Þjóðviljinn - 23.12.1978, Síða 11
Laugardagur 23. desember 1978!ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 11
Atvinnuleysis að
vænta í byggingar-
1 O FfellTH spáir Landssamband
lUIldlUllIUIlI iðnaðarmanna
Landssamband iðnaöarimanna
óttast að atvinnuleysi sé fram-
undan i byggingariðnaði á
fyrstu mánuöum næsta árs,
einkum á höfuðborgarsvæðinu.
Geysileg fækkun hefur orðið á
starfsmannafjöida I greininni
að undanförnu.
Þetta kemur fram i fréttatil-
kynningu frá Landssambandinu
og byggist á ársf jórðungslegri
könnun þess á byggingastarf-
semi i landinu.
Arsstörf i byggingariðnaði ár-
ið 1977 voru alls 7185 eða 677
færri en 1976 og var fækkunin
mest hjá verktökum. 1 lok 2.
ársfjóröungs þessa árs var
starfsmannafjöldi i byggingar-
iðnaði samtals 8.880, en haföi I
lok september fækkað i 7.337 eða
um47.4%. Að visu kemur skóla-
fólk þarna að nokkru inn I dæm-
ið, en f jöldi á þessum tima árs á
þó aö vera yfir meöaltali ársins.
Segir um þessar niðurstöður i
frétt Landssambandsins:
Af þessu má draga þá ályktun
að ársstörfum i byggingariðnaði
muni enn fækka á þessu ári.
Heildar framleiösla I bygg-
ingariðnaði er þó samkvæmt
niðurstöðum könnunarinnar
nær óbreytt á 3. ársfj-. þessa árs
miðaðvið sama tima i fyrra eöa
0.4% samdráttur að magni til.
Horfurnar framundan eru
hins vegar mjög dökkar, en i lok
september bjuggust fyrirtæki
með 59.1% mannaflans við sam-
drætti i starfsemi framundan,
en aðeins 6.3% buggust við
aukningu.
Má alvarlega óttast, að at-
vinnuleysi sé framundan i bygg-
ingariðnaði á fyrstu mánuðum
næsta árs, einkum á höfuðborg-
arsvæðinu, ef marka má niður-
stöður könnunarinnar.
m
I
■
I
■
I
■
I
■
I
i
■
I
■
I
■
I
■
I
■
I
■
I
■
I
■
I
■
I
Deilt um aðstöðugjöld
í borgarstjórn
Ólafur B. Thors er hræddur um
forstjórastöðuna sína
Á fundi borgarstjórnar s.l.
fimmtudag var samþykkt að nýta
lögleyföan gjaldstiga aðstööu-
gjalda til fulls og nemur hækkun
tekna borgarinnar vegna þeirrar
ákvöröunar 757 miljónum króna'.
,Vinnan’
komin
út
Timaritiö „Vinnan”, mál-
gagn Alþýöusambands ts-
lands, 6. hefti er ný-komiö út.
Aö vanda er blaöiö hiö fjöl-
breyttasta aö efni og vandað
i öllum frágangi. Bitstjóri
blaösins er Haukur Már
Haraldsson.
Aö þessu sinni er blaöiö 44
siður og efni þess:
Það er kaupmátturinn sem
gildir
Staldrað við I Eyjafirði
Viðtöl viö verkafólk á Akur-
eyri, Ólafsfirði, Dalvik,
Grenivik og i Hrisey
Fólk verður aö læra á
skrokkinn, ekki siður en
heimilistækin sem það kaup-
ir sér. Rætt viö Heiðrúnu
Steingrímsdóttur, fulltrúa
ASI I Endurhæfingarráöi
rikisins.
Kjaraskeröing sjómanna er
14%. Viðtal við Óskar Vig-
fússon, formann Sjómanna-
sambands tslands
1. önn F i ölfusborgum
Góðum gestum boöið heim
Maöurinn gullið þrátt fyrir
allt. Arsíundur MFA i Svi-
þjóö
Húsmæður eru fjölmennast-
ar. Viðtal við 'Birnu Bjarna-
dóttur, -skólastjóra Bréfa-
skólans.
Verslunarmenn taka sínar
ákvarðanir sjálfir Rætt viö
Björn Þórhallsson, formann
LtV
Nýtt fræðslurit frá MFA
íslensk iðnkynning
Kári Kristjánsson formaður
NFA
Félag bifreiðasmiða 40 ára
Athugasemd vegna viðtals
Vörubifreiðastjórar þinga
8. þing SBM
Jón Hjartarson verðlaunað-
ur fyrir leikþátt.
Alls nema aöstööugjöld á næsta
ári 1773 miljónum króna og vega
16.4% af I heildartekjum borgar-
innar.
Borgarfulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins börðust harkalega gegn
hlutfallslegri hækkun aðstöðu-
gjaldanna og var röksemda-
færsla þeirra mjög fjölskrúðug.
Hún einkenndist þó öðru fremur
af þvi að hér væri um mjög órétt-
látan skatt að ræða, sem legðist á
útgjöld fyrirtækja án tillits til af-
komu þeirra, en aðstööugjald er
brúttdskattur á heildartilkostnað
við rekstur fyrirtækja sem kunn-
ugt er.
Spáðu borgarfulltrúarnir þvi að
atvinnulíf i höfuðborginni myndi
leggjast i rúst vegna þessara að-
geröa, sem bættust við óréttlátar
aðgerðir rikisstjórnarinnar, og
töldu að hækkunin yrði til þess að
hækka verulega verð á nauð-
synjavörum almennings I borg-
inni.
A eftir Birgi tsl. Gunnarssyni,
sem lagöi fram bókun Sjálfstæð-
isflokksins I þessu máli tók til
máls ólafur B. Thors forstjóri Al-
mennra trygginga. öttaöist hann
mjög um atvinnumöguleika sina I
framtiðinni þar sem sýnt væri að
leggja þyrfti Almennar trygging-
ar niður vegna aögerða vinstri
stjórnarinnar I borgarstjórn
Reykjavikur.
Ólafur sagði: Klukkan 9.45
þann 16, mars 1978bilaði stýrisút-
búnaður griska olíuflutninga-
skipsins Amago Catis á Atlants-
hafi og hraktist skipiö allan dag-
inn fyrir veöri og vindum, uns það
skall aö ströndum Bretagne-skag-
ans kl. 23.22 um kvöldiö. Ég veit
ekki hvað skipstjóri þessa mikla
skips var aö hugsa allan þennan
langa marsdag. Kannski hefur
hann verið aö hugsa um að dagar
skipsins væru senn taldir, —
kannski hefur hann verið að
hugsa um að nú yrði eitt mesta
sjóslys sögunnar, kannski hefur
hann veriö að hugsa um hinn dýr-
mæta farm skipsins eöa fuglana
sem lentu I oliunni, þegar hún
flaut út I sjóinn. Kannski hefur
hann veriö aö hugsa um þá rösk-
un sem yrði á lifi og högum fólks-
ins við strendurnar. Ég er þó viss
um að hann hefur ekki gert sér
grein fyrir þvl að þetta ólán varö
til þess að fjárhagur Reykjavik-
urborgar mun vænkast á næsta
ári um 185.259 krónur, en kannski
hefði sú tilhugsun glatt hann, og
þar sem langan tima tekur aö
gera upp slikt tjón mun þessi upp-
hæö aukast verulega á næstu ár:
ólafur B. Thors: Hræddur um
stööuna. __
Sama máli gegnir um fárviðrið
sem gekk yfir Holland, Belgiu, og
Þýskaland 2. — 4. janúar 1976.
Þaö skilar Reykjavikurborg i
tekjum á næsta ári 983.986 krón-
um.
Tengslin milli þessarar sögu og
þess sem nú er verið að ræða hér i
borgarstjórn eru augljós. Borgin
skattleggur tjónabætur endur-
tryggingafélaga með sðstöðu-
gjaldi, og þegar slik slys veröa úti
1 heimi taka tryggingafélögin
uppi á Islandi þátt 1 greiöslu
tjónabóta. Mér kemur þetta I hug
vegna þess að hækkun aðstöðu-
gjalda úr 0,5% I 1,30% á endur-
tryggingastarfsemi hækkar tekj-
ur borgarinnar um 83,4 miljónir
króna og tekjur borgarinnar af
annarri vátryggingastarfsemi
hækka með auknu aðstöðu-
gjaldahlutfalli um 40,3 miljónir til
viðbótar. Þetta er fáránlegur
skattstofn, og ég efast um að slik-
ur gjaldstofn eigi sér stað nokk-
urs staðar I heiminum nema hér.
Nú greinir menn kannski á um
nauösyn tryggingastarfsemi, en
hún veitir m.a. nokkrum einstakl-
Framhald á 18
Gerist
áskrifendur!
L.YSTR/ENIIMGIIMIM ^
r
Askriftarverð fyrir
fjögur hefti kr. 3.000.
□ Ég undirritaður óska að gerast áskrifandi
að Lystræningjanum. Verð fyrir 4 hefti kr.
3.000.-
Óska eftir að kaupa þessar bækur:
Börn geta alltaf sofið eftir Jannick Storm
i þýðingu Vernharðs Linnets. Kr. 3.500.-
□
| j Skáld-Rósa eftir Birgi Sigurðsson. Kr.
□
3.000.-
Vindurinn hvilist aldrei eftir Jón frá
Pálmholti. Tölusett og árituð. Verð kr.
2.500.-
□ Stækkunargler undir smásjá eftir Jónas
E. Svafár. Tölusett og árituð. Verð kr.\
2.500.-
Lystrænmgiiui
Simar 25753 og 71010. Box 104 815 — Þorláks-
höfn.
Dregið hefur verið í jóladagatala*
happdrætti Kiwanisklúbbsins Heklu
fyrir timabilið 16.-24. desember hjá borg-
arfógeta og upp komu þessi númer:
0417, 1598, 1752, 1108, 0709, 0500, 0430, 1516,
og 1783.
Kiwanis-klúbburinn Hekla Reykjavík
Olafur Jóhann Sigurðsson
áritar bók sína,
Virki og vötn,
/ dag,
Þorláksmessu,
í Bókabáö Máls
og menningar
milli kl. 4 og 6.
MÁL OG MENNING