824 kr.), fjárhæöanefnd tryggingasjóös fiskiskipa (69.832 kr), sáttanefnd (1.028.140 kr), kjaranefnd (368.732 kr) og kjaradómur (544.012 kr). Næstur i rööinni kemur Guömundur Skaftason lög- fræöingur meö 2.539.616 krónur en meginhluti þeirra eru laun fyrir formennsku i rikisskattanefnd (1.796.042 kr) og hefur hann vafa- laust haft þaö aö aöalstarfi aö einhverju leyti. Onnur launuð nefndastörf hans eru i kjaranefnd v/BSRB (297.559 kr), kjaradómi (283.048 kr.) og kauplagsnefnd (162.971 kr) Þriöji i rööinni er Guölaugur Þorvaldsson háskólarektor með 2.313.608 kr og siöan koma þeir Jón Skaftason alþingismaður með 2.178.756 kr. og Geir Gunnarsson alþingismaöur meö 2.178.617 kr. Þeir Jón og Geir hafá meginhlutann af sinum tekjum af sáttasemjarastarfi en Guðlaugur i minna mæli. Aðrir meö yfir miijón i nefnda- þóknun eru Egill Sigurgeirsson lögfræöingur meö 1.498.514 kr. (allt fyrir formennsku I mats- nefnd eignarnámsbóta), Torfi Asgeirsson hagfræöingur 1.252.101 kr, Ingi Tryggvason alþm. 1.242.305 kr. Benedikt Blöndal lögfræöingur 1.204.570 kr, Jóhannes Nordal seðlabanka- stjóri 1.206.229 kr, Gunnar Guðbjartsson form. Stéttarsam. bænda 1.187.108 kr., Páll Sigurðs- son ráðuneytisstjóri 1.155.738 kr., Ólafur Björnsson prófessor 1.127.008 kr., Brynjólfur Ingólfs- son ráöuneytisstjóri 1.072.760 kr., ólafur Ólafsson landlæknir 1.038.738 kr., Ingólfur Jónsson fyrrv. alþm. 1.018.185 kr., og Jón Sólnes alþm. 1.004.229 kr. — GFr Akvörðun Begins veldur reiði Bandaríkjamanna WASHINGTON, 27/10 (Reuter) - Akvöröun Begins um aö veita 4.! miljarði til nýbygginga í herteknu svæöunum hefur vakit mikla reiöi mebal bandariskrt valdhafa. Moshe Dayan ræddi i dag við Cyrus Vance utanrikisráöherra Bandarikjanna en án árangurs. Að loknum fundi þeirra sagöi Dayan aö enn væru aöilar á önd- veröum meiöi um þetta atriöi. Egyptar hafa látið i þaö skina að sendinefnd þeirra veröi kölluö Ferðamiðstöðin starfar áfram Skiptaráöandinn 1 Reykjavik hefur heimilaö Feröamiöstööinni hf. aö halda áfram rekstri félags- ins á sama hátt og hingað til. Eins og kunnugt er var Feröa- miöstööin hf úrskuröuö gjald- þrota fyrir skemmstu, en beim úrskurði var áfrýjaö til Hæsta- réttar. Málið verður tekiö fyrir 1. nóvember n.k., en þar sem reikningar félagsins sýndu eignir umfram skuldir, var veitt heimild til áframhaldandi reksturs. I frétt frá Feröamiöstööinni sem Þjóðviljanum barst i gær, segir að um leiö og stjórn félags- ins tilkynni almenningi þetta, vænti hún góöra samskipta viö viðskiptavini sina i framtiöinni. —AI Tánnlæknanemar vildu á Neskaupstað Stjórn Tannlæknafélagsins hefur sent frá sér fréttatilkynn- ingu þar sem mótmælt er þeirri ráöstöfun heilbrigöisráöuneytis- ins aö fá erlendan tannlækni til starfa á Neskaupstaö. Segir þar, aö ráöuneytiö hafi vitaö, aö tveir veröandi tannlæknar Islenskir höföu hug á aö hefja þar störf á komandi vori, og hafi þvi rangt verib aö þessu máli staðiö. I fréttinni segir, að siöan 1974 hafi 28 tannlæknar lokiö námi og fimm komiö heim frá námi er- lendis. Af þeim hópi hófu 22 störf utan Reykjavikursvæöisins. til Kairó vegna þessa uppátækis Begins. I dag var tilkynnt aö friöar- verölaun Nóbels yrðu veitt þeim Begin og Sadat. Fregninni var fagnaö i tsrael og sagt að nú væri ekki lengur þörf aö undirrita friöarsamninga, verölaunaút- hlutunin sæi um slikt. Begin mun ekki hafa verið undrandi yfir ákvöröun úthlutunarnefndarinn- ar i Osló. Fjölmiðlar i Egypta landi hafa veriö nokkuð tregir til aö fjalia um verölaunin. Foröast er aö láta nokkra skoöun i ljós Talsmenn PLO (Frelsishreyf- ingar Palestinu-Araba) hefui þegar látiö i ljós þá skoöun, af þar hafi tveir fasistar hreppt friöarverðlaunin. Heigi Ólafsson tefldi glæsilega meö svart á ööru boröi og var eini islendingurinn I karlasveit- inni sem náöi i vinning. Mónakó, Þýskalands, Banda- rikjanna, Argentinu og Skot- lands. Þaö voru þær Guðlaug, Birna og Ólöf sem tefldu I þess- ari fyrstu umferö. 1 karlaflokki hafa Hol - lendingar og Englendingar tekiö forystuna meö 4-0 sigrum gegn andstæðingum sinum i fyrstu umferö. Við látum fylgja með að lok- um einu vinningsskák islensku karlanna i 1. umferö. Helgi Ólafsson hefur svart á 2. boröi og teflir svo sannarlega djarft en glæsilega i þessari skák. r Olympíuskákmótið: Áfall í 1. umferð — en kvennasveitin hefur tekið forystu í sínum riðli tslenska karlasv. á ólympiu- skákmótinu varö fyrir meiri- háttar áfalli i fyrstu umferö mótsins sem tefld var i fyrra- dag. Hún tapaöi fyrir sveit kin- verska alþýöulýöveldisins sem fyrir mótiö kvaöst vera komin til Buenos Aires til þess aö læra af öörum. A ólympiuskákmót- inu eru 64 sveitir i karlaflokki frá jafnmörgum rikjum og var kinverska sveitin samkvæmt reglum i styrkleikaútreikningi talin i hópi fjögurra veikustu sveitanna. Islenska sveitin er hinsvegar nr. 12 aö styrkleika fyrir mótiö. Friörik Ólafsson tefldi ekki meö i fyrstu umferö- inni en Guömundur Sigur- jónsson tapaöi sinni skák á 1. boröi meþ þvi aö teygja sig of langt i jafnteflisstöðu. A ööru boröi vann Helgi Ólafsson sina skák i 26 leikjum. Margeir Pétursson tapaði á þriöja boröi og á fjóröa boröi missti Jón L. Árnason niöur gjörunniö tafl meö afleik. Islenska kvennasveitin, sem nú tekur þátt i Olympiuskák- mótinu i fyrsta sinn, byrjaöi hins vegar á glæsilegri hátt. Andstæöingurinn i 1. umferð var kvennasveit Mónakó og islensku stúlkurnar létu sér ekki nægja minna en að vina allar sinar skákir. Teflt er á þremur borö- um og hefur islenska sveitin tekiö forystu i sinum riöli, en i honum eru auk Islendinganna sveitir Ungverja, Dana, 1. d4 -Rf6 2. C4 - g6 3. Rc3 - Bg7 4. e4 - d6 5. Be2 - 0-0 6. Rf6 - e5 7. d5 - Rbd7 8. Bg5 - h6 9. Bh4 - g5 10. Bg3 - Rh5 11. h4 - g4 12. Rh2 - Rxg3 13. fxg3 - h5 14. 0-0 - f5 15. exf5 - Rc5 16. Hf2 - Bxf5 17. Rfl - Bg6 18. Hxf8+ - Dxf8 19. b4 e4 20. bxc5 - Bxc3 21. Hcl - Bb2 22. Kc2 - Ba3 23. cxd6 - Bc5+ 24. Kh2 - Df2 25. Bxg4 - Dgl + 26. Kh3 - Bf5 Hvitur gafst upp. Landsþing ungra Alþýðubandalagsmanna | Stjórnlist og skipu- lagsmál á dagskránni t gær hófst á Hótel Esju landsþing ungra Alþýöubanda- lagsmanna. Arthur Mortens, form. Æskulýösnefndar Alþýbu- bandalagsins, setti þingiö, en siöan flutti Svavar Gestsson vibskiptaráöherra ávarp. Einn- ig ræddi Guömundur J. Guömundsson formaöur Verka- mannasambandsins um verka- lýösmál og Þröstur Ólafsson hagfræöingur um stjórnlist só- sialista. Landsþinginu verður haldiö áfram i dag kl. 10 á Hótel Esju og veröur rætt i starfshópum um fræöslustarf, starf ungs fólks innan Alþýöubandalags- ins, skipulagsmál Æskulýös- nefndar, um utanrikismál, verkalýösmál, stjórnarsam- vinnu viö borgaralega flokka og stjórnlist sósialista. A morgun hefst þingiö kl. 10 og veröa þá kynnt og rædd álit starfshópa, ályktanir afgreiddar, kosnar undirnefndir sem starfa eiga fram aö næsta landsþingi og kosin ný æskulýösnefnd. Stefnt er aö þvi að þinginu ljúki fyrir kl. 18 á morgun. —ekh I ■ I m I i ■ I i ■ I ■ I ■ I ■ I ■ i

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.