Þjóðviljinn - 02.12.1978, Síða 5
Laugardagur 2. desember 1978 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 5
Lúðrasveit verkalýðsins 25 ára:
% ——i
Afmælis-
tónleikar
EUert Karlsson.
t dag kl. 14. heldur Liiörasveit
Verkalýösins 25 ára afmælisttín-
leika I Austurbæjarbiói. Efnis-
skrá veröur aö vanda fjölbreytt
og bæöi innlend og erlend lög
veröa flutt.
Stjórnandi Lúörasveitar verka-
lýösins er Ellert Karlsson, en
hann tók viö stjórnandastarfinu
siöastliöinn vetur og eru þetta þvi
fyrstu tónleikar sveitarinnar und-
ir hans stjórnen jafnframt fjóröu
tónleikar lúörasveitarinnar á 25
ára starfeferlinum. Kynnir á tón-
leikum þessum, eins og á fyrri
tónleikum L.V., veröur Jón Múli
Arnason.
Aögangur aö tónleikunum er
ókeypis og öllum heimill meöan
húsrúm leyfir.
Kyngimagnað hispursleysi
og hviknakin frásögn
Áfram með smérið,piltar
segir Ólafur bóndi á Oddhóli og fyrrum í Álfs-
nesi í öðru bindi æviminninga sinna sem Dagur
Þorleifsson skráir.
Þótt ótrúlegt sé, þá er annað bindi æviminninga
Ólafs mun fróðlegra en hið fyrra sökum
óvenjulegra þjóðháttalýsinga, og það sem er
enn ótrúlegra; mörgum sinnum skemmtilegra
— og þá er mikið sagt — því nú sleppir hann
alveg fram af sér beislinu í kyngimögnuðu
hispursleysi og hviknakinni frásögn af körlum
og konum beggja vegna Atlantsála.
Þú hlærð þig máttlausan víð lesturinn og á
stundum getur þú ekki lesið fyrir hláturrokum.
Bókaútgáfan örn og Örlygur
Vesturgötu 42, síml 25722
Jólabasar
Sjálfsbjargar
Jólabasar Sjálfsbjargar, félags
fatlaöra I Reykjavik, veröur
haldinn f dag laugardaginn 2. des-
ember, I Lindarbæ, Lindargötu 9
og hefst sala ki. 14.00.
A basarnum veröur Urval varn-
ings á hagkvæmu veröi, til dæmis
jólaskreytingar og margs konar
aörarjólavörur, útsaumaöir mun-
ir, prjónafatnaöur, púöar, kökur
og ótal margt fleira. Jafnframt
veröur efnt til happdrættis eins og
undanfarin ár.
Laugardagur tíl hikku!
Basar hjá
fóstrunemum
t dag laugardag halda nemend-
ur Fósturskóla Islands basar i
skóla sfnum kl. 14 til 18, aö Skip-
holti 37, á horni Skipholts og Bol-
hotts.
Gefst þar gott tækifæri til aö
kaupa ódýra hluti til jólagjafa og
skreytinga. Einnig veröa þar
kökur á boöstólum, auk hluta-
veltu. Veriö velkomin.
Skagfirðingafélagið:
Jólabasar
Kvennadeild Skagfiröingafé-
iagsins i Rvik veröur meö sinn ár-
lega Jólabasar f Félagsheimilinu
Siöumúla 35 næstkomandi sunnu-
dag 3. des. kl. 14.
Þar veröur til sölu margt gott
og nytsamt til jólagjafa, sem fé-
lagskonur hafa unniö aö i hóp-
vinnu, ennfranur kökur á jóla-
boröiö. Allur ágóöinn rennur til
hinna ýmsu verkefna félagsins
bæöi f lfknar og menningarmál-
um.
Bingó og
kaffihjá
Hreyfli
Kvenfélag Hreyfils og Sam-
vinnufélagiö Hreyfill standa fyrir
kaffiveitingum , bingói og fleiru
skemmtiefni 3. des.n.k. kl. 3. e.h.
i Hreyfilshúsinu.
Hreyfilsbifreiöastjórum sem
náö hafa 67 ára aldri og eldri,
bæöi þeir sem eru i starfi og þeir
sem hætt hafa störfum er boöiö
ásamt gesti.
Vonast er til aö bifreiöastjórar
á Hreyfli fjölmenni meö konur og
börn.