Þjóðviljinn - 28.10.1978, Page 14

Þjóðviljinn - 28.10.1978, Page 14
14 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 28. október 1978 Hér sjást stúlkurnar viö hinar ýmsu æfingar á Iþróttasalnum. Á æfingu hjá Gerplu Eins og fram kom i blaðinu I gær hefur tþróttafélagiö Gerpla i Kópavogi tekiö nýtt og glæsilegt iþróttahús i notkun. Meö tilkomu þessa húss geta nú allar deildir og flokkar félagsins æft undir sama þaki. en áður var iþróttafólkiö á hrakhólum meö æfingaaöstööu. Oflug starfsemi verður hjá Gerplu i vetur og eru góðar horfur á þvi að félagið fái sovéskan þjálfara til aö stjórna æfingum fimleikafólksins. A dögunum leit ljósmyndari blaösins inn á fim- leikaæfingu stúlkna i þessu veglega iþróttahúsi og birtist hér árangur þess. Fimleikarnir í Strassbourg Þær sovésku fimastar Nú er lokið flokka- keppni kvenna á heims- meistaramótinu í fim- leikum. Sovésku stúlkurnar höfðu forystu eftir skylduæfingarnar, juku hana i frjálsu æf ingunum og stóðu því uppi sem öruggir sigur- vegarar. Þessi sigur þeirra er hinn þriðH í röð i heimsmeistarakeppni. Sovéska sveitin viröist vera Frá Sundsam- r bandi Islands Dómara- námskeið Akveðið hefur verið að efna til dómaranámskeiös i sundiþrótt ef nægileg þátttaka fæst. Námskeið- ið verður haldiö í Reykjavik dag- ana 13., 14. og 16. nóvember 1978 og hefst alla dagana kl. 20.00 (kvöldnámskeiö ). Allar nánari upplýsingar veitir Torfi Tómas- son, Hliðarbraut 13 Kópavogi i sima 423 1 3, og tekur hann jafn- framt á móti þátttökutilkynning- um, sem verða að hafa borist eigi siðar en 12. nóv. n.k. skipuð mjög jöfnum og snjöllum stúlkum. Rúmenska sveitin hafði ekki af þessu að státa. og þrátt fyrir ágæta hæfni Eberle og Comaneci hlaut sveitin að lúta i lægra haldi fyrir þeirri sovésku. Þær Elina Mukhina, Natalia Shaposhnikova og Nelli Kim, allar frá Sovétrikjunum, náðu sér vel á strik i fyrradag. Mukhina fékk einkunnina 9,95 fyrir gólfæfingar og Nelli Kim 9,90 fyrir stökk og gólfæfingar. Eftir keppnina á þriðjudag haföi Maria Filatova hæsta einkunn einstaklinga, en henni uröu á mistök i æfingum á slá, missti takið og féll á bakið. Þegar yfir lauk reyndist Mukhina hafa náð bestri samanlagðri einkunn ein- staklinga, en næst henni kom Nadia Comaneci. Þaö hefur ekki farið fram hjá neinum, að Nadia hefur ekki átt eins góöu gengi að fagna á þessu móti og i Montreal, þar sem hún fékk þrisvar sinnum einkunnina 10,00. Sjálf segist hún hafa mörg áhugamdl auk fimleikanna og hafi þvi ekki æft jafn vel og áö- ur. Rööin i flokkakeppninni varð þessi: Sveit Sovétrikjanna 388,95 st. Sveit Rúmeniu 384,25 st. Sveit A-Þýfkalands 382,25 st. Sveit Ungverjalands 377,80 st. Sveit Banda.'ikjanna 377,45 st. Sveit Tékkóslóvakiu 376,60 st. Sveit Japans 370,60 st. Sveit Kanada 369,90 st. Sveit V-Þýskalands 369,25 st. Sveit Búlgariu 367,85 st. iin stúlknanna I æfingu á fjaðrabretti. Siguriin Halldórsdóttir, Hrund orgeirsdóttir, Gyöa Tryggvadóttir og Björk ólafsdóttir fylgjast meö Taliö frá vinstri). .jósmyndir: Leifur Kristin Gfsladóttir i handahlaupi án handa eins og fimleikafólk kallar æfinguna. Gyenne Hilty æfir sig á Ólympiuslá Körfuboltinn um helgina Úrvalsdeild Laugardagur Akureyri kl. 14.00 Þór-KR Njarðvik kl. 14.00 UMFN-Valur Sunnudagur Hagaskóli kl. 15.00 IS-IS 1. deild Laugardagur Hagaskóli kl. 14.00 Fram-UMFG Hagaskóli kl. 15.30 Armann-IBK Glerárskóli kl. 15.00 Tindastóll-KFI Vestm.eyjar kl. 13.30 IV-Snæfell Sunnudagur Glerárskóli kl. 15.00 KFÍ-Tindastóll Handboltinn um helgina Laugardagur Vestmannaeyjar Kl. 13.15 2. deild karla Þór (Vm) — KA kl. 15.00 2. deild karla Týr — 1A Varmá kl. 14.00 2. deild kvenna UMFA - UMFG kl. 15.00 3. deild karla UMFA - Dalvik Akureyri kl. 15.00 1. deild kvenna Þór - Haukar kl. 16.00 2. deild karla Þór - KR Laugardalshöll Kl. 15.30 1. deild kvenna Fram - UBK kl. 16.30 1. deild karla 1R - Fram kl. 17.45 2. deild kvenna 1R - UMFN Sunnudagur Varmá Kl. 13.30 3. deild karla UBK - Dalvik Laugardalshöll - Kl. 20.10 1. deild kvenna Vikingur - Valur kl. 21.10 1. deild karla Vikingur - Valur

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.