Þjóðviljinn - 02.12.1978, Page 9

Þjóðviljinn - 02.12.1978, Page 9
Laugardagur 2. desember 1978 ÞJÓÐVILJINN — SIDA 9 Gunnar M. Magnúss Framhald af 8. siðu. oni þriöjaklassa hoff á danskri krá? Svar: Bdkin um þann fátæka alþýöumann Magnús Hj. Magnússon, „Skáldiö á Þröm”^ höfundur Gunnar M. Magnúss. Vel má vera aö höfundarferill Gunnars rísi hæst á „Skáldinu á Þröm”, þvi aö þar njóta sin hvaö bezt þeir tveir þættir sem einkenna hann sem höfund: samvizkusamleg meðferö heimilda og rik mannleg hlýja. Þó má ekki láta sérstakt umfjöll- unarefni þeirrar einu bókar villa sér sýn, skyggja á önnur hans beztu verk svoþaugleymist.enda varla hægt. Hvaö mig snertir persónulega þykir mér vænst um Gunnar fyrir barna- og unglingabækur hans. Þaö var ekki litil gleöi i þvi fólgin aö vera á kórréttum aldri þegar manni voruréttar upp i hendurn- ar I frumútgáfu sögur eins og „Börnin frá Viöigeröi” og „Viö skulum halda á Skaga”, aö ógleymdri „Suöur heiöar”. Éger ekki viss um, aö ég geri mér þaö ennþá fýllilega ljóst hve mikil og örlagarik áhrif þetta haföi á mig-, um skeiö voru hann og Ólafur Jóhann minir guöir. Ég geröi m.a.s. tilraun til aö koma á blaö samskonar sögum úr umhverfi reykviskra barna. Þaö gat ég þó ekki meö árangri. Þótt ég t.d. uppliföi þaö aö sjá litrika flandr- ara fara um Hverfisgötu meö þvott sinn inn I Laugar, þá uröu skrif min aldrei barn I brók og ekkiþessvirðiaö ég reyndi aö ota þeim á prent. Siöan komu þau ár, aö ég hætti um sinn aö lesa bækur Gunnars og þóttist vaxinn upp úr þeim. En hvenær ve’x maöur upp úr góöri bók? örugglega ekki þegar maöur þykist ljúka viö aö lesa hana. Þá fyrst fer hún aö grasséra. Ekki spillti þaö gleöi minni yfir barnabókum Gunnars aö hann var kennari i skólanum mínum, þeim sem enn er kenndur viö Austurbæ, og ég haföi hann fyrir augum daglega; hann var þá aö minum dómi rithöfundurinn — meö greini. Hann var þó ekki kennari minn fyrr en siöasta veturinn og þá aðeins aö nokkru leyti, I 13 ára bekk; þá kenndi hann okkur heilsufræöi. Og þótt þeirri námsgrein væri ekki gert ýkjahátt undir höföi, ein stund á viku, þá tókégmigtilum voriö og hreinritaöi eins vel ég ég gat allt þaö sem hann haföi látiö okkur skrá i timum, myndskreytti þaö eftir því sem geta mln leyföi, samannjarfaöi ieitthvaö sem átti aö heita band, gekk á fund hans og afhenti honum — ekki fyrst og fremst sem kennara, heldur i þakklætisskyni fyrir bækurnar hans, þótt ég segöi þar ekki orö um. Segja má aö Gunnar hafi nokkra sérstööu meöal íslenzkra höfunda. Þegar á er litiö hefur hann ekki aöeins komiö viö 1 öllum tjáningargreinum ritaös máls, heldur hefur hann skrifaö fyrir alla aldurshópa,frá börnum til gamalmenna, fólk lír öllum starfsgreinum; og þaö sem eftir hann liggur er jafnmikils viröi fyrir manninn hvar sem hann er i stjórnmálabás. Þeir sem kunna aö vera fyrirfiram á móti honum út af pólitik hljóta fyrr eöa slöar aö viöurkenna heiöarleik hans hvaö sem liöur flokkaskiptingu, ef þeir á annaö borö lesa hann meö fersku og hlutlægu hugar- fari. Þaö ritverk Gunnars sem mig grunar aö muni lifa hvaö lengst er e.t.v. bezt dæmi um þetta. Þar á ég viö þau þr jú bindi sem út komu á árunum 1947—’50 undir nafninu „Virkiö í noröri”. Svo ég leyfi mér aö kalla þetta þriggja binda verk eina bók, þá vil ég fullyrða aö súsamantekt vpröi þeim mun dýrmætari komandi kynslóöum sem lengra liöur. Gunnar haföi sans fyrir þvi aö hamra járniö á meöan heittvar. Ég minnist þess þegar hann kom inn á Alþýðublaö'S-ritstjórnina, þar sem ég vann þá, og var aö fletta þvi blaði frá nýliönum strlösár- um, hversu þolinmóður og þaulsætinnhann var i leit sinni aö smáatriöum. Manni getur orðiö aö spurn: Hvers vegna varö þessi maöur ekki sagnfræöingur? En þá kemur lika önnur spurn: Ef hann hefði verið heftur af þeim ósköpum aö bera offisielan stimpil sagnfræöings, hefði þá ekki oröiö einhvers misst? 1 ár á Gunnar M. Magnúss tvöfalt afmæli; hann er áttræöur aö, aldri, og hálf öld er liöin siöan út kom hans fyrsta bók. Stöan hefur hann sent frá sér að meðal- tali eina bók árlega, þannig aö fjöldi bóka hans fyllir fimm tugi, og rúmlega þó. Ég hef nefnt aö hann hafi boriö við aö skrifa I öllum tjáningar- greinum bókmennta. Þetta hefur honum aö visu falliö misjafnlega vel, sem von er, og enginn væri fúsari til aö viðurkenna það en hannsjálfur. Af leikritun hans vil ég áöur en ég lýk þessu nefna eitt, „1 Múrnum”, þó ekki væri nema sökum þess að það er að mlnu mati eitthvert bezta framlag islenzka sjónvarpsins á þvi sviði hingaðtil, bæði frá höfundar hendi og þeirra sem fiuttu þaö. Þegar ég átti oröaskipti viö Gunnar rétt nýlega, þá vék ég aöeins aö þvi hvernig honum hefði látiö aö yrkja ljóö. Hann hló viö. Hann sagðist vita aö hann væri lltið ljóðskáld og það sem hann heföi gert á þvl sviöi væri beztóbirt. — En þá hvarflaði hug- ur minn einu sinni aftur til bernsku minnar, til þeirra ára þegar viö krakkarnir vorum I söngtimum I Austurbæjarskólan- um hjá Börum -ágætum Vestfiröingi, organistanum Páli Halldórssyni, og sungum. Ég blö eftir vori i brekkunni minni, þvl bærinn er lltill og þröngt finnst mér inni. A sólgeislavængjum úr suörænni hlýju er sumariökomið ogheilsar aönýju viö norskt lag, mig minnir eftir Sinding. Þetta finnst mér enn gott ljóö, og þetta orti Gunnar. Það var á þeim margsmáöu peninga- kreppuárum, sem enginn Islend- ingur skyldi smá, þvi aðþau voru ekki andleg kreppuár. Þaö var löngu áöur en viö höföum eignazt barnasálminn hugljúfa „Ryksug- an á fullu/ étur alla drullu”. Það var á þeim tima er þráin til is- lenzkra fjalla seiddi sterkar en sá beat-hoven sem nú á dögum spill- ir íslenzku þjóöfélagi með sinum villta gróöri I tlma og ótima i formi áleitins og vartumflýjan- legs diskóteks einsog geösjúkur róbót sem hefur veriö mataöur meö einni hrynjandi; án tóns. Sá maður sem hefur snert viö hjörtum okkar sem börnum og fullorönum, hann á allar þakkir skiliö, hvort sem verk hans eru undir formerkjum sagnfræöi eða skáldskapar, og jafnvel þótt tár okkar hrynji — ef svo ber undir — niörl danskan bjór. ^ Elias Mar - Helgi Seljan. Frumvarp til laga flutt af Helga Seljan: Um sölu lausa- fjármuna Sérstök áhersla á bílaviöskipti Mikil umræða hefur ' verið undanfarið um sviksemi í bílaviðskipt- um. Það er því ekki að ófyrirsynju sem Helgi Seljan hefur endurflutt frumvarp sitt frá síð- asta þingi um sölu not- aðra lausaf jármuna. Frumvarpið sem samið er af Arnmundi Backmann lögfræðingi meö hliðsjón af þeim reglum sem gilda i Noregi, var fyrst flutt á siðasta þingi en varð þá ekki út- rætt. Er það sérstaklega viö þaö miöaö að koma einhverjum lög- um yfir óprúttna bilasala og er vert aö geta þess aö „raösölur” sem nú eru algengasti mátinn til bllasvindls veröa illframkvæm- anlegar ef þetta frumvarp verður samþykkt. Fyrir þinginu liggur einnig tillaga til þingsályktunar um sölu notaðra bifreiöa flutt af Alþýöuflokksmönnum og hefur þeim trúlega ekki veriö kunnugt um þetta.lagafrumvarp. 1 nefndarmeöferö sem frum- varpið hlaut I fyrra kom I ljós andstaöa Verslunarráös tslands gegn þvi. Taldi Verslunarráöið allt vera I stakasta lagi i bilavið- skiptum. ~ s8t* SHt vill þjóðar- atkvæoa- greiöslu um herinn Stúdentaráö geröi á fundi sinum 23. nóvember s.l. svofelida samþykkt: SHl fagnar þeirri samþykkt Samtaka Herstöðvaandstæðinga,, þar sem hvatt er til þjóðarat- kvæöagreiöslu um-.herinn og veru tslands I Natój og styður hana heiishugar. Bendir SHt á aö þjóö- in hefur aldrei veriö spurö um fyrngreind mál og aö afstaða manr.a til þeirra er engan veginn alltaf á sömu lund og opinber af- staða þeirra flokka er þeir kjósa i þingkosningum. Þvi fagnar SHt þeirri baráttu sem nú er hafin fyrir þjóðarat- kvæöagreiöslu um herinn og veru tslands i Nató. r Arétting Gunnlaugur Stefánsson kom aö máli við þingfréttaritara Þjóö- viljans og vildi koma á framfæri örlitilli athugasemd viö frásögn- ina I gær af umræöum um biölaun Alþingismanna. Vildi Gunnlaug- ur aö þá kæmi skýrt fram að hans skoöun sé sú aö biðlaun veröi ekki greidd til þingmanna nema kjör- timabil sé styttra en fjögur ár. Leiðréttist þetta hér meö. — sgt. Uppeldisfulltrúi óskast til starfa við meðférðarheimilið að Kleifarvegi 15. Nánari upplýsingar eru veittar i sima 82615. Umsóknir sendist fræðsluskrifstofu Reykjavikur, Tjarnargötu 12 fyrir 8. des- ember n.k. Fræðslustjóri 32 síður Efni m.a. LÁKI lí.w.wm.Ái) llitslj.iri: Pélnr Jakobsson Klmtuilus II). jínii. í Sjömeistarasögunni segir Halldór Laxness frá blaðinu LÁKI, sem hann og Tómas Guðmundsson gáfu út 1919. Sunnudagsblað Þjóðviljans gróf upp þetta merkisrit Að vera Filippía en heita Hugrún” Olafur Jónsson vitavörður skrifár viðskiptaráðherra. í helgarviðtali segir Gunnar M. Magnússon frá æsku sinni, orðabókinni um veðrið, doktors* ritgerðinni um Drottin og mörgu fleira. • Smásaga eftir Böövar Guðmundsson í Bókmenntakynningu. • Árni Bergmann skrifar um nýútkomna bók Ólafs Hauks Simonarsonar • Helgi Ólafsson skrifar um skákir i Argentinumótinu • Kvikmyndaskóli Þjóðviljans • Kinverjar skrifa um Mikka Mús • Fingrarim — poppþáttur

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.