Þjóðviljinn - 18.11.1978, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 18.11.1978, Blaðsíða 12
12 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 18. nóvember 1978 FRÉTTIR ÚR BORGARSTJÓRN Ál Fjörugar umrœöur um hafmrmálin í borgarstjórn: Netagerð og vörulager undir sama þaki? Hafnarstjórn er ein af þeim nefndum borgarinnar, sem heyra beint undir borgarstjórn og þvi veröa oft fjörugar umræöur á þeim vettvangi um málefni hafnarinnar, einkum ef ágrein- ingur er uppi og er skemmst aö minnast Eimskipsmálsins svo- nefnda frá i sumar. Flestar nefndir borgarinnar heyra hins vegar undir borgarráöog þar eru deiluefni gjarnan dtkijáö á lok- uöum fundum, þó oft veröi um- ræöur um þau i borgarstjórn. Fyrir borgarstjórnarfundi s.l. fimmtudag iá samþykkt hafnar- stjórnar frá nóvember um Grandaskála til staöfestingar, en samþykktin fól i sér aö sett yröi miiligólf f hálfan Grandaskáiann fyrir um 40 milljónir króna. A efri hæöinni skyldu netageröarverk- stæöi fá inni til aö gera viö og geyma loönunætur, en á neöri hæöinni skyldi hafskip hafa vöru- lager sinn eins og nú er, og geröi samþykktin ráö fyrir aö leigu- samningur viö Hafskip yröi endurnýjaöur. / 1 hafnarstjórn varö ágreiningur um máliö og greiddu Björgvin Guömundsson formaöur stjórnarinnar, Jónas Guömunds- son og Birgir tsl. Gunnarsson at- kvæöi meö samþykkt þess, en Guömundur J. Guömundsson var á móti. ' Albert Guömundsson haföi vikiö af fundi þegar máliö kom til atkvæöa, enhann hóf um- ræöuna i borgarstjórn ot lýsti sig andvfgan málinu. Þegar Albert tók til máls lá fyrir beiöni frá meirihlutanum um frestun til næsta fundar, og erindi Alberts f ræöustól var einn- ig aö biöja um frestun og jafn- framt aö málinu yröi visaö til hafnarstjórnar á nýjan leik. Albert sagöi óhugsandi aö hýsa netagerö og vörulager undir sama þaki, vegna þeirrar miklu eldhættu sem stafaöi af netagerö- inni og upplýsti aö I húsakynnum Tollvörugeymslunnar er bannaö i reglugerö aö viöhafa slika starf- semi. Hann sagöi einnig aö hvergi á landinu væru netageröarverk- stæöi niöur viö höfn, en ef menn teldu þaö nauösynlegt hér I Reykjavik, þá væri laus lóö rétt hjá Grandaskála, þar san byggja mætti yfir sllka starfsemi. Þá 10 sóttu um stöðu Þróunar- stjóra I gær voru kynntar i borgar- ráöi umsóknir um stööu for- stööumanns Þróunarstofnunar Reykjavfkurborgar, en um- sóknarfrestur rann út 1S. nóvember. Um starfiö sóttu: Baldvin Baldvinsson, verkfræöingur, dr. Bjarni Reynarsson, landfræö- ingur, Bjarki Jóhannsson, arki- tekt og verkfræöirigur, Haraldur Jóhannesson, hag- fræöingur, Hrafn Hallgrimsson, arkitekt, Jóhannes S. Kjarval, arkitekt, Kristinn Ragnarsson, arkitekt, Liney Skúladóttir, arkitekt og Trausti Valsson, arkitekt. Einnig barst bréf frá Guörúnu Jónsdóttur arkitekt, þar sem óskaö var viöræöna um starfiö sem auglýst var. Aö sögn borgarstjóra veröa umsóknirnar sendar skipulags- nefnd til umsagnar I næstu viku, en þaö er borgarráö sem veitir stööuna. A1 sagöist hann hafa undir höndum nýjar upplýsingar i málinu, sem kreföust þess aö hafnarstjórn fjallaöi um máliö á nýjan leik, enda bentu þær til þess aö kostn- aöaráætlanir hafnarstjóra heföu veriönærhelmingi of lágar. Taldi' hann aö kostnaöurinn yröi nær 70 miljónum ef kröfur eldvarnar- eftirlits yröu uppfylltar. Las Albert siöan úr greinargerö Edgars Guömundssonar verk- fræöings þar sem fram kom, staöfest af brunamálaeftirlitinu aö mun meiri eldvarnir yröu aö vera til staöar en gert var ráö fyrir í upphafi, einkum vegna nýrra laga um eldþol bygginga. ’Sagöi Albert aö Hafskip yröi aö leggja i mikinn kostnaö til aö eld- verja vörugeymslur sinar og lýsti þeirri skoöun sinni aö fráleitt væri aö verja jafnviröi 2ja dag- vistarheimila til þess aö innrétta aöstööu fyrir einkaaöila. Taldi hann aö hafnarstjórn ætti i ljósi þessara nýju uppiýsinga aö fjalla um máliö á nýjan leik. Björgvin Guðmundsson for- maöur hafnarstjórnar tók næstur til máls. Hann minnti á aö hér væri ekki um óljóst vilyröi til netageröarmanna aö ræöa heldur beina úthlutun á aöstööu i Grandaskála frá i vor, og aö ef ekki yröi viö þá úthlutun staöiö, bakaöi borgin sér skaöabóta- skyldu vegna vanefnda. Hann taldi ekki rétt aö álykta sem svo aö veriö væri aö henda 40 miljón- um króna út um gluggann eöa i einhver einkafyrirtæki, heldur væri veriö aö auka verömæti hússins.á sama hátt oggertheföi veriö i Bakkaskemmu á sinum tima' meö lagningu milligólfs. Hann lýsti sig andvigan þvi aö visa málinu til hafnarstjórnar á nýjan leik þar sem stjórnin heföi fjallaöum þaö lengi og vandlega. Engin ástæöa væri til þess aö visa málinu aftur þangaö þó þvi yröi frestaö milli funda borgarstjórn- ar. Hann rakti upphaf þessa máls en þaö er viöræöur borgaryfir- valda viö forystumenn i atvinnu- lifisem uröui kjölfar skýrslunnar um atvinnumál I Reykjavik. Hann sagöi aö i þeim viöræöum heföu útvegsmenn og landssam- band þeirra lagt mikla áherslu á aö þjónusta viö fiskiskipafiotann yröi bætt og aö efling netageröar væriein af forsendum þess aö svo mætti vera. Þess vegna heföi borgarstjórn ákveðiö I vor aö út- hluta þeim aöstööu I Grandaskála og I samþykkt hafnarstjórnar væri veriö aö f jalla um nánari út- færslu á þeirri samþykkt. Guörún Helgadóttir iýsti sig einnig samþykka frestun milli funda borgarstjórnar og sagðist efast um marga hluti i sambandi viö þetta mál. Hún sagöist t.d. ef- Framhald á 18. siðu Gardínur í Borgarstjórn S.l. fimmtiidag spunnust i borgarstjórn umræöur út af fyrir- spurn Davfös Oddssonar um gluggatjöld i Furugeröi 1, sem er eitt af nýjum heimilum borgar- innar fyrir aldraöa. Fyrirspurnin var svohljóöandi: ,,Er þaö rétt aö Ibúar i leigu- fbúöum borgarinnar aö Furu- geröi 1 fái ekki aö rúöa þvi sjálfir, hvaöa gluggatjöld þeir nota I íbúöum sfnum?” Guörún Helgadóttir svaraöi fyrirspurninni og las fyrst úr bréfi félagsmálastjóra Reykja- vikurborgar sém faliö var aö kanna þetta mál. 1 bréfinu kom m.a. fram aö arkitektar hússins vilja gjarnan aö sömu innri gardinur séu i öllu húsinu, en setja þaö ekki sem neitt skilyröi frá sinni hálfu. Þá kom einnig fram aö nokkrar beiönir heföu borist um aö fá aö skipta um þessar gardinur og aö vel yröi i þaö tekiö. Guörún Helgadóttir sagöi aö þessi ákvöröun, — aö leggja til samskonar innri gardinur fyrir alla glugga i húsinu heföi ekki aöeins veriö tekin vegna óska arkitektanna, heldur ekki siöur vegna þess aö sams konar upp- hengingar heföu veriö settar i allt húsiö og engin ástæöa væri til aö ætla aö gamla fólkiö heföi haft einmitt slika uppsetningu og slik- ar gardinur á slnu fyrra heimili. Þetta heföi þvi verið hugsaö til hagræöingar fyrir Ibúana. Guörún sagöist efast um aö fyrirspyrjandi heföi gert sér grein fyrir þeim margháttúöu uppsetningum á gardinum sem til væru né heldur hvaö þær kostuöu. Rakti hún hinar ýmsu geröir upp- henginga, en sagöi siöan aö ljóst væri af bréfi félagsmálastjóra aö þetta væri ekkert vandamál i Furugeröi 1, þar sem hver og einn gæti skipt um innri gardinur eba bara sleppt þeim. Daviö Oddsson þakkaöi svariö, sem hann sagöi aö stangaöist á viö þær upplýsingar sem hann heföi fengiö áöur. Hann sagöi aö kveikjan aö þessari fyrirspurn heföu veriö lesendabréf I Dag- blaöinu, þar sem skýrt var frá þvi aö húsvörðurinn I Furugeröi 1 heföi rifiö niöur gardinur sem einn ibúa hússins haföi sett upp hjá sér 1 staö gardinanna sem fyrir voru. Sagöist Daviö hafa spurt húsvöröinn hverju þetta sætti og fengið þar þau svör aö Ibúar hússins heföu undirritaö leigusamning, þar sem sú kvöö var á lögö aö innri gardlnur væru lagðar til af húsinu. Daviö sagöi aö þetta væri prinsipmál vegna þess aö Ibúar hússins ættu aö vera sjálfráöir um innbú sitt og eölilegt væru aö þeir óskuöu eftir aö þetta nýja heimili þeirra bæri svipmót af sinu gamla heimili. Furugeröiö væri heimili en ekki stofnun og meö slikri kvöö væri veriö aö hlutast til um innbú fólks. Lagöi Davlð siöan fram tillögu þess efnis aö borgarstjórn sam- þykkti aö engin kvöö skyldi vera um gardinur i leiguhúsnæöi borgarinnar. Uröu nokkrar umræður um þessa tillögu og framan af þess- um gardinuumræöum öllum voru þær I léttum dúr, sem Kristján Benediktsson borgarfulltrúi átaldi. Lýsti hann þeirri skoöun sinni aö borgarstjórn ætti aö eyöa tima sinum I annaö en slik gamanyrði ella setti viröing hennar niöur. Davið Oddsson brást illa viö þessum athuga- semdum og heliti sér yfir Kristján Benediktsson meö oröa- flaumi sem undirritaðri fannst borgarstjórnarfundum litt til sóma. Lauk siöan umræöum og var tillaga Daviös um aö engin kvöö skyldi vera um gardinur i leiguhúsnæöi borgarinnar sam- þykkt meö 14 samhljóöa at- kvæöum. sunnudag Efni m.a. „Þóít sumir heiti Xavier” Guðjón Friðriksson spjallar við Pétur Pétursson um rann- sóknir hans á franska Gaimard-leiðangrin- um, sem kom til is- iands 1835. Lichenstein forrikt dvergríki i Alpafjöllum íhreinskilnu helgarviðtali segir Albert Guðmunds son frá æsku sinni, Sjálfstæðisflokknum, verkalýðsforystunni, auðvaldsstéttinni og Frimúrarareglunni. Eg vona að enginn sjái mig með þessum andskotans kommum! Þinglyndi Þingsjá i misheppnuðum myndum —AI

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.