Þjóðviljinn - 28.10.1978, Qupperneq 9

Þjóðviljinn - 28.10.1978, Qupperneq 9
Laugardagur 28. október 1978 ÞJÓDVILJINN — SIÐA 9 Skömmu áöur en Alþingi var slitiö i vor samþykkti það ný lög um Þjóðleikhús. Þessarar laga- setningar hafði verið beðið með mikilli öþreyju, þvi að þaö hefur lengi verib mál margraað skipu- Iag hússins séað mörgu leyti gall- að og valdahlutföllin innan þess ekki sérlega lýöræðisleg. En röggsemi þingsins sannaði átak- anlega dæmisöguna um jóðsótt fjallsins; nýju lögin eru að mestu soðin upp úr þeim gömlu.og þó að i þeim sé að finn&einstaka úrbætur er valdaskiptingin sú hin sama og áður. Lögin tryggja listamönn- um hússins engin áhrif á stjórn þess, sem er öll i höndum em- bættismanna og fulltrúa stjórn- málaflokkanna. Svo römm er óánægja leikhúss- fóiks með þau að hennar sér jafn- vel stað I „leiðurum” þeim sem forráðamenn leikhúsanna skrifa i leikskrár I haustbyrjun og er þó gyllti Uturinn sjaldnast sparaður i slikum skrifum. Hver stjórnar Þjóðleikhúsinu? Ifyrstu grein nýrra laga stend- ur: „ÞjóðleikhUsið er eign Is- lensku þjóðarinnar.” Þetta þýðir auðvitað ekkert annað ai að leik- húsiö er eign íslenska rikisvalds- ins. Rlkisvaldinu skipta stjórn- málaflokkarnir með sér og þaö eru fulltrúar þeirra, sem skipa fjögur sæti af fimm i þjóðleikhús- ráði, sem fara með raunverulegt húsbóndavald I leikhúsinu. Aö sjálfsögðu eru lagasmiðir kurt- eisara fólk en svo að þeir segi þetta berum orðum, en klausa sú, sem skilgreinir hlutverk þjóðleik- húsráðs, hljóöar svo: „Hlutverk þjóðleikhúsráðs er að hafa eftirlit með starfsemi og rekstri þjóð- leikhússins. Leita skal tillagna þjóðleikhúsráðs um allar meiri- háttar ákvarðanir er varða stofn- unina.” Orðalag þessarar klausu er æði loðið og þar segir hvergi gð ráðið hafi raunverulegt ákvörö- unarvald. En siðar I lögunum kemur berlega I ljós að þjóðleik- hússtjóri sem á þó að heita hæst- ráðandi I húsinu, er bundinn á höndum og fótum af viljaráðsins, þvl að I 11. grein laganna segir: „Þjóðleikhússtjóri stjórnar leik- húsinu samkvæmt samþykktri starfs- og fjárhagsáætlun... (undirstrikun min, JVJ). Leik- hússtjórinn veröur aö leggja starfsáætlun slna fyrir ráðiö og fær ekki að hrinda henni I fram- kvæmdfyrr en meirihluti ráðsins hefur lýst velþóknun sinni á henni. Sé ráöið óánægt með áætl- unina hefur þaö fullt vald til að skipa leikhússtjóranum að breyta henni. Stefna hans getur þar af leiðandi aldrei brotið I bága við afstöðu ráðsins að neinu verulegu leyti. ÞjóðleikhUsstjóri er þvi skör neðar I valdapýramída húss- ins, þó svo það sé hann sem eigi aðhafa „forystu um aö móta list- ræna stefnu” þess og beri alla á- byrgð á rekstrinum. óeðlilegt vald. Er hér um eðlilega valdskipt- ingu að ræða? Spurningunni verð- ur að svara I tvennu lagi, því að hér er um tvenns konar vald að ræða, annars vegar listrænt, hins vegar fjárhagslegt. Hvað list- ræna stefnuhUssins varðar, fæ ég ekki komið auga á nein rök með þvi að menn sem valdir eru eftir pólitiskum verðleikum fái að skipta sér af henni. Þjóðleikhús- stjóri ætti að vera fullfær um að annast þá hlið málsins með allt það liö ráðunauta sem hann á að fá sér til aðstoðar samkvæmt nýju lögunum. Þetta vald ráösins i er ekki sist fáránlegt vegna jþess aöllögunúmepekkert sem skyld- ar flokkána til að skipa leikhUs- , fróða menn i' ráöið. Stöðnuh og skortur á endurnýjun eru um á þessar ipundir-.mjög áberandi. I vestrænu leikhúsi og ljóst er aö það á vió ýrnsa örðugleika.að etja , sem hamla í$trænum þroska þesg. Afskipti mahna sem ekki hafáh'ægriegári skilning á þessum vandámáluni geta beinllnis somið I v«g fyrir að lausn finnist i þeim. Lagasmiöir hafa því tæp- lega vérið aö að hugsa um list- ræna velferð leikhússins þegar þeir bjuggu þannig um hnútana. Peningavaldið. Um fjárhagshliðina gegnir e.t.v. nokkuðöðru máli. Leikhús- iðer aöhlutakostaö af almannafé og það er ekki óeðlilegt að rlkis- Athugasemdir viö ný Þjóöleikhúslög vaidið vilji fylgjast meö þvL að peningum skattborgaranna sé ekki kastað á glæ. En fjárhags- valdið gefur ráðinu kverkatak á allri starfsemi hUssins og jaftivel þótt tekiö væri fram I lögum að ráöinu bæri aðeins að hafa á hendi fjárhagslegt eftirlit gæti það stjórnaö starfi leikhússins ð- beint I krafti þess. Það gæti t.d. borið þvi viö að vegna óeðlilegs halla veröi að setja upp fleiri „kassastykki” og draga úr flutn- ingi á alvarlegri verkum. Pen- ingavaldinu hljóta þannig ævin- lega að fylgja viötæk áhrif og ég hygg aö þessi galli sé of samþætt- ur eðli kerfisleikhUssins (þetta orð er tilraun til þýðingar á þvi sem á skandinavfekum málum nefnist institutionsteater) til þess að hann megi uppræta með öllu. Væri rlkisvaldið hins vegar reiðu- búið að verja nægilegu fé til reksturs hússins, hlutverk ráös- ins það eitt að gæta þess að fé sé ekki beinllnis sólundað, t.d. með óhagkvæmum rekstri eöa eyðslu- semi, og fulltrUarnir I þvl allir áfram um að veita leikhúsfólkinu fulltlistrænt frelsúdrægi verulega úr skaðlegum afleiðingum þess- arar skipanar. Því rpiður er vfct Htil von til þess að málum verði þannig háttað I nánustu frámtiö. En þaðer engu aö slður óverjandi að löggjafinn skuii ganga á lagiö og notfæra sér fjárhagsaöstöðu hússins til þess að geta haft áhrif á starfsemi þess, svipaö og gert er {umræddum lögum. þjóðleikhússi Vikjum nú að þjóðléiikhússtjóra og ráðningarskilyrðum hans. í nýjú lögúnum hefiir sú óhæfa véríð, afnumsin ; áð þjóöleikhúS-- stjóri skuli ráðinh til lifstiðar eins og aðrir opinbérir starfsmenn. Hann er nú ráðinn til fjögurra ára I senn og má framlengja ráðning- artjmann. til átta ára; eftirleiðis mun þvl sami maður ekki gegna þessu embætti lengur en átta ár I senn. Þessi breyting er viöur- kenning á því að þjóðleikhús- stjóri eigi fremur að vera list- rænnstefnumótandi en embættis- maöur og fulltrúi þess opinbera gagnvart starfsmönnum leik- hússins. Hugmyndin að baki svo tlðra stjórnandaskipta er að sjálf- sögðu sú, aö leikhús veröi að vera opiðfyrir þeim stefnubreytingum sem eiga sér stað I öllum list- greinum, annars staðni það. Jón vióar Jónsson skrðfar um Seikhús En hverjir eru það svö sem > veija þjóöleikhússtjóra og hafá .: þanmg að mijdu leyti i hendi sér hvernig starfsemi 1 eikhússins þr,óast?:; Mértntamálaróðherra. ræöur þjóöleikhUsstjóra, „að fenginni umsögn þjóöleikhús- ráös”, og hann verður einnig að leita til ráösins þegar ákveöið skai hvort þjóöleikhússtjóri skuli endurráðinn. 1 lögunum er ekki einu sinni gert ráð fyrir að lista- menn hússins séu spurðir álits. Skyldi maöur þó ætla að fáir séu hæfari en þeir til að dæma hverj- um er best treystandi til aö móta stefnu hússins og starfsemi, þannig að kraftar þéssnýtist sem best. Eigi leikhússtjóra að farn- ast vel I starfi verður hann að njóta óskoraðs trausts þeirra sem hann á að stjórna. Það er afar ó- heillavænlegt að fram hjá lista- mönnum hússins skuli gengiö með þessum hætti. 1 lýðræöislegu leikhúsi velja listamennirnir leikhússtjórann sjálfir. Eg er ekki viss um, aö slikt gæti gengið i leikhúsi með jafn fjölmennt starfslið og Þjóö- leikhúsið, þar sem eðlilegt er aö skoðanir séu skiptar um stefnu- mótun og umsækjendur. Sé um verulegan ágreining að ræða kann einfalt meirihlutakjör jafn- vel að gera illt verra og auka á togstreituna. 1 sllkum tilvikum er nauðsynlegt að einhver utan hússins taki af skarið og útnefni leikhússtjórann og er langeölileg- ast að það sé menntamálaráð- herra, ekki slst vegna þeirra skuldbindinga sem leikhússtjór- inn hlýtur að taka á sig gagnvart rlkisvaldinu. En það er jafn nauö- synlegt að ráðherra hafí umsagn- irlistamanna hússins til hliösjón- ar og taki tillit til þeirra þegar hann veitir stööuna. Staða þ jóðleikhússt jóra. Ég hef hér á undan reynt aö syna fram á að það sé i hæsta : máta óeðlilégt að menn sem eru I éngum tengslum við listrænt star f; 'IeikhUs.s ráðiférðþessog að allar mikilvægustu ákyásðainir séu teknar án sámráðsvj^Iistamenn- :iná,' Hér gætu forráðamenn leik- hússins svarað þvf til að þannig sé þessu.. alls ékki háttáö i fram- .Íptæmd og - starfsfólfcíö stöðugt haft meö i ráðum. Þáö segir sig raunar sjálft að leikhús verður ekki rekið án éinhverrar viðleitni I þessa átt. Þar kemur öörum fremur til kasta þjóöleikhUsstjóra að virkja listamennina til þátt- töku I stjórn hússins.og e.t.v. má segja aö hér sé um svo sjálfsagða skyldu að ræöa að óþarfi sé að lögbjóöa hana. En þvi miður er ekkert i skipulagi hússins sem styður leikhússtjórann I þessari óhjákvæmilegu viðleitni og I raun og veru er valdskiptingunni þann- ig farið að þægilegast er fyrir hann að draga kstamennina sem minnst inn i stjórn hússins. Færu þeir að skipta sér af rekstri þess að ráði, gæti sú staða hæglega komið upp að þá greindi á viö þjóðleikhúsráö um veigamikil mál —og tækist þjóöleikhússtjóra ekki aö miöla málum, væri hann kominn 1 býsna óskemmtilega aö- stööu. Staða hans er nefnilega ekki sllk að hún leyfi hon- um að taka afstööu með eða móti öörum hvorum þessara aðila. Brygðist hann við slikri aö^ stööu meö því aö snúast á sveif meö listamönnum gegn ráðinu, væri hann kominn með hinn raunverulega valdhafa I húsinu upp á móti sér og það er vonlaust aö hann geti haldið sllkt ástand Ut til lengdar. Tæki hann hins vegar afstööu með ráðinu móti listamönnum myndi hann fyrirgera trausti þeirra og jafnvel lenda i einhvers konar einvaldshlutverki innan hússins. Hvorn kostinn sem hann tæki er viöbúið að hann myndi riða til falls fyrr eða síðar. Auð- vitaðreynirlöggjafinn að látallta svo út sem togstreita af þessu tagi geti aldrei komið upp og aðferö hans til þess er einfaldlega sú aö útiloka starfsmenn hússins frá allri þátttöku i stjórn þess. Sá sem sýpur seyðið af þessu fyrir- komulagi er svo þjóðleikhússtjóri og það er hætt við að hann neyöist oft til að leika tveim skjöldum til þess að dylja að skyldur hans eru klofnar frá rótum. Að minni hyggjubýður þetta fyrirkomulag upp á alls kyns baktjaldamakk og valdníðslu, sem getur haft hinar uggvænlegustu afleiðingar fyrir alla starfsemi leikhússins. Lýðræði i leikhúsi. Skipulag leikhúss hlýtur að miða að þvl að gera sérhverjum listamanni þess kleift að nýta hæfileika sina til fullnustu. A seinni árum hefur mikið veriðum það rætt erlendis að þessu marki verði ekki náð nema með auknu lýðræði innan leikhússins. Ýmsir frjálsir leikhópar hafa gengið mjög langt I þessum efnum og sýnir þróun sumra þeirra raunar aö einföld meirihlutastjórn lista- mannanna er engin trygging gegn listrænni stöðnun. En þó að stjórn listamannanna dugi ekki ein til, þá er hitt víst aö án virkrar og á- byrgrar þátttöku þeirra I stefnu- mótun leikhússins, koðnar það niður. Það er mikil hætta á þvl aö listamaður sem venst þvl aö farið sé með hann eins og þræl, sem hefur það eitt hlutverk aö fram- kvæma starfsáætlanir valda- manna, glati þvl frumkvæði og þeirri ábyrgöarkennd sem er nauðsynleg þroska hans sem listamanns. 1 jafn stóru leikhúsi og Þjóð- leikhúsinu verður ekki komist af án styrkrar yfirstjórnar. Leggi sá sem hefur hana með höndum sig 1 Ilma við að virkja lfetamennina til þátttöku i allri stefnumótun, ætti slik skipan ekki að torvelda þroska leikhússins, þvert á móti. Á meöan stjórnunarform Þjóö- leikhússins haldast óbreytt er þó hættviöaögóöur viljiráöamanna hrökkvi skammt. Ekkert nema róttæk lagabreyting fær haggað þeirri staöreynd aö miöstýrö bákn, litt l anda þeirra stjórnun- arheföa sem frelsisunnandi lýö- ræðisþjóöir á borð viö tslendinga stær a sig af, liggur e ins og m ara á allri starfsemi hússins. Þetta bákn eitrar út frá sér á mun læ- vfelegri hátt en menn gera sér al- mennt greinfyrir og kemur i raun og veru I veg fyrir að leikhúsiö geti náð þeira fögru markmiöum sem þvier gert að keppa aö, I ann- arri gretaf laganna. Sagnfræöileg- ar rannsóknir verða að skera Ur urp hvaðá þölvun þessir stjórnar- hættir háfa gert á þeim tæþu þremur áratugum sem TeikhUsiö hefur starfað, en mér býðyr I grurtað sá slaþpleifci sem óft og tiöum hefur eínkennt listrænt starf Þjóðleikhússins hafi að tals- verðu leyti átt rætur aö rekja til váldaleysis listamannanna. Nytt Alþingi er nú komiö saman og ný stjðrn sest að völdum. Það ættú því aö vera allgóöar horfur á þvfað þessi lög Veröi hið bráöasta tekin til endurskoðunar og endir bundinn á þá hneisu að leikhús, sem kostað er af almannafé, skuli drepið I dróma flokksræðis og gerræöislegra stjórnarhátta.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.