Þjóðviljinn - 18.11.1978, Blaðsíða 11

Þjóðviljinn - 18.11.1978, Blaðsíða 11
Laugardagur 18. nóvember 1978 ÞJÓÐVILJINN - SIÐA 11 Jón Viðar Jónsson skrifar um d /eiktist Leikfélag Reykjavíkur: Lífsháski tryllir í tveimur þáttum eftir Ira Levin þýðing: Tómas Zoega Leikstjóri: Gísli Halldórsson Leikmynd: Steinþór Sigurðsson | 1 leikskrá sýningarinnar á Lifsháska er kurteisleg athuga- semd þar sem leikhúsgestir eru bcönir um aö láta þaö sem þeim kemur á óvart I sýningunni ekki fara lengra. Viö þessum tilmæl- um er sjálfsagt aö veröa, þó aö þaö geri vesölum gagnrýnanda óhægt um vik aö segja skoöun sina á verkinu, nema I mjög al- mennum oröum. Ég hlýt aö játa aö betri glæpaleikir hafa nú sést en þessi giænýi bandariski tryll- ir — eins og fundiö hefur veriö upp á aö kalla „thriller” á islensku —, hingaö kominn beint af Broadway, en Leikfélag Reykjavikur hefur veriö svo lánsamt aö klófesta hann á undan flestum evrópskum leikhúsum. Ég vona aö ég bregöist ekki trausti leikfélags- ins, þó aö ég skýri frá þvi aö mér þyki talsvert á vanta aö takist aö halda uppi leikinn á enda, þeirri spennu sem fólk sækist eftir i verkum af þessu tagi. Vissulega tekst aö magna upp veruiega spennu I fyrri hluta leiksins og eru þar ýmsar uppákomur sem koma flatt upp á mann. I seinni hlutanum eru einnig fáein æsileg augnablik, en þó er eins og slakni þar á i heild. Engu aö siður er hér greini- lega um haganlega gert leikhús- verk aö ræöa, þaö leynir sér ekki aö höfundur kann vel til verka. Samræöurnar eru lipur- lega skrifaöar, ekki sist lifgar allruddalegur gálgahúmor upp á þær og kemur I veg fyrir aö til- finningasemi og mærö nái yfir- höndinni. Persónulýsingarnar eru æöi kaldranalegar, þessu fólki er trúandi til alls, enda veröur vist svo aö vera, eigi leikfléttan aö verka nokkurn veginn sannfærandi. Raunar veröa aöstæöurnar nokkuö langsóttar og jafnvel ærsla- kenndar, ekki sist þegar á leik- inn liöur, og stundum finnst manni eins og leikurinn vegi salt á milli þess aö vera „tryll- ir” og farsi. Höfundur notfærir sér oft skemmtilega aö hann er aö skrifa fyrir leikhús, t.d. beitir hann hinu gamalkunna bragöi um leikritiö innan 1 leikritinu og I seinni hlutanum tekur leikur hans aö vefja upp á sig og bita sjálfan sig i skottið á allkostu- legan hátt. Þó aö þessi leikur aö aöstæöunum sé aö mörgu leyti hnyttilegur^ þá hugsa ég aö hann valdi því samt að ein- hverju leyti aö spennan minnk- ar i seinni hlutanum. Eigi aö halda mönnum viö efniö veröur. aö sjálfsögöu stööugt aö lauma aö þeim nýjum grunsemdum — sem svo veröa aö vera hæfilega misvlsandi — en I leiknum eru alllangir kaflar þar sem þetta tekst ekki nógu vel Þó aö bæöi leikstjóri og leikmyndahönnuöur vinni verk sitt I samræmi viö þær hugsjón- ir sem nitjándu aldar leikhúsmenn settu sér um raunsæislega eftirlikingu hvers- dagsveruleikans, þykir mér þvl fara fjarri aö allir leikararnir túlki hlutverk sin I anda þess sálfræöilega raunsæis sem er ávöxtur þessarar stefnu I leik- túlkun. Ég skal fúslega játa aö ég hef ekkert sérstakt dálæti á vinnubrögöum af þessu tagi, a.m.k. birtist þau mjög ómenguö, en þaö er væntanlega lágmarkskrafa til einnar leiksýningar aö hún myndi stll- lega heild. Grundvallaratriöi sálfræöilega raunsærrar leiktúlkunar er aö leikarinn finni einhverjar ástæöur fyrir öllum athöfnum leikpersónunn- ar annaöhvort I skapgerö henn- ar eöa ytri aöstæöum og byggi þannig upp sannfærandi mannlýsingu. Mig grunar raunar aö óhugnaöurinn I leik Levins sé aö töluveröu leyti undir þvi kominn aö áhorfandinn geti trúaö þvl aö þaö séu raunverulegir einstak- lingar sem standa á sviöinu fyrir framan hann. Fæstum leikaranna I sýningunni á Llfs- háska tekst aö blása þessu lifi I nasir persónanna. Sérstaklega á þetta viö um leik Þorsteins Gunnarssonar I hlutverki metsöluhöfundarins Sidneys Bruhl. Ég þykist aö vlsu sjá hvers konar manngerö leikarinn er aö reyna aö lýsa, en sem sllkur veröur hann aldrei trúveröugur. Auk þess skorti hann einbeitni og stundum var engu llkara en hann heföi ekki hugann vib þaö sem fram fór á sviöinu. Leik Asdlsar Skúladótt- ur I hlutverki eiginkonu hans var einnig býsna óbótavant. Hlutverkiö er sjálfsagt vanþakklátt, en þaö bætir ekki úr skák aö grlpa til dramatlskr- ar tilgeröar sem er löngu hætt aö verka öðruvisi en óþægilega á áhorfendur. 1 leik Sigrlöar Hagalln I hlutverki miöils nokk- urs náöi svo farsinn yfirhönd- inni og þó aö leikur hennar væri sums staöar nokkub yfirdrifinn, nábi hún á köfium bæöi óhugnaöi „tryllisins” og skopi farsans. Þaö er öörum fremur Hjalti Rögnvaldsson I hlutverki ungs rithöfundar, Clifford Andersons, sem gerir þaö þess viröi aö sitja undir þessari sýn- ingu. 1 kvikum og dálitiö óróleg- um leik hans mætast finleiki og kraftur, sem gæöa persónu- sköpunina áleitnu lifi. Efniö gefur vissulega ekki tilefni til stórbrotinnar mannlýsingar, en Hjalta tekst einkar vel ab laga sig að og fylgja eftir breyttum aöstæöum sem leiöa I ljós nýjar hiiöar á persónunni. Yfirleitt beitir hann smágeröum drátt- um og stundum fannst mér hann draga þá svo snöggt aö merking þeirra vildi fara fram hjá mörgum áhorfenda. En á bak viö flestar athafnir . leikarans leynist einhver hugs- un, sem áhorfandinn skynjar og vinnur hann aö lokum á band meö leikaranum. Leikfélag Reykjavikur hefur nú l haust haft á verkefna- skránni a.m.k. þrjú leikrit, sem ekki geta talist annaö en kassastykki. Erlendis eru þaö einkum einkaleikhús, rekin I gróöaskyni, sem annast slika framleiöslu, og sé verib aö styrkja leikhús af almannafé til sllkra hluta, þá hef ég misskilið þá hugmynd sem liggur aö baki fjárveitingum til leiklistar úr sjóöum borgar og rlkis. Þaö er auövitaö skiljanlegt aö leikfélagsmenn séu orönir lang- eygöir eftir bættri starfsaöstööu, en ætli þeir sér ab nota nýtt Borgarleikhús undir sýningar af sama gæöaflokki og Llfsháski er, mættibygging hins nýja leikhúss aö ósekju dragast nokkur ár I viöbót. Tengslin við hina fjölmörgu stuðningsmenn eru styrkur blaðsins Rætt við Kjartan Olafsson, form. útgáfustj. Þjóðviljans ,Ég vil brýna fyrir stuðn- ngsmönnum Þjóðviljans einnig ætlunin aö leita til allstórs hóps manna eftir stærri f járfram- lögum til styrktar útgáfu Þjóð- viljans,” sagöi Kjartan. að leggja blaðinu f járhags- lega lið nú í ár, ekki síður en jafnan áður," sagði Kjartan ólafsson for- maður útgáf ust jórnar Þjóðviljans í samtali við blaðið. „Þaö er áríðandi aö þeir sem hafa fengiö senda happdrættis- miöa bregöist fljótt og vel viö og komi meö framlög sln sem allra fyrst. Næstu daga og vikur er Hann sagöi aö enda þótt eigna- leg staöa blaðsins væri á allra slö- ustu árum oröin langtum betri en áöur, þá ætti Þjóðviljinn nú engu aö siöur I býsna miklum rekstrar- fjáröröugleikum. „Útgáfa blaös- ins I ár, á kosningaári, hefur orö- iö dýr og eins og löngum fyrr vantar allmikiö á aö eigin tekjur blaösins geti staðiö undir rekstr- inum,” sagöi Kjartan. „Fyrirsjá- anlegur er verulegur halli á rekstri blaðsins, þrátt fyrir góöan árangur I auglýsingaöflun og nokkra fjölgun áskrifenda. Blaöiö hefur ekki frekar en önn ur dagblöö fengiö þær hækk- anir á útsöluveröi og aug- lýsingatöxtum, sem svara til hækkunar kostnabarliöa, og enda þótt Þjóðviljinn hafi, eins og önnur dagblöö notiö nokkurrar lánafyrir- greiöslu I bönkum, þá hefur sú fyrirgreiösla engan veginn dugaö til þess aö komist yröi hjá alvar- legum rekstrarfjáröröugleik- um.En viö sem stöndum aö út- gáfu Þjóöviljans höfum alla tlö oröiö að treysta á velvilja mjög fjölmenns hóps stuöningsmanna I rööum Islenskrar alþýbu. Þeir hafa skillö að þeim peningum sem lagöir eru I útgáfu Þjóðvilj- ans er vel varið og aö þeir skila sér I raunínni aftur, þegar haft er I huga, hve stór þáttur Þjóbvilj- ans hefur verið I kjarabaráttunni. Þaö hefur verið styrkur Þjóðvilj- ans aö geta byggt á þessum tengslum viö sina fjölmörgu stuöningsmenn. An þeirra væri blaöiö fyrir löngu hætt aö koma út. Ég vil þvi beina þvi til allra stuöningsmanna blaösins, aö ganga vel fram I þvl strlöi sem háö verbur á næstu vikum til aö tryggja aö Þjóðviljinn þurfi ekki aö draga saman seglin. Og ég hef fulla trú á þvl, aö með sameigin- legu átaki muni okkur nú sem áö- ur takast aö ná saman þvl fjár- magni sem til þarf á skömmum tlma og helst I þessum mánuöi, en dregiö verður I happdrætti blaös- ins þann l. desember.” Smárit Kennarahá- skólans og Iðunnar Nýr fiokkur rita hefur hafiö göngu sina hjá IÐUNNI og nefnist Smárit Kennaraháskóla Islands og IÐUNNAR. Fjögur fyrstu ritin i þessum flokki eru nýlcga komin út, en þau eru: 1. Lifsstarf og kenning. 1 þessu riti eru þrjú erindi sem flutt voru á námskeiði I kennslu- fræðum sem haldiö var I Kennaraháskóla lslands. Erindi þessi eru: Lifsstarf og frjáls þróun skoöana eftir Dr. Brodda Jóhannesson, Drepiö á nokkrar hugmyndir J.S. Bruners um nám og kennslu eftir Jónas Pálsson og erindi sem ber nafniö Hlltarnám eftir Sigrlöi Valgeirsdóttur. Ritiö er 96 bls. aö stærö. 2. Borgaraskóli — Alþýðuskóli drög aö menntastefnu, nokkrir minnispunktar, Jónas Pálsson hefur samið. Þetta rit skiptist I þrjá meginkafla og fjallar sá fyrsti um sérkennslu afbrigði- legra nemenda og ráögjöf I skólum. Tekur höfundur fram I upphafi þess kafla aö þetta sé ekki samantekt fyrir sérfróöa, heldur almenning, einkum foreldra á timamótum I skóla- málum viö samþykkt grunn- skólalaganna. Annar kafli rits- ins fjallar um menntun kennara sem starfa á grunn- skólastigi. Þriöji kafli ritsins nefnist Borgaraskólinn Alþýöuskólinn. Þar gerir höf- undur grein fyrir hugmyndum slnum um menntastefnu og hlutverk skólans. Ritið er 66 bls. Framhald á 14. síöu

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.