Þjóðviljinn - 23.12.1978, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 23.12.1978, Blaðsíða 4
4 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN 'Laugardagur 23. desember 1978 DHMIUINN Málgagn sósíalisma, verkalýðs- hreyfingar og þjóðfrelsis Útgefandi: Útgáfufélag Þjóöviljans Framkvœmdastjóri: EiCiur Bergmann Ritstjórar: Arni Bergmann, Einar Karl Haraldsson. Fréttastjóri: Vilborg Haróardóttir Rekstrarstjórl: Clfar Þormóbsson Auglýsingastjóri: Gunnar Steinn Pálsson. Afgreióslustjóri: Filip W. Franksson Blaðamenn: Alfheiður Ingadóttir, Einar Orn Stefánsson, Erla Sig- urðardóttir, Guðjón Friðriksson, Ingibjörg Haraldsdóttir, Ingólfur Margeirsson. MagnUs H. Glslason, Sigurdór Sigurdórsson. lþrótta- fréttamaður: Ingólfur Hannesson Þingfréttamaður: Sigurður G. Tómasson Ljósmyndir: Einar Karlsson, Leifur Rögnvaldsson. útlit og hönnun: Guðjón Sveinbjörnsson. Sævar Guðbjörnsson. Handrita-og prófarkalestur, Blaðaprentsvakt: Andrea Jónsdóttir, Elias Mar, óskar Albertsson. Safnvörður’ Eyjólfur Arnason. Auglýsingar: RUnar Skarphéðinsson, Sigrlður Hanna Sigurbjörnsdóttjir. Skrifstofa: GuðrUn Guðvarðardóttir, Jón Asgeir Sigurðsson. Afgreiðsla: Guðmundur Steinsson. Kristln Pétursdóttir. Slmavarsla: Olöf Halldórsdóttir, Sigrlður Kristjánsdóttir. Bllstjóri: SigrUn-Bárðardóttir. Húsmóöir: Jóna Siguröardóttir. Pökkun: Anney B. Sveinsdóttir, Halla Pálsdóttir, Karen Jónsdóttir. útkeyrsla: Sölvi Magnússon, Rafn Guðmundsson. Ritstjórn, afgreiðsla og auglýslngar: SfðumUla 6. Reykjavik, slmi 81333 Prentun: Blaöaprent h.f. Frumkvœði sósíalista • I þeirri lotu sem nú hefur staðið í sambandi við ráð- stafanir í kjara- og efnahagsmálum 1. desember og af- greiðslu fjárlaga hefur Alþýðubandalagið lagt höfuðá- herslu á að myndarlega yrði staðið við bau fvrirheit ríkisstjórnarinnar að koma fram félagslegum umbótum til handa launafólki. Komið hefur fram að atvinnurek- endur meta félagsmálapakka þann sem ASI lagði fyrir ríkisstjórnina ekki sem 3% í kaupi, heldur sem 5 til 6%. • Nauðsynlegt er að átta sig á því,að hefði ekki frum- kvæði Alþýðubandalagsins og forystumanna sósíalista í verkalýðshreyfingunni verið til að dreifa, hefði ekkert þessara félagslegu réttindamála nú verið lögfest eða lagt fram í frumvarpsformi á borð þingmanna. Sú vinna sem lögð var í það af hálf u Alþýðubandalagsins að móta lausnina 1. desember og fylgja henni fram réð úr- slitum. • Eins og minnt hefur verið á í Þjóðviljanum varð lausn Alþýðubandalagsins þyngst á metunum fyrir 1. desember vegna þess að hún var þrautrædd innan flokksins, á samráðsfundum ráðherra og stjórnar verkalýðsmálaráðs flokksins, á fundum framkvæmda- stjórnar, á ársfundi verkalýðsmálaráðs og loks á f jöl- mennum flokksstjórnarfundi. Hún var svona þung á metunum vegna þess að hún var sniðin að þeim hug- myndum sem njóta öruggs meirihlutafylgis innan verkalýðshreyf ingarinnar í heild. • Alþýðubandalagið lét ekki þar við sitja að gefa þoku- kenndar yfirlýsingar um félagslegar úrbætur, heldur voru á vegum stjórnar verkalýðsmálaráðs og annarra stofnana f lokksins, svo og fyrir tilstilli tilkvaddra kunn- áttumanna úr röðum sósíalista, útbúin í smáatriðum f rumvörp um margskonar réttindabætur. Þessi forvinna kom stofnunum innan ASI og sjómannasamtakanna til góða þegar þær tóku ákvarðanir um hvaða f élagsleg at- riði skyldi leggja áherslu á að ríkisstjórnin kæmi í fram- kvæmd. AAenn mega nefna þetta pólitíska misbeitingu á verkalýðshreyfingunni ef þeir vilja,en hér verða þessi vinnubrögð talin órækt vitni um skilning sósíalista á samtvinnun pólitískrar og faglegrar kjarabaráttu og þekkingu þeirra á vilja og réttlætisvitund samtaka launaf ólks. í þeirri miklu tímapressu sem rak á eftir öll- um aðgerðum var hér á skömmum tíma unnið merkt starf sem ríkisstjórnin í heild á eftir að fá þakkir fyrir og launafólk að njóta góðs af. Sandkassi kratanna • „Ég tel þessar tillögur vera hneyksli. Þær eru talandi dæmi um það fyrir alþjóð, hvað við höfum mátt búa við, sem eigum að starfa með þessum flokki. Þarna eru krakkar í sandkassaleik, en ekki kratar í stjórnmálabar- áttu", sagði Svavar Gestsson, viðskiptaráðherra, í við- tali við eitt dagblaðann í tilefni af tillögum nokkurra Al- þýðuflokksmanna um hækkun skattvísitölu og niður- skurðá landbúnaðarframlögum við lokaafgreiðslu fjár- laga eftir að Benedikt Gröndal hafði lýst yf ir því, að samkomulag væri milli stjórnarf lokkanna um afgreiðslu f járlaganna. • Fyrirvarastríð nýkratanna hefur markast af þeirri* sannfæringu f jölmiðlamannanna í þingflokknum að há- vaðinn sé það eina sem nær eyrum fólks og innihaldið fari f yrir of an garð og neðan. Það byggist á þeirri kunnu kenningu f jölmiðlafræðingsins AAcLuhan að miðillinn sé boðskapurinn. Þegartil lengdar lætur mun þetta vanmat á skynugri og vel læsri þjóð koma Alþýðuflokknum í heild í koll. • Sósíalistar hafa fyrir löngu gert sér grein fyrir,að því eru takmörk sett hvað hægt er að ganga langt í niður- greiðslu verðlags og millifærslum. Á flokksstjórnar- fundi Alþýðubandalagsins í nóvember var lögð meginá- hersla á að móta þyrfti samræmda heildarstefnu í efna- hagsmálum í samráði við verkalýðshreyfinguna og vinna á verðbólgunni í markvissum áföngum. í þeim þrettán atriðum sem f lokksstjórnarf undurinn samþykkti að leggja til grundvallar við slíka stef numót- un stendur það uppúr að tryggja verður f ulla atvinnu, ó- breyttan kaupmátttil skamms tíma og bætt Iffskjör þeg- ar lengra er litið, stuðning við íslenska atvinnuvegi og fulltsamráð við verkalýðshreyf inguna um efnahagsráð- stafanir. Frá, þessum meginmarkmiðum verður ekki hvikað,hvernig sem nýkratar hamast í sandkassanum. —ekh istsegja i þingsölum: „Þaö þarf vara geta kratar ekki sveiflaö aö rétta Benedikt spotta, hann Taugastríð gegn sjálfum sér Stjórnmálabaráttá Alþýöu- flokksins hefur vakliö fjölmiöla- athygli á siöustu vikum eins og sést á fyrirsagnasúpunni úr Morgunblaöinu, Visi og Dag- blaöinu sem fylgir klippinu i dag. Hver fyrirvarinn hefur veriö settur af öörum af þing- flokki og flokksstjórn Alþýöu- fbkksins og jafnharöan hafa þeir veriö teknir aftur og settir nýir. Arangurinn af þessu taugastriöi sem mest hefur fengiö á kratana sjálfa er sára- litill. Fjárlögin eru I megin- dráttum I þeim búningi sem stjórnarflokkarnir hafa stefnt aö á undanförnum vikum. Hins- vegar hafa kratarnir á hverju stigi tafiö framgang mála meö- an Alþýöubandalagiö og Fram- sóknarflokkurinn hafa þurft aö veita ráöherrum Alþýöuflokks- ins og þeim hluta flokksins sem vill viöhafa almennar sam- skiptareglur i stjórnarsamstarfi dygga aöstoö til þess aö ráöa viö sandkassafólkiö I flokknum. Benedikt þurfti spotta.... Siöasta atriöiö i skripaleikþætti kratanna fór fram viö þriöju umræöu fjárlagá eftir aö flokks- stjórnin og Benedikt Gröndal formaöur flokksins höföu lýst þvi yfir aö Alþýöuflokkurinn stæöi aö fjárlagafrumvarpinu i lokagerö þess eins og þaö lá fy r- ir i upphafi þriöju umræöu. Þá fluttu Arni Gunnarsson, Jó- hanna Siguröardóttir, Eiöur Guönason, Bragi Nielsson, Agúst Einarsson, Ólafur Björnsson, Finnur Torfi Stefáns son, Vilmundur Gylfason og Gunnlaugur Stefánsson enn breytingartillögu viö frumvarp- iö og nú átti aö skera niöur i landbúnaöarf ramlögum um einn og hálfan miljarö og hækka skattvisitöluna úr 1501 151 stig. Ekki olli upphlaupiö tiltakan- legri taugaspennu i stjórnarliö- inu, enda menn orönir ýmsu vanir. En Páll Pétursson heyrö- veröur aö vera stuttur, og hann má vera fúinn.” ..og hann var stuttur... Og þaö stóö ekki á spottanum frá Ólafi Jóhannessyni. „I janú- ar munu veröa kannaöar fram- komnar tillögur Alþýöuflokks- ins um jafnvægisstefnu i efna- hagsmálum, svo og tillögur hinna samstarfsflokkanna um efnahagsmál sem fram hafa komiö eöa fram kunna aö koma.” Ólafur sagöi einnig aö nefnd ráöherra mundi leggja frumvarp um efnahagsstefnu til tveggja ára fram i rikisstjórn- inni fyrir 1. febrúar eins og kratar hafa krafist. 1 þennan stutta spotta tókst Benedikt aö sameina flokk sinn um aö taka. En þaö er ekki meira hald i honum en öörum spottum sem krötum hafa veriö réttir til þess aö sveifla þeim yfir fyrirvara sina og úrslita- kosti. ólafur Jóhannesson gerir sér nefnilega fullljóst aö stjórn hans eru sett takmörk og þröng- ar skoröur. Samstarfiö og sam- ráöiö viö verkalýöshreyfinguna er hornsteinn stjórnarsam- starfsins og framhjá þeim fyrir- sér nema i spotta frá Sjálfstæö- isflokknum. ..og gæti verið fúinn... Þeir ættu þvi aö hugsa til þess alvarlega aö renna 1. febrúar fyrirvara sinum og úrslitakosti niöur meö jólaölinu, I staö þess aö þurfa aö gleypa hann meö trosinu i lok januar. Stjórnar- vixilinn hljóta þeir hvort eö er aö þurfa aö framlengja fram á vor.því fyrr vill ekki Sjálfstæö- isflokkurinn taka viö þeim. Þvi ) ekki aö framlengja i sex mánuöi i senatil þess aö menn komist I almennileg verk frá öllu fyrir- varaþrasinu. Ef fyrirvarinn veröur enn upp á teningnum eftir jólafriöinn ætti Páll Pétursson endilega aö veröa sér út um '..farandpólitik- us”tii þess aö semja frumvarp þaö sem hann hefur I Timanum boöaö aö hann hyggist flytja á Alþingi „um jafnvægis'stefnu í andlegum efnum og samræmd- ar aögeröir gegn sýndar- mennsku”. Fyrst þurfa krat- arnir aö ná sllku jafnvægi áöur en nokkurt vit veröur i efna- hagsjafnvægi þeirra. —ekh.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.