Þjóðviljinn - 18.11.1978, Blaðsíða 14
14 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 18. ndvember 1978
Í.S.-F.C. Barcelona
Umsjón: Ingólfur Hannesson
„Reynum að sigra þessa
körfuknattleiksrisa”
segir Steinn Sveinsson, fyrirliði Í.S.
A miðvikudaginn, i næstu viku,
veröur háöur leikur i Evrópu-
bikarkeppni bikarhafa I körfu-
knattleik milli Iþróttafélags
Stúdenta og F.C. Barcelona frá
Spáni. Hér fá körfuknattleiks-
unnendur aö sjá eitt sterkasta
félagsliö Evrópu etja kappi viö
eitt af okkar bestu liöum.
lliöiF.C. Barcelona eru margir
hávaxnir leikmenn og er meöal-
hæö liösmanna 1,96 m á móti 1,88
m hjá l.S. Af frægustu og
bestu leikmönnum F.C.
má nefna fyrirliöann,
bakvöröinn Flores, sem
leikiö hefur 69 landsleiki og
er glfurlega sterkur leikmaöur
meö mikla knatttækni og góöa
hittni. Framherjinn Sigilio, sem
er ættaöur frá Dómirianska
lýöveldinu, hefur og átt lengi fast
sæti i spænska landsliöinu og
hefur leikiö alls 40 landsleiki. Þá
er ótalinn bandariski leik-
maöurinn I liöinu, miöherjinn
Guyette, en hann hefur leikiö i tvö
ár meö liöinu. Aö sögn Dirk
Dumbars er hér á feröinni frábær
leikmaöur.
Um liö Í.S. er óþarft aö fjöl-
yröa, þar eru margir gamal-
reyndir jaxlar, sem ætiö standa
fyrirsinu. Þeirra fremstu i flokki
F.C. Barcelona hefur 6 sinnum unniö spænska meistaratitilinn og 7
sinnum spænska bikarmeistaratitilinn. Þetta geysisterka liö veröur
mótherji.t.S. á miövikudaginn.
er bandarikjamaöurinn Dirk
Dunbar meö sina frábæru knatt-
tækni og skemmtilegu gegnum-
brot. I leikina gegn F.C. Barce-
lona hafa l.S. menn fengiö annan
bandarikjamann, John Johnson,
sem leikur meö Fram i 1. deild.
I gærkvöldi efndi l.S. til blaöa-
mannafundar til kynningar og
auglýsingar fyrir væntanlega
leiki. Á fundinum var staddur
fyrir tilviljun, Dennis Goodman,
fyrrverandiþjálfaril.S. Auk hans
voru til staöar Steinn Sveinsson,
Bjarni Gunnar Sveinsson, Dirk
Dunbar, John Johnson, Birgir
ö. Birgis o.fl. Viö spjölluöum viö
þessa menn og fara svör þeirra
hér á eftir.
Sp.: „Getiö þiö frætt okkur um
þaö hver geta þessa liös, F.C.
Barcelona, I rauninni er”?
Körfuboltinn
SPENNANDI
og skemmtíleg keppni
1 dag eru fyrstu leikirnir I
annarri umferö Islandsmótsins
i körfuknattleik. 1 fyrstu um-
feröinni geröist margt óvænt og
er ekki úr vegi aö rifja upp þaö
helsta.
Þaö, sem undirrituöum hefur
komiö einna helst á óvart I
þessu sambandi er léleg
frammistaöa Bikarmeistar-
anna frá þvi I fyrra, l.S. Gamal-
reyndir leikmenn, eins og
Bjarni Gunnar Sveinsson, og
Ingi Stefánsson hafa nánast
„veriö á hælunum” og alls ekki
náö aö sýna þaö, sem bilist var
viö af þeim. 1 rauninni hefur
liöiö staöiö eöa falliö meö einum
manni, Dirk Dunbar, en þó aö
hann hafi átt hvern stórleikinn á
fætur öörum hefur þaö ekki
dugaö til sigurs, þvi þá hafa
hinir leikmennirnir brugöist á
einn eöa annan hátt. Minnst
hefur veriö á aö Dunbar sé alltof
eigingjarn og aö hann sé eini
maöurinn, sem skjóti á körfuna
aö ráöi. Þetta er aö visu rétt aö
marki, en þaö veröur aö taka
meö 1 reikninginn, aö samherjar
Dunbars viröist ætiö ætlast til
þess aö hann skori og hnoöa
knettinum alltaf til Dunbars, þó
aö annar samherji sé jafnvel I
betra færi.
Liö K.R.og I.R., hinna gömlu
erkifjenda, hafa sýnt langtum
betri leiki i 1. unferöinni, en
búist var viö fyrirfram.
l.R.-ingarnir meö Paul
Stewart i fararbroddi, sýnast
vera meö geysisterkt sex
manna liö. Þetta þýöir þaö, aö
breiddin er ákaflega lltil og stór
spurning hvort slikt komi ekki
til meö aö há liöinu þegar til
lengdar lætur. Þá ber þess aö
geta, aö Kolbeinn Kristinsson er
I feiknastuöi um þessar mundir
og minnist undirritaöur vart aö
hafa séö hann betri. K.R. trónir
nú á toppi deildarinnar meö átta
stig og án vafa voru þeir meö
sterkasta liö l.umferöarinnar.
Breiddin I liöinu er mikil og
ósvikinn baráttuandi i flestum
leikjunum. Jón Sigurösson er
sem fyrr yfirburöamaöur og
veröur ekki hlaupiö aö þvi fyrir
andstæöingana aö stööva bak-
varöadúett K.R.-inganna, þá
Jón og Kolbein Pálsson, þ.e.a.s.
þegar Kolbeinn veröur kominn i
fulla æfingu. Undirritaöur hefur
saknaö þess aö sjá ekki Bjarna
Jóhannesson I siöustu leikjum,
en hann mun hafa hætt æf-
ingum, af ýmsum orsökum.
Hvaö sem þvi liöur þá er óhætt
aö reikna meö gamla
vesturbæjarliöinu K.R. meö i
slagnum um Islandsmeistara-
bikarinn.
Liö Vals og UMFN hafa bæöi
átt misjafna leiki i vetur, þau
hafa ekki náö þeim stööugleika,
sem ætla mátti. Valsmenn sigr-
uöu á Reykjavikurmótinu og
var sá sigur fyllilega veröskuld-
aöur, þeir voru bestir þá. Slöan
kom bakslag, en segja má aö
siöasti leikur þeirra,
gegn K.R., hafi veriö sætur
sigur og gefi vonir um betri tlö. I
rauninni hefur þaö veriö sókn-
in, sem er höfuöverkur Vals-
manna og aöeins Þórir Magn-
ússon leikur af eðlilegri getu.
Nái Valsarar aftur taktinum i
sóknarleiknum veröa þeir meö
klærnar i námundaviö bikarinn.
Njarðvlkingar eru, aö margra
áliti, meö jafnbesta liöiö, en þeir
eru svokallaö „stemmingsliö”,
liö sem getur sýnt þaö besta i
islenskum körfuknattleik og
einnig átt mjög slaka leiki, s.br.
leikinn gegn K.R, Enginn leik-
manna liðsins hefur náö virki-
legum stöðugleika, aö standa
ætiö fyrir sinu. Margir hafa hins
vegar átt frábæra spretti,
t.d. Gunnar Þorvaröason og
Þorsteinn Bjarnason. Ekki er
mér alveg ljóst hvaö þessu
stööugleikaleysi veldur, en óró-
leiki varamanna og stjórnenda
liösins virðist ekki hjálpa þeim
leikmönnum, sem inná vellinum
eru, til þess aö halda nauösyn-
legri rósemi. Hvaö um þaö, bar-
áttan heldur áfram og UMFN
mun ekki gefa neitt eftir á
sinum vlgstöövum.
Þórsarar frá Akureyri eru i
botnbaráttunni eins og I fyrra-
vetur. Þessu var búist viö og ef-
laust hafa Þórsarar einnig gert
sér grein fyrir möguleikum
sinum. Þaö veröur þó aö segjast
eins og er, aö þeir hafa staöiö
sig mun betur en undirritaöan
gat grunaö. Jón Indriöason, sá
mikli baráttujaxl, er i feykistuði
um þessar mundir og hefur
aldrei veriö betri. Ungur leik-
maöur, Birgir Rafnsson, hefur
sótt I sig veöriö aö undanförnu
og átt góöa leiki. Ég sakna þess
aö sjá ekki annan efnilegan
leikmann i þeirra rööum, Ólaf
Armannsson, sem I fyrravetur
átti ágæta leiki. Þórsarar geta
ókvlðnir lagt út I slaginn og ekki
ósennilegt aö þeir hali inn
nokkur stigin i vetur.
Aö lokum er ástæöa til þess aö
hvetja áhugamenn um Iþróttir
aö fjölmenna á leiki úrvals-
deildarinnar I körfuknattleik i
vetur. Af þvl veröur enginn
svikinn.
Ingh
Goodman: „Ég þekki nokkuö til
spænsks körfuknattleiks og get
fullyrt að hann sé meö þvl besta,
sem gerist I Evrópu. Þetta lið er
eitt þeirra sterkustu á Spáni og
myndi ég vilja llka því við gott
bandariskt háskólaliö og er þá
nokkuö mikiö sagt.”
Sp.: „Nú eru þeir aöeins meö
einn bandarlkjamann I liöinu”?
Goodmann: „Já, þeir hafa þaö
nú oft þannig, aö þessir kallar eru
fljótlega orönir spænskir rlkis-
borgarar. Ég veit ekki um þetta
liö, en þykir liklegt aö svona sé
þetta hjá þeim.”
Dunbar: „Ég hef heyrt að
þessir menn fái 60-80.000 dollara
árslaun og er þá hæpiö aö tala um
áhugamenn.”
Goodman: „Ef þetta lið er ekki
kallaö atvinnumannaliö, þá ættu
þeir aö vera þaö.”
Sp.: „En hvernig stóð á því aö
þiö völduö Johnson til þessara
leikja”?
Steinn: „Viö ætluöum I fyrstu
aö fá stóran mann, til þess aö
vega upp á móti hæöarmis-
muninum, en þaö gekk mjög illa.
Þegar svo Dunbar meiddist var
afráöiö aö reyna aö ná I bakvörö
og þar var fyrstur á dagskrá
John Johnsson. Hann hefur spilaö
meö okkur einn æfingaleik og stóö
sig frábærlega vel, eins og viö
reyndar alltaf vissum.”
Sp.: „Dunbar: „Nei, þaö er
langt frá þvi, en ég verö eflaust
oröinn nokkuö góöur á miöviku-
daginn.
Birgir ö.: „Þaö kemur til meö
aö reyna mikiö á þá Dunbar og
Johnson, þvl Spánverjarnir spila
stifa pressu. Þaö er alveg borö-
leggjandi.
Dumbar: „Við munum samt
reyna aö koma þeim I opna
skjöldu i byrjun.”
Sp.: „Hvaö meö fjárhags-
hliöina”?
Bjarni Gunnar: „Viö þurfum
um 2000 manns I Höllina til þess
aö slenpa sléttir.”
Steinn: „Þaö má minnast á
þaö, aö ferðin til Spánar og
morgunveröur alla dagana kostar
130.000 krónur. Af þeirri upphæö
skuldbindur l.S. sig til aö greiöa
helming, en áhættuna af afgang-
inum taka leikmenn sjálfir á sig.
Þvi getur svo fariö, aö leikmenn-
irnir þurfi aö greiöa 65.000 kr. og
einnig greiöa uppihald. Viö
vonum þó aö til þessafþurfi ekki
aö koma.
Sp.: „Aö lokum, þiö ætliö aö
reyna aö standa i þessum miklu
körfuknattleiksrisum á miöviku-
daginn”.
Steinn: „Já, viö förum inn á til
þess aö gera okkar besta og reyna
hvaö viö getum.”
Jón Héöinsson: „Sigra og
ekkert annaö.”
Þessum oröum Jóns samsinntu
Birgir örn og John Johnson og
ekki leiö á löngu áður en allir voru
orönir vissir á þvi, aö ekkert
þýddi minna en aö reyna aö sigra.
Iþróttaslöan óskar l.S. góös
gengis i baráttunni, sem fram-
unan er.
IngH
Dirk Dunbar og John Johnson. A
þá mun mikiö reyna i leikjunum
gegn spænsku bikarmeisturunum
I körfuknattleik, F.C. Barcelona.
íþróttir
um helgina
Þó nokkuð er um
að vera á íþrdtta-
sviðinu þessa helgi.
það helsta er:
Handknattleikur:
Laugardalshöll laugard. kl.
15.30. Landsliöiö — úrvalsliö.
Akureyri laugard. kl. 14 1. d.
kv. Þór — UBK.
Blak:
Laugarvatni laugard. kl. 13,
úrvalsd. Mlmir — UMFL.
Vestmannaeyjum laugard.
kl. 16,úrvalsd. Þróttur — l.S.
Laugum laugard. kl. 17. 1. d.
kv. Völsungur — ÍMA.
K örfuknatt leikur:
Akureyri laugard. kl. 14.
úarvalsd. Þór — Valur.
Hagaskóli laugard. kl. 14,
úrvalsd. I.R. — UMFN.
Fimleikar:
Arsþing Fimleikasambands
íslands veröur laugardaginn
18. nóv. I félagsheimili
Starfsmannafélags Reykja-
vikur og hefst kl. 13.30.
Badminton:
Badmintonfélag Hafnar-
fjaröar heldur opiö B-flokks-
mót sunnudaginn 19. nóv. og
hefst þaö kl. 2 e.h.
Hilmarsliðið í
handknattleik
Hilmar Björnsson, þjálfari
Vals, hefur valiö úrvalsliö þaö,
sem keppir viö landsliöiö I Höll-
inni 1 dag kl. 15.30. Þaö veröur
þannig skipaö:
Brynjar Kvaran, Val
Kristján Sigmundsson, Vikingi
Geir Hallsteinsson, F.H.
Viöar Simonarson, F.H.
Guömundur Magnússon, F.H.
Jón Pétur Jónsson, Val
Jón Karlsson, Val
Þorbjörn Jensson, Val
Stefán Jónsson, Haukum
Ingimar Haraldsson, Haukum
Sigurbergur Sigsteinsson, Fram
Gústaf Björnsson, Fram
Sigurður Gunnarsson, Vlkingi
Varamenn veröa Janus
Guölaugsson, F.H. og Erlendur
Hermannsson, Vlkingi.