Þjóðviljinn - 16.11.1978, Blaðsíða 8
8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 16. nóvember 1978
BENEDIKT SIGVALDASON, skólastjóri Laugarvatnsskóla:
„Trúi því ekki að
hlutverki héraðs-
skólanna sé lokið”
Benedikt Sigvaldason
hefur verið skólastjóri
Héraðsskólans að
Laugarvatni í 19 ár. Við
spurðum hann fyrst,
hvort ekki hefðu orðið
miklar breytingar á
skóiastarfinu vegna
grunnskólalaganna.
Fækkunnemenda
— Jú, þaö er mikiö sem hefur
breyst, sagöi Benedikt. — Siöasta
landsprófiö var 1976 og i fyrra var
hér eins og annars staöar haldiö
siðasta gagnfræðaprófiö og jafn-
framt fyrsta grunnskólaprófiö.
Nú taka allir nemendur 9. bekkj-
ar sama prófiö og þaö er auövitaö
grundvallarmunur. Hafrarnir eru
nú ekki lengur aögreindir frá
sauðunum, nú er skipt I bekki
eftir stafrófsröð en ekki eftir getu
eins og einkenndi landsprófs-
timabiliö, þegar rjóminn var
fleyttur ofan af i landsprófsdeild-
irnar.
Þaö gerist um þetta leyti hér
hjá okkur, aö aðsóknin fer ört
minnkandi að skólanum. Þróunin
siðustu þrjú árin hefur veriö sú,
aö fyrir þrem árum voru nem-
endur rúmlega 90, i hitteöfyrra
86, og i fyrra hrapar talan svo
niöur i 54. Þetta gerist þegar
grunnskólaöldin er aö hef jast, og i
fyrra voru hér rúmlega helmingi
færri nemendur en hér voru
lengst af. Um tveggja áratuga
skeiö höföu veriö aö jafnaöi um
120 nemendur hér, þar af lengst af
rúmlega 100 i heimavist, en 12—20
heimangöngunemendur.
Þessi fækkun nemenda hófst i
kringum 1970 og þaö var sérstak-
lega eitt, sem olli þvi ööru frem-
ur. Mikil og hröð uppbygging
haföi oröiö i unglinga- og gagn-
fræöaskólum I Arnessýslu, en á
árunum um og eftir 1960 voru allt
aö 62% nemenda Héraösskólans
úr Arnessýslu. En um leiö og upp-
bygging sveitaskólanna veröur
svona hröð, þá minnkar aö sama
skapi aösókn Arnesinga, aö
Héraösskólanum. Meöan skólinn
var fullskipaöur fjölgaöi um leiö
þeim nemendum, sem viö tókum
inn i skólann úr öörum byggöar-
lögum.
Sudurnesja-
menn hverfa
Breytileg aösókn og breytileg
dreifing nemenda miöaö viö
landshluta endurspeglar þannig
iðulega þróun skólamálanna á
einstökum svæöum. Mér er dæmi
um þetta i fersku minni. Nem-
endur af Suðurnesjum höföu veriö
hér ákaflega fjölmennir áratug-
um saman og vegna staösetn-
ingar skólans hafa nemendur
Benedikt Sigvaldason, skóla-
stjóri.
alltaf sótt hingaö frá Faxaflóa-
svæöinu. Til dæmis var 5.—6.
hver nemandi skólans úr Grinda-
vik fyrir nokkrum árum. Svo
kemur Fjölbrautaskóli Suöur-
nesja 1976 og þá hverfa Suöur-
nesjamenn héöan. Viö höfum
fengiö einn eöa tvo nemendur
þaöan siöan. Þetta er mjög slá-
andi dæmi.
Nýjar
námsbrautir
— Hvernig hafiö þig brugöist
viö þessarri þróun?
— Okkur þótti þetta einkenni-
legt ástand i fyrrahaust, aö vera
meö hálfsetinn skólann. Viö fór-
um þvi aö ræöa málin, héldum á
fund ráðuneytismanna og skýrö-
um frá horfum mála. I byrjun
desember i fyrra var svo efnt til
ráöstefnu um skólamál hér á
Laugarvatni og var boöið til
hennar fjölda skólamanna af
Suöurlandi. Upp úr þessu var sett
á laggirnar nefnd undir forystu
Stefáns ólafs Jónssonar deildar-
stjórai menntamálaráöuneytinu,
skipuö fulltrúum frá öllum skól-
um hér á Laugarvatni. Nefndinni
var ætlaö aö leggja um þaö lln-
urnar, hvernig nýta mætti þann
húsakost og þá kennslukrafta,
sem hvort tveggja var oröið illa
nýtt. Þaö sama geröist nefnilega i
Húsmæöraskólanum, hann var
hálftómur i fyrravetur. Otkoman
varö sú, aö ákveðiö var aö efna
hér til nýrra námsbrauta, þ.e.
auka námsframboöiö meö stór-
aukinni samnýtingu á húsnæöi og
kennslukröftum á staönum.
Sl. vor var gefiö út kynningarrit
um starf skólanna á Laugarvatni,
þar sem m.a. voru kynntar þess-
ar áformuðu námsbrautir. Ritiö
var sent skólum viösvegar um
land og vakti nokkra athygli. Og '
svo bregöur viö, aö I haust er okk-
ar skóli fullskipaður aftur.
Stóraukid
samstarf
skólanna
— Samvinna skólanna hér á
Laugarvatni hefur þá stóraukist?
— Já, samstarfiö hefur aukist
mjög. Hér eru nú þrjár nýjar
námsbrautir og ein I Húsmæöra-
skólanum. Kennarar frá Mennta-
skólanum koma hingaö i kennslu
og kennarar Héraösskólans
kenna nokkuö i Menntaskólanum.
Okkar nemendur sækja nú sitt
heimilisfræðanám i Húsmæöra-
skólann og efnafræöinám stunda
þau i efnafræöistofnu Mennta-
skólans. Þetta hefur t.d. þau á-
hrif, aö nú eru 10 stundakennarar
viö Héraðsskólann, en voru engir
I fyrravetur. Viö erum hér t.d.
með iþrótta- og félagsmálabraut.
Nemendur hennar læra allar
kjarnagreinar meö bóknáms-
brautunum. Bóknámsdeild I
starfar sem einskonar útibú frá
Menntaskólanum, sömu bækur
eru notaöar o.s.frv. Og nú er allt
heimavistarrýmiö nýtt, en viö
leigjum Iþróttakennaraskólanum
rými fyrir átta pilta.
Þiggjenda-
mórallinn
— Þú nefndir þaö I skóla-
setningarræöu þinni i haust, aö
félagslifiö i skólanum heföi tekiö
nokkrum breytingum á siðustu
árum. Hvaö veldur þvi?
— Félagslifiö var reyndar byrj-
aö aö breytast áöur en þessi fækk-
un nemenda kom til. Siöasta
skólablaöiö var gefiö úr 1969 og
árshátiö hefur ekki veriö haldin
siðan 1973. Þaö vill svo til, aö
þetta gerist I kjölfar sjónvarps-
aldar. Viöhorfiö er oröiö hlutlaus-
ara, þiggjendamórallinn oröinn
allsráöandi. Aöur voru nemendur
aö basla I þvi vikum saman aö
æfa leikrit fyrir árshátlöina, en
nú er enginn áhugi á sliku. Þaö er
eins og skemmtiiönaöurinn hafi
oröiö allsráöandi. Þetta er auö-
vitaö ekki bundiö viö okkar skóla,
en þaö veröur meira áberandi I
svona litlum skóla. Ég held aö
viðhorfin hafi breyst talsvert viö
tilkomu sjónvarpsins.
— Hvenær kom sjónvarp hingaö
í skólann?
— Sjónvarpið kom haustiö 1970.
Það er talsvert horft á þaö, en
þaö hefur þó dalað upp á siökast-
iö.
Biðstaða
— Gegna héraösskólarnir sama
hlutverki og áöur?
— Þeir gegna ekki sama hlut-'
verki og áöur, en þaö er brenn-
andi spurning hvert hlutverk
þeirra veröur. Ég er afskaplega
ófús aö trúa þvi, aö hlutverki
héraösskólanna sé lokið. Stórauk-
in aösókn aö þessum skóla nú I ár
bendir til aö komin hafi veriö upp
einskonar biöstaöa. A mörgum
þeim héraösskólum sem ég hef
haft fréttir. af, er allt fullskipaö
og þaö viröist vera mikil hreyfing
til aukinnar aðsóknar i ár.
— En skólarnir veröa þá aö
laga sig aö breyttum tlmum?
— Já, þetta stendur og fellur
meö tilkomu nýrra námsbrauta,
þaö getur skipt sköpum fyrir
skólana. Viö hér á Laugarvatni |
höfum I raun mjög litiö svæöi sem »
viö getum kallað okkar-, þaö ef
aöeins Laugarvatn og hluti aÞN I
Grimsnesinu sem heyrir undir l
Laugarvatn hvaö grunnskólanám »
varöar. Okkar sérskólasvæöi er
þvi mjög lítiö og þessvegna er nú
svo komiö, aö siöustu árin hefur I
obbinn af okkar nemendum kom- »
iö langt aö. A fimmtán árum
hefur fjöldi Arnesinga meöal
nemendanna hrapaö úr 62’I 24%. I
Nú eru 56% nemenda úr Arnes- ■
sýslu og af Faxaflóasvæöinu, en
hinir, 44%, eru úr alls 10 sýslum
og 4 kaupstööum viösvegar um I
landiö. »
Athvarf \
í tilverunni
— Er eitthvaö um þaö, aö erfiö-
ir nemendur eöa „vandræöá- .
börn” frá Reykjavik séu send I
hingaö I skóla?
— Það er i rauninni ekki hægt
aö segja þaö. Hér hefur veriö
talsvert af nemendum úr Reykja- I
vik og viöar aö, sem ýmissa hluta I
vegna hafa þurft á heimavist aö J
halda. Þar á ég t.d. viö munaöar-
leysi, timabundna erfiðleika svo
sem húsnæöisleysi, foreldrar eru I
starfandi erlendis, en lika börn
frá heimilum I upplausn,
drykkjumannabörn t.d. Viö höf- |
um haft mikil og góö samskipti
viö félagsmálastofnanir I
Reykjavik og Hafnarfiröi. Meiri-
hlutinn af þessum börnum hefur
reynst okkur góöir og þakklátir
nemendur. Auövitaö hafa stund- ,
um flotið meö vandræöageplar, .
en þeir hafa alls ekki sett svip á I
skólastarfiö. En þessum börnum ■
finnst þau fá hér athvarf, ein- I
hvern visi aö föstum punkti i til-
verunni. Og þaö er kannski það á- I
nægjulegasta sem ég hef upplifað »
i minu starfi I 25 ár aö geta gert
eitthvaö fyrir þau börn, sem
hvergi hafa haft höföi sinu aö
halla. »
Gott samstarf
— Hvernig er aö stjórna heima- I
vistarskóla?
— Þaö er þreytandi. Þaö er svo
margt sem viö þurfum aö hafa af- ■
skipti af og á óllklegustu timum I
sólarhringsins. En viö höfum bor-
iö gæfu til aö hafa hér úrvals |
kennara, og samstarfið innan ■
kennarahópsins hefur alltaf veriö I
meö miklum ágætum. Þaö tel ég I
algjört frumskilyröi þess aö geta |
staöiö I þessu starfi. Þetta er á- ■
kaflega þreytandi og erilsamt og I
stundum vanþakklátt starf, en
svo koma þegar best lætur
skemmtilegar stundir, sem gera ■
það aö verkum aö manni finnst I
þetta ómarksins vert. Og þegar
allt gengur vel, er oft alveg ótrú- |
lega ánægjulegt aö starfa viö ■
svona skóla.
íþróttamannvirki
vantar
— Hefur nokkuö veriö byggl
fyrir skólann siöustu áratugina? I
— Nei, siðustu tvö húsin voru
byggö 1947. Þær framkvæmdir
sem siöan hafa veriö á vegum
skólans hafa veriö fólgnar i viö-
haldi og endurbótum á þeim
húsakosti sem fyrir var. A árun-
um 1955—6 voru burstirnar
byggðar aftur eftir brunann 1947, 1
og kvennaheimavistin tekin aftur
I notkun réttum tiu árum eftir
brunann. Hér vantar ný Iþrótta-
mannvirki — nýja sundlaug og
nýjan iþróttasal. Sú aðstaða sem
fyrir er, er gersamlega óviöun-
andi og óboöleg. Nemendum
hefur fjölgað og I tþróttakenn-
araskólanum fjölgaöi nemendum
um 50% i vetur. Mér finnst þetta
mál ekki þola nokkra biö. 1
Iþróttahúsinu er sifelld örtröö,
þaö er notaö frá morgni til kvölds
en dugir ekki til. Núna hefur það
gerst I fyrsta sinn hjá okkur, aö J
við höfum oröiö aö fækka leik-
fimistundum i Héraösskólanum. I
Þær hafa verið þrjár á viku fram
aö þessu, en eru nú aöeins tvær. ,
—eös |
Texti: eös
; Myndir: eik
L__________
Fimmtudagur 16. nóvember 1978 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 9
t kennslustund hjá óskari Ólafssyni.
Héraðsskólinn að Laugarvatni átti
fimmtugsafmæli 1. nóvember si. og
var þess minnst með hátiðlegri skóla-
setningu. í vetur stunda 100 nemendur
nám i skólanum, og 90 þeirra búa á
heimavist. Fastir kennarar auk skóla-
stjóra eru fimm, og stundakennarar
tiu. Þegar Þjóðviljamenn renndu i
hlað Héraðsskólans á föstudaginn,
stóð fyrir dyrum þriggja daga heigar-
leyfi og var þvi i mörgu að snúast. Við
skyggndumst um i skólanum og rædd-
um við Benedikt Sigvaldason skóla-
stjóra, Bergstein Kristjónsson fyrrv.
kennara og Gisla Þór Guðmundsson
formann nemendafélagsins.
Nemendur Ibóknámsbraut II eru þarna aökynnast möguleikum myndvarpans I teiknitlma.M.a. teiknaþeir upp
myndir úr dagblööunum.
„Fátækt nemenda
á kreppuárunum
er minnísstædust”
Spjallað við
Bergstein
Kristjónsson
kennara,
mötuneytisráðs-
mann og
bókhaldara
— Ég byrjaði að kenna
hér 24 ára gamall, haustið
1931. Þá var kreppan að
byrja og Hitler rétt kominn
til valda.
Við sitjum í stofu hjá
Bergsteini Kristjónssyni,
sem lengtallra hefur kennt
við Héraðsskólann að
Laugarvatni. Hann var
fastur kennari við skólann
í 39 ár, en alls hefur hann
kennt i 46 ár, því undanfar-
in ár 7 ár var hann stunda-
kennari í bókfærslu. Hann
hefur löngum séð um hótel
rekstur Héraðsskólans á
sumrin, og hann hefur um-
sjón með bókhaldi og f jár-
reiðum mötuneyta skól-
anna tveggja, Héraðs-
skólans og Menntaskólans.
90 aurar á tlmann i vega-
vinnu
— Þá voru menn yfirleitt ekki
teknir yngri en 16 ára i skólann,
heldur Bergsteinn áfram. — A
þessum árum var erfitt aö vinna
sér inn fyrir skólavistinni. Strák-
arnir voru i pokabuxum allan vet-
urinn og þegar þeir áttu ekki
lengur sokka, þá náöu buxurnar
langt niöur á ökkla. Skófatnaöur
var neöan meöallags. Þaö þótti
mikil heppni aö fá vegavinnu á
sumrin og hafa 90 aura á timann.
Þegar ég var búinn aö vera
þessi 39 ár fastur kennari viö
Héraösskólann, þá hillti undir aö
skólakerfiö færi aö breytast. „Ég
veit hvorki hvaö ég á aö kenna, né
hvernig ég á aö kenna,” sagöi ég
viö kunningja minn, og svo hætti
ég þessu aö mestu, nema hvaö ég
tók aö mér stundakennslu j bók-
færslu, sem enginn vill kenna. Já,
menn eru yfirleitt þeim mun
lengur kennarar sem þeir eru ó-
mögulegri.
Siðbótin byrjar neðst, en
spillingin á toppnum
— Hvaöa námsgreinar hefuröu
kennt?
— Ég hef aöallega kennt reikn-
ing, en annars hef ég kennt allan
fjandann. Þegar vantaði mann I
landafræöi þá kenndi ég hana I
þrjá vetur. Þaö sem ég slapp
aldrei viö var reikningur, bók-
færsla og eölisfræöi. En ég gat
ekki kennt mannkynssögu, þar
heföi ég veriö svo hlutdrægur. Viö
lærum þaö nefnilega af mann-
kynssögunni, aö siöbótin byrjar
alltaf I neöstu lögum þjóöfélags-
ins, en spillingin á toppnum.
Svona menn eins og ég hljóta aö
vera hálfgeröir fáráölingar, — ég
kenndi meira aö segja teikningu
einn vetur. En ég hef alltaf haft
gaman af eðlisfræöinni og haft ó-
bilandi trú á henni. Nú er betra aö
kenna hana en áöur, þvi nú veit
fólk aö þaö þarf aö kunna skil á
þvi sem er aö gerast I kringum
þaö. Enn eru aö finnast lögmál
eöa skýrast. Ég óska þess bara
Bergsteinn Kristjónsson
heitt aö þaö komi i ljós, aö lög-
máliö um aö hraöi ljóssins sé ekki
mesti hraðinn reynist ekki rétt.
Skólaveran var sólskins-
blettur
— Var viöhorf nemcndanna
ekki annab til skólans á þeim ár-
um þegar þú byrjaöir aö kenna?
— Fólkiö var aldrei ánægöara
hér en á þessum kreppuárum. Þá
var skólaveran eins og sólskins-
blettur i ævi þessa unga fólks. Og
þá fékk það hvild frá erfiöinu
heima fyrir, hvort heldur var til
sjávar eöa sveita. En menn voru
stundum mörg ár aö ‘vinna fyrir
einum skólavetri.
— Hvaö hefuröu kennt mörgum
nemendum i Héraösskólanum,
Bergsteinn?
— Bækurnar segja aö um 4200
nemendur alls háfi komið i skól-
ann á þessum 50 árum, þannig aö
ekki vantar mikiö i þá tölu.
— Hvaö varö til þess aö þú fórst
aö kenna hér á Laugarvatni?
— Ég er nú alinn upp hérna
hinum megin viö vatniö. Viö
Bjarni Bjarnason skólastjóri vor-
um reyndar systrasynir, svo
þarna kemur siöleysi kunnings-
skaparins til, segir Bergsteinn
kiminn. — En Bjarni kæröi sig
ekkert um mig aö marki fyrr en
ég gat eitthvaö kennt, haldiö aga
og veriö þægilegt búsáhald fyrir
skólann. Arum saman haföi ég
reikningshald fyrir skólann.
Skólinn varö ekki rlkisskóli fyrr
en 1946. Þar áöur réði Bjarni
meiru.
Þjónar tveim herrum
— Þú annast rekstur tveggja
mötuneyta?
— Já, ég hef reikningshald fyr-
ir mötuneyti Héraðsskólans og
Menntaskólans og er þar aö þjóna
tveim herrum. t mötuneyti
Menntaskólans eru um 180 nem-
endur, en 1501 mötuneyti Héraös-
skólans, þegar íþróttakennara-
skólinn er meötalinn. Ég tók viö
mötuneyti Héraösskólans og bók-
haldi skólans haustiö 1939.
— Hvaö er þér minnisstæöast
frá þinum kennaraferli?
— Fátækt nemenda á kreppuár-
unum er mér minnisstæöust, og
hvaö börn höföu þá mikla þörf
fyrir skóla og menntun.
Staðurinn er góður
— Hefuröu alltaf kunnaö vel viö
þig hér á Laugarvatni?
— Þaö hlýtur aö vera aö ég hafi
kunnaö vel viö mig hér. Mér datt
stundum I hug á striösárunum,
þegar allir voru aö græöa, aö
hreyfa mig, en þá voru börnin aö
koma og ekki hægt um vik. Staö-
urinn er góöur. Viö byggðum
þetta hús fyrir 24 árum. Fyrst
bjuggum viö ein I afdal hér, en
svo var fariö aö byggja hér allt i
kringum okkur.
— Þú hefur veriö hér þegar
heimavist Héraösskólans brann?
— Já, þaö var 17. ágúst 1947.
Þaö kviknaöi I útfrá rafmagni á
efstu hæö og burstirnar stóðu I
björtu báli á skömmum tima. En
á fyrstu hæöinni brotnaöi ekki
einu sinni rúöa. Allt timbriö
brann og eldurinn sleikti niöur
gangana, en stöðvaöist svo gjör-
samlega viö steinplötuna. Þarna
var heimavist á tveim hæöum og
þaö var mikið lán aö eldurinn
kom ekki upp aö vetri til.
— Þú hefur staöiö fyrir sumar-
hóteli Héraösskólans?
— Já, ég var meö hótelið
1937—45. Svo tók ég aftur viö þvi
1962 og var meö þaö i tólf sumur.
Ég var lika oddviti I Laugardal I
24 ár og 24 daga. Ekki var ég rek-
inn frá, heldur fann ég aö ég átti
aö vera búinn að segja af mér
fyrir þó nokkru. Eins er þaö meö
hóteliö; ég heföi átt aö hætta meö
þaö löngu fyrr.
Hjartalagið óbreytt
— Hefur skólaæskan ekki
breyst mikib á þinum langa kenn-
araferli?
— Það hafa oröiö breytingar á
ytra boröi, en þú mátt bóka þaö,
aö þegar komiö er aö hjartarót-
unum, þá eru unglingarnir alveg
eins og áöur. Umhverfi og aö-
stæöur hafa breyst mikiö, en þeg-
ar grafiö er svolitiö undir yfir-
boröiö, þá breytist ekkert þótt
aldir renni.
— Hafa ekki oröiö miklar
breytingar á þorpinu á þessum
tlma?
— Jú, blessaöur vertu. Þorpfð
er búiö aö vera undir skipulagi I
mörg ár og reyndar dalurinn all-
ur, en enginn sér nein merki um
þaö. Hér eru alltof fá hús falleg.
En staöurinn er svo fallegur og
umhverfiö svo seiöandi, aö þaö
hlýtur aö gera fólkiö betra en ella.
Þaö vantar bara mikið meira af
fallegum húsum hér. Útlendingar
segja aö hér sé besta gufubaö I
heimi. En þar vantar góöa bygg-
ingu og svo vantar stóra útisund-
laug. Ég er svo mikill sveitamað-
ur I mér, aö mér hálfleiðist aö sjá
sumarbústaöina eins og berjager
um allan dalinn, — en þetta er
vist þaö sepi koma skal. —eös
SJÁ NÆSTU SÍÐU
Bergsteinn Kristjónsson og kona hans Sigrún Guömundsdóttir:
Menn eru yfirieitt þeim mun lengur kennarar sem þeir eru ó-
mögulegri!