Þjóðviljinn - 23.12.1978, Blaðsíða 14

Þjóðviljinn - 23.12.1978, Blaðsíða 14
14 SIÐA— ÞJÓÐV 'LJINN Laugardagur 23. desember 1978 TIZKUBLAÐ Fœst i nœstu bókaverslun eða blaðsölustað Vilhelmsson. sendiherrafrú? 3ður fyrir háfíðirnar. Öll fyrri tölublöð uppseld Þau eru tvö nýjustu blöðin sem nú eru komin út at Tíxkublaðinu Líf Hamrahli&arkórinn á æfingu. Hamrahlídarkórmn gefur út jólaplötu Kór Menntaskólans viö Hamrahliö hefur gefiö út hljóm- plötuna Ljós og hljómar. Á henni syngur kórinn jólalög og helgi- söngva undir stjórn Þorgeröar Ingólfsdóttur. Höröur Askelsson leikur á orgel. Ljós og hljómar hefur aö geyma 21 lag, þaraf 8 eftir J.S. Bach. Platan dregur nafn sitt af samnefndu tónverki sem Þorkell Sigurbjörnsson samdi fyrir kór- inn áriö 1976. Þorkell á lika annaö lag á plötunni: Heyr himna smiö- ur. önnur lög á plötunni eru frá ýmsum löndum og timum. Vér lyftum hug I hæöirnefnist ljóö eft- ir Böövar Guömundsson viö lag eftir Bach, en ljóöiö orti Böövar fyrir kórinn 1970. Hamrahliöarkórinn er löngu landsþekktur og meira en þaö. Hann hefur starfaö slöan 1967 og hefur Þorgeröur Ingólfsdóttir stjórnaö honum frá upphafi. Allir korfélagar eru nemendur I MH og á hverju ári verða miklar breytingar á kórnum vegna þess aðkórfélagar ljúka námi viö skól- ann en nýir taka viö. Ljós og hljómar er fyrsta hljómplatan sem kórinn sendir frá sér. Hún er gefin út i 3000 ein- tökum og kostar kr. 5980.- út úr búö. íslenskir skákmenn á faraldsfæti um jólin Alls munu um 30 íslenskir skákmenn keppa erlendis um Ekki veröur sagt, aö islenskir skákmenn liggi Ileti nú yfir hátfö- arnar, þvi aö alis munu um 30 skákmenntaka þátt i skákmótum viösvegar um heim. Evrópumeistaramót unglinga (undir20 ára) fer fram IGröning- en, IHoilandi, dagana 21/12 til 5/1 og teflir Margeir Pétursson, alþjóölegur meistari, þar af Islands hálfu. Þátttakendur eru 28 frá jafnmörgum löndum og veröa tefldar 13 umferöir eftir monradkerfi. Skæöustu keppend- urnir eru fyrirfram taldir þeir: Dolmatov, frá Sovétrlkjunum, núverandi heimsmeistari ungl- inga, Margeir Pétursson, og Englendingurinn Plaskett. Alþjóölega jólaskákmótiö I Prag, Tékkóslóvakiu. t Prag fer fram alþjóölegt skákmót dagana 26/12 — 7/1. Þar mun Jón L. Arnason, heims- meistari sveina og Fide-meistari, taka þátt. Veröa þátttakendur alls 14 og tefla allir viö alla. Til þessmóts er fyrst og fremst boöið upprennandi skákmönnum frá ýmsum austur-Evrópulöndum, en mótiö er réttindamót aö alþjóölegum titli. Jón L. hefur þegar náö fyrri hluta alþjóölegs titils og stefnir nú aö þviaönásiöari áfanganum. Astoria-mótiö I Hamar. Aö loknum mótunum I Tékkóslóvakiu og Hollandi munu þeir Jón L. Arnason og Margeir Pétursson halda til Noregs, þar hátíöarnar sem þeim hefur boöist þátttaka I alþjóðlegu móti i Hamar, á Hótel Astorla, dagana 9/1 — 17/1 1979. Verða þar tefldar 9 umferðir Monrad. og er mðtiö réttindamót aö bæöi stórmeistara- og alþjóö legum titli. Framhald á bls. 22 Hundrað og tuttugu úrvalsstökur (Jt er komin hjá Almenna bókafélaginu bók meö 120 úr- valsstökum völdum af Kára Tryggvasyni rithöfundi. Ber hún titilinn Vlsan — úrvals- stökur eftir 120 höfunda. Veljandinn segir m.a. i formála fyrir bókinni: „Efni þessarar bókar er örlitiö sýnishorn af Islenzkri visnagerö frá ýmsum tim- um. Visurnar eru valdar meö þaö fyrir augum, aö hver þeirra sem er geti staö- iö ein sér, án heimilda eða skýringa, á sama hátt og kvæöi I bókum höfunda.” Vlsan er papplrskilja I gylltum spjöldum og litlu broti. Ein vísa er á hverri siöu. Bókin er unnin hjá Guö- jóni O.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.